Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Side 22
22 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 Helgarblað_______________________________________________________________________________________________ 3D»V Presturinn gerð- ist lögregluþjónn og morðingi Paul Hurth var bæði prestur og lögreglumaður og helgaði líf sitt þjónustu kirkjunnar og samfélags- ins. Allir sem þekktu hann vissu að hann var fyrirmyndar eiginmaður og faðir og var alls trausts verður. Enginn var eins virtur í bænum Fresno í Kaliforniu og Hurth og vin- ir hans töldu að hann væri tilvalið bæjarstjóraefni. Ef hann byði sig fram væru góðar líkur á að hann næði kosningu. Hurth gekkst upp við lofið en hann vissi að kjörnir embættis- menn eru undir smásjánni og hann hafði sitthvað að fela. Ef leyndar- málið kæmist upp mundi það eyði- leggja orðstír hans. Ef til vill var það þess vegna sem hann var óþreytandi að prédika umburðar- lyndi og fyrirgefningu. Að því kom að hann þurfti á hvoru tveggju að halda. Fjölskylda Hurths var trúuð í besta lagi. Faðir hans prédikaði í viðlögum og móðirin kenndi í sunnudagaskóla. Hann las guðfræði á fullorðinsaldri og stefndi að því að verða prestur í söfnuðu baptista. Hann var alinn upp í heldur lélegu hverfl í Los Angeles þar sem náinn vinur hans á unglingsaldri var skot- inn til bana í átökum bófaflokka. Atvikið hafði mikil áhrif á Hurth og hann fór að kynna sér ofbeldi og glæpi og vamir gegn þeim. Mannúðarfrömuður Að loknu guðfræðinámi gerðist Hurth prestur í baptistakirkju í Fresno og tvöfaldaðist aðsóknin að kirkjunni eftir að hann tók við handleiðslu safnaðarins. Hann var óþreytandi að taka þátt í félagslegu starfi. Hann flutti fyrirlestra i skól- um um eyðileggingarmátt eiturlyfja og glæpamennsku yfirleitt. Hann starfaði i athvarfi fyrir heimilisleys- ingja og í súpueldhúsum og bauð fá- tæklingum í sunnudagsveislur á heimili sínu. Þá hafði hann sam- band við leiðtoga annarra trúar- hópa í bænum til að stuðla að skiln- ingi og gagnkvæmri umhyggju með- al bæjarbúa. Hurth kynntist konu sinni, Syl- viu, þegar hann var í guðfræðideild- inni. Faðir hennar, sem var stjórn- andi skólans, kynnti þau en hann var hrifinn af áhuga og færni Hurths. Þótt stúlkan væri aðeins 19 ára gömul vissi hún að Paul var maðurinn sem hún ætlaði að eyða ævi sinni með. Þegar Hurth tók við sókninni tók Sylvia þátt í starfi hans af lífi og sál. Hún var aldrei langt undan og lagði nótt við dag í starfinu við hlið manns síns. Árið 1990 urðu þátta- skil. Þá þótti Hurth hann vera orð- inn staðnaður og'vildi breyta til og beita kröftum sínum þar sem þeirra var meiri þörf en í Fresno. Næst gerðist hann trúboði og varð prédik- ari á Nýja-Sjálandi og þaðan lá leið- in til Papua á Nýju-Gíneu. Þar þótt- ist hann hafa fundið lifi sínu verð- ugan tilgang að því er hann sagði síðar. En af skyldurækni við fjöl- skylduna fluttu þau aftur til Fresno í Kalifomíu 1993 því börnin tvö þurftu að komast í skóla en annars sagðist prédikarinn gjarnan hefði viljað dvelja lengur í Papua. Prestur og lögregluþjónn Þegar þangað var komið var Hurth boðið að gerast prestur á ný en hann vildi víkka sjóndeildar- hringinn og sótti um starf sem lög- Nancy Gawor varð að bitbeini morð- ingja og hins myrta. regluprestur þar sem hann gat haft áhrif á aðra lögreglumenn og haft milliliðalaust samband við glæpa- lýðinn. í tvö ár vann hann hug og hjörtu lögreglumannanna og yfir- valda, sótti lögregluskóla og varð einn af yfirmönnum löggæslunnar í bænum eftir að hafa lokið tilskild- um prófum. Hurth stofnaði til samtaka sem veittu fórnarlömbum glæpa- mennsku áfallahjálp. Þangað leitaði fólk sem orðið hafi fyrir árásum, Æðiskast greip Nancy sem öskraði af hrœðslu, en enginn nema Hurth heyrði til hennar. Hann dustaði af sér rykið, greip kylfu sína og fór. Vinnufélagar Ralphs fundu lík hans þegar þeir komu við til að taka hann með til starfa á mánudags- morgni. nauðgunum og verið rænt. Með fram löggæslustörfum pré- dikaði Hurth í kirkjunni og lét ekk- ert tækifæri ónotað til að aðstoða þá sem voru hálpar þurfi. Vann hann traust bæði yfirvalda og þeirra sem minna máttu sín. En Paul Hurth var of góður og fullkominn til að álit það sem fólk hafði á honum ætti að öllu leyti við rök að styðjast. Samtímis því að hann lék hinn fullkomna eiginmann og föður átti hann í ástarsambandi við gifta konu og tveggja barna móð- ur, Nancy Gawor. Hún var rúmlega fertug að aldri og bjó yfirborðsgóðu lífi með fjölskyldu sinni. Eiginmað- urinn var Ralph Gawor. Ástin milli þeirra var löngu kulnuð en þau héngu saman af gömlum vana. Lögreglupresturinn og gifta kon- an hittust í brúðkaupi sonar sam- eiginlegs kunningja. Ástin funaði upp og þau fóru að hittast á leynd- um stöðum og áttu magnaða ástar- fundi í mótelum og jafnvel í kofa sem Gaworhjónin áttu við fjallsræt- ur skammt frá Fresno. Sakir gerðar upp Hurth keypti farsíma handa elsk- unni sinni og var hann þannig stillt- ur að hún gat ekki hringt annað en í elskhugann. Þó að þau hittust oft grunaöi engan að þau væru að hór- ast í mótelum og kofa. Þegar frúin hafði orð á að samband þeirra væri ekki guði eða mönnum þóknanlegt og vUdi slíta því sannfærði Paul Slagsmál og morð En Hurth hlustaði ekki á neinar fortölur. Hann var viss um að ef hann segði Ralph frá sambandi sínu og konu hans mundi hann skilja við Nancy og þau gætu svo gifst síðar. Með þetta í huga ók hann á eftir hjónunum. Það var orðið dimmt þegar Hurth kom að kofanum en þá höfðu hjónin dvalið þar um hríð en ekki minnst á hjónabandsvandræðin. Þegar Hurth ruddist inn til þeirra varð Nancy öskugrá í andliti af hræðslu, enda byrjaði Hurth formálalaust að skýra manni hennar frá fimm mánaða sambandi þeirra. Ralph rann í skap og réðst umsvifalaust á elskhuga konu sinnar. Hurth greip til lögreglukylfu sinnar og gaf Ralph tvö eða jprjú högg til að gera hann óvígan. En kokkállinn var orðinn óður og barð- ist eins og villidýr. Þeir veltust um á gólfinu í fangbrögðum. Ralph varð ofan á og náði kylfunni af lögreglu- prestinum og reiddi hana til höggs. Hinn náði þá til byssu sinnar og Paul Hurth, sem boöaöi guös orö og hélt uppi lögum og reglu, handjárnaö- ur á leiö í réttarsalinn. miðaði á andstæðing sinn. En Ralph lét sér ekki segjast og gerði sig lík- legan til að færa kylfuna í höfuð liggandi mannsins sem þá skaut tveim skotum sem bæði lentu í brjósti Ralphs og hann lét lífiö sam- stundis. Æðiskast greip Nancy sem öskr- aði af hræðslu en enginn nema Hurth heyrði til hennar. Hann dustaði af sér rykið, greip kylfu sína og fór. Vinnufélagar Ralphs fundu lík hans þegar þeir komu til að taka hann með til. starfa á mánudags- morgni. - V; .. -■' . Þótt Hurth hljóti að hafa vitað að upp um hann kæmist byrjaði hann á að ljúga til um ferðir sínár hiha örlagaríku helgi til að verða sér úti um fjarvistarsönnun. En það gat Heimili Nancyar og Ralphs i Fresno. Þangaö kom Hurth aldrei og hringdi ekki heldur þótt samband hans viö húsfrúna væri náiö. hann látið ógert því Nancy sagði lögreglunni frá sambandi þeirra og gaf skýrslu um hvernig dauða eigin- manns hennar bar að. Við eftirgrennslan kom í ljós að Hurth falsaði gögn til að útvega sér fjarvistarsönnun og dugði honum ekki að þræta fyrir hvaða þátt hann átti í dauða Ralphs Gawors. Manndráp aö yfirlögöu ráði Þrem dögum eftir átökin var Hurth handtekinn og ákærður fyrir morð. Réttarhöldm fóru fram í júlí- mánuði á síðasta ári og var vörn ákærða sú að hánn hefði framið verknaðinn í sjálfsvörn og að ekki hefði verið ætlun hans að ráða Ralph bana. Saksóknari benti á að það hefði verið Nancy en ekki Ralph sem vildi slíta sambandinu og að hann hefði sjálfur efnt til þeirrar at- burðarásar sem leiddi til dauða Ralphs með því að ryðjast inn til hjónanna og hefja þar sögu sína og gera kröfu til að Nancy skildi við mann sinn til aö giftast sér. Kviðdómur sýknaði Hurth af morðákærunni. Hann var fundinn sekur um manndráp að yfirlögðu ráði en þó var tekið tillit til að það var framið í sjálfsvörn. Ákærði var dæmdur til 21 árs fangelsisvistar sem er hámarksrefsing fyrir þann glæp sem hann framdi. Ralph Gawor vissi ekki um ótryggö konu sinnar fyrr en nokkrum mínút- um áöur en hann var myrtur. hana um að brátt mundu þau skilja við maka sína og giftast. Brátt fór Nancy að leiðast laumu- spiliö og vildi slíta sambandinu við lögregluprestinn og bæta samband sitt við eiginmanninn. Ralph vissi vel að hjónabandið var í rúst en hafði enga hugmynd um að kona hans héldi við Hurth. Laugardaginn 19. febrúar árið 2000 ákváðu Gaworhjónin að dvelja í fjallakofa sínum yfir helgina. Börnin voru skilin eftir en hjónin ætluðu að ræða sín mál og athuga hvort mögulegt væri að koma lagi á hjónabandið. Áður var Nancy búin að segja Hurth um fyrirætlun sína, að fara i kofann með manni sínum. Nokkru áður en þau lögðu af stað hringdi Hurth í Nancy og spurði hvort hann ætti ekki að heimsækja þau hjónin í kofann og segja manni hennar allt af létta. En Nancy neit- aði og sagði að ef einhver ætti að segja Ralph frá hvernig komið var ætti hún að gera það og bætti við að best væri að þau hættu að hittast, að minnsta kosti um hrið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.