Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
Utlönd
Á slysstaö Estoniu
Dagens Nyheter birti sömu
niöurstööur á fimmtudag.
Engin ummerki
um sprengingu
Finnski hluti alþjóðlegu slysa-
nefndarinnar, sem rannsakað hefur
aðdragandann að Estoniu ferjuslys-
inu sem varð rúmlega 850 manns að
bana undan ströndum Finnlands ár-
iö 1994, segir að sprenging hafi ekki
valdið því að ferjan sökk.
Finnar eru ekki sammála fullyrð-
ingum bandaríska auðkýfmgsins
Gregg Bermis og þýska kvikmynda-
gerðarmannsins Jutta Rabe sem
segja að sprengja í stefni skipsins
hafi valdið slysinu. Þeir vísa í nið-
urstöður jarðskjálftastofnunarinnar
viö Helsinki-háskóla þar sem fram
kemur að engin ummerki um
sprengingu sé að finna á stefninum.
Segja Finnar að þar hefðu átt
finnast vegsummerki líkt og á
málmbútunum sem Bemis og Rabe
byggja niðurstöður sínar á.
Kvikasilfursmeng-
un í Mo i Rana
Komið hefur í ljós að verulegt
magn af kvikasilfri, um 95-100 kUó,
losna út í umhverfið frá stálverk-
smiöjunni Fundia Armeringstal í
bænum Mo i Rana í Noregi á ári
hverju. Losunin frá verksmiðjunni
er meiri en frá öUum öðrum iðnaði
í Noregi tU samans. Niðurstaðan
kemur í kjölfar rannsókna á hárri
tíðni fósturskaða i bænum sem er
tvöfalt algengari en annars staðar í
Noregi. Norska umhverfisstofnunin
hefur farið fram á að kvikasilfurs-
mengun í stóriðju fari ekki yfir 15
kUó á ári og hafa stjómvöld heitið
því að beita sér í málinu.
Höfuðstöðvar II Manifesto
Mikill mannfjöldl safnaöist saman
fyrir utan bygginguna.
Tilræði við
kommúnista
Sprengja sprakk í höfuðstöðvum
n Manifesto, dagblaös italskra
kommúnista, i Róm i gær. Einn
maður særðist í sprengingunni,
þekktur hægriöfgamaður, og er
talið að hann hafi komið sprengj-
unni fyrir.
Sprengingin varð skömmu upp úr
hádegi í inngangi á þriðju hæð en
byggingin er í hjarta borgarinnar.
Voru gestir og gangandi í óðaönn að
kaupa inn fyrir jólin þegar atvikið
átti sér stað. MikU mUdi þykir aö
fieiri skyldu ekki slasast i
tilræðinu.
DV
Serbar ganga að kjörborðinu í dag í táknrænum kosningum:
50 ára valdatíð
kommúnista á enda
Serbar ganga að kjörborðinu í
þingkosningum í dag sem þykja
öðru fremur táknrænar og til marks
um þær breytingar sem orðið hafa í
Serbiu og fyrrum ríkjum Júgóslavíu
að undanfömu, nú siðast í kjölfar
afsagnar Milosevic, forseta
Júgóslaviu.
Kosningabandalagi Vojislavs
Kostunica, forseta Júgóslavíu, sem
samanstendur af 18 flokkum, er
spáð yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða, 71 prósenti. Sósíalistaflokk-
urinn, fyrmm stjórnarflokkur
Milosevics, fær hins vegar 15 pró-
sent samkvæmt sömu skoðanakönn-
un. Samkvæmt spám þykir nokkuð
ljóst að Kostuniea festi völd sín í
sessi í dag en fari sem horfir er það
í fyrsta skiptið í rúm 50 ár sem Sós-
íalistaflokkurinn eða kommúnistar
fara ekki með völdin í landinu.
Kosningaeftirlitsmenn áttu von á
frekar tíðindalitlum kosningum og
Vojislav Kostunica
Hefur ástæöu til aö brosa.
fulltrúar stúdenta í Belgrad gengu
óáreittir um göturnar og hvöttu
menn til að neyta kosningaréttar
síns. Fram undan bíða fjölmörg
óleyst verkefni, þar á meðal aðgerð-
ir gegn spillingarmálum sem eru
mjög algeng í Júgóslaviu og í sum-
um tilvikum nær löggjöfin ekki ut-
an um slíkt athæfi. Vojislav Kostun-
ica og Zoran Djindjic, bandamaður
hans og næstæösti fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, hafa heitið því að
berjast gegn glæpum í þjóðfélaginu.
Að þeirra mati mun baráttan ekki
eingöngu verða háð gegn skipu-
lagðri glæpastarfsemi heldur einnig
gegn mútuþægni embættismanna
og smáglæpamönnum. Svartamark-
aðir blómstra í Júgóslavíu og hafa
gert frá dögum kommúnista. í við-
horfskönnun sem gerð var á meðal
serbnesku þjóðarinnar töldu yfir
50% rétt að greiða aukalega fyrir
betri þjónustu.
Hættiö að sprengja Betlehem
Efnt var til friösamlegra mótmæla á Jötutorgi í Betlehem í fyrradag þar sem átökum ísraela og Palestínumanna var
mótmælt. Feröamenn hafa veriö fáir í borginni aö undanförnu.
Bankastjóri vitnar í réttar-
höldunum gegn Estrada
Forseti Filippseyja mátti þola enn
eitt áfaflið í gær í réttarhöldum
þingsins yfir meintri spiflingu hans
þegar nýtt vitni kom óvænt fram í
réttarhöldunum. Segir vitniö for-
setann hafa stofnað bankareikning
á fólsku nafni undir því yfirskini að
leggja inn á hann 10 mifljónir
Bandaríkjadala án þess að unnt yrði
aö bendla hann við peningana.
Vitnið, Clarissa Ocampo, er að-
stoðarbankastjóri Equitable-PCI
banka en vitnisburður hennar
þykkir renna nokkuö sterkum stoð-
um undir fullyrðingar saksóknara
um að Estrada hafi komið höndum
yfir umtalsverða fjármuni sem
hann geti ekki ekki gert grein fyrir
hvaðan eru komnir. Þetta segir sak-
sóknari vera brot á lögum gegn
spillingu.
Ocampo segir sjálf að féð hafi
komið af bankareikningum úr sama
Clarissa Ocampo
Mikilvægasta vitni ákæruvaldsins til
þessa.
banka og Estrada hafi haft persónu-
lega yfirumsjón með. Upphæðin á
þeim reikningum nemur samtals
um 24 milljónum Bandarikjadala,
að þvi er fram kom í vitnisburði
hennar.
Estrada, sem er leikari aö mennt,
hefur hingaö til gert lítið úr fullyrö-
ingum ákæruvaldsins og kemur
þess í staö opinberlega fram við ým-
is hátíðleg tækifæri. Um vitnisburð
Ocampo sagði Estrada að hann
hefði ekki hugmynd um hvað að-
stoðarbankastjórinn væri að fara en
vísaði að öðru leyti til lögfræðinga
sinna. Estrada fylgdist ekki með
vitnisburði Ocampo sem var sjón-
varpað í beinni útsendingu um Fil-
ippseyjar. Forsetinn var vant við
látinn og sagðist hafa verið við
veisluhöld. Með réttarhöldunum er
reynt að skera úr um hvort Estrada
þáði mútur.
Skipar ríkissaksóknara
George W, Bush
hefur skipað John
Ashcroft í embætti
ríkissaksóknara.
Ashcroft, sem er frá
Missouri, tapaði
þingsæti sínu í öld-
ungadeildinni í
kosningunum í
nóvember. Ashcroft hefur tvisvar
gegnt stööu ríkisstjóra í Missouri
auk þess sem hann gegndi stöðu
saksóknara í rikinu.
Dragi úr kjötútflutningi
David Byrne, yfirmaður matvæla-
eftirlitsstofnunar Evrópusambands-
ins, hefur fariö fram á við þýsk
stjórnvöld að þau dragi úr útflutn-
ingi á kjötvörum vegna ótta um
frekara kúariðusmit.
■ ■■ 13 í»
Fangauppreisn lokið
Tyrkneskum stjórnvöldum tókst í
gær að yfirbuga síðustu fangana í
stærstu fangauppreisn í landinu til
þessa. Nokkur hundruð fangar tóku
þátt, í 20 fangelsum víðs vegar um
landið þar sem réttarstöðu fanga
var mótmælt. Alls létu 26 lífið í
átökunum sem hófust á þriðjudag.
Gúsinskí laus úr haldi
Spænskur dómstóll hefur úr-
skurðað að Vladímír Gúsinskí, eig-
andi Media Most fjölmiðlasam-
steypunnar í Rússlandi, skuli leyst-
ur úr varðhaldi. Rússnesk stjóm-
völd höfðu farið fram á handtöku
hans en hann er m.a. ákærður fyrir
stórfelldan íjárdrátt.
Ólögmæt handtaka
Rússnesk stjóm-
völd hafa gefið Ra-
oul Wallenberg,
sænskum erind-
reka, sem hvarf í
seinni heimsstyrj-
öld, uppreisn æra.
Sagði m.a. í til-
kynningu rúss-
neskra yfirvalda að handtakan á
Wallenbergs og bílstjóra hans hefði
verið ólögmæt. Wallenberg bjargaði
þúsundum gyðinga frá því að lenda
í útrýmingarbúðum nasista.
Ósátt um forsetakjör
Þing Moldavíu, sem i fjórgang
hefur ekki tekist að koma sér
saman um útnefningu á forseta,
hefur ákveðið að efna til fimmtu
atkvæðagreiðslunnar í næsta
mánuði. Líklegt þykir að Vladímír
Voronín verði tilnefndur.
Góður við dýrin
Eitt af síðustu
embættisverkum
Bills Clintons,
forseta Banda-
ríkjanna, var að
færa í lög tillögur
um meðferð á
simpönsum. Stefnt
er að því að koma
upp griðasvæði þar sem gamlir
simpansapar geta eytt eflinni eftir
áralanga vist á bandarískum
tilraunastofum.
Ekkert lát á átökum
Palestínskur borgari tók eigið líf
og þriggja annarra er sprengja, sem
hann hafði meðferöis, sprakk á
kaffihúsi nærri yfirráðasvæöi
gyðinga á Vesturbakkanum. Ekkert
lát er á átökunum á Gaza.