Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Blaðsíða 65
73
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV Tilvera
Afmælisbörn
Calista 36 ára
Bandaríska sjónvarpsleikkonan
Calista Flockhart er afmælisbarn
dagsins. Calista hefur hreint og
beint slegið í gegn í bandarísku gam-
anþáttunum Ally McBeal þar sem
hún fer með titúhlutverkið. Calista
mun vera orðin 36 ára.
David 34 ára
David Schwimmer heldur upp á
afmælið sitt á morgun en þá verður
hann 34 ára. Schwimmer er mörgum
íslenskum sjónvarpsáhorfenum að
góðu kunnur fyrir frábæra túlkun
sína á Ross Geller í bandariskun
gamanþáttunum Friends.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudagirm 12. nóvember og mánudaginn 13. nóvembe
Vatnsberlnn (20. ian.-18. febr.l:
Spá sunnudagsins:
Þér gengur allt í haginn
og ekki er laust við að þú
flnnir fyrir öfund í þinn
garð. Láttu sem þú vitir ekki af því.
Happatölur þínar eni 8,11 og 33.
Spa mánudagsins:
Þú skalt ekki treysta öllu sem þú
heyrir, sumt af þvi gæti verið
plat. Ástarmálin standa einkar vel
og þú ert mjög hamingjusamur.
Hrúturlnn (21. mars-19. anríll:
Spá sunnudagsins:
Eitthvað spennandi og
mjög undarlegt gerist i
dag. Þú skalt ekki láta
álit þitt í ljós nema beðið verður
sérstaklega um það.
Spa manudagsins:
Gerðu það sem þér flnnst réttast í
mikilvægu máli en það þýðir ekki
að þú eigir að hlusta á ráðlegging-
ar annarra.
Tvíburarnlr (21. maí-21. iúní):
Spa sunnudagsins:
Þér fmnst þú dáhtið einn
í heiminum um þessar
mundir. Þetta ástand var-
ir ekki lengi þar sem þú kynnist mjög
áhugaverðri persónu næstu daga.
Spa manudagsins:
Eigðu tíma fyrir sjálfan þig, þér veit-
ir ekki af því eftir allt streðið undan-
farið. Vinur þinn leitar hjálpar hjá
þér. Kvöldið verður skemmtilegt.
Llónlð (23. iúlí- 22. ágúst):
Spa sunnudagsins:
Nú er svo sannarlega
óþarfl að láta sér leiðast,
i það er svo mikið um að
vera í kringum þig. Ferðalag er í und-
irbúningi og þú hlakkar mjög til.
Spa manudagsins:
Ljúktu sem mestu af um morgun-
inn því þú færð nóg um að hugsa
í kvöld. Kannaðu allt vel áður en
þú byrjar á einhverju nýju.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Spa sunnudagsms:
Gamall vinur kemur í
óvænta heimsókn síðari
hluta dags og segir þér
heldur en ekki undarlegar fréttir.
Happatölur þínar eru 9,17 og 26.
Grunur þinn í einhverju máli
reynist réttur og nú er bara að
hefjast handa við framkvæmdir
sem lengi hafa beðið.
Bogamaður (22, nóv.-21. des.l:
Spa sunnudagsins:
' Láttu sem ekkert sé þó
að einhverjir séu að
finna að við þig. Það
er ekkert annað en öfund yfir vel-
gengni þinni sem býr þar að baki.
Gerðu einungis það sem þér finnst
réttast í sambandi við vinnuna.
Haltu þig við hefðbundin verkefni
í stað þess að reyna eitthvað nýtt.
Fiskarnir (19. fehr.-20. mars>:
Spa sunnudagsins:
1 Vinir þínir eru ekkert
sérlega skemmtilegir
við þig. Það gæti verið
að þú þyrftir að vera dálítið
skemmtilegri sjálfur.
Spá mánudagslns:
Gamlir vinir hittast og þú ert
einn af þeim. Þú skemmtir þér
konunglega þó að einhver leiðindi
komi upp á í samkvæminu.
Nautið (20. apríl-20. maí.l:
Spa sunnudagsins:
Þú ferð út að skemmta
þér og kynnist einhverj-
um sérstaklega spenn-
andi. Ekki er ólíklegt að eitthvert
framhald verði á þeim kynnum.
Spá mánudagsins:
Þú heldur þínu striki enda hentar
þér best að vinna einn um þessar
mundir. Láttu aðra eiga sig með
sina sérvisku.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
Spá sunnudagsins:
Þú þarft að taka afstöðu
í erfiðu máli. Ekki hika
við að leita eftir aðstoð
ef þér finnst þörf vera á heni. Vinur
þinn endmgeldur þér greiða.
Spá mánudagsins:
Láttu kjaftasögur sem vind um
eyru þjóta. Láttu öðrum eftir að
kjamsa á óforum annarra. Reyndu
heldur að hafa áhrif til góðs.
Mevlan (23. ágúst-22. sept.l:
Spa sunnudagsins:
Þér finnst þú hafa allt
\\ y* of mikið að gera.
* Hvernig væri að reyna
að virkja fleiri í starfið í stað þess
að gera aUt sjálfur?
Spa mánudagsins:
Komdu þér að verki þar sem mik-
ilvæg verkefni bíða þín. Best er
að vera búinn að ljúka sem mestu
af heföbundnum verkefhum áður.
Sporðdreki 124. okt.-21. nóv.l:
Spá sunnudagsins:
Vertu sérstaklega að-
i gætinn í öHu sem varð-
ar peninga. Þú kynnist
einhverjum sérstaklega skemmti-
legum og áhugaverðum.
Spá mánudagsins:
Þér finnst þú eiga inni að sletta ær-
lega úr klaufunum eftir erfiða töm
undanfarið. Kvöldið verður
ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar.
Stelneeltln (22. des.-19. ian.i:
Spá sunnudagsins:
Hjón og pör eiga sériega
góðar stundir saman og
huga að sameiginlegri
framtíð. Það er svo ótal margt hægt
að gera ef maður er hugmyndaríkur.
Spá mánudagsins:
Fjármálin era á uppleið og þér
finnst bjartara fram undan en verið
hefur lengi. Þú færð nýtt áhugamál.
Happatölur þínar era 15, 20 og 30.
Kalli og Villi í göngutúr
Þráinn Karlsson og Aöalsteinn Bergdal leika skemmtikraftana,
Akureyri:
Gleðigjöfun-
um vel tekið
Leikfélag Akureyrar sýnir um þess-
ar mundir gamanleikritið Gleðigjaf-
ana eftir Neil Simon. Sýningin hefur
fengið góða gagnrýni og viðtökur
áhorfenda hafa einnig verið góðar.
Leikritið, sem fjallar um tvo aldna
heiðursmenn, skemmtikrafta sem ver-
ið er að reyna fá saman á ný eftir ára-
langt hlé, hefur vakið mikla kátínu
hjá ungum sem öldnum. Á morgun
ætlar leikfélagið að bjóða upp á fjöl-
skyldusýningu kl. 15.00. Boðið er uppá
tvo miða á verði eins, aðeins á þessa
sýningu. Það eru Þráinn Karlsson og
Aðalsteinn Bergdal sem leika
skemmtikraftana, Skúli Gautason
leikur umboðsmanninn sem er að
reyna að koma þeim saman. Meðal
annarra leikara eru Sunna Borg, Jón-
steinn Aðalsteinsson, Tinna Smára-
dóttir o.fl.
Dómkirkjan:
Unglinga-
kórar
Tónleikar unglingakóra verða í
Dómkirkjunni á morgun þegar Ung-
lingakór Selfosskirkju og Drengja-
kór Laugarneskirkju halda sameig-
inlega tónleika. Tónleikarnir, sem
hefjast klukkan 17, eru liður í tón-
listardögum Dómkirkjunnar sem nú
standa yfir.
Unglingakór Selfosskirkju skipa
33 stúlkur á aldrinum 13-19 ára.
Margrét Bóasdóttir hefur verið
stjórnandi Unglingakórsins frá
haustinu 1997 og hefur hún m.a. lagt
sérstaka áherslu á raddþjálfun og
söngkennslu kórfélaga. Kórinn held-
ur sjálfstæða tónleika og hefur farið
í tónleikaferðir, bæði innanlands og
utan. Á efnisskrá kórsins nú eru
Drengjakór Laugarnesklrkju
Annar tveggja kóra sem syngja i
Dómkirkjunni.
m.a verk fyrir kór og orgel eftir
Tryggva Baldvinsson, Johannes
Brahms og Gabriel Fauré en einnig
sálmalög og útsetningar eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Elínu Gunnlaugs-
dóttur og Hjálmar H. Ragnarsson.
Drengjakór Laugameskirkju er
10 ára um þessar mundir. Kórinn
skipa í dag 35 drengir á aldrinum
7-14 ára auk deildar eldri félaga
sem skipa 9 ungir menn á aldrinum
16-22 ára. Friðrik S. Kristinsson
hefur verið stjómandi kórsins und-
anfarin 6 ár. Kórinn heldur bæði
jólatónleika og vortónleika og hefurí
ferðast til Bandaríkjanna, Skandin-
avíu, Englands og síðastliðið sumar
var farið til Austurríkis. Á tónleik-
unum nú flytur kórinn lög eftir G.
Fauré, Mozart, E. Elgar, Þorkel Sig-
urbjörnsson og fleiri. Píanóleikari
er sem fyrr Peter Máté. Einsöngvari
með kórnum er Tryggvi Valdimars-
son sópran.
Todmobile.
Veröur á faraldsfæti næstu vikurnar.
Tón-
leika-
ferð
Tod-
mobile
út er komin tvöföld geislaplata
sem ber nafnið Todmobile-Best.
Eins og nafniö gefur til kynna er
hér á ferðinni safnplata með öllum
vinsælustu lögum Todmobile en
platan geymir 31 lag sem spanna all-
an feril hljómsveitarinnar frá fyrsta
laginu, Sameiginlegt, sem kom út
1988, og allt til tveggja nýrra laga
sem eru frumútgefin á þessari safn-
skifu. Todmobile hyggur á tónleika-
ferð kringum landið í tilefni út-
komu plötunnar. Tónleikaferðir
sem þessar eru nánast að leggjast af
sökum kostnaðar og er Todmobile
ein af fáum sveitum á landinu sem
fara í tónleikaferð af þessari stærð-
argráðu. Rás 2 verður með í för og
fylgist með öllu því sem fram fer og
hljóðritar meðal annars tónleikana
í íslensku óperunni. Forskot verður
tekið á sæluna þegar hljómsveitin
leikur á dansleik ásamt Á móti sól á
Selfossi í kvöld.
Sjálf tónleikaferðin hefst á Egils-
stöðum á þriðjudagskvöld. Þaðan
verður farið til Húsavíkur á mið-
vikudag og Akureyrar á fimmtudag.
...bráðsmellnar
smásögur"
Súsanna Svavarsdóttir/Mbl
„Persónurnar eru af holdi og blóði
og því hafa sögurnar erótískan blæ"
SS/Mbl