Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 47
55 '
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
DV Tilvera
85 ára________________________
Guðbrandur Sigurbjörnsson,
Túngötu 38, Siglufiröi.
Guðný Ingimarsdóttir,
Strandgötu 8, Ólafsfirði.
80 ára___________
Ursula Magnússon,
Lyngbraut 9, Garði.
70 ára__________________________
Björn B. Kristinsson,
Brekkustíg 8, Sandgerði.
Júlíus Guðlaugsson,
Efra-Hofi, Garði.
Konráð Árnason,
Kringlumýri 27, Akureyri.
60 ára__________________________
Arnór Þórarinn Hannesson,
Aðalstræti 8, Reykjavík.
50 ára__________________________
Alfreð Örn Almarsson,
Ásvegi 17, Akureyri.
Bára Guðnadóttir,
Lyngási Ib, Hellu.
Brynhildur Njálsdóttir,
Hátúni 1, Keflavík.
Inga Hrönn Pétursdóttir,
Birkigrund 40, Kópavogi.
Jóhanna Ragnarsdóttir,
Möðrufelli 13, Reykjavík.
Nína Munoz,
Ægisgötu 11, Akureyri.
Þorvaldur Kristleifsson,
Klapparstíg 8, Sandgerði.
40 ára__________________________
Friðrik Kristjánsson,
Lindasmára 38, Kópavogi.
Guðbrandur Jón Jónsson,
Rauðagerði 52, Reykjavík.
Guðrún Hulda B. Birgisdóttir,
Fífuhjalla 15, Kópavogi.
Helga Stefánsdóttir,
Gilsbakka 5, Hvolsvelli.
Ólafur Ingi Sigurmundsson,
Eyöi-Sandvík, Árnessýslu.
Sesselja Pétursdóttir,
Vesturhúsum 8, Reykjavík.
Skarphéðinn Ásbjörnsson,
Bólstaö, A-Húnavatnssýslu.
Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir,
Safamýri 57, Reykjavík.
Þorgeir Axelsson,
Ásbúð 67, Garðabæ.
Hjónin Hörður Valdimarsson og
Jórunn Erla Bjarnadóttir, Nestúni
2, Hellu, áttu gullbrúðkaup þann
13.2. sl.
í tilefni þess taka þau á móti
gestum á heimili sínu laugard. 17.2.
frá kl. 14.00.
Sextugur
Guðni G. Sigurðsson
eðlisfræðingur
Guðni Georg Sigurðsson eðlis-
fræðingur, Bollagörðum 35, Sel-
tjarnarnesi, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Guðni fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í vesturbænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1961, fyrri-
hluta prófi í verkfræði frá HÍ 1964,
lokaprófí í eðlisfræði (Dipl. Phys.)
með sérhæfingu í kjarneðlisfræði
frá TU Karlsruhe 1968, doktorsprófi
frá sama skóla (Dr. rer.nat.) 1972, en
ritgerðin fjallaði um hnignun óhlað-
mna miðeinda.
Guðni stundaði rannsóknir í ör-
eindaeðlisfræði við TU Karlsruhe
1969-72, þar af í eitt ár við CERN,
Kjameðlisfræðistofnun Evrópu í
Genf, stundaði rannsóknarstörf í
samvinnu við rússneska vísinda-
menn í Serpukhov í Rússlandi
1973- 74, var verkfræðingur hjá
CERN við uppsetningu tölvubúnað-
ar og gerð forrita til stjómunar og
gagnasöfnunar fyrir neutrinogeisla
frá prótónusynchroton (SPS)
1974- 79, var siðan sérfræðingur á
Raunvísindastofnun HÍ 1979-82 en
réðst þá til hugbúnaðarfyrirtækis-
ins Tölvars ehf. Fyrirtækið rak
hann lengi í samstarfi við aðra en
er nú einn eigenda. Starfssvið
Tölvars ehf. er einkum gagna-
grunnsforritun og rauntímakerfi,
en viðskiptavinir eru opinberir aðil-
ar, verkfræðistofur og iðnfyrirtæki.
Guðni fékkst um árabil við
stundakennslu og prófdómarastörf í
eðlisfræði við HÍ og hefur einnig
setið í dómnefndum vegna stöðu-
veitinga við skólann.
Guðni hefur starfað í Sjálfstæðis-
flokknum, var m.a. í allmörg ár í
stjórn sjálfstæðisfélags Seltiminga
og hefur setið í nefndum og ráðum
fyrir flokkinn á Seltjarnarnesi og í
Reykjaneskjördæmi.
Fjölskylda
Guðni kvæntist 12.10. 1963 Þóru
Th. Hallgrímsson, f. 9.10. 1943, en
hún er dóttir Thors G. Hallgríms-
sonar, framkvæmdastjóra í Reykja-
vík, og k.h., Ólafíu Guðlaugar Jóns-
dóttur. Þóra hefur starfað lengi að
ferðamálum, var. m.a. í mörg sum-
ur leiðsögumaður erlendra ferða-
manna um ísland.
Börn Guðna og Þóru eru Þóra, f.
24.3.1964, BA í ensku og frönsku, en
eiginmaður hennar er Vilhelm
Steinsen, löggiltur dómtúlkur og
skjalaþýðandi, og eiga þau hjón og
reka Þýðingarstofuna í Reykjavík
en börn þeirra eru Ásta Kristensa, f.
1.3. 1994, Una Kamilla, f. 17.12. 1996,
og Garðar Thor, f. 10.5. 1998; Gunn-
ar, f. 3.2. 1968, rafmagnsverkfræð-
ingur og vinnur að doktorsritgerð í
rafmagnsverkfræði við DTU í Kaup-
mannahöfn, en sambýliskona hans
er Sigríður Hilda Radomirsdóttir,
rafmagnsverkfræðingur hjá Erics-
son í Kaupmannahöfn, og er sonur
þeirra Egill MUan, f. 23.6. 1998;
Kjartan, f. 13.11. 1972, slagverksleik-
ari, við framhaldsnám í slagverks-
leik við Sweelink Konservatorium í
Amsterdam, en sambýliskona hans
er Karen María Jónsdóttir, við nám
í leikhúsfræðum við Amsterdamhá-
skóla og er dóttir þeirra Gígja, f.
7.11. 2000.
Bræður Guðna eru Benedikt
Gunnar Sigurðsson, f. 22.1. 1945,
starfsmaður Landsvirkjunar,
kvæntur Áslaugu Þorleifsdóttur
húsmóður og eiga þau tvö börn,
Ástu Sigríði og Sigurð Gunnar; Ingi-
bergur Sigurðsson, f. 17.5. 1947,
vörubifreiðarstjóri á Þrótti, búsett-
ur í Reykjavík, en hann heldur
heimili með móður þeirra bræðra.
Foreldrar Guðna: Sigurður Bene-
diktsson, f. 22.9. 1908, d. 4.11. 1976,
bifreiðarstjóri í Reykjavík, og eftir-
lifandi kona hans, Ásta Guðnadótt-
ir, f. 12.9. 1915, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Benedikts,
sjómanns og verkamanns í Reykja-
vík, bróður Kristbjargar, móður
Marteins, verkfræðings á Selfossi,
föður Bjöms, verkfræðings og ark-
tekts. Kristbjörg var einnig móðir
Erlends, fyrrv. sýslumanns og bæj-
arfógeta á Seyðisfirði, fóður Jóns
lögmanns. Benedikt var einnig
bróðir Þóru, móðurömmu Ingjalds
Hannibalssonar. Þá var Benedikt
bróðir Sofíiu, ömmu Georgs Ólafs-
sonar, forstöðumanns Samkeppnis-
ráðs. Benedikt var sonur Péturs, b.
i Miðdal í Kjós, Árnasonar, b. í
Hagakoti, bróður Guðmundar,
langafa Guðmundar, föður Einars
Más rithöfundar. Árni var sonur
Árna, b. á Vatnsenda, Péturssonar,
vefara á Vatnsenda, Jónssonar, b. á
Rauðará, Ólafssonar. Móðir Péturs í
Miðdal var Guðný Magnúsdóttir, b.
á Stærribæ í Grímsnesi, Bjarnason-
ar, b. i Efstadal, Jónssonar. Móðir
Bendikts var Margrét, dóttir Benja-
míns Jónssonar, b. í Miðdal og Flóa-
koti í Kjós, og Kristínar Þorkelsdótt-
ur, b. í Prestshúsum í Húnavatns-
sýslu, Þorlákssonar.
Móðir Sigurðar var Guðrún Þór-
arinsdóttir, b. á Harðbala í Kjós,
Ingjaldssonar, b. í Eyjum og á Eyja-
hóli, Ingjaldssonar og Guðrúnar
Grímsdóttur. Móðir Hólmfríðar var
Jón, b. í Bæ, Ólafsson og Hólmfríð-
ur Þórðardóttir.
Ásta, móðir Guðna, er dóttir
Guðna, kolakaupmanns í Reykja-
vík, Einarssonar, b. að Hömrum í
Eystrihreppi, Jónssonar, b. að _
Minna-Hofi, Gíslasonar. Móðir Ein-
ars var Guðný Einarsdóttir, b. að
Svínavatni í Grímsnesi, langafa Sig-
urðar Hlíðars yfirdýralæknis. Móð-
ir Guðna kolakaupmanns var Guð-
rún Björnsdóttir, b. á Hjallanesi á
Landi, Björnssonar, b. þar, Gísla-
sonar.
Móðir Ástu var Jóna Ása Eiríks-
dóttir, stýrimanns í Reykjavík Ei-
ríkssonar.
mgMMB
Fertug
Darija Kospenda
stúdent í efnafræði og hagfræði
Darija Kospenda, stúdent í efna-
fræði og hagfræði, Breiðvangi 7,
Hafnarfirði, er fertug í dag.
Starfsferill
Darija fæddist í Supetar á Brac í
Króatíu sem er eyja í Adríahafi og
ólst þar upp. Hún lauk stúdentspróf-
um í efnafræði og hagfræði.
Darija stundaði hagfræðistörf og
var launafulltrúi hjá kjötvinnslufyr-
irtæki í Petrinja í nokkur ár. Hún
og fjölskylda hennar flúðu frá Petr-
inja 1995, voru í flóttamannabúðum
í Serbíu í eitt ár og komu til íslands
1996 i hópi fyrsta flóttamannahóps-
ins frá Júgóslavíu. Hún starfar við
Gafl-Inn og í Mörk ehf.
Fjölskylda
Darija giftist 26.5. 1979 Milan
Kospenda, f. 12.1. 1958, lög-
reglumanni. Hann er son-
ur Stankos Kospenda,
stálsmiðs í Króatíu, og
k.h., Sofiju Kospenda
húsmóður.
Börn Darija og Milans
eru Tina Kospenda, f. 2.8.
1979, túlkur hjá Rauða
krossinum, búsett í
Reykjavík, en unnusti
hennar er Ámi Þór Árna-
son, f. 16.9. 1979, nemi; Tanja
Kospenda, f. 25.4. 1983; Aleksandar
Kospenda, f. 14.7. 1990; Nebojsa
Kospenda, f. 1.10. 1992; Nemanja
Kospenda, f. 13.5. 1994;
Jelena Kospenda, f. 17.9.
1995.
Bróðir Dariju er Ivica
Jelincic, f. 25.10.1959, lög-
reglufulltrúi í Porec í
Króatíu, kvæntur Idu Jel-
incic, f. 25.2.1959, deildar-
stjóra við banka, en son-
ur þeirra er Igor Jelincic,
f. 7.11. 1983.
Foreldrar Dariju eru Nikola Jel-
incic, f. 19.2. 1932, matreiðslumaður
í Postira í Króatíu, og k.h., Milica
Jelincic, f. 22.8. 1938, húsmóðir.
Lungnamælingatækiö afhent
AtH Dagbjartsson tæknir tekur við lungnamælingatækinu frá Jóhannesi Jónssyni sem kenndur er viö
Bónus.
Barnaspítali Hringsins fær lungnamælingatæki að gjöf:
Gerbreytir aðstöðu
á spítalanum
Síðastliðinn þriðjudag fékk Bamaspítali
Hringsins lungnamælingatæki að gjöf. Tækið,
sem kostar rúmar átta milljónir, var öár-
magnað með sölu á hljómdiskinum Velkomin
jól sem kom út fyrir síðustu jól í nafni liknar-
félagsins Barnið okkar. Það var tónlistarmað-
urinn André Bachman sem átti hugmyndina
að plötunni og að styrkja barnaspítalanum
með ágóða af henni og var þetta gert í sam-
starfi við Bónus, Hagkaup og Olís. Lungna-
mælingatækið er mjög sérhæft og mun breyta
aðstæðum hér á landi til sjúkdómsgreiningar
á fyrirburum og asmasjúkum börnum.
I fréttatilkynningu frá Barnaspítala Hrings-
ins segir að lungnastarfsemi barna sé afar
flókin þar sem lungun eru bæði að vaxa og
þroska nýjan lungnavef. Nýfætt barn hefur
um 50 milljón lungnablöðrur en um sex til sjö
ára aldur eru þær orðnar 300 milljónir. Af
þessu leiðir að það eiga sér stað miklar breyt-
ingar í lungnastarfsemi barna. Því er mikil-
vægt að fylgjast með breytingum sem kunna
að verða á starfsemi lungans í tengslum við
sjúkdóma svo hægt sé að hjálpa börnum að
þroskast á eðlilegan hátt.
Lungnamælingatækið mælir loftflæði um
munn og nef og nemur þrýsting og viðnám i
lungum og öndunarvegi. Auk þess má fá ná-
kvæmar upplýsingar um þá rúmmálsbreyt-
ingu sem á sér stað í lungunum við ákveðna
þrýstingsaukningu sem aftur mælir stífni
lungans, en aukin hætta er á að lungaö missi ^
sveigjanleika og verði stíft við sjúkdóma sem
tengdir eru fyrirburafæðingum, endurtekinni
lungnabólgu, fæðingargöllum og sumum teg-
undum sýkinga. Jafnframt gerið tækið kleift
að mæla stærð lungnanna og fylgjast þannig
með vexti og þroska lungnanna og mæla áhrif
sjúkdóma á þau.
Tækið mun gerbreyta aðstöðu spítalans
hvað varðar vinnslu og greiningu lúngna- og
öndunarfærasjúkdóma hjá börnum. -Kip **