Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 33
33
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
PV_____________________________________________________________________________________________Helgarblað
Doktor í málvísindum frá Leníngrad-háskóla sjúkranuddari á Snæfellsnesi:
Varð ástfangin
af jörðinni
Galína Líney í sjúkra-
nuddstofunni sinni meö
hluta af diplómunum sem
hanga á veggjum.
— Galína Líney Karlsson segir frá starfi sínu
„Ég varð strax ástfangin af jörð-
inni og staðsetningu hennar hér
undir Jökli. Bæði er hér afslappandi
og læknandi andrúmsloft," segir
Galína Líney Karlsson sem býr á
bænum Öxl i Breiðuvík á Snæfells-
nesi.
Galína Líney, sem er af rússnesk-
um ættum, kom fyrst til íslands árið
1989. Hún fór þá að vinna í eldhús-
inu á Hótel Búðum en þar kynntist
hún manni sínum, Reimari Karls-
syni, bónda í Öxl. „Mér leist í fyrstu
ekkert á hann. Hann talaði ekki
mikið og oft flaug mér í hug að hér
væri kannske kominn einn af ætt-
ingjum Axlar-Bjarnar „ segir Galína
Þá kenndi Galína Líney einnig
rússnesku í HÍ.
„Þar sem þetta nám nýttist mér
ekki sem skyldi hér í Öxl þá fór ég
að huga að starfi sem ég gæti stund-
að heima og það tók mig smátíma,"
segir Galína. „Loksins tók ég þá
ákvörðun að læra sjúkranudd svo
að ég gæti bæði hjálpað fólki og ver-
ið hér heima á jörðinni."
Galína Líney fór árið 1997, þá
nærri fimmtug að aldri, til Kanada
og var þar í tvö ár í einkaskóla þar
sem hún nam fræði sjúkranuddara.
Kannske má segja að það séu
bæði kostir og ókostir að fara að
læra á þeim aldri sem hún var á.
Galína Líney ásamt kettinum Tchooktcha eins og hún nefnir hann.
Líney og hlær dátt er hún segir af
fyrstu kynnum sínum og Reimars
en hann er bæði starfsmaður Arnar-
stapahafnar og Fiskmarkaðs Breiða-
fjarðar á Amarstapa.
Doktorinn lærir nudd
Galína er hámenntuð kona en
hún er með doktorspróf í málvísind-
um (PhD) frá Leníngradháskóla og
hefur einnig góða þekkingu á ís-
lenskum bókmenntum. Einnig starf-
aði hún sem túlkur fyrir íslendinga
í Moskvu eftir námið í Leníngrad og
það var skemmtilegur tími, segir
hún. Eftir dvölina á Búðum fór hún
í Háskóla íslands til að læra betur
íslenskuna en hana hafði hún lært í
Leníngrad.
Vafaiaust eru þó kostimir fleiri þar
sem fólk er búið að fá m.a. lífs-
reynslu og kannski þola sársauka
eins og Galína hefur mátt þola á
sinni æfi og þar með meiri skilning
á þörfmni fyrir sjúkranudd. Þar
sem vísindalegur grunnur hennar
var góður gekk henni mjög vel að
læra úti og hún dúxaði í skólanum
en þar voru 160 nemendur.
Ekkert færiband
„Mér finnst skipta miklu máli,“
segir Galína, „hvort sjúkranuddar-
inn leigir húsnæði úti í bæ eða er
með stofu heima hjá sér. Ég er mót-
fallin færibandaþjónustu á þessu
sviði. Ég vil og get eytt meiri og
betri tíma með mínum viðskiptavin-
um hvað varðar viðtöl, mat, blóð-
þrýstingsmælingar og fl. o. fl.,“
heldur hún áfram. Galína Líney hef-
ur útbúið hjá sér mjög góða aðstöðu
fyrir sína starfsemi. Hún er með all-
an nauðsynlegan útbúnað sem þarf
og langar að bæta um betur seinna.
Galína er hissa á hve fólk veit lít-
ið um sjúkranudd.
„Það er oft ruglað saman sjúkra-
nuddi og venjulegu nuddi,“ segir
hún. „Furðulegt er þegar fólk treyst-
ir á „svokallaða" sjúkranuddara
með örfárra daga námskeið. Sjúkra-
nudd er meðhöndlun á grundvelli
læknisfræði og unnið er í sambandi
við lækni,“ segir hún. „Töfrar sem
áskrifaðir eru sjúkranuddi eru
vegna þess að sjúkranudd hjálpar,"
segir Galína með áherslu.
Núna er tími sérhæfmgar í nátt-
úrulegum lækningum og einnig í
sjúkranuddi. Ein af sérgreinum
Galínu Líneyjar er sérhæft nudd
fyrir þungaðar konur og nýorðnar
mæður.
„Ég vona að það verði hluti af
okkar menningu að hver þunguð
kona fari reglulega í sjúkranudd
„Mér leist í jyrstu
ekkert á hann.
Hann talaði ekki
mikið og oft flaug
mér í hug að hér
vceri kannske
kominn einn af
œttingjum Axlar-
Bjarnar. “
eins og tíðkast víða erlendis. Kost-
irnir eru óteljandi," segir Galína
Líney. Hún flutti fyrirlestur um
þessa sérhæfingu sína á svokölluð-
um „mæðramorgni" í Ólafsvíkur-
kirkju fyrir skömmu en þar koma
ungar mæður saman einu sinni í
viku og var erindi hennar vel tekið.
Nuddstofan Öxl
„Sjúkranuddstofan mín heitir Öxl
eins og bærinn minn. Það passar
líka mjög vel þar sem axlir eru oft
vandamál. Nudd hefur líka mikið að
segja fyrir höfuðverk, gigt, astma,
og meðhöndlun eftir slys og fleira,"
segir Galína Líney. Það er oft talað
um að skapa þurfi ný störf á lands-
byggðinni og það með réttu. Það er
ekki síður mikilvægt að fólkið sem
þar býr skapi sér sjálft störf eins og
Galína Líney er að gera með þessari
sjúkranuddstofu á heimili sínu.
Galína Líney leggur mikla
áherslu á persónulega og góða þjón-
ustu. Hún tekur vel á móti við-
skiptavinum sínum. Aðspurð um
framtíðina segir Galína Líney:
„Mínar áætlanir í framtíðinni eru
að bæta við mig fleiri sérgreinum
og kynna þær fyrir fólki og veita
sérhæfða þjónustu. Nú má fólk gera
samanburð og velja sér lækningar
með því að prófa,“ segir þessi
hressa og skemmtilega kona á bæn-
um Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi.
-PSJ
Nú er um að gera að grípa tækifærið og gera það sem við köilum GÓÐ KAUP!
í dag frá kl. 10-17
og sunnudag kl.13-17
Hjá okkur eru
Visa- og
Euroraðsamningar
ávisun á staðgreiðslu
Ármula 8-108 Reykjavik