Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
x>v
59
Tilvera
Bókunarmiðstöð íslands opnar vefinn discovericeland.is:
Ferðabókanir
á Netinu
Discovericeland.is er bókunar- og
upplýsingavefur um ferðatengda
þjónustu. Vefurinn býður óendan-
lega möguleika til aö bóka og veita
upplýsingar um nánast allt sem
hugurinn girnist. Hægt er að nota
vefinn til að leita að og bóka hvers
konar þjónustu, svo sem gistingu,
bílaleigubíla, ferðir og skemmtanir.
Bókunarmiðstöð íslands rekur vef-
inn.
Vefnum er skipt í gistingu, afþr-
eyingu, veitingahús, verslun, sam-
göngur, ferðalög, upplýsingar en
einnig er þar atburðadagatal og
möguleiki til að leita eftir landshlut-
um.
Discovericeland.is mun vera ein
öflugasta ferðasíða á Internetinu í
dag. Einn af helstu kostum hennar
er sú tækni sem notuð er til þess að
hægt sé að bóka gistingu og annað á
öruggan og fljótlegan hátt hjá þeim
aðilum sem eru meðlimir í Bókun-
armiðstöð fslands og nota bókunar-
kerfi hennar.
Heimasíða Bókunarmiðstöðvar-
innar, discovericeland.is, er fyrir
aUa sem eru í ferðahugleiðingum
um fsland og fyrir þá sem hafa hug
á að fylgjast með hvað ísland hefur
upp á að bjóða í ferðaþjónustu.
Bókun gegnum vefinn á að vera
afar örugg vegna þess að notuð er
örugg leið til dulkóðunar á upplýs-
ingum um greiðslukort og á per-
sónulegum upplýsingum.
DV-MYND MELKORKA BENEDIKTSDÓTTIR
Kveiktu áhuga á víkingum
/ sumar vaknaöi verulegur áhugi á forfeðrum vorum, víkingunum, og eiga
Dalamenn sinn stóra þátt í því. Hér eru víkingar vestra í sumar á einni af vel
heppnuðum hátíðum í Dölum.
Dalamenn vilja vel borgandi gesti í heimsókn:
Vígsla Leifssafns í
Búðardal að sumri
- unnið að því að Eiríksstaðir verði hluti af
alþjóðaminjum
DV, DALASYSLU:_____________________
Stefnt er að því að opna Leifssafn
í Búðardal í ágúst á næsta ári. Eins
og kunnugt er var haldið upp á 1000
ára afmæli landafundanna á Eiríks-
stöðum í Haukadal í sumar og tókst
það vel. Á síðasta fundi hrepps-
nefndar lagði Sigurður Friðjónsson,
oddviti Dalabyggðar, fram tillögu
um að stefnt skuli að opnun Leifs-
safnsins og að Eiríksstaðir veröi
hluti af alþjóðaminjum.
Hreppsnefnd samþykkti að óska
eftir því að Eiríksstaðanefnd starfi
áfram að tillögugerð og uppbygg-
ingu safnahúss í Búðardal í sam-
vinnu við hreppsnefnd Dalabyggð-
ar. Rannsóknamiðurstaða frá upp-
greftri Guðmundar Ólafssonar og
fleiri sumarið 2000 verði aílað og á
grundvelli hennar verði tekin
ákvörðun um frekari uppbyggingu
á Eiríksstöðum. Hefjast á handa um
að fá viðurkenningu á Eiríksstöðum
sem hluta af alþjóðaminjum.
Gera á áætlun um markaðssetn-
ingu og samhæfingu Eiríksstaða,
Leifssafns, uppbyggingar á Lauga-
svæðinu og þjónustuaðila í héraði.
Hámarka skal fjölda velborgandi
gesta með öflugu kynningar- og
markaðsstarfi. Tillagan borin upp
og samþykkt samhljóða.
Nú verður líf og fjör.
í tilefni afmælisins ætlum við að hafa gaman alla helgina
og bjóðum þér stórkostlegan afmælisafslátt afýmsum vörum.
Boðið verður upp á skemmtun afýmsu tagi t.d. mun trúbadorinn
Hermann Ingi skemmta einnig verður gos og snakk í boði.
BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI SÍMI: 554 6300 FAX: 554 6303
Smáauglýsingar
markaðstorgið - allt til alls
DV
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI’-ÍSfl^