Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 66

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Qupperneq 66
74 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000 Tilvera 3DV lí f iö CAPUT í Langholtskirkju CAPUT-hópurinn frumflytur verk eftir tónskáldin Snorra Sigfús Birgisson, Báru Grímsdóttur og Svein Lúðvík Bjömsson. Tónverkin eiga það sameiginlegt að vera pöntuð af Reykjavík menningarborg og sérstaklega samin fyrir CAPUT. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Klassík 1 KAMMERTÓNLÉÍKAR I GARÐA- BÆ I dag kl. 17.00 munu Elín Osk Oskarsdóttir óperusöngkona og Gerrit Schuil píanóleikari leika og syngja verk eftir Marcello, Schubert, Brahms, Wagner, Weber, Puccini og Verdi. Tónleikarnir eru hluti af tónleikarööinni Kammertón- leikar í Garðabæ. Tónleikarnir veröa haldnir í Kirkjuhvoli, safnaöarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. ■ ORGELTÓNLEIKAR í dag kl. 17 mun Steingrímur Þórhallsson orgel- leikari spila verk eftir Bach, Reger, og Guilmant í Dómkirkjunni auk pess sem hann frumflytur orgelverk eftir Gunnar A. Kristinsson. ■ PÓLSK TÓNLIST I GERÐUBERGI í dag kl. 17 veröa tónleikar í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi sem nefnast Ekki eingöngu Chopin - pólsk tónlist á 19. öld. Flytjendur: Mariola Kowalczyk, messósópran, Elzbieta Kowalczyk, píanó, Szymon Kuran, fiöla, og Jacek Tosik-War- szawiak, píanó. Fyrír börnin ■ TONLIST FYRIR BORNIN I dag kl. 13 veröa í Gerðubergi tónleikar fyrir yngstu börnin. Hér er á ferðinni dagskrá fyrir börn í formi tónlistar, leiks og leikhjóða; POY-tónlist fyrir börn. Þetta er barnadagskrá frá Nor- egi og eru flytjendur þau Glenn Erik Haugland, Heidi Tronsmo og Maja Bugge. Fundir ■ FRAMTÍÐ LÝÐRÆÐIS Á TÍMUM NETVÆPINGAR Lýðræði - skríl- ræði? Framtíð lýðræðis á tímum netvæðingar.Umræöur í Reykjavík- ur-Akademíunni í dag, kl. 11-13. Fulltrúar pólitísku vefritanna www.frelsi.is,www.maddaman.is, www.politik.is og www.murinn.is sitja við pallborðiö. Umræöustjóri er Hjálmar Sveinsson. ■ RABBFUNPUR UM PALESTÍNU 1 dag verður rabbfundur um Palestínu á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboös í Reykjavík. Fundur- inn verður á Rauöa torginu, í hús- næöi flokksins á Lækjartorgi, uppi á 3. hæö yfir strætisvagnastööinni. ■ UNGLIST 2000 Á vegum Unglist- ar 2000 verður haldin ráöstefna á Akureyri I dag undir yfirskriftinni Listin að lifa - Það sem allt of fáir tala um á Akureyri. Ráðstefnan er haldin á Sal Menntaskólans á Akur- eyri, Hólum kl. 14 til 16.30. ■ RÁPSTEFNA UM KRISTNIBOP Kristnihátíðarnefnd Reykjavíkurpró- fastsdæma heldur í dag ráðstefnu um kristniboö í Reykjavík sem hefst kl. 10 meö ávarpi dómprófasts, sr. Guðmundar Þorsteinssonar. Þá mun Skúli Svavarsson kristniboöi einnig ávarpa fundinn. Aðalræöumaður ráö- stefnunnar er dr. Tormod Eng- elsviken, prófessor í kristniboös- fræöum viö Safnaöarháskólann í Ósló. Kristniboösráöstefnan er öll- um opin og aðgangur ókeypis. Hún stendur frá kl. 10-13. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.ls Dagbjört Ylfa Geirsdóttir - ung og upprennandi fyrirsæta: Léttur spennufíkill - hóf fyrirsætuferilinn aðeins þrettán ára gömul Dagbjört Ylfa Geirsdóttir er sextán ára gömul Reykjavíkurmær sem hefúr starfað sem fyrirsæta í þrjú ár. Ylfa tók fyrst þátt í Ford-keppninni þrettán ára gömul og lenti í öðru sæti. í fram- haldi af því fór hún að sitja fyrir á veg- um Eskimo models og hefur haft mik- ið að gera síðan. Þó að Ylfa sé ekki gömul hefur hún nú þegar setið fyrir hjá timaritum eins og Vogue, ID, Elle, Face, Harper’s Bazaar og Quine, svo eitthvað sé nefnt. Andlitið á Ylfu ætti að vera Reyk- vikingum vel kunnugt því til skamms tíma var stór mynd af henni á Lauga- veginum en hún var víst tekin niður fyrir skömmu vegna þess að einhver hafði teiknað yflrvaraskegg á hnátuna. Mikill tími í kynningar „Sumarið eftir Ford-keppnina fór ég til London og var að vinna i sex vikur og síðastliðið sumar var ég í New York í jafnlangan tima, ég er líka búin að fara í nokkrar styttri ferðir til Evrópu. Allir sem eru i þessum bransa eru með möppu, „portfolio“, með myndum af sjálfum sér sem þeir nota til að kynna sig. Maður fer í það sem kallað er „casting" með möppuna og sýnir hana og sjálfan sig. Það mætir yfirleitt hellingur af stelpum og maður verður að standa sig vel ef maður ætlar að fá eitthvað að gera. Yfirleitt er bara valin ein eða tvær stelpur og samkeppnin er þvi rosalega mikil. Á ferðalögum fer mikill tími í að kynna sig og stundum kemur það fyrir að maður fer á tíu staði sama daginn." Misjöfn laun „Launin í þessu er mjög mismun- andi, það er frekar illa borgað fyrir myndir í blöð og flestir líta á það sem kynningu. Smástimi eins og ég fá um tíu þúsund kall fyrir mynd í Vogue. Smærri blöð borga meira og snyrti- vörufyritækin borga mest. Þeir sem komast á góðan samning hjá snyrti- vörufyritæki fá hundmö þúsunda og jafnvel milljónir fyrir hveija töku. Ég hef mest fengið nokkur hundmð þús- und fyrir eina töku hjá snyrtivörufyr- irtæki sem heitir Rimmel." Góðarmedsig Ylfa segist hafa verið að sýna með Naomi Campbell og Kate Moss í London síðastliðið haust og það hafi verið mjög skrýtið að vinna með stjömunum. „Þær er mjög góðar með sig og Naomi er algjört montrassgat. Hún sagði til dæmis að ef einhver tæki mynd af henni án leyfis og birti hana yrði að borga tvö til þijú hundmð þús- und fyrir það. Hún var með sérstakan bás út af fyrir sig og dró fyrir meðan hún var að skipta um fót og mála sig. Hún talaði ekkert við okkur hinar og Ég hef ekki orðið vör við það en maður er náttúrlega alltaf að heyra sögur. Þetta er að miklu leyti undir manni sjálfum komið eins og alls staðar annars stað- ar, maður getur lent í ragli hvar sem er. Ef maður ætl- ar að komast áfram í þess- um bransa þýðir ekki að vera með neitt ragl, þetta er vinna og aftur vinna. Mér finnst skemmtilegra að sýna en að sitja fyrir, stemningin baksviðs er æð- isleg og mikil spenna. Ég er léttur spennufikill og fæ mikið kikk út úr því að fara inn á sviðið. DV-MYND GVA Dagbjört Ylfa Geirsdóttir fyrirsæta Maður kemst ekkert áfram sem fyrirsæta í sumarvinnu. Þaö þarf að leggja sig allan fram og virkilega vinna að því að fá góð verkefni. Stelpur sem vinna allt árið fá mest að gera, þestu verkefnin og hæstu tekjurnar. lokaði sig af með kærastanum. Naomi er algjör prímadonna. Hún málar sig sjálf og greiðir sér líka og það má eig- inlega enginn koma nálægt henni. Kate Moss var miklu skárri, hún talaði þó við hin módelin. Það var skrýtið að fylgjast með þeim. Þær komu hálftíma fyrir sýninguna og áttu staðinn á með- an við hinar mættum þremur tímum fyrr og voram að drepast úr stressi. Það er ótrúlega mikil öfundsýki og af- brýðisemi í þessu, ef einhverjum geng- ur vel er strax farið að öfundast út í hana.“ Vinna og aftur vinna „Fólk heldur mikið að lífið í kring- um þetta sé mikið glamúr og eiturlyf. Bjartsýn á framtíðina „Ég er með fuilt af plön- um fyrir framtíðina og er til dæmis að fara til London núna í mánuð til að kynna mig. Starfsfólkið hjá Eskimo models og Models One í London hefur hjálpað mér mikið og útvegað mér mörg verkefhi. Næsta vor fer ég til New York í þrjá mánuði og svo stefni ég að því að fara til Tókíó í nokkrar vikur. Ég er búin að ferðast mikið í tengslum við starfið og fer til útlanda á nokk- urra vikna fresti. Það er mikil tilbreyting frá því sem áður var vegna þess að ég hafði ekki farið neitt áður en ég byrjaði í þessu. Það er mjög misjafnt hvað maður sér mikið í hverri ferð, stundum er maður bara sóttur út á flug- völl og keyrður þangað strax aftur þegar verkefnið er búið en stundum stoppar maður í nokkra daga og get- ur skoðað sig um. Ég hef náttúrlega látið skólann sitja á hakanum undanfarið en fyrirsætu- starfið er harður. skóli. Maður kynnist alveg nýjum heimi og ferðast mikið. Þetta er hörkunám en bara ekki sama námið og í skóla. Það er að sjálfsögðu búið að þrýsta mikið á mig að klára skólann fyrst og allt það en ef ég geri þetta ekki núna þá geri ég þetta aldrei. Maður kemst ekkert áfram sem fyrir- sæta í sumarvinnu. Það þarf að leggja sig allan fram og virkilega vinna að því að fá góð verkefni. Stelpur sem vinna allt árið fá mest að gera, bestu verkefnin og hæstu tekjumar." Kip Auðvitað hef ég áhyggjur af einkadótturinni: Hún á fram- tíðina fyrir sér DV-MYND EÓL. Þóra Bernadetta Valdimarsdóttir, móöir Dagbjartar Ylfu Ég sé ekki annað en hún standi sig vel, hún er stór- glæsileg og mjög eftirsótt. Þóra Bernadetta Valdimarsdóttir- dóttir, móðir Dagbjartar Ylfu, segir að hún hafi verið mjög tvístígandi til að byrja með og alls ekki viss hvort hún ætti að hleypa stelpunni út í þetta. „Ég vil að hún klári skól- ann áður en hún hellir sér út í þetta. Maður hefur auðvitað áhyggj- ur af einkadótturinni og vill alls ekki að hún lendi í einhverju rugli. Hún var ekki nema þrettán ára þeg- ar hún byrjaði og mér fannst hún allt of ung en hún hefur staðið sig ótrúlega vel. Glæsileg og eftirsótt Ég fór með henni út til að byrja með og fylgdist með. Stundum fannst mér vinnuálagið of mikið og einu sinni stoppaði ég af töku þegar hún var búin að sitja á rólu, sem var eins og hænuprik, í fjörutíu mínútur. Eftir að ég kynntist fólk- inu á skrifstofunni sem hún vinnur fyrir fór ég þó að anda léttar og í dag treysti ég henni fullkomlega til að standa sig. Þegar hún fór út í fyrsta skiptið ein fór hún til New York og bjó hún hjá Kate sem á Fordmodels, þannig að ég var alveg í rónni. Henni var fylgt hvert sem hún fór og eiginlega afgirt. Stelpurnar hjá Eskimo models hafa staðið sig vel og Model One hafa verið alveg frábærir í hennar garð og ég hef ekkert út á þá að setja. Ég hafði reyndar áhyggjur af henni í sumar þegar hún var ein í London en ég talaði nánast við hana á hverjum degi og fylgdist eins vel með og ég gat. Ef hún nær að fóta sig í bransan- um getur hún tryggt sig fjár- hagslega fyrir framtíðina. Ég sé ekki annað en hún standi sig vel, hún er stórglæsileg og mjög eftirsótt. Við höfum mik- ið rætt um það heima hvort það eigi að hleypa henni í þetta á fullu. Ylfa hefur rosa- legan áhuga á starfinu og ég sé ekki að það borgi sig að pína hana í eitt- hvert nám sem hún hefur ekki áhuga á. Ef ég fer að kýla hana í menntaskóla hættir hún bara um leið og hún verður sjálfráða og þá er maður kannski búinn að eyðileggja fyrir henni góð tækifæri sem gefast ekki aftur.“ Kip
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.