Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 21
21
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 _____________________________________________
X>v ________________________________________Helgarblað
að sem eins konar guðspjall. Kannski
hafa þeir óttast að verða settir út af
sakramentinu hjá stærsta lesenda- |
hópnum, konum. Sjálfur hef ég lent í '
þeirri stöðu að kijúpa fyrir femínist-
um; beðið þær um að hleypa mér inn í í
hinn femíníska bókmenntaguðdóm.
En nú er ég staðinn upp, fjandakorn-
ið!“
Sambærilegt við kiaustrin
Rúnar Helgi er einn þeirra höfunda
sem hafa allmikla menntun á sviði
bókmennta. Hann segir að fræðin og
skáldskapurinn samræmist mjög vel.
„Ég velti þvi stundum fyrir mér
hvort hér á landi ríki óþarfa við-
kvæmni gagnvart höfundum með slíka
menntun. Sjáifur fór ég í tungumála-
og bókmenntanám beinlínis til að búa
mig undir ritstörf. Þetta voru æfmga-
búðir fyrir mig svo ég fengi sem besta
yfirsýn yfir heimsbókmenntimar. Á
Islandi er ekki hægt að fara í listahá-
skóla til að afla sér þekkingar og þjálf-
unar á sviði ritunar, eins og margir
þekktir höfundar erlendir hafa gert í
seinni tíð, og því fór ég þessa leið.
Þetta er kannski sambærilegt við það
sem menn eins og Laxness gerðu þeg-
ar þeir gengu í klaustur um tíma.“
Áhrif að utan
Helstu áhrifavaldar Rúnars Helga
eru ekki með lögheimili á íslandi.
„Ég held að ég sæki mér öðru frem-
ur áhrif til útlanda og þá ekki síst til
höfunda sem ég hef þýtt eða kennt. Ég
hef haft mikinn áhuga á höfundum
„Sjálfur hef ég lent í
þeirri stöðu að krjúpa
fyrir femínistum; beðið
þœr um að hleypa mér
inn í hinn femíníska bók-
menntaguðdóm. En nú er
ég staðinn upp, fjanda-
kornið!“
sem koma langt að og hafa jafhvel
tveggja heima sýn. Hvað samskipti
kynjanna varðar er einn höfundur sem
hefur haft meiri áhrif á mig en nokkur
annar. Það er Philip Roth, einn mesti
skáldjöfur heimsbyggðarinnar nú um
stundir. Það eru liðin tæp 20 ár síðan
ég kynntist verkum hans og hef ég
fylgt honum eftir síðan. Roth kann að
flysja hégómann utan af manneskj-
rmni, sýna hana nakta.“
Les ekki Laxness
Útrás íslenskra höfunda eftir áhrif-
um hefur aukist mjög á síðustu árum
hvort sem menn eru vísvitandi að
reyna að losna undan álögum Halldórs
Laxness eða ekki.
„Um fermingu keypti ég mestallt
höfúndarverk Laxness á afborgunum
og las það á unglingsárum. Þegar ég
byijaði að skrifa þóttust einhveijir
merkja áhrif frá Laxness i skrifum
mínum. Þá tók ég ákvörðun um að
hvíla verk hans, þó að þau hefðu veitt
mér ómældan unað. Halldór Laxness
er vissulega yfirþyrmandi kennileiti í
íslensku landslagi en það letur mann
þó ekki heldur hvetur.
Sökum smæðar íslensks samfélags
er óhjákvæmilegt að maður leiti til út-
landa og það hafa íslenskir höfundar
iðulega gert. Þannig getur maður öðl-
ast gestsauga á íslenskt samfélag. Ég
sakna þó stundum íslenskra innflytj-
endabókmennta, held að þær gætu
blásið nýju lífi í bókmenntir okkar.“
Með Gunnar á bakinu
Rúnar Helgi segir að margir ætlist
til þess, leynt og ljóst, að íslenskir rit-
höfundar taki á sínar herðar að varð-
veita menningararfmn.
„Það er frekar óþægileg krafa, að
minnsta kosti ef hún verður of bókstaf-
leg. Rithöfundar eiga ekki að hafa
skyldur af því tagi. Þeir eiga að vera
óháðir öllum þrýstihópum og fyrst og
fremst trúir sjálfum sér. Ef maður vel-
ur að skrifa á íslensku rækir maður þó
að vissu leyti þessar „skyldur" hvort
sem manni líkar betur eða verr.
íslensk tunga hefur nefnilega menn-
inguna í farangrinum. Maður er alltaf
með Gunnar á Hliðarenda á bakinu.“
-sm
Sviðsljós
Hutton
slapp
naumlega
Leikkonan góökunna, Lauren
Hutton, slapp sannarlega með
skrekkinn á dögunum þegar mótor-
hjól hennar valt og hún kastaðist af
þvi. Hutton fékk sprungur í fótlegg,
heilahristing, úlnliðsbrot og fjölda
skráma og skurða eftir óhappið.
Hún flaug af hjólinu og fékk mik-
ið högg á hægri hlið líkamans og
var flutt með þyrlu á sjúkrahús í
dauðans ofboöi.
Lauren Hutton
slapp með skrekk-
inn í slæmu mótor-
hjólaslysi á dögun-
um.
Hutton er
sögð á góð-
um batavegi
en hún
stundar
sjúkraþjálf-
un grimmt
og heilsufar
hennar er
sagt vera á
réttri leið.
Talsmenn
hennar hafa
samt viður-
kennt að
löng og erfið
ganga sé
fram undan
áður en tala
megi um
fullan bata.
Anna
Nicole svaf
hjá Penn
Anna Nicole Smith hefur í nokkur
ár verið talsvert í fjölmiðlum í Amer-
íku. Hún var fyrst í fréttiun þegar hún
giftist fyrir fáum árum níræðum olíu-
jöfri sem varla vissi aura sinna tal.
Anna var þá 27 ára. Það kom ekki
mörgum á óvart þegar sá aldraði
hrökk upp af fyrir skömmu. Það vakti
hins vegar ekki minni athygli þegar
hún lenti i hatrömmum málaferlum
við böm hins aldraða eiginmanns um
arfinn. Þar slóst Anna við sin eigin
stjúpböm, sem þó vora flest eldri en
hún, og hafði sigur því henni voru
Anna Nicole.
dæmdir 3,5 millj-
arðar í sinn hlut.
Nú hefur einn
stjúpsonurinn
heimtað endurapp-
tekt málsins vegna
þess að hann telur
sig geta sannað að
Anna Nicole hafi
haldið fram hjá
öldraðum eigin-
manni sínum með leikaranum Sean
Penn. Hann segist hafa vitni að þvi að
þau hafi horfið saman inn á salemi í
frumsýningarveislu einni og komið út
aftur úfm og rjóð eftir klukkutima.
Anna Nicole segir að Penn hafi lesið
ljóð fyrir hana á saleminu og ekkert
kynlíf hafi farið fram en ef þetta verð-
ur gert að sakamáli gæti verið á bratt-
ann að sækja fyrir hana.
?aS>
Mikil verðlækkun
Utsolu
'i=JJUÁ£;A\LAasl
1T - ^fníf 000 g?.0C> www.ih.is - www.bilheimar.is
Einnig hjá umboðs^
mönnum um land allt
Laugardag
Mán.-fös.
„æ #r
^■^atsSSSBBSSBB.
kl. 12-17
kl. 09-18
Vegna mikillar sölu á nýjum bílum frá Ingvari Helgasyni hf.
og Bílheimum ehf. eigum við mikið úrval af uppfrökubílum
▼ ▼
án útborgunar Allir bílar
við afhendingu á vetrardekkjum
Lánum í allt
að 60 mánuði