Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Page 57

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Page 57
65 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 DV Tilvera Being John Malkovich ★★★ hausn- um á Malkovich Það er ekki oft sem leikstjórar byrja svona vel. Spike Jonze er reyndar enginn græningi, hefur leikstýrt auglýsingum og tónlistar- myndböndum og er inni á gafli í Hollywood, enda giftur dóttur Francis Fords Coppola. En hvílík Íhugmynd! Leikbrúðustjórnandi frnnur dyr inn í huga leikarans Johns Malkovich og fer að selja að- gang en á meðan verður samstarfs- kona hans ástfangin af malkóvískri líkömnun eiginkonu hans. Frum- legri söguþráð hef ég ekki séð lengi. Myndin er ekki gallalaus. Hún tapar svolítið tempóinu á köflum og persónusköpunin er svolítið yfir- borðskennd. Engin af persónunum er neitt sérstaklega aölaðandi og í raun eru þær allar fremur ógeðfelld- (ar. Myndin fer samt ansi langt á styrkleika sínum sem er sá að hún 1 er frumlegri í hugsun en flest annað " á hvíta tjaldinu. Hugmyndaauðgin í sögunni er slík að maður er alltaf spenntur yfir því hvað gerist næst. Þótt myndin sé misfyndin þá er hún alltaf jafn sniðug. Svo er John Cusack auðvitað klassaleikari (og ótrúlega hittinn á ferskar og skemmtilegar myndir) og hann býr til alveg sérstaklega aumkunarverð- Ian lúða i leikbrúðustjómandanum sem fer síðan yfir um í mikil- mennskubrjálæði. -PJ Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Spike Jonze. Aðalhlutverk: John Cusack, Cameron Diaz og Catherine Keener. Bandarísk, 1999. Lengd: 112 mtn. Bönn- uö innan 12 ára. leigubílstjóra Ekki er gaman að horfa á myndir sem eru of augljósar en öllu verra er þó ef þær eru óskiljanlegar. Sumar myndir geta þó verið ansi skemmti- legar, þótt maður skilji lítið í fram- vindunni, og Animais er þannig mynd. Tim Roth gerir alltaf persónur sínar athyglisverðar og hann er reffílegur að vanda í hlutverki lífs- leiðs leigubílstjóra sem misst hefur alla trú á mannfólkinu. Það fer að breytast þegar þrír franskir gaml- ingjar stiga upp i bílinn hans og senda hann í krossferð til að finna ástina. Fleiri finir leikarar en Tim Roth eru þama, þ. á m. Mickey Rooney í kostulegu hlutverki í upphafsatrið- inu, og Frakkamir eru allir skrýtn- ir og skemmtilegir fýrar. Skemmti- i legar persónur og hugmyndarík at- | burðarás gera þetta að ánægjulegri | mynd þótt oft sé erfitt að átta sig á | henni. Segja má þó að hún fjalli um | andlegt ferðalag a la Dead Man eftir S Jim Jarmusch, og ferðalagið er í f gegnum staði og atburði sem eru \ eins og klipptir út úr mynd eftir 1 Emir Kusturica. Súrrealismi, skemmtileg tónlist og seiðmögnuð kvikmyndataka eyðimerkurlands- lagsins krydda þessa ágætu mynd sem hefði hugsanlega verið frábær ef hún hefði verið skiljanleg. -PJ Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mich- ael Di Jiacomo. Aöalhlutverk: Tim Roth og Mili Avital. Bandarlsk, 1998. Lengd: 115 mín. Bönnuö innan 16 ára. Stjörnubíó sýnir Loser: Lúðinn Nördinn Paul Tannek Jason Biggs leik- ur titilhlutverkiö í Loser. hygli á henni var Fast Times at Ridgemont High sem gerð var 1982. Þar kynnti hún til sögunnar Sean Penn, Judge Rein- hold, Anthony Edwards, Eric Stoltz, Forest Whitaker og Jennifer Jason Leigh, unga leik- ara sem áttu eftir að gera það gott. Vin- sæl- ustu kvik- mynd- ir hennar hingað til eru Look Who’s Talking og Clueless. -HK Stjörnubíó frumsýndi í gær gam- anmyndina Loser sem einn fárra kvenleikstjóra í Hollywood, Amy Heckerling, leikstýrir. Myndin sem hefur einnig smákeim af rómatík segir frá tveimur persónum sem trúa á sjálfa sig og ákveða að snúa til baka frá fólki sem hefur notfært sér þær. Paul Tannek (Jason Biggs) er námfús nemandi í háskólanum í New York. Hann er góðhjartaður en svolítið aulalegur í útliti og klæða- burði. En svo hittir hann Dóru (Mena Suvari) sem verður drauma- stúlkan i lífí hans. Eini gallinn er að hún er hrifm af bókmenntakennara sinum, Edward Alcott (Greg Kinne- ar). Dóra er hræðilega blönk og því í slæmum málum þar sem hana vantar nýjan samastað. Paul leyfir henni að gista hjá sér og á móti fær hann leiðsögn í klæðaburði. En það sem meira er, þau falla fyrir hvort öðru og sýna þeim í tvo heimana sem hafa gert grín að þeim. Já, „lúð- ar“ geta stundum haft heppnina með sér. Aðalleikaramir Jason Biggs og Mena Suvari hófu bæði ferð sina upp á stjörnuhimininn í hinni vin- sælu kvikmynd, American Pie. Biggs hefur síðan leikið í Boys and Girls sem nýlega var sýnd í kvik- myndahúsum í Reykjavík. Nýverið lauk hann við að leika í Saving Silverman. Þá er hann mótleik- ari Jessicu Lange og Christinu Ricci 1 Prozac Nation sem ekki er farið að sýna enn. Mena Suvari hefur verið á enn meiri hraðferð en Biggs eftir frammistöðu sfna í American Beauty þar sem hún lék stelpuna sem heillaði Kevin Spacey. Hún er með mörg verkefni í takinu enda mjög eft- irsótt. Næstu tvær myndir sem við sjá- um hana í eru Sug- ar and Spice og Live Virgin. Amy Heckerling á farsælan feril að baki þó hún hafl að- eins leikstýrt átta kvikmyndum á tuttugu og þremur árum. Sú kvikmynd sem vakti at- Frumsýningar um helgina í Bandaríkjunum: Drengur sem vill gera mann- kynið betra IBSEHfl Það verður barist um áhorfendur í Bandaríkjunum þessa helgi eins og flestar aðrar. Líklegust til að ná til flestra er gamanmyndin Bed- azzled sem er endurgerð eldri myndar frá 1984 sem hafði þá félaga Dudley Moore og Peter Cook í aðal- hlutverkum sem Satan og fórnar- lamb hans. í nýju útgáfunni hefur Satan verið breytt í kvenmann og það er þokkagyðjan Elizabeth Hurley sem leikur myrkrahöfðingj- ann. Hefur hún verið iðin við kol- Pay It Forward Helen Hunt Hayley, Joel Osment og Kevin Spacey I hlutverkum sínum. ann að kynna myndina að undan- förnu og ekki sparað stóru orðin. Minna hefur farið fyrir mótleikara hennar, Brendan Fraser, enda hefur hann ekki verið jafn tíður gestur á síðum slúðurblaðanna og Hurley. Það er einnig meira i húfi fyrir Hurley en Fraser, sem stendur á styrkum stoðum í Hollywood, og er Bedazzled sjálfsagt síðasta tækifæri Hurley til að láta taka sig alvarlega sem leikkonu. Fyrri myndin var einstaklega skemmtileg og nú er bara að sjá hvort Harold Ramis, sem leikstýrir myndinni, get- ur endurtekið leikinn. Sú mynd sem mun líklega veita Bedazzled harða keppni og jafnvel verða vinsælli er Pay It Forward, sem Mimi Leder (Deep Impact) Bedazzled Elizabeth Hurley og Brendan Frazier í hlutverkum Satans og Elliots. leikstýrir. Þar leiða saman hesta sína Haley Joel Osment, ungi dreng- urinn, sem fékk óskarstilnefningu fyrir leik sinn í Sixth Sense, og ósk- arsverðlaunahafinn Kevin Spacey, í mynd sem fjallar um dreng sem tek- ur alvarlega samþykki kennara síns um að hann megi gera jörðina að betri stað til aö lifa á. Helen Hunt, annar óskarsverðlaunahafi leikur móður hans. Af öðrum myndum, sem frumsýndar eru um helg- ina, má nefna nýjustu kvik- mynd Spikes Lees, Bam- boozled, Requiem, nýja mynd frá Darren Ar- onofsky (Pi), sem var gestur á Kvikmynda- hátíð í Reykja- vík í fyrra, og svo hefur ver- ið flikkað upp á Hong Kong-mynd frá árinu 1994, The Legend of a Drunken Master, með Jackie Chan í aðalhlutverki. Um að gera að mjólka kúna meðan hægt er. Bam- boozled og Requiem eru báðar for- vitnilegar myndir. Spike Lee tekur á sjónvarpsiðnaðinum í mynd sinni og Aronofsky fjallar um hóp eitur- lyfjaneytenda sem þráir betra líf. -HK CHAIRMAN (Forysta) Tæknilega vel hönnuö Vönduð og sterk hjól Örugg og sterk bremsa 1 árs ábyrgð íslenskar leiðbeiningar Hjólin eru tæknilega vel hönnuð úr hágæða-flugvélaáli CHAIRMAN (Forysta) er fremsta hjólið á markaðnum í dag. Ymsir aukahlutir: Glær dekk Lituð dekk •^Ljósadekk Höldur Höldur í lit Töskur UPAHJOLAAUKAHLUTIR. VERKSTÆÐ JPAHJOLAAUKAHLL UPAHJÓ RRABRAUT 22 ABUÐIN S í M I 5 6 15 116

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.