Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Side 27
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 DV Helgarblað 27 1000 eyja sós- an þótti góð - hádegisleikhúsið sló gegn í Leipzig Stefán Karl Stefánsson Hann lék hinn óþolandi farþega í leikritinu Þúsund eyja sósa eftir Hallgrím Helgason. Leikritið var sýnt á leiklistarhátíðinni Euro-Scene i Leipzig fyrir skömmu og fékk frábæra dóma. í vikunni sýndi Leikfélag íslands leikrit Hallgríms Helgasonar 1000 eyja sósa á leiklistarhátíðinni Euro-Scene í Leipzig í Þýskalandi. Leiklistarhátíð þessi var nú haldin í 10. skipti en þetta er í fyrsta sinn sem íslensku leikhúsi er boðið á hátiðina. 1000 eyja sósa er IL einleikur sem Stefán Karl Stefánsson leikur undir stjóm Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Leikritið var sýnt fjórum sinnum á hátíðinni og var uppselt á allar sýningamar. Sýningamar voru allar sýndar und- ir merkjum hádegisleikhússins eins og hefur verið gert í Iðnó, þ.e. að áhorf- endum var boðið upp á súpu fyrir sýn- ingu. Ein gagnrýni hefur þegar birst um sýninguna í stærsta dagblaðinu í ■ Leipzig, Volksheit Leipzig. Þar lofar I gagnrýnandinn sýninguna í hástert og segir leikritið vera bitra kómedíu um mann sem hefur misst fótanna í tvö- földum skiiningi. Gagnrýnandinn fer lofsamlegum orðum um aðstandendur sýningarinnar og segir meðal annars að leikarinn Stefán Karl Stefansson búi yfir einstökum hæfileikum í lát- bragðsleik. Gagnrýnandinn segir sög- una og umfjöllunarefnið hafa komist fullkomlega til skila þrátt fyrir að hann hafi ekki skilið stakt orð í mál- inu sem sýningin var flutt á. Þá fjallar gagnrýnandinn ítarlega um hádegisleikhús Leikfélags íslands, sem honum frnnst vera skemmtileg og frumleg hugmynd sem virki fullkom- lega. í lok greinar sinnar leggur hann til að hugmyndin um hádegisleikhús verði fengin að láni og leikhússtjórar i Leipzig hleypi af stokkunum þarlendu hádegisleikhúsi í anda þess sem Leik- félag Islands kynnti í borginni með 1000 eyja sósunni. „Mér fannst þetta afskaplega ánægjulegt að við skyldum fá þessar góðu viðtökur," sagði Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri í Iðnó og leik- stjóri sýningarinnar, í samtali við DV. „Við höfðum fyrir fram svolitlar áhyggjur af því að tungumálið yrði einhver þröskuldur en það var ekki og góð stemning á öllum sýn- ingum eyddi öllum vafa um það. Þó menn séu vanir há- degisleikhúsi bæði hér og annars staðar þá er ekki venjan að leikhús geri sérstaklega út á þetta með þeim hætti sem við gerum. Það var gaman að sjá hve mikla hrifningu þessi aðferð vakti og þetta verður auðvitað fastur liður á okkar dagskrá áffam.“ Euro-Scene hátíðin er þekkt fyrir framsæknar og tilraunakenndar sýn- ingar, en á hátíðinni voru að þessu sinni verk frá Póllandi, Tékklandi. Noregi, Finnlandi, Hollandi og íslandi auk Þýskalands. Leikmyndina í 1000 eyja sósu hann- aði Snorri Freyr Hilmarsson en Kjart- an Þórisson sá um ljós. Magnús sagði að í ljósi þessara góðu undirtekta heföi verið ákveðið að efna til nokkurra aukasýninga á verkinu í Iðnó og hefj- ast þær eftir tæpar tvær vikur. -PÁÁ ; 'SWíís g Kanebo Kanebo hefur gert húðhreinsun að list og býður nú sérsniðna aðferð sem er einstök til daglegrar hreinsunar húðarinnar. Hreinsilína Kanebo býður upp á frumlega og árangursríka húðhreinsun sem hentar nútíma lífsháttum. Þessi hreinsilína er hönnuð til þess að gæla við skilningarvitin og fjarlægja óhreinindi og spennu og um leið dekra við húðina með sérstaklega völdum gjöfum náttúrunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.