Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 17. FEBRUAR 2001 Fréttir x>v Gífurleg fjárhagsleg verömæti og atvinnutækifæri: Aðgöngugjald í þjóðgarða - kemur til greina hér, segir umhverfisráðherra „Þjóðgarðar hér á landi munu verða miklu meirir tekjulind í fram- tíðinni heldur en þeir eru nú. Þeir munu skapa gífurleg fjárhagsleg verðmæti og mörg atvinnutækifæri. Aðgöngugjald inn í þjóðgarð- ana kemur til greina hér eins og annars staðar og það verður skoðað í fram- tíðinni." Þetta sagði Siv Friðleifs- dóttir umhverf- isráðherra i samtali við DV. Hún er nýkomin frá Kenía, þar sem hún sat alþjóðlegan fund umhverfisráðherra. í heim- sókninni notaði Siv tækifærið og heimsótti einn frægasta þjóðgarð Kenía, Masai Mara, og kynnti sér rekstur hans. Nú stendur fyrir dyrum stofnun Siv Friöleifsdóttir. tveggja nýrra þjóðgarða hér á landi. Annar þeirra verður á Snæ- fellsnesi og standa vonir til að hann verði opnaður á þessu ári. Hinn verður á Vatnajökuls- svæðinu og er áætlað að opna hann árið 2002. „í Kenía sá ég þá möguleika sem menn hafa verið að nýta sér þar og annars staðar," sagði Siv við DV. „Umfangsmikil notkun er á þjóð- garðinum. Keníabúar hafa náð að nýta þjóðgarðana fyrir ferðamenn. Þeir eru með upplýsingar um dýralíf og skoðunarferðir á dýra- lífi og gróðri. Þeir hugsa mjög vel um þjóðgarðinn enda er hann mik- il tekjulind hjá þeim. Hann skapar miklar gjaldeyristekjur, ekki bara á þjóðgarðssvæðinu sjálfu, heldur einnig á öðrum svæðum, þar sem ferðamenn leggja leið sína einnig um.“ Varðandi íslensku þjóðgarðana sagði Siv að áríðandi væri að skil- |gp Ac . ■ 4 '- / V:'-' . ' ...JV ’ •- 'if* mm , fi SBfi: 4 m .. __ ~i . ' 't*. ,*V * ", v í Þjóögaröar - sameign landsmanna „Aðgöngugjald inn í þjóðgarðana kemur til greina hér eins og annars staðar og það veröur skoðað í framtíðinni, “ segir umhverfisráðherra. greina þá betur, ná fram sérstöðu þeirra og búa til meira fræðsluefni um þá. Á fjárlögum yfirstandandi árs væri mun meira fjármagn til Náttúruverndar ríkisins en áður sem ætti að fara í þjóðgaröamál, fræðsluefni um þá og svo fjölsótta ferðamannastaði. Mikill vilji væri hjá stjórnvöldum um að bæta úr. „Það er mjög mikilvægt fyrir okk- ur sem þjóð að vera með svæði sem við skilgreinum sem þjóð- garða og verndum,“ sagði Siv. -JSS , DV-MYND HARI I göngutúr viö Landakotskirkju Það er óhætt að segja að snjóþyngsli hafa ekki íþyngt landanum í ár og gleður það suma en aðra ekki. Meöan skíðafólk bíður eftir snjónum eru margir af eldri kynslóðinni þakklátir fyrir auða jörðina. Auglýst á næstunni Lóðir I nýja hverfinu við Klettaborg verða væntanlega auglýstar til um- sóknar í næstu viku og viðbúiö að margir muni sækja um þær. Akureyri: Eftirsóttar lóðir auglýstar Akureyrarbær mun í næstu viku auglýsa eftir umsóknum í lóðir í nýju hverfl sem byggja á við Kletta- borg. Svæðið sem byggt verður á af- markast af Borgarbraut í norður, fyrirhugaðri Dalsbraut í vestur, gamla verksmiðjusvæðinu í austur og Kringlumýri og Kotárgerði í suð- ur. Á svæðinu á að byggja 19 einbýl- ishús og 36 raðhúsaibúðir. Fastlega má reikna með að þessar lóðir verði mjög eftirsóttar. Þær eru miðsvæðis í bænum, eru i brekku og útsýni til norðurs yfir Eyjafjörð og til Vaðla- heiðar er án efa frábært. -gk Hlöllabátar: Opna annan stað í London Eignarhaldsfélag Hlöllabáta vinnur nú að því að opna tvo nýja staði, annan í Lækjargötu í Reykjavík og hinn í Leather Lane í London, en þetta kemur fram í frétt frá félaginu. Félagið opnaði í byrjun janúar fyrsta staðinn í Bretlandi á Chancery Lane, sem er í miðju lög- fræðingahverfi í London, og hefur reksturinn gengið vonum framar. Þessa dagana er síðan unnið að því að auka hlutaféð um sex millj- ónir að nafnvirði sem selja á til nýrra fjárfesta á genginu tveimur. Með því og rúmum fjórum milljón- um, sem fara eiga i leigu á tækj- um, verða nýju staðirnir tveir full- fjármagnaðir. Nýju staðirnir verða opnaðir í febrúar og mars og er hugmyndin að reka staðina þrjá í nokkra mánuði þar til reynsla og tölur liggja fyrir. Eftir það er stefnt á að fara á markað og leita eftir rúmlega 60 til 100 milljónum íslenskra króna í nýtt hlutafé. Það fé á að nota til að opna átta til tólf staði til viðbótar á einu til einu og hálfu ári. -MA Veðrið í kvöld Sunnanátt á landinu unnanátt 10 til 15 m/s. Súld með köflum sunnan- og vestanlands, en skýjað með köflum og þurrt að mestu í öörum landshlutum. Hiti 2 til 6 stig. S5-------------------- Sólargangur og sjávarföll ■ Veðrið á morgun REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 18.09 17.47 Sólarupprás á morgun 09.12 09.04 Síðdegisflóð 14.24 18.57 Árdeglsflóð á morgun 03.19 07.52 Skýringar á veöurtáknum Í^'-VINDÁTT «—HiTI -10“ VINDSTYRKUR í metrum á sekúndu HEIÐSKÍRT -&> -$3 ^3 O IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJA0 SKÝJAÐ ALSKYJAO RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR Allt eftír v i-wtv* -JSUr *u.:. m Listaverkin í snjónum Hvert einast snjókorn er listaverk. Það er hins vegar mjög erfitt að sjá þaö meö eigin augum og margir hafa reynt að festa það á filmu með hjálp snjóauka. Árangurinn hefur veriö misjafn en sumum hefur tekist listavel meö myndatökuna. Urkomulítið norðaustantil Suölæg átt víöa 10 til 15 m/s. Rigning með köflum sunnan- og vestantil, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig. -Fvj-jjú dijgus indur: / x 0-15 m/nt-s % f Hiti2“til-2° 'Ví" Suðvestan, 10 tll 15 m/s og él, en þurrt norðaustan- lands. Hltl 0 tll 2 stlg með suður- og austurströndlnnl, en annars vægt frost. S*A Vindur: 10-15 m/s ' Hiti 6“ tii 0° Suðlæg átt viða 10 tll 15 m/s. Rlgnlng með köflum sunnan- og vestantll, en úrkomulítlð norðaustantll. Hltl 0 tll 6 stlg. fVliðvikuciai Vindur:, ^ X-XmA Hiti 2 til -4° Vestlæg átt, snjókoma eða él og kólnandl veöur. 1 Veðrið kl. 6 AKUREYRI snjóél -2 BERGSSTAÐIR snjóél ■4 B0LUNGARVÍK hagél -6 EGILSSTAÐIR -1 KIRKJUBÆJARKL. snjóél -2 KEFLAVÍK skafrenningur -1 RAUFARHÖFN snjóél -1 REYKJAVÍK skýjað -2 STÓRHÖFÐI snjóél -2 BERGEN léttskýjaö 1 HELSINKI léttskýjaö 2 KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 4 ÓSLÓ alskýjaö 4 STOKKHÓLMUR 3 ÞÓRSHÖFN alskýjað 8 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 4 ALGARVE heiöskírt 15 AMSTERDAM þoka 4 BARCEL0NA heiöskírt 14 BERLIN léttskýjaö 5 CHICAGO alskýjaö -1 DUBLIN léttskýjaö 5 HALIFAX léttskýjað -8 FRANKFURT heiöskírt 7 HAMB0RG þoka 2 JAN MAYEN slydda 1 L0ND0N léttskýjaö 9 LÚXEMBORG heiðskírt 8 MALLORCA rigning 12 M0NTREAL -18 NARSSARSSUAQ hálfskýjað -12 NEWY0RK alskýjaö 1 ORLANDO þoka 17 PARÍS VÍN þoka 7 WASHINGT0N alskýjað 5 WINNIPEG heiöskírt -24 Hiywtj ú ú Á'fci i!H>lu i W
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.