Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 33
33 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 ____________________________________ DV ___________________________________ Helgarblað hugsunina um tvær lesbískar konur saman. Eitt af heföbundn- um þemum klámklúbbanna: „Les- biurnar Vanja & Tanja stiga á svið kl. 23.“ Stelpurnar eru gagn- kynhneigðar og þarna koma gagn- kynhneigðar og karllægar hug- myndir um lesbíur fram. Þetta er ógeðslegt. Þeir karlar sem horfa á þetta geta alveg eins farið heim saman í staðinn, þar sem þeim finnst endaþarmsmök svona æðis- leg. Sem lesbía uppfylli ég ekki þau skilyrði sem kvenleg kona á að uppfylla. Ég girnist ekki karl- menn kynferðislega. Ég var um tvítugt þegar ég hætti að sækjast eftir því að strákum likaði vel við mig. Á ung- lingsárunum var' athygli frá strák, helst vinsælum, staðfesting á því að ég væri eðlileg og alveg eins og hinir. Það var góð tilfinn- ing að uppgötva að það var ekki lengur mikilvægt fyrir mig að strákarnir álitu mig vera flotta, sexý og aðlaðandi konu. Það var eins og að gefa eitthvað upp á bát- inn sem ég haföi verið sannfærð um að væri lífsnauðsynlegt. Gat ég virkilega bara kastað þessari þörf fyrir viðurkenningu stráka fyrir róða? Ekkert mál? JÁ! Vegna þess að þetta var ekki búið til fyrir mig. Ég hafði engin not fyrir það. Það losnaði einhver klemma innan í mér. Femínisti? Neeei ég elska manninn minn... Þar sem ég er femínisti er ég fegin að vera líka lesbía. Ég lít svo á að það væri vandamál fyrir mig, sem gagnkynhneigður kven- legur femínisti, aö finna mér karl til að deila lífinu með. Karl sem með öllu sínu hjarta styður femín- isma. Ég hef hitt nokkra sem mér finnst gera það, en þeir eru svo sjaldséðir að það ætti að friðlýsa þá. Að vera svo heppin að verða ástfangin af einum þeirra er afar ósennilegt. Ástandið er samt betra núna en það var fyrir fimmtán árum. Nýr formaður samtaka samkyn- hneigðra í Svíþjóð hefur sagt að henni finnist of mikið aö vera bæði lesbía og femínisti. Að vera lesbía er alveg nóg. Æ, æ, æ. Ef maður er formaður í samtökum sem eru álíka jafnréttissinnuð og hægri öfgahópur (hún er annar kvenkyns formaður samtakanna) ætti það að vera sjálfsagt að vera femínisti. Ég hef aldrei skilið hvers vegna það er erfitt að kalla sig femínista. En það er vitað mál að orðið vekur viðbrögð og sendir adrenalínið af stað. Ég er viss um að það er til fullt af gagnkyn- hneigðum konum sem kalla sig ekki femínista vegna hræðslu við árekstra. Einu sinni tók ég viðtal við konu sem hefur unnið sig upp í efstu stöður á hefðbundnum karlavinnustað. Ég spurði hana hvort hún væri femínisti, hún svaraði óstyrkri röddu: „Femínisti??! Neeei, ég elska manninn minn, svo á ég líka tvo syni.“ Femínisti er sem sagt það sama og karlhatari. Lesbíur geta því, samkvæmt þessu, varla hatað karla minna. Ég hata bara karla- samfélagið, feðraveldið, valda- skipulagið. Það nær líka yfir sum- ar konur. Það eru fáir femínistar sem mundu lýsa sér sem karlhat- ara. Ef það er eitthvað að marka það sem ég les í blöðunum þá eru til dæmis geldingar mjög sjald- gæfar. Ofbeldi gegn konum á sér samt stað á hverjum degi. Karl- hatur er ekkert stórt vandamál en það er samt eitthvað sem má alls ekki viðurkenna. Bannað. Það aö hata konur vekur ekki jafn sterk viðbrögö. Þvert á móti, við búum við menningu þar sem kvenhatur þrífst vel og er viðurkennt. Hatur á samkynhneigðum er heldur ekki álitið alvarlegt. Ég flutti frá Váxjö til Stokkhólms til þess að þora að koma út úr skápnum. Núna eru fjögur ár síðan. Ég hef aldrei skilið lesbíur og homma sem búa í litlum bæjum eins og Vaxjö og Ámál. Ef ég mundi leiöa Ur kvikmyndinni Fucking Amal Myndin sú fjaitar um ungar lesbíur í Svíþjóö. Jenny niður aðalgötuna í Váxjö mundi fólk stara augun úr hausn- um á sér. Fólkið mundi svo fara heim og skrifa greinar í bæjar- blaðið um hversu mikið þessar konur stinga í stúf við Biblíuna og náttúruna. Enn mitt í allri minni leit og út- skýringum á minni lesbísku og femínísku sjálfsmynd veit ég að mörgum af gagnkynhneigðu vin- um minum finnst ég mest „gagn- kynhneigð" af öllum sem þau þekkja. Ég verð vist að hluta til að viðurkenna að þau hafa rétt fyrir sér. Ég og Jenny búum í ein- býlishúsi (að hruni komiö), eigum Volvo (ryðgaðan Amazon), strák og stelpu (kettina Astrid og Tage), förum og verslum í stórmörkuð- um með öllum barnafjölskyldun- um. En við fylgjumst ekki meö Lottó ... bara 1x2. tiiiis [tali ipii í versh inini í LásmMa 8 kl. 10-16 ídi igj m m SftKBgfiisiíiiilla ÉSiliiim (J)mDesu/ Við eigum til 30 frystikistur frá hinum heimsþekkta ítalska framleiðanda, INDESIT, sem við ætlum að selja á sannkölluðu tombóluverði í dag. Ekki nóg með það, við setjum upp alvöru tombólu. 30 miðar fara í pott og hafa 4 Þeirra að geyma ávísun á endurgreiðslu á kistunum. Indesit - 370 Itr._______ hæð 88 x breidd 132 x dýpt 65 Verð áður: Tombóluverð 42.900 27.900 / T Di Indesit - 443 Itr,_______ hæð 88 x breidd 164 x dýpt 65 Verð áður: 47.900 Tombóluverð 29.900 BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.