Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 I>V _______57 Tilvera^ Afmælisbörn Michael Jordan Bandaríski körfuboltakappinn Michael Jor- dan á afmæli í dag. Michael Jeffrey, eins og hann var skírður, er 38 ára. Hann er fæddur og alinn upp í Brooklyn í New York. Jordan er sem kunnugt er leikmaður Chicago Bulls og á heima í úthverfi Chicagoborgar með konu sinni Juanitu og börnum þeirra þremur, Jeffrey, Marcus og Jasmine. Sagt er að Jord- an trúi að gömlu körfuboltabuxurnar hans frá háskólanum í Norður-Karólínu færi honum lán og því klæðist hann þeim alltaf undir Bulls-buxunum í körfuboltaleikjum. John Travolta Leikarinn góðkunni John Travolta er 47 ára í dag. Tavolta datt ungur út úr skóla og hóf að leika í auglýsingum og svo í söngleikjum. Hann sló fyrst í gegn í myndinni Saturday Night Fever á áttunda áratugnum og innsiglaði vin- sældir sínar i kvikmyndinni Grease. Um árabil fréttist lítið af kappanum sem hafði þótt með afbrigðum fallegur og dansfimur. Hann átti þó eftirminnilega endurkomu í myndinni Pulp Fiction fyrir nokkrum árum og sýndi þar að hann er í raun prýðilegur leikari. Stjörnuspá Gildir fyrir sunnudaginn 18. febrúar og mánudaginn 19. febrúar Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l: Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Spa sunnudagsíns: Vertu þolinmóður þó að þér firmist vinna annarra ganga of hægt. Það væri góð hugmynd að hitta vini í kvöld. Esa»im Það er óróleiki í kringum þig sem stafar af óleystu deilumáli. Reyndu að komast að niðurstöðu um breytingar sem fyrst. Hrúturinn (21. mars-,19. anríh: Spa sunnudagsms: ■ Þú átt skemmtilegar samræður við fólk og dagurinn einkennist af samstöðu milli samstarfsaðila. Happatölur þinar eru 3, 24 og 36. Spa mánudagsins: Vertu á verði gagnvart manneskj- um sem eru þér ósammála. Þær gætu reynt að beita brögðxun til að fá sínu framgengt. Nautið (20. apríl-20. maí.): Spá sunnudagsins: Spá sunnudagsins: Fréttir sem þú færð eru ákaflega ánægju- legar fyrir þig og þína nánustu. Hætta er á smávægileg- um deilum seinni hluta dagsins. Nú er gott tækifæri til að koma hugmyndum þinum á framfæri, sérstaklega varðandi nýjimgar. Happatölur þinar eru 7, 13 og 34. Tvíburamif (21. maí-21. iúni): Reyndu að Jialda þig við ^// áætlanir þinar og vera skipulagður. Þér bjóðast góð tækifæri í vinnunni og um að gera að grípa gæsina á meðan hún gefst. Spá mánudagsins: Morgunninn verður annasamur og þú átt fullt í fangi með aö ljúka verkefnum sem þér eru fengin. Bogamaður (22, nðv.-2t. des.i: Spá sunnudagsins: 'Ekki taka mark á fólki sem er neikvætt og svartsýnt. Dagurinn verður skemmtilegri en þú bjóst við, sérstaklega seinni hluti hans. Viðskipti ættu að ganga vel og þú ert heppinn í samningum. And- stæðingur þinn ber mikla virð- ingu fyrir þér. í dag gætu ólíklegustu aðilar loksins náð sam- komulagi um mikil- væg málefni og þannig auðveldað framkvæmdir á ákveðnu sviði. Spa mánudagsins: Fjölskyldan kemur mikið við sögu í dag. Þú ættir að eyða meiri tima með henni og huga að loforði sem þú gafst fyrir stuttu. Krabbinn (22. iúní-22. iúií): Spá mánudagsins: Einhver persóna, sem hefur verið þér ofarlega í huga, kemur þér mjög á óvart. Það verður breyting á einhverju heima fyrir. Liónið (?3. ifjlí- 72. ágústi: Spá sunnudagsms: ' Þú þai-ft að einbeita þér að einkamálunum og rækta samband þitt við manneskju sem þú ert að fjarlægj- ast. Kvöldið verður ánægjulegt. Spá mánudagsins: Dagurinn verður skemmtilegur og þú tekur þátt í áhugaverðum um- ræðum. Eitthvað sem þú hefur beðið eftir lengi gæti gerst í dag. Vogin (?3. sept.-23. okt.l: Oy Eitthvað sem þú vinnur að um þessar mundir r f gæti valdið þér hugar- angri. Taktu þér góðan tíma í aö íhuga hvað gera skal. Spa sunnudagsins: I Þú ert að velta ein- hverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Spá mánudagsins: Þú færð efasemdir um heiðarleika eða einlægni einhvers. Þú átt rétt á að fá skýringu á því sem þú átt- ar þig ekki á. Mevian (23. ágúst-22. sept.h Reyndu að vera ekki j»allt of gagnrýninn við ' ástvini þína. Það gæti valdið misskilningi. Væntumþykja verður endurgoldin margfalt. Spa mánudagsins: Það verður mikið um að vera fyrri hluta dagsins. Láttu ekki freistast þó að fólkið í kringum þig sé kæru- laust. Haltu þig við áætlun þina. Sporðdreki 124. okt.-21. nóv.l: Spá sunnudagsins: Dagurinn verður við- pburöarríkur og þú hefur meira en nóg að gera. Gættu þess að vera ekki of tortrygg- inn. Happatölur þinar eru 1, 5 og 37. Þú færð einhveijar óvæntar fréttir og veist líklega ekki alveg hvernig þú átt að túlka þær. Þú ættir bara að bíða og sjá hvað verður. Steingeltitl (22. des.-19. ian.i:. \St hluti dagsins kem- tu- þér á óvart. Þú þarft að glima við óvenjulegt vandamál. Þú verður þreyttur í kvöld og ættir að taka það rólega. Spa manudagsms: Ákveðin manneskja gerir eitthvað sem þér gremst og þú átt erfitt með að sætta þig við. Ástandið batnar með kvöldinu. Skákþing Reykjavíkur 2001: sigurvegarar. Tveir Jón Viktor Gunnarsson og Sigur- björn J. Björnsson sigruðu á Skák- þingi Reykjavíkur en báðir fengu þeir 9 vinninga af 11 mögulegum. Sigurbjörn er borinn og barnfæddur Hafnfirðmgur og samkvæmt að mínu mati mjög fornri hugsun og ekki i takt við tímann hlýtur Jón Viktor tit- ilinn skákmeistari Reykjavíkur 2001. Hins vegar er það öllum sómakærum Hafnfirðingum ekkert kappsmál að verða Reykjavíkurmeistari í ein- hverri keppni. Björn Þorfinnsson varð þriðji með 8 vinninga. Stefán Kristjánsson, Sævar Bjarnason og Arnar E. Gunnarsson urðu í 4.-6. sæti með 7,5 vinninga. Úrslitin komu ekki á óvart, þessir heiðursmenn hafa orðið jafnir og efstir nokkrum sinnum undanfarin ár. Jón Viktor virkar enn tvístígandi í því hvort hann eigi að slá tU og fara í víking erlendis og gera atlögu að stórmeistaratitlinum. Það er að sjálf- sögðu fyrst og fremst hans ákvörðun, það er eiginlega að bera í bakkafull- an lækinn að gera kröfur til hans að verða stórmeistari, við íslendingar eigum 9 stórmeistara í skák sem er mikið afrek og ekki allir gera sér grein fyrir hversu mikið það er. Það eru reyndar fleiri sem hafa alla burði til að geta náð þessum stórmerka áfanga. En mér finnst að það vanti einhvem neista hjá ungu mönnunum í skákinni, það verður að beita sjálf- an sig töluverðri ögun og stunda skákrannsóknir af kappi meðan heUabúið stendur í blóma! Það eru margir aðilar hér innan- lands sem hafa stutt vel við skákina og vUja gera áfram. Uppeldislegt gUdi skákarinnar og sú reynsla sem ungt fólk nær sér í þar gera mjög margir sér grein fyrir, bæði hjá ís- lenskum stjórnvöldum og fyrirtækj- um svo og einstaklingar. Það er fyrst og fremst jákvæð ræktun einstak- linga, t.d nemenda í íslenska skóla- kerfmu sem á að leggja aðaláhersl- una á. Mér kemur spánskt fyrir sjón- ir sú ákvörðun stjórnar Skáksam- bands að verðlauna sérstaklega fyrir hvern áfanga með peningaupphæð sem næst I alþjóðlegum titlaveiðum. Efnishyggjan sem þarna er verið að innræta hjá unga fólkinu fer þó nokkuð i taugarnar hjá mér og ég er á þeirri skoðun að það ætti ekki að verðlauna fyrir neina áfanga fyrr en titUlinn er i höfn. Það er svo margt annað tU í lífmu en peningar og ég held að með því að kenna og innræta rétt vinnubrögð náist betri árangur og lífsþroski. Það er eins og stefnan sé að gera aUt að aurum, lífsþroski og andleg vellíðan eru mikilvægari þættir í lífmu. Þá eiginleika hafa aU- ílestir stórmeistarar okkar tU að bera, held ég. Svo ég segi þetta í einni setningu: Lífsþroski, andleg veUíðan, skilvirk vinnubrögð og menntun skUar heibrigðum einstak- lingum sem læra að njóta lífsins og svo skUa aurarnir sér tU þannig ein- staklinga (og hana nú!). Það vantar menn i skákforystuna sem geta kom- ið þessum skilaboðum áfram eða hafa skUning á þessu grundvaUarat- riði. Þeir, og af báðum kynjum, eru hins vegar tU i skákhreyfingunni. Hins vegar er sjálfsagt að styðja við bakið á ungu mönnunum, með fjár- styrkjum á mót erlendis og góðum undirbúningi, sem reyndar er og hef- ur verið gert um þó nokkurn tíma hjá Skákskóla íslands, held ég og vona. íslandsmót í atskák Jóhann Hjartarson varð íslands- meistari í atskák eftir sigur á Helga Ólafssyni í úrslitaeinvígi, 1,5-0,5 v. Jóhann vann fyrri skákina með svörtu. Seinni skákinni lyktaði með jafnteUi. Þetta er í fyrsta sinn sem Jó- hann Hjartarson verður íslandsmeist- ari í atskák en þetta var í 5. sinn sem hann teUdi tU úrslita. Helgi Ólafsson hefur hins vegar borið sigur úr být- um þrisvar, síðast i fyrra eftir að hafa þá lagt Jóhann Hjartarson í úrslita- einvíginu. Úrslitaeinvigið fór fram í Ríkis- sjónvarpinu en að öðru leyti fór keppnin fram í húsnæði TR, Faxafeni 12. AUs tóku 6 íslenskir stórmeistarar þátt í mótinu, sá elsti Friðrik Ólafs- son og sá yngsti Helgi Áss Grétars- son. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Jóhann Hjartarson Drottningarbragð, íslandsmótið í atskák, 11.2. 01. Fyrri skákin 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 b6 8. Bd3 Bb7 9. 0-0 Rbd7 10. De2 c5 11. Hfdl Re4. Helgi teUir rólega og yfirvegað eins og hann gerir oft, kannski of oft!? Hér er besti leikurinn 12. Bg3 en þannig hefur m.a. Capablanca, fyrrverandi heimsmeistari í skák, teUt. 12. Bxe7 Dxe7 13. cxd5 exd5 14. Ba6 Rxc3 15. bxc3 Bxa6 16. Dxa6 Rf6 17. Rd2 Hfc8 18. a4 Hab8 19. Habl cxd4 20. cxd4 Hc2 Svartur stendur aðeins betur. Hér er 21 a5 besti kosturinn. 21. h3 Dd7 22. Db5 Df5 23. Hb2 Hbc8 24. Rf3 Re4 25. Hxc2 Hxc2 26. Hfl g5 27. a5 Rc3 Hér er 28. Da8+ góður leik- ur og staða svarts aðeins sjónarmun betri. 28. De8+ Kg7 29. axb6 axb6 30. Re5 Re4 31. f3 Rg3 32. Hal h5 33. Kh2 h4 34. Rg4? Staðan er næstum því í jafnvægi en eftir þennan leik verður ekki við neitt ráðið. Hins vegar getur svartur ekki fórnað á g2 og mátað eins og Þröstur Þórhallsson og Hermann Gunnarsson töluðu um á RÚV, eftir t.d. 34. Hxg2+ 35. Kxg2 Dc2+ 36.RÍ2 er öU mátsókn rokinn út í veður og vind. 34. - Hc8! 35. De7 b5 36. De5+ Dxe5 37. Rxe5 b4 38. Hbl b3 39. e4 dxe4 40. fxe4 Hc3 41. Rf3 Rxe4 42. d5 Hd3 43. Rel Hc3 44. Rf3 Hd3 45. Rel Hxd5 46. Ifxb3 Hdl 47. Rd3 Rg3 48. Rf2 Hfl Óþarfi að rekja þetta lengra, tímahrak. 0-1. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Helgi Ólafsson Mönnum varð tíðrætt um þessa stöðu og mannsfórn Helga. Sumir héldu að svartur stæði hér betur en það er misskUningur. Eftir 42. - Bh5 43. Kg3! Hg8+ 44. Kf2 stendur hvítur betur. Eða sá leikur sem er betri, 42. Bf5 43. Hcf2 Be4 44. Bdl Rd7 45. Rb3 stendur hvítur betur að mínu mati og það er rétt! Spyrjið bara Kasparov!! 42. - Bxh3 43. Kxh3 f2 44. Rd3 Hf3+ 45. Kg2 Hxe3 46. Rxf2 Hg8+ 47. Kh2 Hg5 48. Hd2?! Þvingar Helga til að þráskáka, smástríðni hjá Jóhanni. Eftir 48. Hhl eða 48. Hfcl er staða svarts gjörtöpuð. Helgi hefur eflaust skUið þessa gamansemi?! 48. - Hh5+ 49. Kg2 Hg5+ 50. Kh2 Jafntefli. Norðurlandamótið í skólaskák Norðurlandamótið i skólaskák fer fram núna um helgina að Laugum í Dalasýslu. AUs eiga tslendingar 13 fuUtrúa að þessu sinni og eru þeir óvenju margir vegna þess að Færey- ingar senda aðeins 1 fuUtrúa í 3 flokka og fá því íslendingar auka- mann í þá flokka en hver þjóð á að jafnaði tvo fuUtrúa í hvem flokk. AUs er keppt í fimm flokkum. Fulltrúar tslands: A-flokkur (1981-1983): Stefán Kristjánsson 2385, Bragi Þor- finnsson 2350, Sigurður PáU Stein- dórsson 2205. B-flokkur (1984-1985): Guðjón Heiðar Valgarðsson 1925,«-- HaUdór Brynjar HaUdórsson 1910. C-flokkur (1986-1987): Dagur Amgrímsson 1920, Elvar Þór Hjörleifsson 1640, Hjörtur Ingvi Jó- hannsson 1415. D-flokkur (1988-1989): Guðmundur Kjartansson 1860, Ágúst Bragi Björnsson 1615, Víðir Pet- ersen 1510. E-flokkur (1990-): Jón Heiðar Sigurðsson, Örn Ágústsson. Skákþing Akureyrar Þór Valtýsson og Gylfi ÞórhaUsson urðu efstir og jafnir á Skákþingi Akur- eyrar sem lauk í gær. Báðir hlutu þeir 6,5 vinninga í 7 skákum, gerðu inn- byrðis jafntefli í 1. umferð. Þeir þurfa því að tefla fjögurra skáka einvígi um titUinn skákmeistari Akureyrar 2001. Jón Björgvinsson varð þriðji með 4,5 vinninga. A-riðiU: 1.-2. Þór Valtýsson og Gylfl ÞórhaUsson 6,5 v. 3. Jón Björg- vinsson 4,5 v. 4.-5. HaUdór Brynjar Halldórsson og Stefán Bergsson 3,5 v. 6. Hreinn Hrafnsson 2 v. 7. Sigurður Eiriksson 1,5 v. 8. Skúli Torfason 0 v. B-riðiU: 1. Eymundur Eymundsson 6 v. 2. Ágúst Bragi Björnsson 5,5 v. 3. Sveinbjörn Sigurðsson 5 v. 4. Haukur Jónsson 4,5 v. 5. Tómas Sigurðsson 3 v.^ . Players-skákmótið Helgi Áss Grétarsson sigraði á Players-mótinu sem fram fðr 8. feb. sl. Helgi hlaut 8,5 vinninga af 11 möguleg- um. Annar varð Björn Þorflnnsson með 8 vinninga. Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsson urðu í 3.-4. sæti með 7,5 vinninga hvor. Ingvar Þór Jó- hannesson fékk verðlaun fyrir bestan árangur skákmanns undir 2000 skák- stigum, en hann fékk 6,5 vinninga. Mótið var fullskipað og mættu flest- ir af „virkustu sterku" skákmönnum okkar á höfuðborgarskákmótinu til leiks. Af 30 keppendum voru 16 með yfir 2200 skákstig! Þrír stórmeistarar voru á meðal keppenda og var veiðin þeim sýnd en ekki gefln. Keppendur ' undir 2000 skákstigum töluðu um að þegar og ef þeir ynnu skák væri þeim strax refsað í næstu umferð af titilhafa. Þeir Bragi og Björn Þorfinnssynir vöktu hvað mesta athygli fyrir frammistöðu sína. Bragi Þorfinnsson gerði sér lítið fyrir og lagði alla stór- meistarana þrjá að velli! Hann hefði sennilega sigrað á mótinu hefðu fleiri stórmeistarar verið meðal þátttakenda - miðað við tölfræðina a.m.k. Eftir þrjár fyrstu umferðirnar hafði Björn aðeins fengið hálfan vinning, en þá skipti hann um gír og afrekaði 7,5 vinninga úr síðustu 8 skákum sínum! ~ Þeir bræður unnu báðir skákir sínar við sigurvegara mótsins, Helga Áss Grétarsson stórmeistara, en það voru einu tapskákir hans á mótinu. Helgi Áss var vel að sigrinum kominn. Hann var allan tímann á efstu borðum og sýndi mikið öryggi í taflmennsku sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.