Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
61
1
I>V
Tilvera
Matreið slukennaranum
brugðið
- er hún leit á rústirnar í pottinum
var illa
Það er Jóhanna Guðlaug Frímann
klippari sem er matgæðingur vik-
unnar að þessu sinni.
„Ég hef aldrei verið titluð sem
neinn meistarakokkur en mér
finnst gaman að elda mat sem mér
sjálfri finnst góður.
Hitt er s'’o annað mál að þegar
kemur aö því að elda kjötbollur,
pasta, fisk og daglegan mat þá verð-
ur oft skrautlegt að líta í pottana.
Ég hef samt aldrei skammast mín
jafn mikið eins og dag einn þegar ég
hafði verið að töfra fram kjötbollur
í brúnni sósu fyrir eiginmanninn og
börn, sem eru mjög skilningsrík og
þola nánast hvað sem er í maga. Ég
hafði verið að tala í símann við
vinkonu mína og einhvern veginn
gleymt mér þegar ég setti sósulitinn
í pottinn, ég er ekkert að ýkja það
þegar ég segi að það hafi verið kol-
svartur litur á bollunum og sós-
unni. Þetta var það slæmt að mér
meira að segja fannst þetta full gróf-
ur litur á matnum fyrir fjölskyldu-
meðlimina sem voru hungruð á leið
heim að borða.
í vangaveltum yfir sparibrosinu
sem ég ætlaði að setja upp fyrir fjöl-
skylduna lagði ég á borð og í því er
dyrabjöllunni hringt.
Ég átti von á manninum mínum
og syni heim svo ég svaraði ekki í
dyrasímann heldur opnaði bara sí-
svona.
Kemur ekki nema sonur minn
þessi engill heim með engan annan
en matreiðslukennarann sinn með
sér. Hann haföi þá hitt hana á skóla-
lóðinni en það hafði staðið til að
hún myndi kíkja í kaffi einhvern
daginn vegna gamalla kynna okkar
svo þessi angi hafði boðið henni í
heimsókn.
Ég er ekkert að segja að það þurfi
að vara mig við heimsóknum en
þegar matreiðslukennari skólans
kíkti ofan í pottana hjá mér er ekki
hægt að segja annað en að henni
hafl verið illa brugðið.
Kannski varð þetta til þess að
syni mínum var sýnt meira tillit í
matreiðslutímum eða hann hafi að-
eins fengið alla hennar samúð, ég
veit það ekki.
En hitt er annað mál að við höf-
um öll komist í gegnum matreiðslu
mína hingað til og að ég held bara
hraust fjölskylda sem finnst voða
gott þegar vel heppnast," sagði Jó-
hanna og bætti svo við: „Ég hef
hugsað mér að sleppa kjötbolluupp-
skriftinni og gefa hér upp mína upp-
áhaldsuppskrift sem getur ekki
klikkað."
Skinku- og ostafyllt nauta-
kjöt
800 g ungnautainnralæri
skorið í 8 sneiðar
4 sneiðar skinka
50 g Mozarella ostur
salt og pipar
Berjið sneiðarnar örþunnt. Legg-
ið skinkuna og ostinn á annan
helming sneiðanna, brjótið saman
og lokið vel. Grillið vel í 5 til 10 mín-
útur á hvorri hlið.
„Eg er ekkert að segja að það þurfl að vara mig við heimsóknum, en þegar matrelðslukennari skólans kíkti ofan í
pottana hjá mér er ekki hægt að segja annað en að henni hafi verið illa brugöiö," sagði Jóhanna klippari og mat-
gæðingur vikunnar.
Piparostasósa
11 rjómi
1 1/2 piparostur
1 nautakjötsteningur
Látið sjóða saman og hafið á hæfi-
legum hita þar til osturinn er
bráðnaður.
Meðlæti: Bakaðar kartöflur og
hvítlaukssmjör.
Uppskrrftir
Engiferís á
marengsbotni
Fyrir 6
Marengsbotn
3 eggjahvítur
120 g flórsykur
Krem 1
60 g sykur
1/2 1 mjólk
5 eggjarauður
1 msk. maisenamjöl
Krem 2
2 egg
60 g sykur
30 g fersk engiferrót
2 1/2 dl rjómi
vanilludropar
Appelsínusósa
1 dl appelsínuþykkni
2 dl appelsínusafi
1 dl sykur
kartöflumjöl
Þeytið eggjahvíturnar og bætið
sykrinum hægt i, þeytið þar til mar-
engsinn verður stífur. Smyrjið hon-
um þá á smjörpappír og bakið við
150° C í klukkutíma.
Saxið engiferinn mjög fint og
sjóðið í 5 mínútur í 1 dl af léttsykr-
uðu vatni. Hellið á sigti.
Krem 1
Leysið maisenamjölið upp í
mjólkinni og sjóðið upp ásamt helm-
ingnum af sykrinum. Þeytið rauð-
umar ásamt afganginum af sykrin-
um. Hellið heitri mjólkinni saman
við og setjið í skálina yfir gufu.
Þeytið rólega þar til blandan þykkn-
ar. Kælið, hrærið í á meöan.
Krem 2
Þeytið því næst heilu eggin ásamt
sykri (60 g) og engifer uns ljóst og
létt. Blandið nú saman kremi 1 og
kremi 2. Þeytið rjómann og blandiö
öllu saman ásamt nokkrum vanillu-
dropum. Skerið utan af marengs-
botninum þannið að hann passi í 26
cm springform. Hellið ísblöndunni í
og frystið. Berið fram með appel-
sínusósu.
Appelsínusósa
Sjóðið upp þykkni, safa og sykur.
Þykkið með kartöflumjöli hrærðu
út í köldu vatni.
Appelsínu-
bombur
Þessi springur ekki.
Fyrir fjóra.
2 stk. appelsínur
3 dl rjómi
1 stk. egg
2 msk. flórsykur
Nýkaup
Þar semferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
' '
3 stk. matarlímsblöð
4 stk. makkarónukökur
Skerið app-
elsínumar í
tvennt,
hreinsið kjöt-
ið úr berkin-
um og mauk-
ið i matvinnsluvél. Þeytið egg og
flórsykur í létta froðu. Þeytið
rjómann. Bræðið matarlímið og
blandið því við eggin. Eggjunum og
appelsínukjötinu blandað saman,
að lokum er þessu blandað saman
við rjómann. Makkarónukökurnar
eru muldar og settar í botninn á
berkinum og frómasinum sprautað
þar yfir, kælt í 1-2 klst. Skreytt
• Flóamarkaður •
Lionsklúbburinn Engey heldur árlegan flóamarkað sinn
laugardaginn 11. nóvember og
sunnudaginn 12. nóvember
kl. 13 í Lionshúsinu, Sóltúni 20.
Fullt af góðum
fatnaði og munum.
Gerðu góð kaup og
líttu inn í Lionsheimilið.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
^ Við tökum vel á móti þér.
Lionsklúbburinn Engey
SÍÐUSTU DAGAR LAGERÚTSÖLUNNARH
MIZUIVIO / ERREA / UHLSPORT
Vandaðar vörur á frábæru verði.
Opið laugardaginn 11. nóv. 10-16
og virka daga 10-17.
Tökum debet- og kreditkort.
Sendum í póstkröfu.
KK ÍÞRÓTTAVORUDEILD
Skipholti 35 - 3. hæð - sama hús og Gúmmívinnustofan, sími 581 1212
Dæmi:
• úlpur frá 990,-
• gallar frá 1.990,-
• toppar frá 500,-
• skór frá 500,-
• stuttbuxur frá 790,-
• bakpokar frá 790,-
df