Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
Fréttir
Karlmaður dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness:
Fimm mánaða fangelsi fyrir
að misnota fósturdóttur
Þrátíu og tveggja ára gamall karl-
maöur var dæmdur í Héraösdómi
Reykjaness í siðustu viku í 5 mán-
aða fangelsi, einn mánuö óskilorðs-
bundinn, fyrir kynferðisbrot gegn
dóttur sambýliskonu hans.
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa á heimili þeirra káfað á kyn-
færum telpunnar, sem þá var 10 ára,
innan og utan klæða og fengið hana
jafnframt til þess aö snerta kynfæri
sín. Ofbeldið átti sér stað frá árinu
1999 til 2000 á heimili þeirra en móð-
ir telpunnar bjó um tveggja ára
skeið með ákærða og þremur börn-
um sinum.
Telpan sagði kynfoður sínum frá
atburðunum vorið 2000. í kjölfar
þess var félagsþjónustunni í Hafnar-
firði og barnaverndarnefnd tilkynnt
um málið og var það síðan kært til
rannsóknarlögreglunnar í Keflavík.
Ákærði neitaði öllum sakargift-
um og krafðist þess að verða sýkn-
aður. Hann sagði sögur um meint
kynferðisbrot sín gegn telpunni
vera komnar frá föður hennar en
ákærði taldi föðurinn hafa tekið
skilnaðinum við konu sína illa.
Móðir telpunnar bar fyrir dómi að
hún teldi að faðir telpunnar hefði
haft áhrif á hana í tengslum við
meint kynferðisbrot. Skömmu eftir
að telpan sagði frá atburðunum sleit
móðir hennar samvistum við hinn
ákærða.
Guðmundur L. Jóhannesson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn ásamt
Gunnari Aðalsteinssyni og Sveini
Sigurkarlssyni héraðsdómurum.
Greinargöð frásögn telpunnar
Dómararnir sögðu frásögn
telpunnar um kæruefniö vera grein-
argóða og nákvæma. Telpan skýrði
yngri systur sinni frá meintri hegð-
un ákærða og var yngri systir henn-
ar jafnframt vitni að einu tilvikinu.
Eins skýrði telpan sálfræðingi frá
því að hún hefði forðast að vera ein
heima með ákærða. Systurnar
sögðu sálfræðingum að mikið hefði
verið um rifrildi á heimilinu og að
ákærði hefði sjaldan unnið en móö-
ir þeirra mikið svo hún vissi lítið
um það sem þar fór fram.
Þetta og framburður tveggja sál-
fræðinga um málið var talin vera
næg sönnun fyrir því að ákærði hefði
káfað á kynfærum telpunnar en hann
var sýknaður af ákærunni um að
hafa látiö telpuna snerta sig.
“í málinu þykir vanta gögn um
hverjar afleiðingar brotsins kunna að
verða fyrir brotaþola en samt er ljóst
að slíkt brot við telpu á þessum
aldri hefur í fór með sér truflun á
andlegu ástandi hennar og veldur
sálarkvöl," segir í dómnum.
Maðurinn var dæmdur í fimm
mánaða fangelsi, þar af einn óskil-
orðsbundinn, en fjóra mánuði skil-
orðsbundna í þrjú ár. Ákærða er
einnig gert aö greiða allan sakar-
kostnað og 150.000 króna miskabæt-
ur til telpunnar. -SMK
Útlendingar í þriðjungi allra nýrra starfa:
850 milljóna
laun úr landi
Mikil fjölgun erlends vinnuafls
kemur m.a. fram i tölum um
greiðslujöfnuð viö útlönd. Árið 2000
námu launagreiðslur til útlanda 850
milljónum króna, sem var hækkun
um hálfan milljarð eða um 140% frá
árinu áður, samkvæmt upplýsing-
um Þjóðhagsstofnunar. Og að von-
um, því útlendingar hafa verið
ráðnir í þriðjung allra nýrra starfa
síöustu tvö árin, eða um 2.300 af
þeim 6.700 ársverkum sem bættust
við á árunum 1999 og 2000. Þjóð-
hagsstofnun segir hlutfall erlendra
ríkisborgara á íslenskum vinnu-
markaöi hafa aukist mjög á síðustu
árum. Árið 1997 var það 1,8% , hafði
hækkað í 4,3% í fyrra og útlit er fyr-
ir áframhaldandi hækkun í ár, enda
reiknað með að störfum muni enn
fjölga um 1.500 á þessu ári. Getur
þannig látið nærri að í ár verði 1 af
hverjum 20 störfum í landinu unnið
Ársverk, unnin af erlendum
_ ríkisborgurum, og hlutdeild
' þeirra á vinnumarkaði
1997 1998 1999 2000
Eins og myndin sýnir hefur ársverk-
um unnum af erlendum ríkisborgur-
um fjölgað úr 2.300 árið 1997 upp
í 6.000 og búist við áframhaldandi
fjölgun í ár.
af erlendum rikisborgurum. Og það
dugar ekki einu sinni til, því Þjóð-
hagsstofnun segir vinnutímann líka
hafa lengst milli ára. -hei
DV-MYNDIR ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR
Hugar að sínu
Þrátt fyrir bölvað óveður fór þessi
kappklæddur að huga að bátnum.
Sækja sjóinn
í illviðrinu
Sólskin og mikill skafrenningur
var í Neskaupstað í gær, skrýtið
veður, einkennOeg birta með mörg-
um kynjamyndum. Ekki létu allir
veðrið aftra sér frá útivist, til dæm-
is ekki þessi trillukarl sem brá sér á
sjó og dró eina trossu. í henni voru
um 350 kíló og veðrið var ekki til
trafala þótt víða á Austurlandi væri
aftakaveður. Skipverji á Berki vann
ótrauður við að skrúbba vertíð-
arslorið af. -EG
Brýtur klakann
Þessi var aö brjóta klakann.
DV-MYND HILMAR PÓR
A gangi við Gróttu.
I>V
Ráðherra tugt-
ar„dýra“
Aumingja yfirdýra-
læknirinn Halldór
Runólfsson á erfitt
þessa dagana. Það er
sama hverju hann stingur upp á,
allt er barið niður
jafnharðan.
Þannig vildi hann
rýmka reglur
vegna viðbragða
við gin- og klaufa-
veiki og auka
frelsi, innflytjend-
um til hagsbóta. En
viti menn, Guðni
Ágústsson var kom-
inn að vörmu spori til að berja á
puttana á yfirdýralækninum. Aftur
fór Haildór af stað og vildi nú liðka
fyrir gæludýraunnendum og leyfa
innflutning á páfagaukum frá Bret-
landi. Um leið og Guðni las frétt um
málið í DV greip hann pískinn og
lamdi enn fastar á putta yfirdýra-
læknis. í heita pottinum er nú fullyrt
að Halldór sé orðinn svo aumur í
puttunum að hann megni ekki leng-
ur að hamra innflutningsleyfi og
undanþágur á ritvélina sína...
Gott fordæmi?
Fleiri hafa tekið upp hætti Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra við aö
leggja niður óþarfa störf og stofnanir.
Sá Magnús Pét-
ursson, forstjóri
Landspítalans, þar
gott fordæmi þegar
hann lenti í stæl-
um við Egil Jacob-
sen, yfirlækni
þvagskurðardeildar
sjúkrahússins. Ekki
vildi Egill kyngja
kostaboði sjúkrahússtjórnarinnar um
starfslok og því greip Magnús ein-
faldlega til þess snilldarbragðs að
leggja starf yfirlæknisins niður. í
heita pottinum í morgun undruðust
margir að biskup hefði ekki kynnt
sér þessa nýju Davíðssálma. í marg-
háttuðum deilum við presta landsins
hefði mátt komast hjá iilvígum deil-
um, einfaldlega með því að loka
kirkjum og leggja sóknirnar niður...
Umpólun
Fíkniefnalaust ísland árið 2000...
og síðan 2001 var hleypt af stokkum
sem krossferð gegn eiturlyfjabölinu
fyrir ekki löngu
síðan. Framsókn-
arflokkurinn greip
þetta á lofti og lof-
aði ómældum mOlj-
ónum í baráttuna.
Allt virtist ganga
eftir nema það að
aldrei hefúr verið
meira um eiturlyf í
umferð en á þessu herrans ári 2001.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögmað-
ur hefur þó heyrst tuldra um að
sennilega væri kúrsinn ekki réttur í
baráttunni og því kominn tími til að
leiðrétta stefnuna áður en algjört
skipbrot hlytist af. Þó margir hafi
fussað yfir hugmyndum hans þá taka
nú æ fleiri undir með Jóni á opinber-
um vettvangi. Þykir því kaldhæðnis-
legt að á ætluðu hreinsunarári fikni-
efnanna sé að verða til umpólun í átt
tU lögleiðingar fikniefna...
Hvenær kemur frystirinn?
Grafarvogskirkjan hans séra
Vigfúsar Þórs Ámasonar hefur
síst slegið af í vinsældum eftir
fréttir DV og síð-
ar uppfærðar
fréttir Heita potts-
ins um langa
biðlista. Þar sagði
að auk vinsælda
hefðbundinna at-
hafna á borð við
fermingar og gift-
ingar, þá sterymdu
likin að í löngum röðum, því allir
vUdu láta jarða sig frá Grafarvogs-
kirkju. Sagði þar að eins víst væri
að byggja þyrfti kæligeymslu við
kirkjuna eða þá að fara að jarða í
akkorði. Heiti potturinn virðist
ekki síður vinsæll en Grafarvogs-
kirkja, því síðan þetta birtist, þá
hefur síminn ekki þagnað hjá Vig-
fúsi með fyrirspumum um hvað
líði byggingu frystigeymslunnar...