Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
27
Helgarblað
Hann var seinhepp-
inn, Rússinn sem
faldi sig í hjólhúsi
hollenskrar þotu frá
KLM sem var á leið
frá Moskvu til
Amsterdam. Laum-
farþeginn króknaði
úr kulda á leiðinni og
Uk hans féll til jarðar
í skurð skammt frá
flugvellinum í
Amsterdam. Við
rannsókn kom í Ijós
að annar laumufar-
þegi, látinn úr kulda,
leyndist í
hjólhúsinu.
Talið er að þetta hafi gerst í Ástr-
alíu fyrir nokkrum árum þegar ein-
hver risavaxinn hlutur féll til jarð-
ar og myndaði stóran gíg sem var á
stærð við fótboltavöll.
Hvar er hjólið?
I ágúst í sumar losnaði hægra
hjólið undan flugvél frá Blue
Panorama Airlines og flugvélin
varð að nauðlenda í Róm. Likt atvik
henti í Los Angeles í mars þegar
hægra nefhjólið losnaði af vél frá
American Airlines. Tvö hjól eru á
nefstellinu svo vélin gat lent heilu
og höldnu á einu nefhjóli. Hjólið
hrapaði til jarðar I South Gate, litlu
þorpi sunnan við flugvöllinn i LA.
Það lenti á miðju bílastæði við stór-
markað, skoppaði þaðan þvert yfir
götuna og staðnæmdist rétt hjá
konu sem var að ganga þar inn í
kirkju. Fimmtán dögum seinna
losnaði hurð af flugvél frá Delta Air-
lines og skall til jarðar í mannlausu
úthverfi I Boston.
Stokkfrosnir farþegar
Hann var hins vegar seinhepp-
inn, Rússinn sem faldi sig í hjólhúsi
hollenskrar þotu frá KLM sem var á
leið frá Moskvu til Amsterdam.
Laumfarþeginn króknaði úr kulda á
leiðinni og lík hans féll til jarðar í
skurði skammt frá flugvellinum í
Amsterdam. Við rannsókn kom i
ljós að annar laumufarþegi, látinn
úr kulda, leyndist í hjólhúsinu. Þeir
félagar höfðu ætlað að sleppa úr
klóm lögreglunnar í heimalandi
sínu með þessum afleiðingum.
Fáir laumufarþegar lifa af ferða-
lag eins og þetta en þó eru þess
dæmi. í ágúst á þessu ári fundu
flugvirkjar ofkældan en lifandi
laumufarþega i hjólhúsi vélar frá
Air France eftir sjö tíma flug frá
Tahiti til Los Angeles.
Hörður var sallarólegur
Þessir fróðleiksmolar eru fengnir
úr grein i bandaríska veftímaritinu
Salon. Ekki fer neinum markverð-
um tíðindum af slíkum uppákomum
á íslandi og þrátt fyrir staðsetningu
flugvallarins í miðri höfuðborginni
hafa aldrei orðið slys af lausum
hlutum sem falla úr eða af flugvél-
um.
Ein slík saga er DV kunn en hún
gerðist vestur á ísafirði fyrir mörg-
um árum þegar Hörður Guðmunds-
son flugmaður var að koma þar inn
til lendingar á eins hreyfils flugvél
sinni. Skömmu áður en vélin kom
inn yfir brautarendann datt skrúfan
af henni og kolsvört olía úðaðist
yfir framrúðu vélarinnar. Flugmað-
urinn brá ekki ró sinni þá frekar en
endranær heldur stakk höfðinu út
um hliðargluggann og lenti vélinni
heilu og höldnu. Skrúfan fannst
standandi í túni skammt frá og
hafði ekki valdið neinum meiðslum
eða tjóni.
Sri Chinmoy
kemur til fslands
- lyftingakappi og boðberi friðar
Friðarfrömuðurinn og listamað-
| urinn Sri Chinmoy er væntanlegur
hingað til lands mánudaginn 30.
október þar sem hann mun halda
tónleika í Háskólabíói kl. 19.30.
Þetta eru þriðju friðartónleikar
hans hérlendis og jafnframt eru
þetta 600. friðartónleikar hans frá
upphafi.
Sri Chinmoy er mikill íslandsvin-
ur og þetta er í fimmta skiptið sem
hann sækir okkur heim. Hann er ís-
lendingum að góðu kunnur og fyrir
utan heimsóknir hans hingað til
lands er hann eflaust þekktastur
fyrir alþjóðlega friðarhlaupið sem
við hann er kennt og hefur verið
haldið hér allar götur siðan'1987.
Lyftingar hans hafa einnig vakið
athygli; 69 ára gamall hefur hann
verið að lyfta ofurþunga og setja
heimsmet á undanfórnum mánuð-
um. Sri Chinmoy er geysilega fjöl-
hæfur listamaður og eftir hann
liggja þúsundir laga, málverka og
ljóða og útgefnar bækur eftir hann
eru á fjórtánda hundrað sem marg-
ar hverjar hafa verið þýddar á fjöl-
mörg tungumál.
Yfir 19.000 manns á friðar-
tónleikum í Montreal
Sri Chinmoy spilar venjulega á
um 20 hljóðfæri á friðartónleikum
og leitast við að draga fram andrúm
innri friðar og máttar í gegnum tón-
listina. Meðal hljóðfæra sem hann
spilar á eru mörg sem fáir hafa lík-
| lega barið augum áður, sum sér-
smíðuð, en þar gefur einnig að líta
X
Sri Chinmoy væntanlegur til Islands
aö halda 600. friðartónleika sína í
Háskólabíói 30. október næstkom-
andi.
hefðbundin vestræn hljóðfæri eins
og selló, þverflautu og píanó. Að-
sókn að friðartónleikunum hefur
verið nokkuð stigandi siðustu ár og
í lok síðasta mánaðar var sett nýtt
aðsóknarmet þegar rúmlega 19.000
manns komu á friðartónleika Sri
Chinmoy í Montreal í Kanada.
Tónleikamir í Háskólabíói eru
ókeypis en þeir sem vilja tryggja sér
miða geta sótt þá á Kaffihúsið,
Klapparstíg 37, eða Heilsubúðina
Musteri sálarinnar, Njálsgötu 1.
^æjdréiHÁ 1~3
' Vegna 1 árs afmælis okkar
ætlum við að halda afmælisveislu alla helgina
Komdu og þiggðu ítalska brauðaveislu, osta, pesto og
léttar veitingar.
> C» Í.
l.Út-Ll
litií Htmit
LAöERSALA FJOLV
ÍSLAND
-tm
SVAÐíLfÖJR/:
Í'SUBTSEV
J28pfiTl!l
vTti, •
YiBlBt
Srniðjuvegi 2 (Bak við Bónus - Ekið inn frá Skemmuvegi)
Vegna fjölda óskorana höfum viS ókveðið að framlengja
ÚTRÝMINOARSÖLUNA á bókalagernum um eina helgi. Petta er því allra
síðasta tœkifœrið til að eignast fróbœrar bœkur ó ótrúlega lógu verði.
Það var alveg grfðarleg aðsókn hjó okkur um síðustu helgi, og
stemmningin alveg rafmögnuð. Sumir titlar eru að seljast upp.
* Allir fengu BÓKARSJÖF í KAUPBÆTI!
* Margir afgreiddu JÓLASJAFIRNAR á einu bretti, ÓDÝRT!
* KRAKKARNIR skemmtu sér alveg KONUNSLESA !
* Þcer raddir heyrðust að fólki fyndist bcekurnar OF ódýrar !
* Flestir cetluðu að kíkja í Vefverslunina og kaupa MEIRA !
Barnabækur - Teiknimyndasögur
Listaverka- og Náttúrufræóibækur
Dulræn Fræöi - Heilsubækur ■
Ævisögur - Sagnfræöi og margt fleira
Skemmtilegir bókapakkar Allir fá
á enn betri vildarkjörum Bókargjöf!
ALLRA SÍÐASTA 0PNUNARHELGI. 0PIÐ:
Laugardag 21 .okt frá 10.00 til 17.00
Sunnudag 22. okt. frá 12.00 tii 17.00
Drífðu j?ig áður
en all-t klárast!
FJÖLVI
Sími 568 8433
VEFVERSLUNINokkarhefurfengiðaldeilisfrábærarundirtektir. \ki\ki\kl Jo
Þar eru allar bækur á sama lága verðinu útoktóber. KÍKTU VIÐ! W W W • IJ v/l VI • lo
-páá