Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 31
31 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 DV Halelúja Fjölmiölar hafa veriö ótrulega sparir á að fjalla um nýafstaðið kirkjuþing og kannske aö vonum þar sem manni skilst að varla hafi dregið til tíðinda ef frá eru talin einhver upphlaup útaf hegð- unar- og atferlisvanda þjónandi presta og refsigleði biskups. Þá var á þinginu um það rætt af nokkrum hita hvort kirkjan væri í kreppu eða ekki í kreppu og fékkst engin niðurstaöa þó margir virðist hafa haft miklar skoðanir á því máli. Lítið annað hefur maður frétt af kirkjuþinginu hugsanlega vegna þess að athyglin hefur beinst að tveim miðlungsmönnum (svo ekki sé nú minna sagt) sem hafa verið að berjast um að komast í Hvíta húsið í Wash-ington. En aftur aö trúmálunum. Eitt mesta undrunarefni sem skekið hefur heimsbyggð alla öld- um saman er trúarlíf og siðferð- isvitund íslendinga og ekki hvað síst eftir útkomu stórmerkilegrar bókar fyrir nokkrum árum; bók- ar sem ber titilinn „Trúarlíf ís- lendinga" og er eftir tvo valin- kunna guðfræðinga Bókin byggir á skoðanakönnun sem ætlað var að varpa ljósi á trúarsannfæringu landsmanna, guðhræðslu, bænhita, lotningu fyrir guðsorði og ást á himna- feðgunum. Þá var í könnuninni tekið á heilabrotum íslendinga um guð, alheiminn, framhjáhöld, bænhita, hórdómsbrot, upphaf lífsins á Flosi jörðinni, kynhvöt ‘68 kynslóðar- innar, afstöðuna til himna- feðganna í víöara samhengi, skoðanir á samfórum, kirkju- sókn, lauslæti annarra kynslóða en ‘68 kynslóðarinnar og stefnur og strauma í uppáferðamálum ís- lensku þjóðarinnar almennt meö hliðsjón af heilagri ritningu og siðaboðskap kristinnar kirkju. Af skoðanakönnuninni sem bókin byggir á og gerð var tO að kanna afstöðu íslendinga til kirkju og kristni var dregin sú ályktun að engin „siðmenntuð" þjóð væri jafn trúrækin og bæn- heit og íslendingar. Þar kom það fram að nærri þriðjungur þjóöarinnar (28%) liggur á bæn á hverjum morgni og er faðirvorið vinsælast. Nær allar íslenskar konur (89%) líta svo á að guð sé til og liggja mikið á bæn með börnum sínum. Það eru aðeins femínistar (11%) sem afneita guði og er sú skýring gefin á guðleysi þeirra að það stafi af „sérstöðu þeirra í þjóðfélaginu". 74% karlmanna trúa á guð, en ekki er nokkur maður í landinu sem lætur sér detta í hug að guð hafi skapað himin og jörð. Ef rétt er skilið, liggja íslend- ingar kvölds og morgna í Passíu- sálmunum og Biblíunni, en biðj- ast fyrir á nóttinni. Sérstaka athygli vekur kirkju- sóknin. Fólkið í landinu virðist því sem næst ófáanlegt til að fara í kirkju. Níutíu prósent af hinum guð- hræddu og trúhneigðu íslending- um ná því ekki að fara í kirkju einusinni í mánuði og talið er fullvíst að þau tíu prósent sem segjast fara í kirkju mánaðarlega hreinlega ljúgi því. Guö fyrirgefl mér að segja þetta. Þá er bent á það hvað íslend- Helgarblað ingum hefur alla tið verið ósýnt um að fara eftir boðorðunum. Það merkilegsta við kristnitökuna árið 1000 var auð- vitað það að íslend- ingar byrjuðu á því að gefa skít í boð- orðin. Fyrsta boðorðið hljóðar svo í herrans nafni: Þú skalt ekki aðra guöi hafa en mig. Við kristnitökuna var það lög- fest á Alþingi að menn mættu eiga sér hjáguði ef það bara kæmist ekki upp. Kristni hófst á íslandi með því að brjóta fyrsta boðorðið. Á þessu sama Alþingi voru himnafeðgarnir síðan hæddir og svívirtir af þingheimi og þar fauk annað boðorðið. Allt framá þennan dag hafa landsmenn unnið um hverja helgi og brotið með því það þriðja, og síðan gefið skít í þaö fjórða með því að hundsa fóður og móður. Hver annan drápu þeir svo á ferðum sínum um landið í blóra við hið fimmta og svona mætti lengi telja. Hverj- um ein- asta ís- lendingi * Þykir sjalf- sagt að brjóta sjötta boð- orðið í óvígðri sambúð og helm- ingur karla og þriðjungur kvenna sér ekkert at- hugavert við að halda framhjá maka sínum og brjóta þannig tí- unda boðorðið, sem fjallar um þaö að maður eigi ekki að girn- ast konu náungans, þræl hans, ambátt, uxa eða asna. Sannleikurinn er nefnilega sá að kenningar boðskapur og sið- fræði kirkjunnar hafa alla tíð átt sáralítið erindi til íslendinga. Þeir hafa bara, einsog dæmin sanna, alla tíð látið sér nægja að vera „guðhræddir, trúræknir og bænheitir." Skíttolaggo með hitt. Og þessvegna hefði mátt spyrja sem svo á síðasta kirkjuþingi: - Er kirkjan í nokkuö meiri kreppu en hún hefur alltaf verið? Flosi Sviösljós Hvernig á að gera stykki sín í eyðimörk - leiðbeiningar Drew Barrymore Drew Barrymore hefur löngum getaö hrist upp í fólki með frjáls- legri framkomu sinni. Mörgum er til að mynda minnisstætt þegar Drew sýndi David Letterman brjóst- in á sér í þætti hans. Nú hefur Drew enn komið á óvart með hispursleysi sínu. Drew, Cameron Diaz og Lucy Liu léku sem kunnugt er saman í Charlie’s Angels. Vegna hlutverk- anna samþykktu þær að fara í þriggja sólarhringa útilegu í eyði- mörk í Utah án vista og viðlegubún- aðar. Stúlkurnar veiddu sér sjálfar til matar, sváfu í fótunum og þvoðu sér upp úr ísköldu vatni. Drew ku hafa verið eymdin uppmáluð allan tímann vegna viðskilnaðar við unnusta sinn, Tom Green. Drew sagði þau hafa sett sérstaklega töfraplástra á fingur sér og tekist í hendur og sagt að ef þau söknuðu hvors annars þyrftu þau einungis að snerta eða tala við plásturinn. Þetta hljómar auðvitað afskap- lega eðlilega þegar Drew Barrymore á í hlut. Hins vegar þóttu ummæli hennar um hvernig kúka á í eyði- mörkinni nokkuð frjálsleg - jafnvel þótt miðað væri við Drew. Hún sagði eitthvað á þessa leið: Eftir að hafa húkt eins og hundur þurfti maður að þurrka með sandi oft og mörgum sinnum og nota síðan salvíu til að þurrka að fullu. Elizabeth Hurley: Vildi ekki pissa - fyrir framan Fraser Denzel Washington: Hér og þar - hvort tveggja verra í nýlegu viðtali vildi Elizabeth Hurley að það væri alveg ljóst að hún væri ekki, réttara sagt alls ekki, prímadonna. Þetta segir hún meðal annars til að svara slúðursög- um sem voru bornar á hana um að hún hefði tryllst þegar hún átti að fara með einkaþotu frá New York til Los Angeles. Þegar Liz mætti á völl- inn var Ijóst að farangurinn hennar kæmist ekki allur í þotuna. Segir ; sagan að hún hafl orðið svo reið að hún neitaði að fara um borð og ekki viljað svara símtölum frá 20th Cent- ury Fox þrátt fyrir að þeir þar hefðu ; lagt sig alla fram við að finna stærri vél handa leikkonunni. í stað þess að þvælast í einhverri „harlemþotu" ákvað hún að leita til vinar síns, milljónamæringsins Teds Forstmann, sem lánaði henni ; auðvitað þotuna sína sem var með ; nægt farangursrými. Þrátt fyrir þessa góðu sögu neita 1 aðstoðarmenn Liz öllu. Fulltrúar Courtney Love og Versace: Vináttan fellir laufin Courtney Love og Dona- tella Versace hafa verið miklir vinir síðustu miss- erin. Nú hefur vináttuvind- áttin hins veg- ar snúist vegna meintr- ar frekju Courtney. Hennir var boðið til Mílanó til að sjá tískusýningu Ver- sace og þáði hún boðiö en setti ströng skilyrði. Hún vildi að sögn Versacemanna einkaþotu, þjónustu- stúlku og þrjá aðstoðarmenn. Þegar Courtney mætti á staðinn hafði ekki verið komið til móts við lítillátar kröfur hennar og fauk nokkuð í hana. Hittust Courtney og Donatella síðan og var mikið rifist, enda skapferli þeirra annálað. Þrátt fyrir þessa uppákomu segja nánir vinir þeirra að vináttan ríki enn. Fox sögðu að hún hefði verið að ferðast með fleira fólki og ekki hefði verið rými fyrir alla. Simian, henn- ar eigið fyrirtæki, segir að hún hafi ekki fengið lánaða þotu hjá Forst- mann. Þaöan koma einnig sögur um að hún og Brendan Fraser hafl bæði neitað að ferðast með þotunni en ekki vegna þess að farangurinn kæmist ekki inn heldur vegna þess að klósettaðstaða var ekki fullnægj- andi. Enginn fleki hefði verið fyrir klósettdyrunum og þau því þurft að gera stykki sín hvort í annars við- urvist. Frægt fólk þarf sem sagt líka að kúka. Hinn geðþekki Denzel Washington er kvikmyndaaðdáendum að góðu kunnur eftir frammistöðu sina í mynd- um eins og Philadelphia og The Hurricane og honum er almennt fyrir- gefið fyrir Devil in a blue dress. Þrátt fyrir að íslendingum sé ekki almennt í nöp við Denzel er hann ekki að efla vináttutengsl sína og afla nýrra vina við tökur nýjustu myndar sinnar. Hann hefur verið kuldalegur og fjar- rænn í samskiptum sínum við aðra leikara myndarinnar. Nú ganga sögur um það að hann láti sig hverfa af töku- stað og að það hafi gerst tvisvar á ein- um mánuði. í fyrra skiptið sagðist hann ætla að verða við frumsýningu myndar sinnar, Remember the Titans. Denzel var þó ekki heppnari en svo að hann varð fyrir sjónvarpsmönnum á tónlistarverðlaunahátfð. Þegar Denzel varð var við að myndavélinni var beint að honum og vini hans, Lenny Kravitz, reyndi hann að hylja andlit sitt. En allt kom fyrir ekki og Denzel varð ekki vinsælli í herbúðum kvik- myndamanna eftir þetta. t síðara skiptið rauk hann af töku- stað til að horfa á íþróttakappleik og kom ekki í tökur daginn eftir. Tals- menn Denzels segja að hans hafi ekki verið vænst á tökustað þann dag þannig að þetta hafi verið í lagi. Augljóst er að Denzel veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga því hvort sem hann er eða fer þá er hvort tveggja verra. Frábært verð! • 10 stk. gjafaarkir á 350,- • Gjafakort frá 50,- stk. • Allar jólaservíettur á 50,- stk. • jólaskraut frá 50,- • jumbo, 12 litir, 50,- • Litabók 100,- Frábært verð, Langholtsvegi 42,s. 5882608 Opið 12-18 virka daga, 12-16 laugardaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.