Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
I>V
Helgarblað
19
Michael Jackson
Hann ávarpaöi ráöstefnu um velferö barna.
Jackson
vill ekki
blaðakonu
Söngvarinn og dansarirtn litfor-
ótti, Michael Jackson, hefur alltaf
lag á að komast í sviðsljósið. Hann
vakti gríðarlega athygli á dögun-
um þegar hann var meðal frum-
mælenda á ráðstefnu um velferð
og uppeldi barna. Mörgum þótti
þetta sérstætt, ekki síst í ljósi þess
að Jackson hefur fengið á sig kær-
ur fyrir ósæmilega hegðun gagn-
vart börnum.
Þegar forsvarsmaður ráðstefn-
unnar kynnti Jackson sagði hann
að næsti maður á svið sæi böm
sem uppsprettu gleði og ánægju í
stað þess að líta á þau sem byrði.
Við þetta fór kliður um salinn og
áhorfendur æptu síðan af gleði og
fögnuði þegar goðið steig í pontu,
klætt í dökkar buxur, hvíta skyrtu
og perlusaumaða peysu.
Hann flutti hjartnæma ræðu um
erfiðleikana sem fylgja því að
byggja upp starfsferil en vera jafn-
framt ábyrgt foreldri sem sinnir
börnum sínum af alúð og hlýju.
Hann sagðist þekkja þetta hlut-
skipti mætavel því þetta væri hlut-
skipti sitt, en Jackson átti tvö
börn með Debbie Rowe, eiginkonu
sinni, áður en þau skildu.
Hann sagði þó að erfiðleikarnir
við að vera einstætt foreldri á
framabraut væru smámunir hjá
því að finna annan maka og taldi
vafasamt að hann kæmist
nokkurn tímann á stefnumót.
Áhorfendur æptu sumir að honum
og hvöttu hann til að velja sig í
það hlutverk en Jackson hélt
áfram og sagði að Rabbí Shmuley,
sem er andlegur leiðtogi hans,
væri búinn að lofa að finna handa
honum eiginkonu.
„Mér er alveg sama og er alveg
til í að reyna aftur en blaðakonur
koma ekki til greina," sagði
Jackson að lokum.
Hjónin slást
Fátt hefur vakið meiri athygli und-
anfarnar vikur i fréttum af einkalífi
frægra leikara en skilnaður Nicole
Kidman og Tom Cruise. Ekki eru öll
kurl komin til grafar í því átakanlega
máli en frétta af framvindu mála er
beðið með mikilli eftirvæntingu. Við
þetta tækifæri hafa menn burstað ryk-
ið af öllum sögusögnum sem varða
samlíf þeirra hjóna, kynhneigð þeirra
og íjármál í íeit að hugsanlegri
ástæðu annarri en vinnuálaginu sem
þau kenna um skilnaðinn.
Nýjustu fréttir herma að þegar
skötuhjúin giftust hafi þau gert vand-
aðan kaupmála um allt sem var í
þeirra eigu þá en ákvæði um það sem
þau hafa síðan eignast séu ekki sér-
lega ítarlega. Þess vegna telji menn að
hart verði tekist á um veraldlegar eig-
ur þeirra, lífeyri, meðlög og önnur
þekkt skemmtiatriði í skilnaðarátök-
um.
Sagt er að Nicole sé í miklu upp-
námi vegna'þessa máls þvi skilnaður-
inn hafi komið henni í opna skjöldu.
Sagt er einnig að Tom hafi sett málið
í nokkurs konar flýtimeðferð til þess
að draga úr möguleikum hennar til að
krefjast hás meðlags.
Síðast en ekki síst er sagt að hjónin
séu bæði önnum kafin við að ráða lög-
fræðinga og aðra fótgönguliða sem
gætu orðið að liði í baráttunni um
brauðið. Sagt er að Cruise sé þegár
búinn að ráða illræmdan einkaspæj-
ara, Anthony Pellicano sér til fullting-
is en Pellicano þessi er sérfræðingur i
skilnaðarmálum og muna alvanur því
að snuðra í gegnum ruslatunnur,
hlera síma og taka ljósmyndir af fólki
þegar síst skyldi.
Því spáð að baráttan milli Kidman
og Cruise eigi eftir að verða mjög
hörð og margvíslegra safaríkra frétta
sé að vænta af málinu á næstunni.
Götumarkaðssfemmning
fró fimmtudegi til sunnudags
afsláttur!
-í-H.
S asSí
9y j|:
1 8k*~á*e* I í:-; 1, w j
Ky*U\Ci(csJ\
P fl R S E M jFW J fl R T fl fl 5 L Œ R
UPPLÝSIN6BSÍMI 588 7788 SKRIFSTDFUSÍMI 588 9288