Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 37
36 45 Helgarblað LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 DV LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 DV Helgarblað - Björk ræðir um nýju plötuna, kvikmyndina, flutninga vestur um haf og samstarfið við Raddir Evrópu Hún fékk verðlaun á kvik- myndahátiðinni i Cannes í vor, ekki fyrir tónlistina sína sem hún hafði þó lagt sál sína í heldur sem besta leikkona í aðal- hlutverki. Hún er tilnefnd til ís- lensku Eddu-verðlaunanna og evr- ópsku kvikmyndaverðlaunanna fyr- ir sama hlutverk og margir spá því að hún verði tilnefnd til óskarsverð- launa fyrir hlutverk Selmu í kvik- mynd Lars von Triers, Dancer in the Dark. Við hringdum til Bjarkar Guðmundsdóttur í New York fyrir viku og spurðum hvernig henni liði. „Bara ofboðslega vel,“ segir hún sinni skæru röddu sem farsíminn tekur ekkert sérstaklega vel á móti. Mörg gullkornin drukkna á leiðinni yfir hafið. „Ég er að klára nýju plöt- una mína, á bara tvær vikur eftir og það er mjög spennandi." - Er þetta allt öðruvísi plata en þú hefur áður gert? „Já, hún er alveg nýr heimur." Hef aldrei verið hér áður - Geturðu lýst henni fyrir mér? spyr blaðamaður tilætlunarsamur. „Það er soldið viðkvæmt akkúrat núna,“ ansar hún dræmt, „ekki af því maður sé nískur á upplýsingar heldur af þvi að þegar maður er að klára þá getur allt gerst, skilurðu. Maður má ekki koma í veg fyrir það óvænta og þegar maður er búinn að analýsera hvemig plata er þá úti- lokar maður að eitthvað óvænt geti gerst. Ég hef lent í því áður. Ég vil ekki tala um hana fyrr en hún er komin í box og plast, eftir það breyt- ist ekkert. En það er alveg á hreinu að þetta er alveg nýr staöur. Ég lít í kringum mig og veit að ég hef aldrei verið hérna áður!“ segir hún og hlær. Platan kemur ekki út fyrr en næsta vor því Björk skrifaði undir samning um að gefa ekkert út með- an Dancer in the Dark væri í kvik- myndahúsum. Dýrkun á þjáningu - Hver er munurinn á að búa til plötu og kvikmynd? Er það mjög ólíkt? „Ég held að yfirleitt sé það kannski ekkert svo ólíkt en fyrir mig var það mjög ólíkt. Síðan ég var unglingur hef ég verið að vinna meira og minna með sama fólkinu og það er eins og fjölskylda mín. All- ir hafa sitt hlutverk, allir eru jafnir og allir nærast hver á öðrum. Þegar ég fór að vinna í Dancer in the Dark þurfti ég að yfirgefa fjölskyldu mína og fara ein inn í annarra manna fjölskyldu. Það var soldiö eins og að hoppa fram af kletti með enga fall- hlíf. Þegar maður er búinn aö vera í sínum eigin heimi í yfir tuttugu ár, umkringdur fólki sem maður elskar út af lífinu, þá áttar maður sig ekki á aö maður hefur pikkað út fólk - eöa það hefur pikkað mann út - sem maður á margt sameiginlegt með, hefur sama smekk á mat, tón- list og sömu skoðanir á stóru hlut- unum sem maöur talar ekki um af því maöur þarf þess ekki. Með þannig fólki getur maður einbeitt sér að vinnunni og þarf ekki að eyða tíma i að ræöa einhver smáat- riði. Svo er maður allt í einu kom- inn inn í allt aðra fjölskyldu sem hefur allt aðra grunnafstööu til þessara stóru spuminga í lífinu. „Og í þessari bíómynd er ákveðin dýrkun á þján- ingu sem ég samþykki ekki og alls konar hlutir sem koma mannréttind- um við sem ég er ekki sammála. Ég vissi ekki að ég hefði svona sterkar skoðanir á þessum hlut- um, ég leit aldrei á mig sem pólitíska manneskju og mér fannst ofsalega spennandi að komast að því! Manni var stillt upp við vegg og maður þurfti að taka afstöðu.“ Það er ofsalega skrýtið. Og í þessari bíómynd er ákveðin dýrkun á þján- ingu sem ég samþykki ekki og alls konar hlutir sem koma mannrétt- indum við sem ég er ekki sammála. Ég vissi ekki að ég hefði svona sterkar skoðanir á þessum hlutum, ég leit aldrei á mig sem pólitíska manneskju og mér fannst ofsalega spennandi að komast að þvi! Manni var stillt upp við vegg og maður þurfti að taka afstöðu. Ef það eru svona djúpir, djúpir, djúpir, djúpir hlutir og maður er ekki sammála þeim þá finnur maöur fyrir þvi al- veg niður í tær! Maður tekur það ekki í mál. Eins og ef barn væri lamið fyrir framan mann, þá myndi sjóða á manni.“ Spurning um augu og eyru - Finnst þér þá óþægilegt að horfa á bíómyndina? „Allur pakkinn tók þrjú ár sem er dáldið langur tími en nú er meira en ár síðan vinnunni við hana lauk og ég er komin á allt annan stað, en ég held að ég geti ekki horft á hana fyrr en eftir tíu ár eða eitthvaö. Núna væri það eins og að skoða myndaalbúm úr partíi sem var haldiö fyrir viku og maður áttar sig ekkert á því hvað er á myndunum. En eftir tíu ár sér maður annað samhengi og hugsar kannski: Já, var hann með þetta blik í auganu! Þetta er spumingin um augu og eyru,“ heldur hún áfram. „Ég hef gefið út plötur í tuttugu ár og ég get spilað eitthvaö brjálað lag og verið komin með fjarlægð á þaö eftir fimm mínútur, en mér hefur aldrei gengið vel að greina rétt frá röngu með augunum, þaö myndræna verð- ur bara að vera eins og það er, skil- urðu? Eyrun á mér eru miklu fag- legri. Þar er ég fagmaður. En sem leikkona er ég enginn fagmaður." A5 elta eðlishvötina - Þú talaðir áðan um þetta góða fólk sem þú hefur unnið með árum saman - geturðu sagt mér hvemig þú velur þér samstarfsfólk? „Mest af eðlisávísun," segir hún. „Þú veist hvernig það er þegar mað- ur byrjar i nýjum skóla - til dæmis þegar ég byrjaði í Réttó þegar ég var þrettán ára - strax í fyrstu vikunni veit maður hverjir verða vinir manns. Þannig pikkar maður fólk upp. Hinir eru ekkert leiðinlegir, það er ekki það, maður á bara ekk- ert sameiginlegt með þeim. Þetta er eins og segull og segulstál, maður veit af eðlishvöt hverjir eiga vel við mann. Og ef maður hugsar ekkert heldur eltir bara eölishvötina þá endar þaö með því að fólk nær sam- an sem hefur mikið að gefa hvaö öðru. Skilurðu? Öll vinátta byggist á því aö gefa hver öðrum en þó ekki þannig að maður reikni nákvæm- lega út magnið. Maður hugsar ekki: Nú hef ég hlustað á hana í þrjú kort- er og nú skal hún hlusta á mig jafn- lengi. Samt er alltaf jafnræði vegna þess aö fólk hefur ólíka hluti að gefa og á móti þessari gjöf kemur önnur sem er jafnmikils virði þótt hún sé annars eðlis. Þannig eru öll sam- bönd sem endast í langan tíma.“ Ekki vera gráðugur „Ef maður lætur skynsemina ráða við val á samstarfsmönnum þá verður það oft þannig að maður fær ofboðs- lega mikið en getur ekki gefið neitt til baka eða að maður gefur þeim ofboðs- lega mikið en fær ekkert í staðinn, skilurðu. Þaö er langbest að hlusta á eðlisávísunina. Flestir sem ég hef unn- ið með á þessum plötum og í tónleika- ferðum hafa fyrst verið vinir mínir í tvö þrjú ár, svo kemst maður að því hvað við höfum að gefa hvort öðru. Fyrst kemst maður að augljósu hlutun- um - einn er ljósmyndari og annar þarf að láta mynda sig - en það eru grunnar þarfir og ekkert nærandi, bara vinna. Það er ekkert gaman að vera bara í vinnunni. En með flest þetta fólk sem ég hef unnið með lengi var það þannig að þegar ég sá það fyrst var það eins og að verða ástfangin! Maður fer að spinna og kemst alveg á flug og finnst maður geta talað og tal- að i marga klukkutima! Maöur finnur fyrir mikilli orku en þá orku verður maður að virða og fara afskaplega vel með hana. Ekki vera gráðugur og ætla að gleypa allt á einum degi. Ekki held- ur sýna henni hirðuleysi. Ef maður bíður lengi getur hún verið farin. Mað- ur á að vera auðmjúkur og láta orkuna ráða ferðinni, þá getur komið eitthvað ótrúlegt út úr því.“ Björk hefur bækistöðvar sínar í stórborginni New York um þessar mundir. „Ég hef veriö hér síöan í vor og á næstunni kemur í Ijós hvort ég verö hér áfram. Ég er búin aö kaupa húsnæöi undir skrifstofu og stúdíó og þaö lítur út fyrir aö fólkið sem hefur veriö meö mér síöan ég var unglingur og sem dreiföist i allar áttir meöan ég geröi kvikmyndina sé aö tilkynna sig og tínast eitt af ööru hingaö á staöinn. “ Tengir klassík og popp - Ef þú ættir að setja sjálfa þig í skúffu núna sem tónlistarmann, hvort myndiröu flokka þig sem nú- tímaklassískt tónskáld eða popp- ara? „Eiginlega hvorugt. Ég held að mín rulla hafi alltaf verið að vera túlkur þama á milli. Og kannski BJörk var miklð í svlðsljósi heimspressunnar þegar hún lék í mynd Lars von Trler, Dancer In the Dark, enda hlaut hún verðlaun á Kvikmyndahátíðlnni í Cannes fyrlr leik slnn. „Þegar ég fór aö vinna í Dancer in the Dark þurfti ég aö yfirgefa fjölskyldu mína og fara ein inn í annarra manna fjölskyldu. Þaö var soldiö eins og aö hoppa fram af kletti meö enga failhlíf. “ ekki endilega milli þessara tveggja hluta. Ég var alin upp í klassískum tónlistarskóla en hjá mömmu minni hlustaði ég á popptónlist, hippatónlist og hjá ömmu hlustaði ég á djass. Svo var ég að spila klassík fyrir mömmu mína og fara með djassplötur í tónlistarskólann - alltaf að bjóða bleiku doppumar þeim sem áttu helling af grænum! Ég held að ég þrífist best á ein- hverjum mörkum. Kannski var það þess vegna sem ég gat gert þessa bíómynd, ég hafði ekkert með bíómyndir að gera og hafði svo mikið að gefa af því ég veit ekki neitt og spyr eins og bam. Eins og Lísa I Undralandi," segir hún en finnst það viö nánari íhug- un ekki rétt samlíking og spyr: „Er þetta ekki nýju-fötin-keisarans- pakkinn ef við viljum setja það í ævintýrapakka?“ Svo bætir hún við: „En mér hef- ur aldrei liðið vel sem poppari - eða í neinu kerfi, ég er alltof mik- ill rebell í mér.“ Eins og Kofi Annan - Mér hefur fundist þú mark- visst vera að brúa bilið milli popps og klassískrar tónlistar og leiða fólk þarna á milli. Tónlistin þin hlýtur að vera góður stuðningur á leiðinni yfir í alvarlega tónlist. „Takk,“ segir stjarnan hógvær og við flissum báðar. „Samt finnst mér ég ekki vera neinn David Attenborough sem stendur á eyðieyju og segir: Ef þið lítið til vinstri þá haldið þið kannski að þetta sé steinn sem þið sjáið en ..." og Björk hermir nokk- uð sannfærandi eftir alþýðufræð- aranum mikla. „Ég er ekki svona týpa. Ég gæti aldrei skotið rótum neins staðar því um leið og það gerist fæ ég innilokunarkennd. Ef ég gríp nú nett til sálfræðinnar þá held ég að svona sé þetta oft hjá skilnaðaðarbörnum, þau langar svo til að báðir heimamir virki sem best og þau eru bæði með pabba sinn og mömmu sína inni í sér en þau eru hvort í sínum heimi og maður er mamma hjá pabba sínum og pabbi hjá mömmu sinni. Ég lít alls ekki á þetta sem sorg- legt, skilurðu, þetta er mjög já- kvætt. Maður verður dáldið svona Kofi Annan! Alltaf að líma saman tvo ólíka heima en á aldrei cdgjör- lega heima í öðrum. Þetta hefur verið mín rulla og ég er ánægð með hana.“ Dreymir um samstarf við Þorgeröi - Uppáhaldsdiskur margra landa þinna með þér er Gling-gló sem þú gerðir með Guðmundi Ingólfssyni. Ef þú ætlaðir að gera annan disk með íslenskum lögum, hvern myndirðu velja til samstarfs við þig? Björk dregur svo lengi við sig svarið að blaðamaður býðst til að taka spurninguna aftur. Loks segir hún: „Af því ég elti alltaf eðlishvötina þá veit ég aldrei hvað gerist lengur en í hæsta lagi hálft ár fram í tím- ann, það er gallinn, þetta er eins og veðrið! En mig dreymir um að gera einhvem tíma eitthvað með Þor- gerði Ingólfsdóttur. Við unnum smávegis saman í fyrra í sambandi við kórinn Raddir Evrópu og ég vona að ég fái að vinna með henni aftur einhvem tíma. En pakkinn með Raddir Evrópu varð eitthvað allt annað en ráð var fyrir gert í upphafi, það starf hætti að vera kreatívt, það átti bara að klæða okkur í einhvern búning og stilla okkur upp. Þetta var alls ekki henni að kenna, heldur þurfti bara að setja upp kerfi til að geta stýrt þessum stóra hópi. Ég skfidi þetta mjög vel en ég hef ákveðnum skyldum að gegna við neistann í mér. Það virkar kannski eigin- gjamt en það er þaö ekki. Ég er ábyrg fyrir því að vera í ástandi til að geta gefið og í þessari stöðu heíöi ég ekki getað gefið neitt - nema nafnið mitt. Ég söng með Hamrahlíðarkóm- um þegar ég var sextán ára nem- andi í MH og Þorgerður er ótrúleg manneskja. Hún trúir því að það sé tfi æðra svið en við erum á yfir- leitt, það nálgast svona barnatrú og mér finnst það alveg æðislegt. Það hlæja aOir að svoleiöis fólki en það eru einmitt svona yfirnáttúru- legir hlutir sem halda okkur gang- aridi.“ „Maður finnur fyrir mikilli orku en þá orku verður maður að virða og fara afskaplega vel með hana. Ekki vera gráðugur og œtla að gleypa allt á einum degi. Ekki heldur sýna henni hirðuleysi. Ef maður bíð- ur lengi getur hún verið farin. Maður á að vera auðmjúkur og láta orkuna ráða ferðinni, þá getur komið eitthvað ótrúlegt út úr því. “ Aldrel veriö glaöari - Þú býrð í New York núna ... segir blaðamaður og lætur setning- una hanga. „Þetta er góð spurning," segir Björk og andvarpar. „Ég hef verið hér síðan í vor og á næstunni kem- ur í ljós hvort ég verð hér áfram. Ég er búin að kaupa húsnæði und- ir skrifstofu og stúdió og það lítur út fyrir að fólkið sem hefur verið með mér síðan ég var unglingur og sem dreifðist í aOar áttir meðan ég gerði kvikmyndina sé að tOkynna sig og tínast eitt af öðm hingað á staðinn. Þetta er svo skrýtið, það fóru aOir út um aOan heim - einn fór með bakpoka í hnattferð og annar ferðaðist um Kína ..." - Og nú dregur segrOlinn þá tO New York! „Suma. Fólk hefur verið að gera sina eigin hluti þennan tíma og það er ágætt.“ - Líður þér vel þama í New York? Rödd Bjarkar lækkar og hún seg- ir einlæglega: „Ég held ég hafi aldrei verið glaðari. Bara aldrei nokkurn tíma.“ - Er það borgin eöa tíminn sem gerir þetta að verkum? „Bæði, hugsa ég, þetta er nokk- urs konar kokkteiO! Þaö er eins og að alls konar fræ sem ég plantaði, sumum fyrir tólf árum, sumum fyrir átta árum og sumum fyrir sex eða fjórum árum, séu að koma upp núna. Ég ætlaði að vera að gera eitthvað allt annað núna, en mað- ur verður bara að - surrender - bara, gefa sig!“ Þögul alsæla - Ertu ástfangin? spyr blaðamað- ur - annað er ekki hægt að spyrja um eftir síðasta svar. En hún viO ekki ræða slík mál. - Þú verður 35 ára núna 21. nóv- ember. Hvar ætlarðu að halda upp á daginn? „Ég hugsa aö ég verði í Reykja- vík.“ - Eru þetta tímamót í lífi þínu? „Ekkert frekar. Ég er núna að undirbúa hljómsveitina sem ég æfia að ferðast með við kynningu á plötunni minni næsta vor og sum- ar, tékka á fólki og raða inn í hana. Hún verður að öOu leyti öðruvísi en strengjasveitin sem ég vann með síðast. Þau voru sniOingar öO og fráhær að vinna með í þeim tU- finningaólgusjó sem ég var þá í, tO finningar eru sérgrein strengj anna. Næsta plata er allt, aOt öðru vísi. Hún er meira eitthvað ósýni- legt. Töfrar. AOs engir árekstrar eöa andstæður heldur eitthvað al- veg, alveg, alveg, alveg innhverft og alveg, alveg, alveg, alveg ham- ingjusamt. Ekkert áþreifanlegt heldur eiginlega svona þögid al- sæla.“ Nú er hún búin að gera það sem hún sór í upphafi að gera ekki: analýsera nýju plötuna sína. Enda finnst henni meira en nóg komið og við kveðjumst með virktum. -SA Björk Guömundsdóttir söngkona er aö leggja síöustu hönd á nýja hljómplötu. „Hún er meira eitthvaö ósýnilegt. Töfrar. Alls engir árekstrar eöa andstæður heldur eitthvað alveg, alveg, alveg, alveg innhverft og alveg, alveg, alveg, alveg hamingjusamt. Ekkert áþreifanlegt heldur eiginlega svona þögul alsæla. “ Björk Guðmundsdóttir söngkona er flutt til New York og vinnur að nýrri plötu: Eyrun eru miklu faglegri en augun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.