Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
DV
Tilvera
„Auövitaö var þaö mikil lífsreynsla fyrlr 23 ára strák aö ganga í herinn, ég haföl óbllandi ævintýraþrá og þaö varö kannski mest tll aö hvetja mig í aö láta
veröa af þessu," sagöi Róbert Wesley, matgæöingur vikunnar.
Kjötiö skrapp saman
- og til allrar lukku datt það ekki á milli grillteinanna
Þaö er Róbert Wesley sem er mat-
gæðingur vikunnar að þessu sinni.
Hann hefur nóg að gera þessa dag-
ana og er mikið í vændum.
„Ég var að fá mjög spennandi
starf sem starfsmaður markaðs-
deildar Sambíóanna, þar sem kunn-
átta mín á tölvum nýtist mér vel og
fæ ég gott tækifæri til að nýta mér
það sem ég hef verið að læra á tölv-
ur í gegnum tíðina."
Róbert hefur gert það sem marga
stráka dreymir um en geta kannski
ekki látið veröa að veruleika. Hann
gekk í bandaríska flugherinn
1994-’98.
„Auðvitað var það mikil lífs-
reynsla fyrir 23 ára strák að ganga í
herinn. Ég haföi óbilandi ævintýra-
þrá og það varð kannski mest til að
hvetja mig til að láta verða af þessu.
Æfingamar eru strembnar í hern-
um og þurfti að taka mikiö á. Ég
held að ég hafi gengið mikið á því
hversu þrjóskur ég er og ákveðinn í
að gefast ekki upp.
Við vorum ræstir kl. 4.30 og stóðu
æfingar oft tii 24 á miðnætti og
kenndi þetta manni mikinn sjálf-
saga sem hefur nýst mér vel seinna
meir.
Slöngur og eðlur fastagestir
Það voru mikil ferðalög sem
fylgdu þessu. Meðal annars sendi
flugherinn mig til eyjunnar Guam
sem er í Kyrrahafmu. Það mjög
skrýtið að búa við hitabeltisloftslag
allan ársins hring með slöngur og
eðlur sem fastagesti í heimahúsum.
Þar hafði ég tækifæri til að læra
köfun sem að ég hef mikinn áhuga á
en hef ekki stundað héma heima.
Ég tel það vera of kalt og sennilega
ekki jafn mikið fyrir augað. Flug-
IVIntfíaeðíiigiir
herinn sendi mig líka til S-Kóreu,
Japans, Frakklands og víða um í
Bandaríkjunum. Einnig var ég
þáttakandi í „Operation Joint
Endeavour" sem var þáttur í upp-
lýsingaöflun flughersins í striðinu í
Bosníu," sagði Róbert.
Ekkert meölæti sjáanlegt
En svo við snúum okkur að öðru,
matargerð. Hefurðu einhverja
skemmtilega reynslusögu:
„Mér dettur helst í hug það sem
gerðist nú í byrjun sumars. Þá
kynnumst við félagi minn tveimur
vinkonum. Við áttum skemmtilegt
kvöld með þeim og ákváðu þær að
bjóða okkur í mat helgina eftir.
Svo erum við öll í símsambandi
út vikuna. Þær voru búnar að
ákveða hvað þær ætluðu að elda og
var mjög mikið í þetta lagt hjá þeim.
Griliað nautakjöt skyldi það vera
og béamaisesósa.
Við sáum á laugardeginum að við
yrðum nú að gera eitthvað til að
gleðja þær fyrir fyrirhöfnina, svo
viö keyptum flott rauövín og osta til
að gera kvöldið enn glæsilegra.
Þegar við svo mættum í matar-
boðið sáum við sósu í potti og sögðu
þær að nautakjötið væri úti á grilli.
Ekkert meðlæti var sjáanlegt,
ekki einu sinni kartöflur.
Þetta var mjög skrýtin stemning
þvi allavega hafði ég aldrei borðað
kjöt með sósu og engu öðru með-
læti.
Ég fór út til að kíkja á kjötið því
ekki mátti það brenna því það var
jú eini maturinn fyrir utan sósuna.
Þegar ég svo kom út á grill þá hélt
ég að ég myndi kafna úr hlátri. Kjöt-
ið hafði skroppið svo mikið saman
að það var eins og hamborgari. Kjöt-
ið var svo lítið að þær voru heppn-
ar að það datt ekki á milli grilltein-
anna.
Stelpumar fengu aö vonum áfall
þegar ég kallaði á þær en við félagi
minn hlógum mikiö að þessu
skrýtnasta og hráefnisminnsta mat-
arboði sem við höfum farið í.
Ég ætla samt að taka fram að
þetta kvöld var alveg frábært og við
skemmtum okkur mjög vel öllsömul
og þar komu ostamir til góðra nota
þar sem ekkert okkar hafði borðað
matarbita allan daginn,“ sagði Ró-
bert og bætti svo við: „Þess vegna
finnst mér alveg tilvalið að gefa
uppskrift með mat eins ég hafði séð
fyrir mér þetta þó svo ágæta kvöld."
Ungnautainnralæri
1 kg ungnautainnralæri
11/2 msk. gróft salt
1 msk. svartur pipar
1 dl ólífuolía
5 stk. hvítlauksgeirar
Aðferð:
Kryddið lærið með piparnum og
grófu saltinu. Saxið hvítlaukinn og
blandið saman við olíuna og leyfiö
því að standa í u.þ.b. 1 klst. Þvinæst
er kjötið grillsteikt á meðalheitu
grilli í 40-50 mín. Snúa þarf kjötinu
4-5 sinnum og pensla í hvert sinn
með hvítlauksolíunni. Gott er að
láta kjötið standa í smátíma áður en
það er skorið.
Uppskriftir
Mínútu-
steik að
hætti
Rússa
Fljótleg steik sem fer vel með
köldu smjörinu.
800 g ungnautafilé, skorið í 4
steikur
salt og pipar
1/2 dl ólífuolía
4 bökunarkartöflur
Kavíarsmjör
50 g svartur kavíar
300 g mjúkt smjör
1/2 dl fint söxuð steinselja
1 msk. sitrónusafi
Steikumar eru flattar út með
bufihamri í 1 sm þykkar sneiðar og
síðan grillaðar á vel heitu grilli í 3-4
mín. á hvorri hlið. Penslið með olíu,
kryddið með salti og pipar.
Nykaup
Þar semferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Kavíarsmjör
Blandið saman
smjöri, steinselju
og sítrónusafa, lát-
ið kavíarinn var-
lega út í smjörið í
lokin. Kælið.
Meðlæti
Kavíarsmjör og
grillsteiktar kart-
öflusneiðar, skom-
ar í 1 sm þykkar
sneiðar og griílaðar
í 4-6 mín. á hvorri
hlið, kryddaðar
með salti og pipar.
Béarnaisesósa
4 stk. eggjarauður
400 g smjörvi
1 msk. saxað estragon
1/2 tsk. nautakjötskraftur
1/2 tsk. sítrónusafi
Aðferð:
Bræðið smjörið í potti og látið
sjóða þar til það hættir að krauma á
yfirborðinu. Eggjarauðumar eru
hrærðar og því næst er sjóðandi
smjörinu blandað rólega við. Ef
eggjablandan verður stíf þá má
bæta við smávatni. Þá má setja
nautakjötskraftinn, estragon og
sítrónusafann saman við. Einnig
má setja salt og pipar eftir smekk.
Tilvalið þykir að hafa bakaðar
kartöflur, hitaðar gular baunir í
smjöri og hvítlaukssmjör með
þessu.
Veröi ykkur aö góöu.
Rafstöðvar
Mikið úrval bensín og
dísil rafstöðva.
Hagstætt verð!
Kawasaki
fjórhjólin
traust & lipur
FemiCare® hylki með
mjólkursýrugerlum
fyrir leggöng.
Hluti af náttúrulegrí
ftóru konunnar!
'SVj
Fæst í Apótekinu, Lyfju, Lyf og heilsu og apótekum landsins.