Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV
Kveðja til Ingiríöar drottningar
Danir syrgja nú Ingiríði drottningu
sem lést síðastliðinn þriðjudag.
Fjöldi þjóðhöfð-
ingja við útför
drottningarinnar
Þjóðhöfðingjar víðs vegar úr Evr-
ópu verða viðstaddir útför Ingiríðar
drottningar af Danmörku í Hró-
arskeldu á þriðjudaginn. Auk
norsku og sænsku konungsfjöl-
skyldnanna koma Albert Belgíukon-
ungur og Paola drottning, Beatrix
Hollandsdrottning og Jean stórher-
togi frá Lúxemborg. Tarja Halonen,
forseti Finnlands, og Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, verða
einnig viðstödd.
Kista drottningarinnar hefur ver-
ið flutt til hallarkirkju Kristjáns-
borgar í miðborg Kaupmannahafn-
ar. Þar getur almenningur kvatt
drottninguna.
Reykhringir
komu upp um
glæpakonu
Reykvenjur japanskrar glæpa-
konu, sem eftirlýst hefur verið í 30
ár, komu loksins upp um hana. Jap-
anskt dagblað greindi frá því í gær
að Fusako Shigenobu, leiðtogi
Japönsku rauðu herdeildanna, sem
skildi eftir sig slóð blóðugra mann-
rána og árása, hefði verið gripin.
Shigenobu, sem er 55 ára, blés alltaf
hringi þegar hún reykti sígarettum-
ar sínar. Lögreglan í afskekktum bæ
í vesturhluta Japans var viss um að
hún hefði fundið keisaraynjuna,
eins og Shigenobu var kölluð, þegar
hún sá hana reykja. Það reyndist
rétt. Talið var að Shigenobu væri
búsett í Líbanon.
Þýskalandskanslari
Gerhard Schröder óttast að
umræðan um útlendinga kyndi
undir árásum á þá.
Þýskaland:
Meirihlutinn vill
færri útlendinga
62 prósent A-Þjóðverja og 47
prósent V-Þjóðverja eru þeirrar
skoðunar að of margir útlendingar
séu í Þýskalandi. Tveir þriðju
hlutar vilja meiri takmarkanir á
flutningi útlendinga til landsins.
Þetta er niðurstaða skoðana-
könnunar sem birt var í gær. íbúar
Þýskalands eru nú 82 milljónir. Þar
af eru útlendingar 7 milljónir. Fyrir
áratug voru þeir 4 milljónir.
89 prósent eru þeirrar skoðunar
að krefjast eigi þess af útlendingum
aö þeir tali þýsku vilji þeir búa í
Þýskalandi. 61 prósent segir þá eiga
að taka upp þýska siði og venjur.
Kurr í herbúðum
keppinautanna
Spennan í herbúðum forsetafram-
bjóðenda Bandaríkjanna jókst í gær
þegar fréttastofur greindu frá því að
George Bush hefði 327 atkvæða for-
skot á A1 Gore í Flórida að lokinni
endurtalningu í öllum sýslum ríkis-
ins. Þetta voru óopinberar tölur.
Starfsmenn kosningaskrifstofu
Bush sögðu sinn mann hafa unnið.
Bush hélt áfram vali sínu á ráðherr-
um en starfsmenn Gores sögðu
kosningunum ekki lokiö. Telja á í
þriðja sinn í Palm Beach-sýslu í dag
og talningu þar lýkur ekki fyrr en
eftir helgi. Einnig er eftir að telja ut-
ankjörstaðaatkvæði.
Flestir eru sammála um að sett
hafi verið met í klúðri í forsetakosn-
ingunum síðastliðinn þriðjudag.
Hundruð kjósenda í Palm Beach-
sýslu segja kjörseðilinn hafa verið
útbúinn þannig að þeir gætu hafa
greitt hægri manninum Pat
Buchanan atkvæöi sitt í stað A1
Gore. Að Buchanan skyldi fá næst-
um 8 prósent atkvæða í sýslunni
þykir styðja þessa kenningu þar
sem hann fékk 1 prósent á lands-
vísu. Buchanan kveðst meira að
segja sjálfur vera þeirrar skoðunar
að hann hafi fengið atkvæði sem í
raun hafi ekki verið hans.
Yfir 19 þúsund atkvæði i Palm
Beach voru lýst ógild þar sem kjós-
endur höfðu greitt tveimur fram-
bjóðendum atkvæði. Demókratar
segja það vera vegna ruglingslegs
kjörseðils. Repúblikanar segja ekk-
ert óeðlilegt við ógilda kjörseðla.
í St. Louis í Missouri voru kjör-
staðir opnir nokkrum klukkustund-
um lengur á svæði demókrata þar
sem enn voru langar biðraðir fyrir
utan þegar loka átti. Repúblikanar
segja þetta kosningasvindl.
í Missouri var að minnsta kosti
einn kjörstaður ómannaður í yfir
eina klukkustund. Starfsmenn yfir-
gáfu staðinn án þess að læsa kjör-
kössunum. Repúblikanar segjast
einnig líta á þetta sem kosninga-
svindl.
I Iowa, þar sem Gore bar sigur úr
býtum, munaði svo litlu á atkvæöa-
fjölda að líklega þarf að endurtelja
þar lika.
í Wisconsin, þar sem Gore sigraði
einnig, er svo jafnt milli Gore og
Bush að repúblikanar íhuga að
biðja um endurtalningu.
I Nýju Mexíkó er eftir að telja 27
þúsund utankjörstaðaratkvæði. For-
skot Gores er svo litið að Bush get-
ur fengið meirihluta að lokinni taln-
ingu á utankjörstaðaratkvæðum.
Samt sem áður hefur verið lýst yfir
sigri Gores í ríkinu.
Daginn eftir forsetakosningarnar
var því lýst yfír að Gore hefði feng-
ið flest atkvæði kjósenda, með nær
200 þúsunda atkvæða forskot á
Bush. Nú segir yfirkjörstjóm að það
sé alls ekki víst að Gore fái flest at-
kvæði kjósenda. Eftir sé að telja
milljónir utankjörstaðaratkvæða.
Tvær fylkingar
Bandaríkjamenn hafa nú skipst í fylkingar. Hér kallast repúblikanar og demókratar á fyrir utan dómhúsið
I Palm Beach-sýslu í Flórída.
Barak svartsýnn fyrir
fundinn med Clinton
ísraelskir hermenn skutu í gær
til bana þrjá Palestínumenn á Vest-
urbakkanum og Gazasvæðinu. Yftr
20 Palestínumenn særðust í átökum
við ísraelska hermenn. Einn ísra-
elskur hermaður fékk skot í hálsinn
í Betlehem og annar særðist er
sprengja sprakk í Jerúsalem. Síð-
degis í gær lokuðu ísraelskir her-
menn Betlehem og Ramallah til þess
að reyna að bæla niður óeirðirnar.
ísraelska lögreglan bannaði
einnig palestínskum körlum yngri
en 45 ára að sækja bænastund í al-
Aqsa-moskunni i Jerúsalem. Að
sögn sjónarvotta beittu lögreglu-
menn kylfum er þeir hindruðu
Palestínumenn frá því að sækja
bænastundina. Nokkrir sættu bar-
smíðum en bænastundinni lauk þó
friðsamlega.
Slagorð hrópuö
Grímuklæddur félagi Hamassamtak-
anna mótmælir ofbeldi ísraela.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, kvaðst í gær svartsýnn á
friðarhorfur.
Barak hittir Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta á morgun. „Ég býst
ekki við að viðræöurnar í Was-
hington leiði til þess að friðarvið-
ræður verði teknar upp að nýju. Ég
held til Washington í öðrum til-
gangi, til þess að binda enda á of-
beldið,“ sagði ísraelski forsætisráð-
herrann við fréttamenn í gær.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, ræddi við Clinton í
Washington á fimmtudaginn.
Arafat tókst ekki að fá Banda-
ríkjaforseta til að styðja hugmynd-
ina um að senda friðargæsluliða á
vegum Sameinuðu þjóðanna til þess
að vernda Palestínumenn gegn of-
beldi ísraela.
Of önnum kafinn
HMn Joseph Fstrada,
■ forseti Filipps-
■ eyja, sagði í gær
■ að hann hefði
r •"'""ÍssJU ekÉi frá til-
jrm raunum fyrrver-
I andi bandamanns
I : í J sins til að múta
honum með millj-
ónum dollara þar sem hann hefði
haft of mikið að gera.
Verösamráö olíurisa
Húsleit var gerð á fimmtudaginn
hjá stórum sænskum olíufélögum
vegna gruns um samráð á verði á
dísilolíu.
Engar þorskveiöar
Alþjóðahafrannsóknarráðið mæl-
ir með því aö enginn þorskur verði
veiddur í Norðursjó og Skagerak ár-
ið 2001 þar sem þorskstofninn sé að
hruni kominn.
Dæmd fyrir mismunun
Borgarstjórinn í Vitrolles í
Frakklandi, Catherine Mégret, hef-
ur verið dæmd fyrir mismunun. Til
að hvetja borgarbúa til barneigna
ætlaði Mégret ætlaði að gefa ný-
fæddum börnum 5 þúsund franka.
Aðeins þeir sem áttu að minnsta
kosti annað foreldrið franskt eða
evrópskt áttu að fá peningagjöfina.
Milljónir undir gólfinu
Ástralska lögreglan fann 4 millj-
ónir ástralskra dollara undir gólfi í
heimahúsi hjá þjófum sem notað
höföu stolið bankakort 7 þúsund
sinnum.
Slasaöist á fingri
Harry prins, yngri sonur Díönu
----—---------n prinsessu og
J Karls Bretaprins,
kom aftur í skól-
ann í gær eftir að
hafa gengist und-
ir aðgerð á þum-
alfingri. Prinsinn
meiddi sig í fót-
boltaleik.
Langamma hans,
Elísabeth drottningarmóðir, er á
batavegi eftir viðbeinsbrot.
Dóttir Schyman krotar
Anna, dóttir Gudrun Schyman,
leiðtoga Vinstri flokksins í Sviþjóð,
viöurkennir að vera einn
veggjakrotaranna sem kosta Stokk-
hólm 10 milljónir íslenskra krónu á
viku. Önnu finnst að verja eigi fénu
sem fer í að hreinsa veggina til
vamar ofbeldis gegn konum í stað-
inn.
6 milljónir sjálfboöaliða
Saddam Hussein íraksforseti
hætti í gær skrán-
ingu sjálfboðaliða í
stríð gegn ísrael.
Yfír 6 milljónir
sjálfboðaliða gáfu
sig fram á einum
mánuöi. Saddam
óskaði eftir
sjálfboðaliðum
þegar átök hófust á ný á herteknu
svæðunum.
Ættingjar Elians reiöir
Ættingjar kúbverska drengsins
Elians Gonzalez kalla lögmann
þeirra í máli drengsins svikara þar
sem hann aðstoði A1 Gore við að
kæra kosningaúrslitin í Flórída.