Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 29
37
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
iö aö ganga á okkar menningu og siöi.
hverfum með þessu áframhaldi. Það
er verið að ganga á okkar menningu
og siði. Það rísa moskur í höfuðborg-
um Norðurlanda. Við verðum að fá
að halda í okkar menningu," segir
Hlynur og það er augljóst að þegar
hann segir „við“ á hann við hvíta
manninn en ekki Islendinga.
- Á heimasíðu félagsins er vitnað
til bóka um yflrburði hvíta mannsins
sem eru skrifaðar um miðja síðustu
öld og um aldamót. Hefur ekkert
gerst síðan sem staðfestir yflrburð-
ina?
„Það er nóg að skoða ástandið í
Bandaríkjunum. Þar standa þau ríki
best að vígi þar sem hvíti maðurinn
ræður ríkjum.
Hvíti kynstofninn er okkar fólk.
Ástandið í heiminum ber því ótví-
rætt vitni að hvíti maðurinn hefur
yfirburði. Auðvitað eru til hvítir
aumingjar líka og margt útlent fólk
er ágætt fólk en við eigum bara enga
samleið með því.“
Erum flest utan af landi
- Þið haflð boðað framboð í næstu
sveitarstjómarkosningum. Ætlið þið
að bjóða fram í öllmn kjördæmum?
„Örugglega á Vesturlandi og Suð-
urlandi og líklega hérna í Reykjavík
þar sem stærsti hluti félagsmanna
býr. Við eigum ekki margt fólk ann-
ars staðar.“
- Meðal annarra markmiða félags-
ins er talað um andstöðu við kvóta-
kerfið og fjallað um sölukerfi land-
búnaðarafurða. Eruð þið landsbyggð-
arflokkur?
„Við erum náttúrlega flest utan af
landi. Margt fólk í okkar röðum er
flutt utan af landi og veit vel hve illa
kvótakerfið hefur leikið landið.“
Okkar fólk er í felum
- í niðurstöðum nýlegrar könnun-
ar kemur fram að hátt hlutfail ungs
fólks hefur áhyggjur af innflutningi
útlendinga. Teljið þið að flokkur ykk-
ar höfði meira til ungs fólks en full-
orðins?
„Ungt fólk á meiri samskipti við
útlendinga og myndar sér því skýr-
ari skoðanir. I dag er staðan sú að
þeir sem styðja okkar málstað kjósa
frekar að þegja. Það er kúgun í gangi
gagnvart þessum málstað. Þeir sem
styðja innflutning útlendinga hafa
verið og eru einráðir í umræðunni.
Það hefur mikið verið ráðist á okk-
ur og reynt að gera okkur hlægilega.
Ég tel að stór hluti stuðningsmanna
okkar sé í felum og þessu verður að
breyta."
- Af hverju eru þeir í felum?
„Það er svo mikill ágangur frá frjáls-
lyndum vinstrimönnum að það er ekk-
ert vinsælt að vera með þessar skoðan-
ir. Það þarf kjark til þess að standa
upp og tjá sig um þetta. Þess vegna
þegir fólk frekar. Ég held að í kosning-
um getum við náð til þessa fólks.
Mér flnnst að mjög margt ungt fólk
styðji okkar málstað. Svo er margt fólk
sem er komið undir sextugt, húsmæð-
ur og fleiri, sem hugsar sitt en segir
ekki mikið. Fólk sem bjó úti á landi og
vann í fiski en er flutt til Reykjavíkur
er ekki hrifið af ástandinu."
Tugir moröhótana
- Hafið þið orðið fyrir aðkasti
vegna skoðana ykkar?
„Við höfum fengið tugi morðhót-
ana. Það er alltaf eitthvert skítkast
en við hlæjum bara að þessu. Þetta er
mikið hitamál og eldfimt."
- Hverjir eru áköfustu andstæðing-
ar ykkar?
„Ætli það séu ekki samfylkingar-
konur sem vildu láta setja lögbann á
félagið. Það er það svívirðilegasta
sem hefur verið reynt að gera við
okkur. Við buðum samfylkingar-
mönnum á fund hjá okkur en þeir
vOdu það ekki, fannst málið ekki
vera umræðunnar virði.“
- Á heimasíðu ykkar er talað um
nasistaflokk Þriðja ríkisins sem
klúbb. Viljið þið ekki tengja ykkur
við nasista?
„Við eigum ekkert skylt við nas-
ista. Þeir gengu lengra en við kærum
okkur um. Það er þó engin ástæða til
þess að afneita þjóðemisstefnu vegna
þess að nasistar tóku hana upp á sína
arma. Þetta tilheyrir fortíðinni og við
viljum ekkert af þeim vita.“
Hófum enga fordóma
- Hafa gamlir íslenskir nasistar
ekki gengið í flokkinn?
„Ég hef hitt gamla jaxla sem eru
eitilharðir í þessum efnum en ég veit
ekki um þá í flokknum.
Við vitum hins vegar um ungt fólk
sem er nasistar og hefur mjög öfga-
fullar skoðanir og er fordómafullt.
Við viljum gjarnan ná til þessa fólks
með upplýsingar því við erum ekki
með neina fordóma. Við höfum
kynnt okkur málin af þekkingu."
- Á markmiðalista ykkar er að
færa uppeldishlutverkið frá stofnun-
um til foreldra. Er ykkur illa við leik-
skóla?
„Alls ekki en við viljum að foreldr-
um sem vilja ala upp barnið sitt
heima sé gert það kleift. Við viljum
fá fjölskylduna aftur saman. Leik-
skólar geta verið ágætir fyrir suma
en við teljum að heimilin séu betri
uppalendur."
Skilaboð frá Alþingi
- Hverjar eru fyrirmyndir ykkar í
stjórnmálum erlendis?
„Við eigum enga skýra fyrirmynd
en við lítum til Framfaraflokksins í
Noregi, Le Pen í Frakklandi og erum
mjög ánægðir með Jörg Haider í
Austurríki og vonum að þeim gangi
sem best. Þessir flokkar hafa stefnu-
skrá sem er mjög lík okkar.“
- Hafið þið fengið fjárframlög frá
flokkum eða einstaklingum?
„Nei. Við bræður höfum borgað úr
eigin vasa það sem þarf hingað til.“
- Eigið þið einhvem stuðning með-
al alþingismanna sem ykkur er
kunnugt um?
„Alþingismenn eru fyrst og fremst
að hugsa um að halda vinnunni. Þeir
vilja ekki hætta sínu þingsæti með
því að styðja okkur. Við höfum þó
fengið skilaboð bakdyramegin svo
við vitum um stuðning þama inni.“
Ánægðir með SUS
- Eru þá einhver stjórnmálasam-
tök á íslandi sem þið eruð ánægðir
með?
„Það væri þá helst Samband ungra
sjálfstæðismanna sem stundum hef-
ur lýst skoðunum sem eru líkar okk-
ar afstöðu en fengið harða gagnrýni
fyrir. Ég reikna ekki með neinum
stuðningi en það væri þá helst úr
þeirri átt.“
- Nýlega var norskur nýnasisti í
fréttum fyrir morð á ungum blökku-
manni. Skaðar þetta ykkar ímynd?
„Það gerir það. Fjöltniðlar hafa
reynt að tengja okkur við nýnasista
og það eru fordómar í okkar garð.
Við erum mun hófsamari. Ofbeldi,
sprengingar og þess háttar eru ekki
okkar baráttuaðferðir.
Við vitum um litla hópa 14-15 ára
stráka hér í Reykjavík sem eru nas-
istar eins og nýnasistar og eru gífur-
lega öfgafullir. Þetta er hlutur sem
við höfum varað við og er bein afleið-
ing af innflutningi útlendinga. Það er
bein tenging þama á milli."
Össur breytti stefnunni
Hlynur segir það mat þjóðemis-
sinna að fréttaflutningur sé mjög litað-
ur nýbúum í hag.
„Meira en helmingur ofbeldisverka
í Noregi er framinn af innflytjendum.
Þessi frétt var falin í örfáum línum í
blöðunum. Það er aldrei sagt hér hvort
það vom nýbúar sem eiga aðild að af-
brotum. Sjónvarpsfréttir eru klipptar
innflytjendum í hag. Þessu verður að
breyta."
Systkinin þrjú
Jón Vigfússon, bróðir Hlyns, er
formaður félagsins. Hann er 28 ára sjó-
maður á frystitogara við Noreg og hef-
ur, eins og Hlynur, stundað sjó-
mennsku frá unga aldri. Systir þeirra
bræðra, er grunnskólakennari á Snæ-
fellsnesi og hefur tekið þátt í starfsemi
félagsins og skrifað greinar á heima-
siðu þess. Systkinin þrjú em ættuð
undan Eyjafjöllum. Var eitthvað í upp-
eldi þeirra sem mótaði skoðanir þeirra
í þessa átt?
„Við höfum alltaf hugsað svona. Við
fengum ung áhuga á þessum málum og
fórum að skoða þau. Systir mín bjó í
Þýskalandi um hríð og leist ekkert á
ástandið þar og vildi ekki að það sama
henti hér. I fjölskyldunni höfum við
ekki mætt neinni andstöðu en engum
sérstökum stuðningi heldur.
Systir mín hefur orðið fyrir aðkasti
í starfi vegna skoðana sinna sem mér
finnst mjög ómaklegt.
Ég var miklu frfálslyndari þegar ég
var yngri en þegar ég fór að kynna
mér málin og ástandið erlendis breytt-
ist það.“
Afríkunegri og íslendingur
- Nú sýna rannsóknir vísinda-
manna að menn eru vissir um að mun-
ur milli einstaklinga er meiri milli ein-
staklinga sama þorps en milli ólíkra
kynþátta. Kollvarpar þetta ekki kenn-
ingunni um yfirburði eins kynþáttar
umfram annan?
„Ég legg ekki mikinn trúnað á þetta.
Það þarf engan snilling eða erfðafræði-
vísindamann til að sýna fram á hver
munurinn er á Afríkunegra með prik í
hendinni eða Islendingi. Vestrænar
þjóðir vorkenna Afríkubúum mjög
mikið en þeir búa þama í gróðursæl-
ustu álfu heims og gætu framleitt sex
sinnum meira af mat en þeir þurfa ef
þeir nenntu því. Við búum héma á
einhverfum grjóthnullungi, höfum
ekkert nema fiskinn og klakann og
höfum það bara stórfint meðan þeir
nenna ekki að berfa af sér flugumar.
Ef þetta er ekki skýrt dæmi um mun-
inn á dugnaði og atorku kynþáttanna
þá veit ég ekki hvað.“ -PÁÁ
Könnun á fordómum íslendinga:
Yngsta fólkiö fordómafyllst
Tveir mannfræðinemar við Háskóla
íslands, Sigríður María Tómasdóttir
og Haukur Agnarsson, gerðu nýlega
könnun þar sem athugað var viðhorf
til innflytjenda á íslandi. Aðeins voru
spurðir þrír aldurshópar, 16-25 ára,
34-43 ára og 52-61 árs. Svarendur vom
510.
Hveijir eru flestir?
Nokkuð góð þekking virtist vera á
því hve margir útlendingar era búsett-
ir á íslandi (7.271) en þegar spurt var
hvaða hóp fólk teldi fjölmennastan
svöraðu flestir (32,7% að það væra Taí-
lendingar, hið rétta er að Pólverfar era
fjölmennastir. Augljóst er að afstaða
fólks mótast hér af hörundslit en Taí-
lendingar era eðlilega sýnilegri í sam-
félaginu en Pólverjar.
Flestum fannst flöldi innflytjenda
vera hæfilegur en 31,6% aðspurðra
töldu að innflytjendur væra of margir.
Það vakti athygli að 41,8% yngsta ald-
urshópsins fannst fjöldi innflytjenda
vera of mikill. Vegna mistaka við gerð
könnunarinnar vora þeir sem töldu
innflytjendur hæfilega marga beðnir
að svara því hvers vegna þeir teldu
innflytjendur vera of marga á íslandi.
Það vakti athygli hversu margir vora
tilbúnir að tína til margvísleg rök gegn
innflytjendum sem vekur efasemdir
um heiðarleika í upphaflegu svari.
Spurt var um áhrif innflytjenda á efna-
hag þjóðarinnar og flestir töldu að
áhrifin væra annaðhvort góð eða eng-
in. Það vekur athygli að 28% svarenda
í yngsta hópnum töldu innflytjendur
hafa slæm eða mjög slæm áhrif. Þar
var einnig að finna hæst hlutfall þeirra
sem töldu að íslendingar ættu að hafa
forgang að vinnu.
Er menningin í hættu?
Hinir yngstu voru einnig efst á blaði
þegar spurt var um þjónustu sem inn-
flytjendur ættu rétt á en 74% þeirra
fannst að innflytjendur ættu ekki rétt á
ókeypis túlkaþjónustu. Þegar spurf var
um hættuna sem íslenskri menningu
stafaði af innflytjendum voru þeir
yngstu enn í sérhópi því tæp 56% þeirra
voru mjög sammála eða frekar sammála
því að íslensk menning væri í hættu
vegna innflytjenda. Þessi sami hópur
taldi einnig mjög mikilvægt að íslend-
ingar héldu sínum siðum og venjum
þegar þeir flyttu til annarra landa.
Ekkiég
1 könnuninni var spurt um fordóma
í garð útlendinga, bæði hvort viðkom-
andi væri haldinn fordómum og einnig
hvort svarandi teldi að íslendingar
væra það almennt. I ljós kom að al-
mennt er fólk á því að íslendingar séu
fordómafullir (77%) en mjög fáir segj-
ast sjáifir vera fordómafullir (89%).
Samt hafa einhverfir þessara sömu
svarað því þannig að þeir vilji helst
ekki eða afls ekki að bömin þeirra eigi
innflytjanda sem maka, að aflt of marg-
ir innflytjendur búi á íslandi eða að
innflytjendur hafi slæm áhrif á ís-
lenskan efnahag.
íslendingar á varðbergi
Niðurstöður þessar gefa vísbend-
ingu um að íslendingar séu á varð-
bergi gagnvart innflytjendum og telji
fjölda þeirra þegar of mikinn og séu
haldnir verulegum fordómum í garð
þeirra. Þessi afstaða er sérlega áber-
andi í yngsta aldurshópnum og má
velta því fyrir sér hvort ungt fólk sé al-
mennt verr upplýst og / eða skorti um-
burðarlyndi samanborið við eldri hópa
eða hvort ungt fólk sé opinskárra um
skoðanir sínar í garð innflytjenda en
aðrir aldurshópar sem hafa í ríkari
mæli tileinkað sér pólitíska rétthugs-
un á þessu sviði. -PÁÁ
Adolf Hitler
íslenskir þjóöernissinnar vilja
ekkert við hann kannast og telja
þýska nasistaflokkinn hafa veriö
„klúbb".
Hvað
með
helför-
ina?
Á heimasíðu Félags íslenskra
þjóðemissinna eru birt svör við
því sem félagsmenn telja vera 10
algengustu „aulaspurningarnar"
sem þeir geta þurft að svara.
1. Ertu ekki hræddur um að
„þetta" skemmi fyrir þér í fram-
tíðinni?
- Það er engin framtíð ef það
er ekkert „svona“.
2. Hatarðu þá negra?
- Nei, ég myndi aldrei hugsa
um þá ef þeir héldu sig heima
hjá sér.
3. Ertu nasisti?
- Það er á allra vörum að sá
klúbbur var aflagður fyrir
rúmri hálfri öld.
4. Viltu drepa alla útlend-
inga?
- Áhugaverð hugmynd en alls
ekki á stefnuskrá félagsins.
5. Hvað með helförina?
- Við erum þjóðemissinnar,
ekki sagnfræðingar.
6. Eru nokkrar stelpur í félag-
inu?
- Auðvitað, þú spyrð eins og
þú haldir að stelpur hafi ekki
vit í kollinum rétt eins og strák-
ar.
7. Eru ekki bara eintómir
rugludallar í þessu?
- Hva, ertu með fordóma.
Hvað með ættleidd börn? Þau
eru örugglega varasöm, sjáðu
bara hvernig Össur hagar sér.
8. Af hverju mega útlendingar
ekki vinna vinnuna sem Islend-
ingar nenna ekki að vinna?
- Ráðningar útlendinga í
þessi störf hafa tryggt það að Is-
lendingar fá aldrei mannsæm-
andi kaup fyrir þessa vinnu.
Upphugsaðir þú þesa hárbeittu
spumingu þegar þú varst á leið-
inni að ná í bæturnar þínar?
9. Hvað hafið þið á móti lit-
uðu fólki?
- Þau eru alveg eins og við.
Við erum ekki á móti innflutn-
ingi fólks eingöngu vegna litar-
háttar heldur vegna þess að það
er öðruvísi að upplagi og inn-
ræti en við og þar að auki erum
við alveg eins mikið á móti
hvítum aumingjum eins og þér.
-PÁÁ