Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Side 51
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 DV Tilvera Danskur bær? Þessi seldi ís á dönskum dögum og fór hratt yfir á hjólinu sínu. Sumir segja aö Hólmurinn sé nokkuö danskur bær, hvaö sem til er í því. Hólmurinn vinsæll meðal ferðamanna DV, STYKKÍSHOLMI: ~ Stykkishólmur nýtur síaukinna vin- sælda meðal innlenda sem erlenda ferðamanna. Síðasta sumar var rekin upplýsingamiðstöð i bænum flórða árið í röð. Á þriðja þúsund gestir komu og fengu aðstoð. Auk þess gistu meira en 4000 gestir á tjaldstæðunum og fjöldi manns hafði síma- eða tölvu- samband. Danskir dagar voru haldnir í sjö- unda sinn og hefur þátttaka aldrei ver- ið önnur eins. Ferðamenn sem hafa skoðað Stykkishólm og eyjamar í kring hafa hafa lýst yfir mikilli ánægju. Meðal annars sagði einn bandarísk- ur ferðamaður við DV: „Ég er í sjö- unda himni og upprifmn af því sem ég sá. Ég fór meðal annars með Baldri um Breiðafiörðinn, sigldi með Sæferðum og fékk að skoða hvali og margt fleira. Það að koma til Stykkishólms og til eyjanna i kring er alger draumur," sagði þessi ferðalangur. -DVÓ Ný hljóðfrá flugvél Rússneska flugvélaverksmiðjan Sukhoi hefur boðið kínverskum flug- málayflrvöldum til samstarfs um þrún hljóðfrárrar þotu, þrátt fyrir Concords- lysið fyrr á þessu ári. Að sögn talsmanns Sukhoi-verk- smiðjanna hefur kínverskum framleið- endum verið boðið að hanna, fram- leiða og Qármagna þotu sem byggir á hönnun vélarinnar Sukhoi S-21 sem þegar er tiL Kínveijar munu hafa sýnt hugmyndinni áhuga en Sukhoi verk- smiðjan framleiddi til skamms tíma eingöngu orrustuflugvélar en hefur á síðustu árum snúið sér að framleiðslu farþegaflugvéla. Áð mati ráðamanna Sukhoi mark- aði Concordslysið ekki endalok hljóð- frárra flugvéla. Þessi hljóðfráa flugvél tæki allt að 40 farþegum og færi á tvö- fóldum hraða hljóðsins. Flugtíminn miili Moskvu og Beijing yrði um 4,5 tími með vélinn en er nú 8 tímar. Aukin ferðalög fólks leiða til aukinna krafna um gæði flugvalla: Flugstöðvar í framþróun Mannhaf Eitt af því sem mörgum finnst erfitt í flugstöövum er hiö gríöarlega mannhaf sem þar er. Eftir því sem fiugstöövar eru stærri og fjölbreytileiki meiri ætti aö draga úr því aö allir séu aö feröast um á sama litla svæöinu. Líklega eiga flestir ferðamenn í fórum sínum hryllingssögur af flug- stöðvum. Sögur eru sagðar af margra klukkustunda bið eftir far- angri (í Nýju-Delhí), af flugvellinum þar sem ekki voru neinir upplýs- ingaskjáir með komu- og hrottfarar- tímum og ekki einu sinni klukkur (í Búkarest fram undir 1990) og þannig mætti áfram telja. Margvísleg dægradvöl í boði Víst er að engum finnst eftirsókn- arvert að bíða í flugstöð klukkutím- um saman. í sumum flugstöðvum er þessi staða þó þolanlegri en öðrum. Tid. er hægt að hugsa sér margt verra en að rölta um nýju og glæsi- legu flugstöðvarbygginguna á Charles de Gaulle-flugvelli í París. Alþjóðlegi O’Hare-flugvöllurinn i Chicago er ótrúlega skemmtilegur, sérstaklega fyrir flölskyldur, og þar er sérstakt náms- og leiksvæði sem útfært var af barnasafni Chicago- borgar. Þetta er 200 fermetra svæði þar sem meðal annars er að finna mikið Lególand. Ferðamenn í viðskiptaerindum ættu að geta verið sáttir við dvöl á Schiphol-flugvelli í Amsterdam. Þar er hægt að leigja fullkomna skrif- stofuaðstöðu með tölvutengingu, síma og faxi og þar er einnig að flnna spilavíti fyrir þá sem hafa áhuga á því. Á alþjóðlega flugvellinum í Hong Kong er einnig skrifstofuaðstaða í svokollaðri þráðlausri miðstöð í innritunarsalnum, en á þeim flug- velli er auk þess að finna austur- lenska nuddmiðstöð þar sem m.a. er hægt að fá svæðanudd. Bæði þráð- lausa miðstöðin og nuddmiðstöðin eru opin frá 7 á morgnana til 11.30 á kvöldin. Ferðalangar sem sækjast eftir glæsilegri dægradvöl ættu að líta á ótrúlegt listaverkagallerí á alþjóð- lega flugvellinum í San Francisco. Hér eru bæði glæsileg fóst sýning með bæði málverkum og höggmynd- um og flölbreyttar listsýningar sem standa styttri tíma. Betri flugvellir Enginn vafl leikur á að hvort heldur litið er á möguleika á dægradvöl eða arkitektúr eru flug- stöðvar heimsins að þróast til batn- aðar þrátt fyrir stöðugt vaxandi gegnumstreymi fólks um þær. Betri matur, betri lýsing og sér- stök reykingarými eru meðal þess sem gerir dvöl í flugstöð skárri en áður var. Merkjavöruverslanir og aörar hágæðaverslanir er líka orðið víða að flnna í flugstöðvum og al- gengt er að ferðafólk noti biðtíma á flugvöllum til að versla eða bara skoða hinn glæsUega varning. Þótt undarlegt kunni að virðast er einungis á örfáum flugvöllum i heiminum boðið upp á það sem að margra mati er mikilvægara en flest annað, ferskt loft. Á alþjóðlega flugvellinum i Mi- ami er hins vegar hægt að taka lyftu upp átta hæðir í heUsurækt flugvaU- arhótelsins, sem er opin frá 6 á morgnana til 10 á kvöldin. Þar er m.a. hægt að fá sér sundsprett í útisundlaug og skokka nokkra hringi á þakinu eða setjast bara með góðan drykk og njóta ferskra vinda sem blása um mann á þakinu. Á nýja alþjóðlega flugveUinum í Kuala Lumpur, Sepang, er gengið einu skrefi lengra. Þar er boðið upp á gönguferð í frumskóginum sem er í næsta nágrenni vaUarins. Þrátt fyrir að gaman geti verið að dvelja í sumum flugstöðvum ná þær ekki þeim hæðum að það borgi sig að missa af flugi. Það er því ráðlegt að gæta þess að hafa nægan tíma til að koma sér að brottfararhlið- Auk þess er vert að íhuga þann möguleika að fara af flugveUinum og inn í borg ef biðtíminn skiptir mörgum klukkutímum. Víða eru al- þjóðlegir flugvellir aðeins stutt frá miðborgum, þótt annars staðar geti verið um langan veg að fara. Byggt á International Herald Tribune mu. Bið á flugstöð Löng biö á flugvelli getur reynt á þolrifin en meö auknu framboöi á dægradvöl ætti biðin aö veröa bærilegri. Þrjú netföng www.simnet.is 800 7575 Armúli 25 síMiNNiStíTí^rr -tengir þig við lifandi fólk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.