Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Síða 59
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV
Helgarblað
67
Músahúsið
Hér sýnir Magnús músalokuna sem er uppseld í bili en ný pöntun er á leiðinni.
Músavinafélagið er 32 manna félag:
Músalokur Magnúsar
DV, HVERAGERDI:____________________
Það gerist á góðum bæjum sem öðr-
um bæjum að gestir gera sig heima-
komna þótt sumir húseigendur séu
fremur ósáttir við þá. Mýs má í mörg-
um tilvikum telja til þeirra. Mýs boða
lítt komu sína en búast má við að
heimsókn þeirra til lengri eða
skemmri tíma sé aðallega að hausti
þegar veður kólnar.
í símaskrá höfuðborgarsvæðisins
má sjá símanúmer hjá Músavinafé-
laginu. Forseti þess er enginn annar
en Magnús H. Skarphéðinsson, hvala-
vinur og sálarrannsóknamaður með
meiru. Fréttaritari DV hefur nýverið
keypt sína aðra músagildru hjá félag-
inu, svokallaða „músaloku", en það
er mannúðleg músagildra þar sem
mýs slasast hvorki né drepast. Músa-
lokan er lítið grænt hús og vantar eig-
inlega aðeins skorstein og lítið borð
og stól til þess að komast til umfjöll-
unar í „Hús og hýbýli" eða þáttinn
hjá Völu Matt.
í stuttu spjalli við fréttaritara DV
sagðist Magnús hafa stofnað félagið
ásamt nokkrum vinum sínum, til
þess að fá fólk til að sjá að þótt mýs
séu ekki menn séu þær dýr með til-
fmningar. Innflutningur á mannúð-
legum músagildrum, músalokum,
hafi síðan fylgt í kjölfarið. „Félagar
eru nú 32 talsins og fluttar hafa verið
inn um 8000 músalokur," sagði Magn-
ús og bætti við að músin væri lokkuð
inn í húsið með einhverju góðgæti og
síðan sleppt á góðum stað úti í náttúr-
unni. „Það er þó skárra, að mýsnar
deyi sínum eðlilega dauðdaga heldur
en að þær séu særðar eða hálfdauðar
í þessum sígildu músagildrum." Þess
Ungir leikarar á æflngu
Gamanleikrit sem höföar til allrar fjölskyldunnar.
Krummaskuð í Frumleikhúsinu:
Nýbúar breyta
bæjarlífinu
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir leik-
ritið Krummaskuð eftir og í leikstjóm
Guðjóns Sigvaldasonar i Frumleikhús-
inu í Keflavík á morgun. Leikritið, sem
er gamanleikrit og höfðar til allrar fjöl-
skyldunar, fjallar um daglegt líf ibú-
anna i bænum Krummaskuði og hvern-
ig þeir bregðast við þegar „nýbúar" úr
höftiðborginni birtast. Frá því Frum-
leikhúsiö var tekið í notkun hefur verið
mikið og öflugt unglingastarf hjá Leikfé-
lagi Keflavíkur og koma flestir leikar-
amir í Krummaskuði úr unglingadeild-
inni. Krummaskuð er önnur sýning fél-
agsins á þessu leikári en félagið sýndi
leikgerð þjóðsögunar um Rauðhöfða á
Ljósanótt í ReyKjanesbæ í september.
Uppselt er á frumsýningu Krumma-
skuðs en önnur sýning verður sunnu-
daginn 12 nðvember kl. 20.00.
Sunnlenskt handverk
dv, suourlandT-
Handverksfólk á Suðurlandi verður
með handverk sitt til sýnis og sölu i fé-
lagsheimilinu Stað á Eyrarbakka
næstkomandi sunnudag, 12. nóvem-
ber, frá klukkan 13-18.
Handverksfólkið verður með margt
fallegra muna á sýningunni, en það er
líka tilhlýðilegt að handverksfólk af
Suöurlandi komi meö hluti sína á Eyr-
arbakka, hinn foma verslunarstað
Sunnlendinga. Þangað komu jú sunn-
anmenn um aldir og höndluöu með
vöru sína við kaupmenn og hvem
annan.
Þá munu 10. bekkingar bamaskól-
ans á Eyrarbakka og Stokkseyri veröa
með kaffisölu fyrir gesti til styrktar
ferðasjóði sínum. -NH
má geta, að félagið er í Evrópusam-
tökum rottu- og músavinafélaga, en
lögheimili þess er í Þýskalandi. -EH
Alltaf skrefi framar
Markaðstorg
NOTAÐRA VINNUVELA OG LYFTARA
Eigum úrval
NOTAÐARA VINNUVÉLA, LYFTARA OG VÖRUBÍLA
VlNSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR OG
FÁIÐ SENDAN SÖLULISTA EÐA KOMIÐ í HEIMSÓKN OG
SKOÐIÐ ÞAÐ SEM í BOÐI ER
VÉLAR&
ÞJéNUSTAHF
Þekktir fyrir þjónustu
JArnhAlsi 2 ■ iio Reykjavík ■ Sími: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220 ■ www.velar.is
ÓsEYRI lA ■ 603 AKUREYRI ■ SÍMI: 461-4040 ■ FaX: 461-4044
Hella, pakkhús ■ 850 Hella ■ SÍMI: 487-5887 ■ Fax: 487-5833