Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 24
24 Helgarblað LAUGAKDAGUR 17. FEBRÚAR 2001 DV Á námskeiði hjá hinum umdeilda græðara, Paul Welch: Heilaþvottur eða sáluhjálp? - lærisveinar brotnir niður, hvattir til skilnaðar, fjárhagur margra í rúst Slðan Paul Welch, eða Holmes Hinkley Welch Junior, eins og hann heitir réttu nafni, tók sér búsetu hér á landi og hóf hin svokölluðu sáluhjálp- amámskeið, hefur mikið verið fjallað um hann og aðferðir hans hafa verið gagnrýndar af mörgum, bæði úti í samfélaginu og einnig hér á síðum DV. Margt fólk hefur þurft að leita að- stoðar lækna eftir námskeiðin hjá honum þar sem það hefur brotnað saman og fengið taugaáfall eða eitt- hvað þaðan af verra. Viðkvæði Welch, lærisveina og aðstandenda hans, hefur ávallt verið það sama þegar þessi at- vik hafa komið upp - að fólkið hafi verið geðveikt fyrir og að þetta hafi „átt“ að gerast svo að manneskjan næði að þroskast almennilega. Aðferðir Welch til að fá fólk á nám- skeið hjá sér eru vel þekktar. Segja má að þær byggist aðallega á vitnisburð- um lærisveina og því að lærisveinar bjóða vinum sínum og ættingjum á svokallaða „kynningu". Á kynning- unni talar fólk um að það hafi lifað í þjáningu, ótta og vantrausti áður en það svo „fann“ lausnina, sem er Welch og hans aðferðir, og að nú lifi það í „ljósi". Það sem auðveldar Welch að fá fólk á námskeiðin er eðlilega að læri- sveinarnir sannfæra vini sína og ætt- ingja sem treysta dómgreind þeirra, heillast af sannfæringarkraftinum og margir skrá sig. (Sama sölutækni er m.a. notuð af Herbalife-fyrirtækinu - vitnisburðir, tengslamyndun og „fyrir og eftir“-aðferðin.) Beðið eftir Weich Nýlega fór fram „kynning" 1 glæsi- legum sal í Hafnarfirði. Þegar inn var komið var gestum bent á að fara úr skónum og skrá nafn sitt og síma- númer á blað, svo var visað til sætis. Þarna var samankomið alls konar fólk á öllum aldri, af öllum stéttum og stigum, lærisveinar, vinir og ætt- ingjar þeirra. Einnig voru þarna nokkrir erlendir lærisveinar, aðal- lega frá Hollandi og Þýskalandi. Allir sátu á sokkaleistunum og biðu með eftirvæntingu eftir Welch. Mér var fenginn bæklingur sem innihélt m.a. vitnisburði þátttakenda undir fullu nafni og starfsheiti. Ein kona segir i þessum bæklingi: „Paul er alveg frábær kennari. Með hjálp Pauls og hópsins hef ég lært meira um sjálfa mig á síðasta ári en nokkru sinni fyrr og hef ég gert ákjósanlegar breytingar á lífi mínu. Mér líður eins og allt sé auðveldara núna með hjálp Pauls, hópsins og Guðs.“ Uppröðunin: Paul, hópurinn og Guð, vakti sérstaka athygli mína. Lærisveinarnir vitna Eftir töluverða bið stígur Welch inn í salinn - digurvaxinn, á útiskóm, með hálfsítt aflitað hár og í leðurjakka. Hann talaði mjúkraddað í míkrófón um köllun sína til að hjálpa fólki, erfiða æsku, háskólapró- fessorinn föður sinn (minntist ekk- ert á starf móður sinnar), ferðalög sín um heiminn og menntun. Hann virtist vera mikið að einbeita sér og þegar ég hreyfði mig til 1 stólnum þannig að hann rann til á parketinu hvessti Welch á mig augun líkt og hann væri verulega strekktur á taug- um. Eftir inngang Welch hefst vitnis- burður lærisveina þar sem þeir tala um það hvernig Paul, eins og þeir kalla hann, og reynslan með honum hafi leitt þá úr sálarmyrkri og innan- tómu lífi til tilgangsríkrar og gefandi tilveru. Eftir vitnisburðinn taka við ýmsar uppákomur. Paul lætur fólk skipta um sæti, dansa, faðmast, gera sér upp móðursýkislegan hlátur og krjúpa fyrir framan hvað annað. Ég fór ansi oft á klósettið á meðan á þessu stóð. Eftir serimóníurnar er boðið upp á veitingar - Ritz-kex, tún- fisksalat, kók o.fl. Þar næst máttu gestir spyrja um hvað sem var. 50 þúsund á mánuði Ég settist hjá tveim kunningjum mínum og spurði strax út í peninga- málin, hversu mikið annar þeirra hefði eytt i andlegheitin og fékk það svar að um 360.000 hefðu farið í þetta á undanförnum sex mánuðum sem gerir rúmlega 50.000 á mánuði. Svo sagði hann að i upphafi síðasta nám- skeiðs hefði hann verið skeptiskur og að efinn hefði átt rætur sínar í því að hann treysti ekki Paul, en síðan hefði hann sagt Paul frá því, lifað til- finninguna út og eðlilega snúist hug- ur eftir það. Undirrót meirihluta vandamála okkar væri vantraust Eftir vitnisburðinn taka við ýmsar uppákomur. Paul lætur fólk skipta um sæti, dansa, faðmast, gera sér upp móðursýkis- legan hlátur og krjúpa fyrir framan hvað annað. samkvæmt kenningum Pauls. Þú tekur bara lán Þar næst var reynt að fá mig til að koma á námskeið. Þegar ég sagðist ekki eiga fyrir því var mér sagt að peningar væru bara flæði og að ef mann langaði eitthvað nógu mikið þá myndi maður fá það. Þetta væri allt spurning um forgangsröðun. Ég sagði að ég myndi ekki setja þetta námskeið efst á blaðið, það væru aðrir hlutir sem ég myndi nota pen- ingana í ef ég fengi allt í einu þessa 850 dollara sem það kostaði að fara á þetta sex daga námskeið. Það væri örugglega sniðugt að fara á nám- skeiðið og ég kæmi örugglega ef ég ætti fyrir þvi. (Mér fannst skynsam- legast í stöðunni að gera þetta til að verða ekki beitt meiri þrýstingi.) Þá var mér sagt að margir tækju bankalán til að borga námskeiðið, ég gæti bara gert það líka, og þegar ég sannfærðist ekki kom til mín vina- legur, miðaldra Bandaríkjamaður sem bauðst til þess að gefa mér 200 dollara skuldbindingalaust. Svo benti hann mér á konuna sína til að undirstrika það að hann væri giftur og væri ekki að biðja um neitt kyn- ferðislegt. Meistarinn verður pirraður Ég var fost á mínu og hélt því fram að fjármálastaða mín byði ekki upp á að ég gæti farið á þetta nám- skeið. Svo sagði ég sem satt var - að ég væri full efasemda í garð sjálf- skipaðra andlegra leiðtoga eins og Holmes Hinkley Welch jr, eða gúrúa eins og þeir eru oft kallaðir. Þá var ég leidd fyrir „meistarann“ til að ræða málið. Hann settist fyrir fram- an mig, virtist óþolinmóður og pirr- aður og spurði mig hvað málið væri. Ég sagði sem satt var að ég væri ekki mikið fyrir gúrúa. Þá fór hann að fiflast og bað mig að bíða á meðan hann færi fram að ná í gúrú-dótið sitt. Ég hló ekki að brandaranum og við það varð hann enn pirraðari. Byrjaði árásarkennt að demba á mig spurningum án þess að bíða eftir svari, sagðist svo ekki hafa tíma fyr- ir þetta, stóð upp, gekk út á gólf, tók hljóðnemann í hönd sér, breytti raddblænum, varð mjúkur í máli og bað alla að koma út á gólf að lokum. Unga konan sem leiddi mig fyrir Welch útskýrði að hann hefði verið svona árásargjarn af því hann var að „spegla“ -mig. Paul Welch hefur haldið fjölmörg námskeiö á íslandi Aöferöir hans eru vægast sagt umdeildar. Hræddir lærisveinar töluðu um námskeiöin viö blaðamann. Allir voru þeir á einu máli um aö þaö sem færi fram á námskeiöunum væri heilaþvottur í sinni einföldustu mynd. Af ótta viö ofsóknir af hendi þeirra sem enn eru í söfnuöinum og rógburö í samfélaginu ákváöu þessir nemendur aö koma ekki fram undir nafni í þessu viötali en töluöu jafnframt um aö bráölega kæmi út undirskriftalisti meö nöfnum þeirra sem vara viö starfsemi Welch og aö sá listi færi í hendur landlæknis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.