Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2001, Side 20
20
LAUGARDAGUR 31. MARS 2001
Helgarblað
x>v
Súperkýr og
sveitarprýði
- keppt um Gateway-kúna, þá sætustu svartskjöldóttu á landinu
Svartskjöldótt kýr og
sannarlega sœt. Hefur
hrífandi persónu-
töfra. Er virkilega
geðgóð og ekki er
verra ef hún mjólkar
vel. í þessa veruna
eru atriðin sem lögð
eru til grundvallar í
keppninni um Ungfrú
Gateivay 2001 sem
nú stendur yfir en
þar er keppt um hver
sé fegursta kýrin á ís-
landi. Landssamband
kúabœnda og tölvu-
fyrirtœkið Aco standa
að þessari sérstœðu
keppni. Tilgangurinn
er meðal annars sá að
að finna þá íslensku
kú sem er líkust
Gateway-kúnni sem
er fyrirmyndin að
vörumerki Gateway-
tölvufyrirtækisins.
Alls tóku 65 kýr frá
52 sveitabæjum víðs
vegar um land þátt í
forvali með því að
eigendur sendu inn
myndir af „ofurkúm“
sínum og dómnefnd
valdi úr þeim hópi
tíu kýr og snemma í
vikunni var kynnt
hverjar þœr væru.
„Þurfa að vera mjólkurlegar"
„Valið var erfitt eins og gefur aö
skilja þegar aðeins lítill hluti
þeirra kúa sem sendar eru myndir
af komast í í úrslit," sagði Snorri
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda, einn
dómnefndarmanna. „Sumar kým-
ar sem við fengum sendar myndir
af komu hreinlega ekki tO greina
þar sem þær voru tii dæmis kol-
skjöldóttar, það er dökkbrúnar, og
því erum við alls ekki að leita að.
Við urðum í vali okkar að aö beita
útilokunaraðferðinni margfrægu
og sía út. Við lögðum til dæmis
áherslu á að hlutföllin milli hinna
svörtu og hvítu skjalda á kúnum
væru tiltölulega jöfn og mátuleg,“
sagði Snorri.
Annaö atriði sem Snorri segir að
dómnefndin hafi sérstaklega horft
til í vali sínu hafl verið júgur
kúnna. „Þau þurfa að vera falleg,
rétt eins og spenarnir. Kýmar
þurfa að vera mjólkurlegar," sagði
Snorri. Aðspurður um almennan
Alveg einstök kýr
„Hún er einkar geögóö og hefur
mjög sjáifstæöan persónuleika. “
Guömundur og Guörún í Holtseli
meö Eyju, sem er ein besta kýrin
sem þau hafa átt í meira en tuttugu
ára búskap.
Snorra-Eddu. Auðhumla mjólkaði
svo mikið að frá henni runnu fjór-
ar mjólkurár miklar. Margt ágætt
annað má hins vegar um
kostakúna Eyju segja.
Viljastyrknum viðbrugöið
„Hún er einkar geðgóð og hefur
mjög sjálfstæðan persónuleika.
Viljastyrknum er líka viðbrugðið,"
sagði Guðmundur í Holtseli. „Eftir
sinn síðasta burð fékk Eyja snert
af doða og datt þá í mjaltabásnum.
En svo mikill var viljinn að hún
skreið út úr básnum þar sem hún
náði viðspymu af bita og þannig
náði hún að standa upp. Geðprýöi
Eyju er líka viðbrugðið, það þarf
ekki nema að ýta með einum putta
í hana og þá færir hún sig til og fer
þangað sem maður vill.“
En hverjar eru sigurlikur Eyju,
hinnar svartskjöldóttu súperkýr í
keppni þessari? Hjónin í Holtseli
Meö Skrautlu
Gæflyndar kýr eru yfirleitt fallegar, segir Sigurlaug í Gröf - og dáist aö hinu lifandi listaverki.
DV-MYND BRINK
Brúnaljósin brúnu
Svartsköldótt Eyja í Holtseli horfír til
Ijósmyndarans og áberandi eru augu
hennar, sjálf brúnaljósin brúnu.
smekk sinn á kúm segir hann að
júgrin, spenarnir, fótstaöan og
hrygglínan séu þar lykilatriði. Lit-
irnir skipti ekki öllu máli þegar
spurt sé um fegurð kúa.
Engir Auðhumlu-hæfiieikar
Tvær þeirra kúa sem komust í
úrslit í keppninni um Ungfrú
Gateway em í Eyjafirði. Þetta eru
kýmar Eyja i Holtseli og Skrautla
í Gröf. Báðar era þær „súperkýr“
miklar og sannkölluð sveitarprýði.
Eða aö minnsta kosti er tilefni til
þess að kveða svo að orði þegar
báðar eru komnar í úrslit í þessari
keppni. „Eyja er sjálfsagt besta
kýrin hér á bæ og ein sú besta sem
við höfum átt I rúmlega tuttugu
ára búskapartíð okkar. Bæði er
hún falleg, geðgóð og mjólkar vel,“
sögðu Guðmundur Jón Guðmunds-
son og Guðrún Egilsdóttir á Holt-
seli í Eyjafjarðarsveit þegar DV-
menn heimsóttu þau hjón í fjósið
og fengu að skoða hina glæsilegu
svartskjöldóttu kú þeirra.
Eyja var á mjaltabásnum þegar
okkur bar að garði. Hún hefur ver-
ið einkar nythá í gegnum árin, gaf
á síðasta ári alls 7.336 lítra og
hæsta dagsnytin á þessu ári er 42
lítrar. „Þetta er nythæsta kýrin
okkar og gefur einnig mjólk með
mjög hátt próteininnihald en fyrir
hana fáum við einmitt best borg-
að,“ sagði Guðrún. Þrátt fyrir þetta
hefur Eyja enn ekki öðlast þá ein-
stöku hæfileika sem kýrin Auð-
humla hafði en frá henni segir í