Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2001, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 2001
58
"Tilvera DV
■ TONLEIKAR I SALNUM Finnur
Bjarnason tenór, Sigurður Halldórs-
son sellóleikari og Daníel Þorsteins-
son píanóleikari ætla að flytja verk
eftir Debussy, Duparc, Poulenc og
Messiaen í Salnum í Kópavogi í dag
klukkan 16.
Leikhús
M HAALÖFT Háaloft er einleikur um
konu með geðhvarfasýki eftir Völu
Þórsdóttur. Þetta er svo sannarlega
svört kómedía. Einleikurinn er sýnd-
ur í Kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21.
■ ANTÍGÓNA - AUKASÝNING Það
veröur aukasýning á Antígónu eftir
Sófókles í kvöld klukkan 20 á stóra
sviði Þjóðleikhússins. Nokkur sæti
laus.
■ ÖNDVEGISKONUR Leikritið
Öndvegiskonur eftir Werner Schwab
verður sýnt á Litla sviði
Borgarleikhússins í kvöld kl. 19.
■ VITLEYSINGARNIR Hafnarfjarö-
arleikhúsið sýnir í kvöld klukkan 20
leikritið Vitleysingana eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Örfá sæti laus.
Kabarett
■ DAGSKRA I GROFARHUSI I dag
standa Borgarbókasafn og Iþrótta-
og tómstundaráö Reykjavíkur fyrir
dagskrá I Grófarhúsi, Tryggvagötu
15 frá klukkan 10-13. Sænski rit-
höfundurinn Cannie Möller kynnir
aðferðir sem hún beitir í ritsmiöju-
vinnu með ungu fólki í Svíþjóð. Hún
hefur langa reynslu af því að leið-
beina fólki í skapandi skrifum og
eru aðferðir hennar í senn einfaldar
og árangursrikar. Þá munu
Hildigunnur Birgisdóttir og Guð-
mundur Atii Pétursson, sem tóku
þátt í rit- og listasmiðju í Svíþjóð,
sumarið 1998 segja frá reynslu
sinni og loks mun Hlín Agnarsdóttir
lýsa höfunda- og ritsmiöjuvinnu hér
á landi.
Opnanir
■ GÁBRÍELA FRIÐRIKSDÓTTIR
HJA SÆVARI KARLI Dýr inni dýr úti
er heiti myndlistarsýningar Gabríelu
Friðriksdóttur sem opnuð veröur í
Galleríi Sævars Karls í Bankastræti
í dag. Píanóverkiö „Dýrasónatan",
sem Gabriela samdi að gefnu tilefni,
mun óma á sýningunni.
Fundir
■ FÖRNAR MENNTIR A FRÆÐA-
SETRUM Grikklandsvinafélagið,
Hellas og Oddafélagið halda sam-
eiginlega málstefnu sem fram fer í
fundarsal á 1. hæð Þjóðarbókhlööu
*• og hefst kl. 14.00. Hún fjallar um
áhrifgrískrar og latneskar menning-
ar á Islandi að fornu. Framsögu-
menn verða þau Guðrún Nordal og
Gottskálk Þór Jensson. Að loknum
framsöguerindum veröa umræður.
Allir eru velkomnir.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Jóna Hrönn Bolladóttir er miðborgarprestur í Reykjavík:
Vill færa kirkj-
una nær fólkinu
La Boheme
í Óperunni
íslenska Óperan verður með
hátíðarsýningu í kvöld klukkan
19 á La Bohéme eftir Giacomo
Puccini. Hljómsveitarstjóri er
Tugan Sokhiev en leikstjórinn er
Jamie Hayes. íslenskir söngvarar
fara með helstu hlutverkin: Auð-
ur Gunnarsdóttir, Sólrún Braga-
dóttir, Kolbeinn Ketilsson, Hlín
Pétursdóttir, Þóra Einarsdóttir,
Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan
-.•Sigurðarson, Viðar Gunnarsson,
Guðjón Óskarsson og Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson. Örfá
sæti laus.
Klassík
Á efri hæð hússins sem áður hýsti
Hressingarskálann og nú er hægt að
kaupa fjölþjóðlega hamborgara hefur
nýráðinn miðborgarprestur, séra Jóna
Hrönn Bolladóttir, vinnuaðstöðu sína.
Þar er einnig skrifstofa fangelsisprests
og framkvæmdastjóra ÆSKR eða
Æskulýðssambands Reykjavíkurpró-
fastsdæma.
Sett í embætti í Kolaportinu
Jóna Hrönn hefúr verið miðsborgar-
prestur í tvö og hálft ár, fyrst í hálfu
starfi og í fullu starfi síðan í haust.
KFUM og K sá um rekstur embættis-
ins þar til nú um áramótin að þjóð-
kirkjan tók við því embætti og er því
formlegur samstarfsaðili að miðborg-
arstarfi KFUM og K.
Jóna Hrönn var sett inn í embætti
um síðustu helgi. Hún segir það hrein-
lega ekki hafa komist i verk fyrr en
innsetningin hafi tengst málþinginu,
Kirkjan og miðborgin, sem haldið var
um helgina í Dómkirkjunni. Ákveðið
var að hafa Kolaportsmessu inni í mál-
þinginu og setja miðborgarprestinn í
embætti við messuna.
Hlutverk miðborgarprests
Hlutverk miðborgarprests er í raun
hið sama og hlutverk annarra presta.
Hann á að sinna fræðslu, helgihaldi og
sálgæslu. „Fólk getur pantað viðtöl hjá
mér en ég hef oft frumkvæði að því að
hafa samband við unglmgana. Þeir
koma kannski til mín á fóstudags-
kvöldi og þá kemur kannski upp að
þeir eigi í einhverjum erfiðleikum. Það
getur þá verið auðveldara að prestur-
inn hafi aftur samband við þá.“
Áhugi á breyttu helgihaldi
Jóna Hrönn segist hafa alveg sér-
stakan áhuga á helgihaldi. „Mér finnst
spennandi að kirkjan þori að fara nýj-
ar leiðir í helgihaldi og sé ekki of
bundin hefðum og siðum. Við eigum
að nota okkar gamla og góða messu-
form sem grunn að því sem við gerum
en svo eigum við að hafa frelsi og þor
til að fara út fyrir það.“ Þetta hefúr
Jóna Hrönn verið að þróa í starfi sínu
sem miðborgarprestur. Hún hefur ver-
ið þátttakandi í æðruleysismessum
sem Dómkirkjan hefur staðið fyrir en
þetta eru messur ætlaðar fólki sem hef-
ur leitað bata eftir 12 spora- eða AA-
leiðinni. „Þetta eru einhverjar yndis-
legustu messur sem ég hef tekið þátt í.
Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson er upp-
hafsmaður þeirra en ég hef séð um
skipulagninguna og svo koma fleiri
prestar að þessu. Þessar messur eru
skemmtilegar og í þeim talar alltaf
leikmaður, t.d. AA- eða A1 Anon-maður
eða einhver sem á reynslu að miðla. Við
höfum svo verið með óhefðbundinn endi
á messunni, annaðhvort smurningu og
fyrirbæn. Þetta hafa verið mjög einlæg-
ar og sterkar stundir."
Smuming í fyrirbæn
Smumingin er gerð míeð svokallaðri
blessunarolíu sem búin er til úr is-
lenskum jurtum. Olían er helguð við
upphaf fyrirbænarinnar. Við lok fyrir-
bænarinnar eru smurðir krossar í lófa
þátttakendanna og farið með blessun-
arorð. Smumingin á að sögn Jónu
Hrannar rætur að rekja allt til Gamla
testamentisins en olían er tákn heilags
anda í kirkjunni. Þar voru menn
smurðir til hlutverka og erfiðra verk-
efiia. Samúel hellti til dæmis olíu yfir
Davíð til að smyrja hann til hlutverks-
ins að vera konungur. „Með smuming-
unni snertir maður fólk, það er ilmur
af olíunni þannig að þetta er falleg
nálgun,“ segir Jóna Hrönn.
„Við höfum í kirkjunni verið með of
mikið hnakkasamfélag. Við sitjum í
röðum og horfúm í hnakkann hvert á
öðm og svo stöndum við upp og setj-
umst aftur eftir ákveðinni forskrift.
Vill brjóta upp hnakkasamfélagið
Séra Jóna Hrönn er miðborgarprestur í Reykjavík og áhugamanneskja um breytingar á helgihaldi kirkjunnar.
Hér er Loftstofan
/ húsi gamla Hressingarskálans hef-
ur miðborgarpresturinn búið um sig.
Einn einstakfingur er á hreyfingu fyr-
ir framan altarið og kannski fer hann
út á undan söfnuðinum og tekur í
höndina á kirkjugestum á leiðinni út
úr kirkjunni og kannski ekki. Það em
því allt of lítil tengsl milli þeirra sem
em í kirkjunni viö þá sem þjóna. f
æðruleysismessunum er þetta hnakka-
samfélag brotið upp. Tónlistin er fika
öðmvísi. Við notum sálma kirkjunnar
en við djössum þá upp, notum píanó og
bassa, höfum söngkonu og leyfúm okkur
að syngja þá heldur hraðar en vant er.“
Byltingarmessur
Jóna Hrönn telur að kirkjan verði
að vera nær fólkinu en tíðkast hefur
hingað til. „Það kemur kynslóð sem
ekki hefur forsendur til að koma í
kirkjuna og ganga inn í hefðbundið og
aldafomt messuform, þess vegna tel ég
að við þurfúm að þróa svolítið opnara
og hlýrra messusamfélag."
Kolaportsmessumar em haldnar
fjórða hvem sunnudag og af sjálfu leið-
ir að messuformið verður frjálslegra
þar en inni í kirkju. Þar er einnig alt-
arisganga eða fyrirbæn með smum-
ingu og Jóna Hrönn leggur áherslu á
að mynda samband við þá sem taka
þátt í messunni. „Sakramentið verður
ekki síðra þótt við eigum örlítið spjail
við þiggjendur í leiðinni."
Jóna Hrönn hefur undanfarið verið
að gera tilraunir með messur fyrir
ungt fólk sem hún kallaði miðborgar-
messur í upphafi. „Krakkamir völdu
svo sjálfir að kalla þetta byltingar-
messu til að undirstrika að þær em
öðravísi, við værum að umbylta og
breyta. Þessar messur em á föstudags-
kvöldum kl. 8 einu sinni í mánuði. Við
erum með hljómsveit núna sem spilar
rokk og kallar sig Godspeed og oft
fáum við þekkta tónlistarmenn með.
Unga fólkið mótar alveg þessar messur
og við prestamir hjálpum því að halda
utan um þetta.“
Loks hefúr Jóna Hrönn staðið fyrir
götumessum í samvinnu við Kvenna-
kirkjuna. Slíkar messur vora haldnar
í haust á löngum laugardögum. Þá er
gengið syngjandi niður Laugaveginn
og haldin helgistund á götuhomi í mið-
borginni.
Unglingum hefur stóriega
fækkað í miðbænum
Miðborgarprestur hefur líka staðið
fyrir fræðslu bæði fyrir unglinga og
foreldra og hefur sú fræðsla farið fram
í húsnæði KFUM og K við Holtaveg.
Ýmis málefni hafa verið tekin fyrir og
með vorinu verður fræðsla um sorg og
sorgarviðbrögð.
Starf miðborgarprests kom upphaf-
lega tfi af því að fyrir nokkrum árum
var svo mikiil vandi í miðborginni og
bærinn var fullur af unglingum ailar
helgar. „Húsnæðið hér var þá tekið í
notkun sem athvarf fyrir unglinga. Við
erum enn með opið á fóstudagskvöld-
um þótt unglingum í miðborginni hafi
fækkað. Það er í raun mikUl sigur.
Þetta er árangur margra aðila og við
erum stolt af að vera þátttakendur í
þeirri baráttu."
Þurfum að loka klámbúllunum
Starfið um helgar felst i því að opið
er í athvarfinu á Loftstofunni en starfs-
menn hennar fara einnig út meðal
unglinganna og tU að vera þar sýnUeg
og kynna þeim staðinn. „Það er
kristniboð að láta sig varða líðan ann-
arra. Þeir krakkar sem leita tU okkar
þurfa mjög mikið á okkur að halda og
við erum með hugmyndir um að hafa
hér opið á líka á laugardagskvöldum."
Starfsemi kirkjunnar hefur þróast
mikið á undanfomum árum að mati
Jónu Hrannar. „Sérþjónustan hefúr
verið mjög öflug og í dag eigum við tU
dæmis fangelsisprest, prest fatlaðra,
sjúkrahúspresta og prest heymar-
lausra. Kirkjan er vaxandi."
Jóna Hrönn hefur skoðanir á mörgu
og var að lokum boðið að hafa lokaorð.
Hún hugsaði sig um örstutta stund og
sagði svo: „Við þurfúm náttúrlega að
loka þessum klámbúUum í miðborg-
inni.“ -ss