Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 11. NÓVBMBER 2000
DV
Fréttir
Smábátamaður á yfir höfði sér fangavist fyrir að sleppa smáfiski:
Kækur hjá Gæslunni að
skrattast í trillukörlum
- segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda
„Þetta mál kom á okkar borð um
leið og það gerðist. Við setjum stórt
spurningarmerki við vinnubrögö
Landhelgisgæslunnar eins og því
miður oft áður,“ segir Arthur Boga-
son, formaður Landssambands smá-
bátaeigenda, um kærumál sem
Landhelgisgæslan hefur reist á
hendur Markúsi Guömundssyni,
trillukarli í Bolungarvík. DV
greindi frá því í fyrradag að Mark-
ús teldi sig hafa haft leyfi stýri-
manns Landhelgisgæslunnar til að
sleppa lifandi smáfiski þar sem
hann var að línuveiðum út af Vest-
tjörðum. Nokkru eftir að Gæslu-
menn komu um borð í bátinn var
Markús kærður og hann kallaður til
yfirheyrslu hjá lög-
reglu. Hann er bor-
inn þeim sökum að
hafa framið lögbrot
með því að fleygja
fiski fyrir borð.
Arthur segist
ekki hafa minnstu
ástæðu til að efast
um orð Markúsar
skipstjóra. Hann
hafi eflaust falliö í
þá gryfju að trúa stýrimanninum og
fái í staðinn hótun um fangavist.
„Þetta eru vinnubrögð sem gjör-
samlega er útilokað að lifa við. Það
er orðinn kækur hjá Landhelgis-
gæslunni að skrattast í trillukörlum
í stað þess að taka á
stærri málum. Það
er ljóst að samtökin
munu koma að
þessu máli,“ segir
Arthur en leggur
áherslu á að samtök
hans mæli ekki
með brottkasti á
fiski. Ekki sé sam-
an að jafna fiski
sem fleygt sé dauð-
um fyrir borð á togara eða línufiski
sem eigi mikla lífsmöguleika.
„Við lítum þetta mál allt öðrum
augum en þegar brottkast á sér stað
á togara. Það er skylda löggjafans að
smíða lög þannig að hægt sé að
vinna eftir þeim. Það verður að
breyta lögum þannig að línubátum
sé einnig heimilt að sleppa lifandi
fiski," segir hann.
Arthur segir að huga þurfi að
öðru í þessu samhengi. Lögin segi
að ekki megi fleygja fiski fyrir borð
en ekkert sé sagt um það þegar fiski
er sleppt áður en hann kemur inn
fyrir borðstokkinn.
„Fiskur sem tekinn er af krók
utan borðstokks og honum sleppt
hefur aldrei komið um borð. Fiskur
sem dettur af línunni án þess að
mannshöndin komi nærri getur
ekki flokkast undir brottkast. Það
er því ekkert einfalt að meta þessi
mál,“ segir Arthur. -rt
Sjávarútvegsráðherra:
Lagabreyting
kemur til greina
„Það hafa komið
upp svipuð mál og
auðvitað kemur tU
greina að breyta lög-
um, telji menn að for-
sendur hafi breyst,"
segir Ámi Mathiesen
sjávarútvegsráðherra
um mál Markúsar
Guðmundssonar
trUIukarls, sem kærð-
ur hefur verið fyrir að henda smá-
þorski í sjóinn. Markús var á línuveið-
um þegar hann sleppti fiskinum sem
hann telur fuUvíst að lifl. Landhelgis-
gæslan kærði hann síðan fyrir brott-
kast og á hann yfir höfði sér sekt eða
fangelsi.
Ámi Mathiesen segir erfitt að breyta
grundvaUaratriðum í lögum. Verið sé
að herða á eftirliti vegna brottkasts á
fiski. Þess vegna sé engin tUvUjun að
Landhelgisgæslan gangi hart fram í að
fylgjast með brottkasti. Eigi að síður
segist ráðherra vera tUbúinn að breyta
lögum tU betri vegar, verði hann sann-
færður um nauðsyn þess.
„Þá þarf að vera á hreinu hvort fisk-
ur lifir eða ekki eða hversu hátt hlut-
faU lifir,“ segir Ámi. Hann gefur Íítið
fyrir þau sjónarmið að fiskur sem er
sleginn af iínu hafi aldrei komiö um
borð í skip og því ekki um brottkast að
ræða.
„Það er bara hártogun," segir Ámi.
-rt
Ámi
Mathiesen.
Luktardagur Waldorfskólabarna dvmynd hilmar þór
Börnin í Waldorfskólum landsins halda Marteinsmessu hátíölega meö því aö ganga meö luktir og gefa fólki brauö.
Heilagur Marteinn var dýrlingur útigangsfólks og gaf hann því brauö. Marteinsmessa er í dag, laugardag.
Veörið í kvöld
Skýjaö meö köflum sunnan til
Norðan- og norðaustanátt, 13-18 m/s
vestanlands á morgun, en hægari austan til.
Él um landið norðanvert en skýjað meö
köflum sunnanlands. Hiti víöa 0 til 5 stig en
víða vægt frost noröan til.
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVÍK AKUREYRl
Sólariag i kvöld 16.39 16.06
Sólarupprás á morgun 09.47 09.46
Síódegisflóö 18.02 22.35
Árdegisflóð á morgun 06.21 10.54
Skýringar á veðurtáknum
J^VINDATT 10V-H.TI
■xVINDSrYRKUR ^N.ran<.T HEIDSKÍRT
í metrum á sekúndu rnuoi
Jy ^3 O
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
SKÝJAÐ
'tj
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
•Q =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- Þ0KA
VEÐUR RENNINGUR
Allt eftir v
»
Gott aö fara varlega
Það er eins gott aö fara varlega í
umferðinni þessa dagana og vera rétt
útbúinn á feröum um fjallvegi. Hálka og
hálkublettir eru tíðir gestir á fjallvegum
á köldum vetrardögum eins og núna.
Einnig er gott að athuga færöina áöur
en lagt er af stað og fylgjast með
veöurspánni.
Veöriö á morgun
Léttskýjaö sunnan og vestan til
Norölæg átt, 10 til 15 m/s allra austast en annars hæg. Él á
noröausturhorninu en léttskýjaö sunnan og vestan til. Frost 2 til 7 stig.
Manudagnr
Vindur:
3-8
Hiti -2” tii -7
ism
Þriðjiidagu
Hiti 6° til -6°
\
Míövíkudagu
Vindur:
8-13
Vindur. ( Vr' S,
Hiti 0° til -3° W
Hæg norölæg eöa
breytlleg átt. Léttskýjaö
og frost 2 til 7 stlg.
Suövestan 8-13 m, slydda
eða rlgnlng og hltl 2 til 6
stlg. Hæg breytlleg átt,
léttskýjað og frost 1 tll 6
stlg austan tll.
Hæg norölæg átt pg
snjókoma norðan tll en
slydda og rlgning viöa
sunnan tll og hiti í krlngum
frostmark.
DV-MYND SKÚLI MAGNÚSS0N
Frá Ástralíu í rjúpu á Héraöi
Þetta er Herb Hammer frá Tasmaníu
í Ástralíu meö rjúpur sem hann var
nýbúinn aö skjóta. Hann feröaðist
allan þennan veg til þess eins aö
veiöa rjúpur á íslandi.
Kom frá Ástralíu
í rjúpnaveiði
DV, HÉRADI: ~
Rjúpnaveiðar erlendra veiðimanna
era vaxandi þáttur í ferðaþjónustu á
Fljótsdalshéraði. Eftir þeim upplýsing-
um sem fréttaritari hefur má áætla að
um 30 til 40 erlendir rjúpnaveiðimenn
hafi nú þegar komið á Hérað til veiða í
vetur. Veiöarnar hafa gengið nokkuð
vel þótt veður hafi alltaf áhrif þar á.
Átta manna ítalskur hópur fékk 108
rjúpur á rúmum þremur dögum og
vom menn alsælir með það. Það hefur
vakið athygli leiðsögumanna hvað
þessir erlendu menn eru góðar skyttur
og skjóta ekki á fugl nema á flugi. Tveir
leiðsögumenn hafa þurft að henda snjó-
boltum í átt aö rjúpum til að fæla þær
upp fyrir veiðimennina.
Á kvöldin sitja veiðimennimir og
tala um veiðar og aftur veiðar og bók-
staflega aHt það sem að veiðum kemur.
Það vekur furðu þessara veiðimanna
að frjáls sala á viUibráð skuli vera leyfð
hér á landi og hafa þeir spurt hvort ís-
land sé ekki aðili að neinum alþjóða-
samþykktum.
Að sögn fólks í feröaþjónustu eru
ijúpnaveiðar útlendinga góð viðbót við
„túrismann" utan mesta annatima. Þar
að auki fá leiðsögumenn þokkalega
borgað. -SM
Veðrið kl. 6
AKUREYRI úrkoma 1
BERGSSTAÐIR úrkoma 1
BOLUNGARVÍK haglél 1
EGILSSTAÐIR 1
KIRKJUBÆJARKL..
KEFLAVÍK hálfskýjaö 5
RAUFARHÖFN alskýjaö 2
REYKJAVÍK mistur 5
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 4
BERGEN léttskýjaö 8
HELSINKI þokumóöa 5
KAUPMANNAHÖFN alskýjað 8
ÓSLÓ i’igning 7
STOKKHÓLMUR slydda 8
ÞÓRSHÖFN skýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 9
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM skúrir 8
BARCEL0NA léttskýjaö 14
BERLÍN hálfskýjað 9
CHICAGO alskýjaö 2
DUBLIN rigning 8
HALIFAX skýjaö 7
FRANKFURT rigning 7
HAMB0RG rigning 8
JAN MAYEN skafrenningur -4
LONDON skýjaö 10
LÚXEMB0RG skýjaö 6
MALLORCA léttskýjaö 18
MONTREAL 11
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -12
NEWYORK 13
0RLAND0 22
PARÍS léttskýjaö 10
VÍN skýjaö 11
WASHINGTON léttskýjaö 11
WINNIPEG þoka -5
■:W44MKa>m«tii.'j«LMóiiriaiiHiiiaiaa