Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Síða 54
62
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Formúla
r>v
Brautin í
Malasíu
Sautjánda og síðasta keppni ársins
verður í nótt háð hinum megin á hnett-
inum við Kuala Lumpur í Malasíu, á
nýjustu og flottustu kappakstursbraut-
inni í Formúlu 1 mótaröðinni. Þar sem
keppnin um titil ökumanna var afráðin
i síðustu keppni á Suzuka kemur athygl-
in til með að beinast að fleiri ökumönn-
um en i síðustu keppni þar sem margir
hafa möguleika á að bæta stöðu sína á
stigatöflunni. Einnig hefur McLaren
enn möguleika á að krækja sér í titil
keppnisliða en skori Ferrari þrjú stig
eða meira verður það ekki lengur fyrir
hendi.
Tæknilega krefjandi braut
Sepang-brautin er mjög tæknilega
krefjandi og er hún með margar langar
og aflíðandi beygjur sem eru mjög erfið-
ar yfirferðar og mikill tími getur tapast
sé hraðinn ekki réttur í gegnum þær.
Úthraðinn er einnig mjög mikilvægur
þar sem næsta beygja eða beini kafli
þarf að hafa sem mestan upphafshraða.
Beygjur 5 og 6 eru gott dæmi um þetta
þar sem ein tekur við af annarri og taki
ökumaður fyrri beygjuna rangt er sú
næsta ekki í lagi heldur. Beygjur 13 og
14 virka eins saman og er mikilvægt að
ná sem mestum hraða í gegnum 13 en
ekki of miklum til að missa ekki af
þeirri næstu því þá verður hraðinn á
beina kaflanum ekki nægur.
Tveir samsíða beinir kaflar
Framúrakstur er hugsanlegur í enda
beinu kaflanna sem liggja samsíða en
þar sem brautin er mjög breið geta öku-
menn fundið „nýjar" akstursleiðir í
gegnum beygjumar og með því komið
næsta manni á undan á óvart. David
Coulthard tókst þetta á síðasta ári er
hann tók fram úr Michael Schumacher
í beygju 2. Uppsetning bílanna ætti að
vera svipuð og á SPA og Indianapolis
þar sem er samansafn af hröðum og
hægum beygjum ásamt tveim 800 metra
löngum köflum. Miðlungshár væng-
kraftur verður því á bílunum. Gírhlut-
fóll og fjöðrunarstillingar hafa liðin á
hreinu eftir keppnina á siðasta ári en
þar sem sumum gekk illa að aðlagast
brautinni í fyrra eiga þeir enn eftir að
fmna sinn rétta gír á Sepang-kappakst-
ursbrautinni í Malasíu. -ÓSG
Svona erlesið.
Hraði —| i—
Þyngdarafl
Tímasvæði
“an —S
Samanlagður^jöÖJl
‘Byggt á tímatökum 99
1 Eddie Irvine (2) |
2 Michael Schumacher (1) j
3 Mika Hakkinen (4)
4 Johnny Herbert (5)
5 Rubens Barrichello (6) *
6 Heinz-Harald Frentzen (14) »
(Rásröö keppenda) —1 •
Hraðasti keppnishríngur Michael Schumacher (hringur 25) J 1:40.267/198.980 km/klst
1 Michael Schumacher
Eddie Irvine
David Coullhard
Mika Hakkinen
Johnny Herbert
Rubens Barrichello
Vangavettur um keppnisáætiun
Yfirborö brautar
Veggrip
Dekkjaval
Tekkjaslil
i á bremsur
Full eldsneytisgjöl
Eldsneytiseyðsla
Slétt
Mikið
Meðal
Medium
60% (úrhring)
Meðal
Viðgerdaráætlun
1-stopp
2-stopp 3-stopp
(1) 20-22 (!) 15-17
, (2) 37-39 (2) 25-27;
ú (3) 39-41
Lap data supphed by
Benetton
COMPAd yfirburðir Tæknival
Schumacher heimsmeistari ökumanna áriö 2000:
Takmark-
inu náö
- Schumacher og Hákkinen skemmtu sér saman í Japan
Michael Schumacher
hefúr nú loksins náð því
takmarki sem hann setti
sér fyrir fimm árum er
hann réð sig til Ferrari-
liðsins sem í þá daga var
í algerum molum. Fyrsti
heimsmeistaratitill
Ferrari í yfir tuttugu ár
var loks í höfit á Suzuka-
kappakstursbrautinni í
Japan og fognuðurinn
og spennufallið var mik-
ið hjá Schumacher og
öllu Ferrari-liðinu. Þjóð-
veijinn hefur ekið fyrir
Ferrari síöan 1996 og
hefur hann náð að um-
tuma liðinu fiá því að
vera miðlungslið í það
besta. í tvígang hefur
Schumacher misst af
titli ökumanna er hann
hafði góða möguleika.
Árin 1997 og 1998 runnu
honum úr greipum og
loks þegar takmarkinu
er náð á árinu 2000 er
léttirinn mikilL Fagnaði
Schumacher og fram eft-
ir nótttu með félögum
sínum og þar á meðal
var aðalkeppinautur
hans síðastliðin ár,
Mika Hakkinen. Þar áttu þeir saman
góðar stundir og sungu meðal annars
saman í karaoke-laginu „Smoke on the
Wather" með Deep Purple.
Sannir keppnisfélagar
Allir hafa tekið eftir því hversu gott
keppnissamband er á milli Schu-
machers og Hákkinens, en nýkrýndi
heimsmeistarinn segir Finnann verð-
ugasta andstæðing sinn til þessa.
Schumacher átti ekkert nema hrósyrði
um Hákkinen sem tók ósigrinum stór-
mannlega með því að taka þátt i fógn-
uði Þjóðveijans. Drukku þeir kampa-
vín og bjór ásamt því að borða saman
á frægasta karaoke-stað Suzuka. í há-
tíðarhöldunum tóku einnig þátt Cor-
ina, kona hans, Ralf bróðir hans,
Rubens Barrichello og Norbert Haug,
keppnisstjóri Mercedes, ásamt fleiri.
David Coulthard og Ron Dennis voru
famir frá Suzuka hálftima eftir að
keppninni lauk.
Mika er mjög jákvæöur
„Mika er virkilega góður náungi,"
sagði Schumacher sem tók sér þijá
daga til að ná sér eftir veisluhöldin.
„Það verður að taka það til greina að
við erum búnir að keppa hart um
meistaratitilinn. Aðrir keppinautar
mínir hafa farið allt öðruvísi að, reynt
að kvarta og gera hlutina slæma,“
sagði hann og meinti Damon Hill og
Jacques Villeneuve. „Mika er mjög já-
kvæður maður sem missir aldrei ein-
beitingu á því sem hann er að gera.
Hann er mikill keppnismaður en
ávallt heiðarlegur og sá besti sem ég
hef keppt við. Ég vona að við komum
til með að eiga saman nokkur góð ár í
viðbót."
í frí með konunni
Eftir veisluhöldin í Japan fóru
Michael Schumacher og kona hans,
Corina, tvö saman á sólarströnd og
nutu lífsins. „Tíminn sem við áttum í
fríinu var einmitt það sem ég var að
leita eftir. Konan mín var nokkuð
ánægð með mig þar sem hún hefur
aldrei séð mig svona rólegan áður. Ég
æfði ekki þijá til fjóra tíma á dag eða
nokkuð annað sem ég er vanur að
gera. Þetta voru aðeins rólegheit,"
sagði Schumacher sem er afslappaður
eftir að hafa náð takmarki sínu með
Ferrari. „Ég las meira að segja tvær
bækur sem er ótrúlegt þar sem ég er
ekki mikill lestrarhestur. Þetta frí var
nauðsynlegt," segir hann og ekki síst
þrír fýrstu dagamir þar sem heilsan
var ekki sem best eftir gleðskapinn í
Japan. Sagt er að Schumacher láti
aldrei áfengi inn fyrir sínar varir nema
eftir síðustu keppni ársins. -ÓSG