Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2000, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
27
I>V
Helgarblað
Ogiftir á Islandi
- hlutfall ógiftra í hverjum aldurshópi
1990
94,7
f
97,9
1999
20-24 25-29
20-24 25-29 30-34
35-39
Það verður æ vinsælla að vera einhleypur:
Maðurinn er alltaf einn
- einhleypum konum í aldurshópnum 35-39 hefur fjölgað um 390%
Maðurinn er alltaf einn, sagði
Thor Vilhjálmsson fyrir mörgum
árum. Það er vissulega rétt en með
nokkrum rökum má halda því fram
að maðurinn sé misjafnlega einn.
Til dæmis mætti segja að Kristur
hafi verið meira einn en Ally
McBeal. Thor er ekki sá eini sem
hefur fabúlerað um einmennið.
Mörgum eru eflaust í fersku minni
hugleiðingar Dollyar Parton og
Kennys Rogers um eyjar í straumi
eða Islands in the Stream. Það er
því ekki einleikið með einmennið í
bókmenntasögunni.
Fjölgun einhleypra
Árið 1980 voru rúm 40 prósent
kvenna á aldrinum 25-29 ára ógiftar
en tuttugu árum síðar voru ógiftar
konur í sama aldursflokki tæp 84%
(sjá graf). Svipaða sögu má segja um
þróun hjá körlum. Mesti munurinn
á tuttugu ára bili er í hópi kvenna á
aldrinum 35-39 ára en þar er um
390% fjölgun á ógiftum konum að
ræða.
Svipaða þróun má merkja í Nor-
egi og líkast til í fleiri vestrænum
löndum. Ástæðumar geta verið fjöl-
margar. Skólaganga er nú algengari
en fyrir tuttugu árum og hjónaband-
ið er kannski ekki jafh eftirsóknar-
vert, hvorki félagslega né í sam-
bandi við skatta og styrki. Staða
kvenna og laun hafa
að margra mati batnað mjög
og það gerir þeim auð-
veldara að standa
utan hjónabands.
Sjónvarpstískan
Tíðarandinn er
einnig annar. Sumir
vilja ganga svo langt
að segja að það að
vera einhleypur sé í
tísku. Þá vilja menn
benda á vinsælar per-
sónur í sjónvarpi og
heimi fræga fólksins
sem talið er að marg-
ir líti til sem fyrir-
myndar fyrir líf sitt.
Fyrir nokkrum
misserum var mik-
ið rætt um ímynd
landsbyggðarinn-
ar í fjölmiðlum. í
Svíþjóð var til
dæmis mikið tal-
að um hvemig
landsbyggðarfólk
birtist áhorfend-
um í kvikmynd-
um og sjónvarpi.
Var þá bent á
Afskaplega einhleypur
Páfinn er einn þeirra sem tekur
trú fram yfir frú.
þætti eins og Vini
(Friends) og
fleiri þess
konar
þætti þar
sem
borgar-
lífið er
sýnt í
mjög já-
kvæðu
ljósi, það
er spenn-
andi að vera í
borginni og af-
skaplega gaman. Á
móti kom að birting-
armynd lands-
byggðarinnar væri
yfirleitt í anda
Fucking Ámál og
fleiri þess konar
mynda. Ef litið er á
ísland má þar nefna
Óðal feðranna og
Skammdegi svo eitthvað
sé nefnt.
Simpson-fjölskyldan
og Grace
Þekktustu einhleypingar
sjónvarpsins í dag em ef-
laust vinimir í Friends, Syd í
Providence, Seinfeld og félagar,
Will og Grace, Amy í Judging Amy
og Ally McBeal. Þekktustu hjón
sjónvarpsins eru að öllum
líkindum Homer og
Marge Simpson.
Sé litið til baka um
fimmtán ár aftur í tím-
ann voru hjónin vin-
sælust og má þar nefna
■4^» þættina Roseanne,
Brady Bunch og síðast
en ekki síst Fyrir-
myndarfoðurinn Bill
Cosby. Auk þess má
benda á Dallas, Falcon
Crest og Santa Barbara.
Derrick er einn
Einn vinsælasti ein-
leypingur síðustu tutt-
ugu ára í sjónvarpi er
liklega Stefan Derrick,
hinn stóreygi þýski
lögregluforingi.
Einn eftiminnileg-
asti atburðurinn úr
óendanlegri seríu
Derricks er eflaust
þegar hann varð ást-
fanginn. Hann hafði
áður verið álíka kyn-
laus og leðurjakkinn
Kleins var þröngur en varð
Aleinn um jólin
Það em eflaust einhverjir sem
eyða jólunum einir síns liðs. Það
hefur ýmsa kosti í for með sér en
einnig gaRa. Einn af kostunum er sá
að það er alveg ljóst hver fær
möndlugjöfina en gallinn er sá að
það er fullvitað hver möndlugjöfin
er. Það er neikvætt
að erfitt er að
ganga kring-
um jóla-
tréð
ir em-
hleyp-
ingar
Jesús Kristur - tók frelsun
heimsins fram yfir makaleit.
Grettir sterki Ásmundsson
- hafði líkamann en var ekki
mikill Jjammari.
Florence Nightingale -
vaktavinna og fjölskyldulif
geta ekki alltaf farið saman.
Glámur - hafði auga fyrir
konum en sá aldrei neina.
Hamlet - kvenvera eða ekki
kvenvera, þarna er efinn.
Ófelía - Hamlet prins lék
sér í lengra tjóðurbandi en
leyfðist henni.
Friedrich Nietzsche - var
enginn súkkulaðigæi og vissi
af því.
Súper-
mann - sér-
viska í
klæðaburði
stóð honum
fyrir þrifum.
Dalai
Lama - trú
frekar en
frú.
Móðir Teresa - starf hennar
gerði henni erfiöara fyrir.
Jónas Hallgrímsson - hár-
greiðsla við Galtará var það
lengsta sem hann komst í ásta-
málmn.
Mr. Bean - einlífi er ekki
alltaf lífsstíll.
Kleópatra - af hverju að
giftast þegar hægt er að
eignast böm með fjöl-
skyldumeðlimum.
Páfinn - trú frek-
ar en frú.
Derrick - keine
Liebe, nur Harry
Klein und Polizei.
hans
allt i einu yfir sig ástfanginn. Það
varaði ekki lengi og ró og friður
komst aftur á í lífi hins góðkunna
lögreglumanns.
Það hefur líka sýnt sig iðulega í
þáttum og kvikmyndum sem fjalla
um lögreglumenn að starfið og
heimilið getur ekki farið saman.
Ýmist eru þeir skildir fyrir löngu,
nýskildir, í skilnaðarferlinu eða
konan er að fara frá þeim. Það er
því umhugsunarvert hver er með-
alhjúskaparstaða íslenskra lög-
reglumanna.
Sjálfstæðir íslendingar
Fyrir fáum árum var erfitt fyrir
einhleypa að lifa á íslandi. Allir
matarskammtar voru til að mynda
miðaðir við heilu fjölskyldurnar.
Húsdýr eru ekki sköpuð á einn disk
heldur marga (rjúpan er hins vegar
einkar hentug). Síðan hefur matar-
landslag einhleypra batnað mjög
með tilkomu minni neytendapakkn-
inga og auðvitað fersku og fljótlegu
réttanna fyrir sjálfstæða íslendinga.
Hvort það hefur gert gæfumun-
inn í uppgangi einhleypra er
hins vegar umdeilanlegt en
aðalmarkhópurinn ku
vera einhleypir karl-
menn.
Það er já-
kvætt að
hægt er að
borða hvað sem er,
hvenær sem er og hvar sem er í
íbúðinni. Neikvæða hliðin er að það
er enginn annar til að þvo upp.
En þegar allt kemur til alls þá
skiptir það litlu máli hvort fólk er
einhleypt eður ei. Það er val hvers
og eins hvort hann vill þreyta sig og
aðra með tíma- og samvistafrekum
hjónaböndum og sambúð.
-sm
Þeir sem
ekki
hefðu átt
að giftast
Hallgerð-
ur lang-
brók -
ekkja með
stóru e-i.
Hinrik
áttundi -
hrifnæmir
kóngar og
beitt vopn
eru ekki
góð blanda.
Bláskeggur - arrrgh arrgh.
OJ Simpson - afbrýðisemi
og vopn fara ekki vel saman.
Guörún Ósvífursdóttir -
„Þeim var ég verst er ég unni
mest.“
Móðir Hitlers - ein óheppi-
legasta genablanda sem gerð
hefur verið.
Nóra í Brúðuheimilinu -
lífið án Helmers hefði verið
einfaldara.