Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Side 4
4 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 Fréttir I>V Vatnsleysustrandarhreppur segir sig úr HASS: Vonlaus fjarhagsstaða - skuldirnar milljarður og fara vaxandi Þóra Bragadóttir, oddviti sveitar- stjórnar í Vatnsleysustrandar- hreppi, segir að sveitarstjóra hafi verið veitt leyfi til að segja upp samningi hreppsins við Hafnasam- lag Suðumesja með ársfyrirvara. „Staðan er mjög slæm. Viö munum fara þar út nema einhverjar breyt- ingar verði sem laga slæma fjár- hagsstöðu hafnasamlags." VSÓ Deloitte og Touche gerði út- tekt á stöðu Hafnasamlags Suður- nesja þar sem fram kemur að heild- artekjur þess dugi ekki til að greiða vexti og afborganir lána. Heildar- skuldir um síðustu áramót voru 1.060 milljónir króna og halda skuldirnar áfram að vaxa. neiguviK Olíufélögin vilja heldur aka öllu flugvélaeldsneyti í gegnum mesta þéttbýlissvæöi landsins frá Reykja- vík en nýta tanka varnarliðsins í Helguvík. Þaö er m.a. sögö ástæöa þess aö Hafnasamlagi Suöur- nesja blæöir nú út. Hagkvæmara að slíta félaginu Að hafnasamlag- inu, sem skamm- stafað er HASS, standa Reykjanes- bær, Gerðahreppur og Vatnsleysu- strandarhreppur. í skýrslunni um stöðu mála segir að brýn þörf sé á beinum framlögum að- ildarfélaga til að laga skuldastöðuna. Engin ný starfsemi sé fyrir- sjáanleg í nánustu framtíð sem gæti auk- ið tekjur hafnasamlagsins. Helsti vonarpeningurinn er vegna inn- flutnings á sementi á vegum Aal- borg Portland sem gæti á næstu árum skilað 5-7% tekjuaukningu. í lokaniðurstöðu skýrsluhöfunda seg- ir að erfitt sé að greina rekstrarleg samlegðaráhrif af sameiningu hafn- arsjóða þeirra sem mynda HASS. Hugsan- lega yrði hag- kvæmara að slíta fé- laginu og hvert sveit- arfélag taki á sig sinn hluta af skuldum og taki við starfsemi sinna hafna. Það er einmitt sú leið sem Vatnsleysustrandar- hreppur hefur nú ákveðið að fara. Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar, segir stöð- una erfiða. „Málefni hafnasamlags- ins eru í endurskoðun þar sem tekjuáætlanir og sú tekjuaukning, sem menn hafa verið að gera sér vonir um, hafa ekki gengið eftir.“ Tekjur af olíuflutningum brugðust Pétur Jóhannsson hafnarstjóri segir skuldirnar hafa aukist jafnt og þétt. Þær hafi verið við stofnun HASS 1. janúar 1997 um 630 milljón- ir króna. Heildartekjur á síðasta ári voru um 75 milljónir króna og verða svipaðar á þessu ári. „Rekstur hafnasamlagsins skilað okkur alltaf afgangi fyrir fjármagnsgjöldum, en væntingar um auknar tekjur eins og af olíuflutningum hafa ekki geng- ið eftir. Því þarf nú að fjármagna af- borganir lána með nýjum lánum. Helguvíkurhöfn var tilbúin áður en samlagið var myndað og aðalupp- byggingin eftir stofnun þess hefur verið í Vogum og aðeins í Garðin- um. Við stofnun horfðu menn til ál- vers á Keilisnesi sem ekkert varð af. Nú bíða menn eftir magnesíum- verksmiðju sem enn hefur ekki litiö dagsins ljós. Á sama tíma og tilbúin höfn er i Helguvík og búið er að bjóða olíufélögum afnot af olíutönk- um varnarliðsins þar, þá er öllu flugvélaeldsneyti ekið á tankbílum frá Örflrisey í gegnum höfuðborgar- svæðið um Reykjanesbraut til Kefla- víkurflugvallar. Meðan Flugleiðir gera engar athugasemdir við þetta fyrirkomulag oliufélaganna, þá verður þessu haldið áfram og flug- farþegar borga kostnaðinn af flutn- ingunum. Það er augljóst mál að það hlýtur að vera ódýrara að sleppa þessum akstri, því það kost- ar það sama að dæla olíunni upp í Helguvík og í Örfirisey." -HKr. HASS Merki Hafnasamlags Suöurnesja Laugardalslaugin: Bændur byggja pylsuvagn „Þetta verður faflegt, vandað hús og komið til að vera,“ segir Sigur- laug Magnúsdóttir sem rekur pylsu- vagninn við sundlaugina í Laugar- dal ásamt manni sínum, Skúla Berg- mann Hákonarsyni. Þau hjónin keyptu pylsuvagninn fyrir 10 árum þegar þau brugðu búi í Norðtungu í Þverárhlíð og fluttu til Reykjavíkur. Nú ætla þau að bæta um betur og byggja nýjan pylsuvagn á staðnum, með glæsilegri aðstöðu jafnt fyrir gesti sem og pylsumar sjálfar. „Þetta er búinn að vera góður bú- skapur en það verður að vakta hann og vera afltaf til staðar,“ segir Sig- urlaug sem leggur mikið upp úr fal- legu og hreinlegu umhverfi eins og var hjá henni í Þverárhlíðinni „... sem er fallegasti staður í heimi þó Laugardalurinn sé líka ágætur." Sigurlaug og Skúli hafa þegar steypt undirstöður nýja pylsuvagns- ins og ætla sér að láta bygginguna rísa á allra næstu vikum. -EIR Pylsuvagninn í Laugardal Víkur brátt fyrir glæsilegri nýbyggingu. Héraðsdómur: Bætur vegna galla í þaki DV. AKUREYRI: Seljandi fasteignar á Akureyri hefur verið dæmdur til að greiða kaupend- um fasteignarinnar bætur vegna galla sem komu í ljós í þaki skömmu eftir að kaupin höfðu farið fram. Sama ár og kaupin áttu sér stað kom fram leki í þakklæðningu sem varð til þess að nauðsynlegt var að ráð- ast í kostnaðarsamar viðgerðir. Mats- menn voru kallaðir til og var niður- staða þeirra sú að ýmislegt væri at- hugavert við byggingu hússins og mátu þeir kostnað við nauðsynlegar viðgerðir á þaki upp á 1,4 milljónir króna. Dómurinn féflst á kröfu kaupend- anna að hluta og var niðurstaða hans að seljandanum bæri að greiða kaup- endunum 412.500 krónur auk vaxta og greiðslu málskostnaðar að upphæð 300 þúsund krónur. -gk Mikið eftir af síldarkvóta DV, AKUREYRI:_______________ Mjög mikið er eftir af síldarkvót- anum og ljóst að ekki tekst að veiða nærri það magn sem menn höfðu vonast eftir. Mjög slæmt tíðarfar á sinn stóra þátt í því. Síldarkvótinn nam 118.754 tonn- um, en nú hafa aðeins veiðst 73.454 tonn. Eftirstöðvar, þegar haldið er í jólafrí, eru því 45.300 tonn. Af þeim síldarafla sem borist hef- ur á land hafa 47.430 tonn farið í bræðslu og 21.373 tonn í frystingu sem er margfalt meira en á síðustu vertíð. Hins vegar hafa aðeins 4.650 tonn verið söltuð sem er mun minna en á síðustu vertíð. Mestum afla hefur verið landað í Neskaupstað, 12.055 tonnum. Á Höfn i Hornafirði hafa borist á land 10.039 tonn, í Grindavík 9.018 tonn, Reykjavík 8.512 tonnum og Vest- mananeyjum 7.317 tonn. -gk Nýr framkvæmda- stjóri ísfélagsins DV, VESTMANNAEYJUM: ~ Stjóm ísfélags Vestmannaeyja hf. hefur ráðið Ægi Pál Friðbertsson við- skiptafræðing sem framkvæmdastjóra félagsins og tekur hann við starflnu í janúar næstkomandi. Ægir Páll útskrifaðist sem við- skiptafræðingur frá Háskóla íslands árið 1991. Hann starfaði hjá íslands- banka hf. frá 1992 til 2000 en undan- fama mánuði hefur hann verið fjár- málastjóri Samvinnuferða-Landsýn- ar hf. -ÓG Véðrið í kvöld Skýjað með köflum og úrkomulítið NA-átt, víða 5-8 m/s fram eftir degi en síðan hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 0 til 3 stig við ströndina suðvestan til en annars frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðanlands. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVÍK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 15.32 14.45 Sólarupprás á morgun 11.23 11.38 Síödegisflóö 17.11 21.44 Árdeglsflóö á morgun 05.38 10.11 Skýringar á vðfturtáknum “r" 3/ ^NviNDSTYRKUR VtroncT HEIÐSKÍRT 5 metfum á sekúntíu rríusi & g* LÉTTSKÝJAO HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ ‘v/ 1! © RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA W & { "fc ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Allt eftir v spjjiT Jólaveður Það lítur ekki út fyrir mikinn jólasnjó næstu daga. Á norður- og austurlandi verður léttskýjaö á aöfangadag og jóladag en á suðvesturlandi gætu komið stöku él. Veðrið á morgun_________ Veðrið á aöfangadag Hæg austlæg eöa breytileg átt.Stöku él og hiti nálægt frostmarki suövestanlands en léttskýjað og frost 3 til 8 stig norðan- og austan til. Víntíur: <£@1 3-8 m/s Hfiti -2° til -8° -$> Þriöjuda Vindur: 3-5 Vindur: 3-8 \° Hi ' Hiti 0° tii 6' Horfur á jóladag: NA 3-8. Víða Horfur á annan í Jólum: Fremur hæg breytileg átt, él vestan- og noröanlands og frost 0 tll 8 stlg, kaldast noröaustan tll. Norðlæg átt, él eöa snjókoma meö köflum norðan- og austanlands en annars léttskýjaö. Frost 0 tll 6 stlg. Veðrið ki. 6 -- AKUREYRI alskýjaö -2 BERGSSTAÐIR skýjcö -2 BOLUNGARVÍK ský ' ö -2 EGILSSTAÐIR -1 KIRKJUBÆJARKL. IAttskýjaö 0 KEFLAVÍK skýjaö 3 RAUFARHÖFN skýjaö -3 REYKJAVÍK skýjaö 3 STÓRHÖFÐI skýjaö 4 BERGEN skýjað 2 HELSINKI alskýjað -1 KAUPMANNAHÓFN skýjað 0 ÓSLÓ skýjað -2 STOKKHÓLMUR 0 ÞÓRSHÖFN skýjaö 4 ÞRÁNDHEIMUR slydduél 3 ALGARVE skýjaö 15 AMSTERDAM léttskýjaö 0 BARCELONA skýjaö 14 BERLÍN skýjað -3 CHICAGO skýjað -22 DUBUN skýjað 8 HAUFAX skýjað -3 FRANKFURT léttskýjaö -2 HAMBORG skýjað -3 JAN MAYEN skýjaö -7 LONDON mistur 5 LÚXEMBORG léttskýjaö -4 MALLORCA skýjaö 17 MONTREAL alskýjaö -10 NARSSARSSUAQ hálfskýjaö 7 NEWYORK snjókoma -1 ORLANDO skýjaö 9 PARÍS þokumóða 2 VÍN skýjað -2 WASHINGTON alskýjað -3 WINNIPEG heiöskírt -26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.