Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 5
5 LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2001 IDV Fréttir Mjög mikil loðnuveiöi gæti verið fram undan því ástand stofnsins er mjög gott: Stöðvar verkfall veiðarnar? Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur segir að miðað við kynþroska loðnunnar sem hefur fundist að undanfórnu úti fyrir Austur- landi geti loðnuvertíðin staðið a.m.k. út marsmánuö. „Botninn hefur oft dottið úr veiðunum upp úr 20. mars en oft hefur það líka gerst að veiðarnar hafa í apríl,“ segir Hjálmar. Hann segir að niðurstaða Hjálmar Vilhjálmsson: Þetta lítur alveg ágætlega út núna. staðið yfir fram Óveðrið í gær: Veðurofsi olli skemmdum á bílum SendiferðabíO fauk út af veginum við ísafjarðardjúp í rokinu sem gekk yfir landið í fyrrinótt, og jafnframt skemmdust átta bílar töluvert mikið á Neskaupstað. Lítill sendiferðabíll fauk út af veg- inum á Nauteyri snemma í gærmorg- un. Engin slys urðu á fólki en bíllinn skemmdist eitthvað. Bílunum átta var lagt á bílastæði norðanmegin við nýja frystihúsið á Neskaupstað. Að sögn lögreglunnar gekk sand- og grjótfok yfir bílana með þeim afleiðingum að gluggar í þremur þeirra brotnuðu og skemmdust hinir fimm töluvert. -SMK Víkurskarð: Rúta fauk út af vegi Hópferðabíll fauk út af veginum i Víkurskarði á milli Akureyrar og Húsavíkur á níunda timanum í gær- morgun. Mjög hvasst var á svæðinu er atvikið átti sér stað og að sögn lögreglunnar á Húsavík var tölu- verð hálka á veginum. Ökumaður og farþegi sem í bílnum voru sluppu ómeiddir og sagði talsmaður lög- reglunnar að þeir mættu þakka það bílbeltunum sem þeir voru spenntir í. Rútan var töluvert skemmd eftir veltuna. -SMK Reykjavíkur- hótelin setja nýtt janúarmet í tekjukönnum Samtaka ferðaþjón- ustunnar fyrir janúar árið 2001 kemur fram að meðalnýting hótela á lands- byggðinni fyrir nýliðinn janúarmán- uð hefur aukist miðað við sama tíma- bil á síðasta ári. Meðalnýting í janúar 2001 er 16,99% en í janúar 2000 var hún 12,68%. í könnuninni taka þátt 10 hótel á landsbyggðinni með 603 her- bergi. Verðlag hefur einnig hækkað þvi i janúar 2001 var meðalverðið 4.488 kr. en 4.215 í janúar 2000. Meðalnýting hótela í Reykjavík í janúar 2001 hefur ekki verið meiri eða 40,7 %, hæst komst hún í janúar á síð- asta ári og þá í 37,23%, í könnunni taka þátt 10 hótel með 1.079 herbergj- um. Þá hefur verðlag einnig hækkað í janúar. Á þessu ári var verðið 5.048 krónur en á sama tímabili í fyrra var það 4.956. Ef miðað er við meðaltalsnýtingu undanfarin ár í Reykjavík og á lands- byggðinni hefur meðalnýtingin allt árið frá árinu 1996 til ársins 2000 i Reykjavík farið úr 63% i 71%. Hins vegar virðist landsbyggðin ekki vera eins vinsæl hjá ferðamönnum. Nýt- ingin fyrir allt árið 19C3 „r 43% og hélst þannig árið 1997, minnkaði um eitt prósent 1998 en fyrir árin 1999 og 2000 hefur meðalnýtingin lækkað um 5% miðað við árið 1998. -DVÓ 20 tulípanar og glervasi 1.499kr. Rómantískur kvöldverður fyrir tvo í Apótekinu í Austurstræti fyrir aðeins 2.900 kr. á manninn. apótEk har • grill Komíó á blómiegu sambandi. Komió í Bíómavaí! Opió tii ki. 21 í kvöid. Ástin biómstrar hjá okkur frá morgni til kvölds. loðnurannsókna sem staðið hafa yfir að undanfórnu verði lögð fram eftir helgina, og þá um leið lagðar fram tillögur fyrir ráðherra um heildarkvóta á vertiðinni. Hjálmar segir að í heildina líti málin vel út hvað varðar loðnuna og segir flotann geta „veitt eðli- lega“, svo framarlega sem veðurfar verði hagstætt. Nú er eftir að veiða um 60 þúsund tonn af upphafskvót- anum auk þeirra 200 þúsund tonna sem Hafrannsóknastofnun hefur þegar gefið grænt ljós á. Það virðist hins vegar ljóst aö Hafrannsókna- stofnun mun leggja til talsvert meiri kvóta og niðurstaðan verði sú að að- eins óhagstætt veður og verkfallið sem hefst 15. mars semjist ekki, geti komið í veg fyrir mikla veiði alveg fram til mánaðamóta mars/apríl eða jafnvel lengur. Hjálmar segir að ýmislegt hafi komið á óvart á vertíðinni sem stendur yfir. „Það má eiginlega segja að flest hafi komið á óvart núna. í fyrsta lagi er greinilegt að meirihluti hrygningarstofnsins setti sig niður út af Vestfjörðum á sínum tíma og er núna kominn suður á Látragrunn. Þá er kynþroski Vest- fjarðaloðnunnar talsvert á undan þeirri sem er út af Austurlandi og það er andstætt því sem hefur verið ef göngur hafa komið að vestan." Að sögn Hjálmars er meginreglan sú að eftir að loðnugöngur út af Austfjörðum koma upp að landinu, veiðist úr þeim í um það bil þrjár vikur. Veiðitíminn eftir að fyrsta loðnan kom inn á grunnslóð verði þó lengri en þrjár vikur því loðnan komi ekki öll inn á grunnslóðina í einu. Hjálmar segir þó borðleggj- andi að núna verði veiðum ekki lok- ið fyrir 15. mars þegar sjómanna- verkfallið á að skella á. „Ég sé eng- in merki þess, enda vitum við ekki til að það sé nein loðna komin inn á grunnslóð fyrir austan eöa út af austanverðri suðurströndinni," sagði Hjálmar. -gk Upplýsingasími 5800500 Blómaverslun á netinu www.blomaval.is Karlmenn! Nú ®r að standa sigl Konudagurinn er á morgun, sunnudag. Opnum kl. 8. Sérstök hjónabandssæla fylgir öllum konudagsblómum: Einn miði, keyptur á almennu verði, og 50% afsláttur af öðrum miða á leiksýninguna „Á sama tíma síðar" Leikfélag íslands og Hekla kynna:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.