Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 23
23
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000________________________________________________________________________
DV ______________________Sviðsljós
20 Ijósa útisería
Mjög vönduð
vatnsheld sería
S \
2.990
Grýlukertaseríur
200 Ijósa
INNI kr. 1 .990
0.000
þeir hefðu þegar verið ráðnir til
þess að leika í myndinni og leika
tónlist. Það getur verið að drengim-
ir hafi verið heldur fljótir á sér því
nýlega steig tröllið sjálft fram og sló
allar þessar sögur niður í einu
höggi.
Travölta sagði að hann hefði eng-
an áhuga á endurgerð, honum fynd-
ist hugmyndin andstyggileg og
Grease væri ein þeirra söngva-
mynda sem hefði aldrei átt að gera
framhald af. Hann benti á myndir
eins og Kabarett máli sínu til stuðn-
David Hasselhof er sagöur hafa bar-
iö mann og neytt hann síðan tll
dómsáttar um máliö.
Meg Ryan
treystir
ekki eigin-
manninum
Meg Ryan á nýjan eiginmann sem
heitir Russeil Crowe. Þau kynntust
við tökur á myndinni Proof of Life
og með þeim tókust svo góðar ástir
að þau yfirgáfu bæði fyrrverandi
maka sína. Nú má segja að Ryan
sitji hinum megin við borðið því ný-
lega gafst Crowe, eiginmanni henn-
ar, tækifæri til þess að leika á móti
hinni frægu kynbombu, Sharon
Stone, í kvikmyndinni Basic In-
stinct II sem er í undirbúningi.
Hann mun hafa sýnt málinu tölu-
verðan áhuga en þegar til átti að
taka setti eiginkonan honum stól-
inn fyrir svefnherbergisdymar.
Hún vissi sem var að hann er
veikgeðja og við erfiðar aðstæður á
tökustað fjarri heimili og eiginkonu
getur dómgreind hans brugðist. Það
varð að samkomulagi milli þeirra
hjóna að Crowe léti þetta freistandi
tilboð fram hjá sér fara.
Sagt er að Ryan hafi rætt þessi
mál af einlægni við leikkonurnar
Carrie Fisher, Elisabeth Taylor og
Joan Collins sem samanlagt eiga 15
hjónabönd að baki. Þær munu hafa
ráðlagt henni að sýna fulla hörku í
þessu máli ef ekki ætti illa að fara.
Meg Ryan vill ekki leyfa
eiginmanninum aö leika á móti
Sharon Stone í Ógnareðli 2.
Travolta vill
ekki Grease 3
Hasselhof
barði mann
Margt hefur gengið á affurfótunum
fyrir David Hasselhof, fyrrum aðal-
stjörnunnar í Strandvarðaþáttunum
vinsælu. David ætlaði fyrst að hefja
framleiðslu nýrrar þáttaraðar en
henni var aflýst á síðustu stundu.
Næst vildi hann gera kvikmynd og var
búið að ráða hinn meinfyndna Mike
Myers til að leika móti sandstjöm-
unni. Þegar Myers sá handritið fór
hann í kaffi og kom aldrei aftur.
Nú er kominn fram í dagsljósið
maður að nafni Angelo Reno sem seg-
ir að fyrir rúmum fjórum árum hafi
Hasselhof barið sig í klessu. Hann hafi
síðan sent vini sína heim til Renos og
neytt hann með hótunum tO að sættast
á 130 þúsund dollara bætur. Reno seg-
ist hafa verið með skerta dómgreind
vegna þess að hann var veikur af
krabbameini þegar þetta gerðist og
hann hafi því samið af sér.
Reno hefur því dregið málarekstur-
inn aftur upp úr skúffu sinni og hefúr
stefnt Hasselhof fyrir líkamsmeiðingar
og krefst himinhárra skaðabóta.
Hasselhof sér því hvergi til sólar þessa
dagana og ætti sennilega helst að
skreppa bara á ströndina og gleyma
áhyggjum sínum þar um tíma.
John Travolta er i hugum margra
mikil stjama, bæði sem leikari og
söngvari og ekki síst dansari. Hann
varð frægur fyrir leik sinn i dans-
og söngvamyndum eins og Saturday
Night Fever og Grease, en vinsaeld-
ir hans hafa aukist hröðum skrefum
hin síðari ár vegna túlkunar hans á
burðarmeiri hlutverkum þar sem
hann dansar ekki, enda Travolta
ekki eins lipur til dansmenntar eins
og hann var á sínum yngri árum.
Nýlega komst sá orðrómur á
kreik að verið væri að undirbúa
gerð þriðju myndarinnar og þar
ætti Travolta sem fyrr að vera í að-
alhlutverki. Þetta gekk svo langt að
hin vinsæla drengjahljómsveit
N’Sync sagði í sjónvarpsþætti að
John Travolta hefur endanlega af-
neitað þeim hugmyndum að hann
muni leika í þriöju Grease-myndinni,