Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Síða 27
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2001
27
Notaðir bílar hjá
Suzuki bííum hf.
Helgarbláð
I>V
Borgin er fögur
Eyþór Arnalds hyggst helga Reykjavíkurborg krafta sína.
ar vegna útboðsmálsins.
Fyrirtækið var talið hafa
brotið reglur Verðbréfa-
þings með þvl að gefa
rangar upplýsingar um
stöðuna. Á það var bent
að áætlanir stóðust ekki.
„Auðvitað fylgja vaxtar-
verkir og unglingaveiki
svo ungu félagi. Auðvitað
hrufluðum við okkur í
uppbyggingunni. Áætlan-
ir til skemmri tíma gengu
úr skorðum eins og hjá
fjölmörgum öðrum. Rétt
eins og við vorum ungt
fyrirtæki sem var hampað
þá var okkur refsað þegar
harðnaði á dalnum. Lang-
flest fyrirtæki sem þó hafa
áratugasögu eru i erfið-
leikum. Íslandssími er þar
engin undantekning enda
ytri aðstæður erfiðar,"
segir hann.
- Hvernig leið forstjór-
anum undir þessari gagn-
rýni og þeirri fjöl-
miðlaumfjöllun sem gekk
yfir?
„Óþægilegast var hve
langan tíma tók að fá úr
þessu skorið. Ýmsir vildu
dæma okkur fyrir fram.
Mér ieið mjög illa á meö-
an þetta stóð. Mannorð
mitt var undir og því
fylgdi mikill léttir fyrir
mig og starfsfólkið þegar
málinu lauk á farsælan
hátt,“ segir hann.
Eyþór forstjóri þrætir
ekki fyrir að málið hafi
sett ákveðinn blett á
ímynd íslandssima þrátt
fyrir að Verðbréfaþing
hafi ekki gefið fyrirtæk-
inu formlega áminningu
heldur einungis skammað
það.
„Öll svona mál setja
mark sitt á menn og fyrir-
tæki. Enginn verður óbar-
inn biskup en þetta mál
mun gleymast í fyllingu
tímans. Íslandssími er fyr-
irtæki sem komið er til að
vera,“ segir hann.
Fyrir rúmu ári lýsti Ey-
þór í samtali við vini sína
að hann hugsaði sér til
hreyfings af forstjórastóli Islands-
síma. Einhverjir skildu það sem svo
aö afskipti stjórnarmanna hefðu far-
ið fyrir brjóstið á honum. Hann seg-
ir rangt að þrengt hali verið að sér.
„í upphafi sá ég fyrir mér að vera í
þrjú ár í þessu starfi og það hefur
gengið eftir. Hugsunin var sú að
koma upp alhhliða fjarskiptafyrirtæki
og koma því á markað sem gerðist sið-
asta vor. Þá gerðist þaö að Íslandssími
eins og mörg önnur fyrirtæki lenti í
hremmingum. Vissulega hefði verið
gott að hafa lengri tíma til að pússa
yfir skrámur og beyglur en sá tími er
ekki fyrir hendi,“ segir Eyþór.
- Er það ekki tilfeUiö að forstjóra-
stóllinn hafi verið orðinn heitur?
„Ég hef haft gríðarlega góðan
stuðning frá stjóm Íslandssíma og
engar deilur hafa átt sér stað. Aiit of
margir brautryðjendur sitja áfram í
sama stólnum. Sem hluthafi mat ég
það þannig að gæfulegra væri að fá
vanan rekstrarmann tO aö taka við af
mér þegar fyrirtækið var tilbúið.
Ákvörðun mín var tekin mjög meðvit-
að. Ég taldi þennan tímapunkt réttan
en ég neita því ekki að gott hefði ver-
ið að fá eitt ár í viðbót. Á móti kemur
að mín bíða spennandi verkefni sem
ekki geta beðið,“ segir hann og viður-
kennir að rétt eins og í tónlistinni
hafi hann þekkt sinn vitjunartíma.
Eyþór hefur þá ímynd víða að
vera „góður gæi“ og er vinsæll af
samstarfsmönnum. Hvernig stjórn-
andi ertu? Lætur þú menn skilyrðis-
laust hlýða þér og hvað gerirðu ef
starfsmenn bregðast trausti þínu?
„Ég hef sýnt starfsmönnum mín-
um mikið traust sem ég ætlast til að
þeir standi undir. Það erfiðasta sem
ég geri er að segja upp fólki en það
hef ég þurft að gera.
Hefur þú verið gagnrýndur af
hluthöfum fyrir að vera of mildur
við starfsmenn?
„Nei, en menn hafa kannski gagn-
rýnt mig fyrir bjartsýni," segir
hann.
Óskar Magnússon, nýráðinn for-
stjóri, er þekktur fyrir að vera harð-
jaxl. Einhver orðaöi það sem svo að
hann svæfi ágætlega þrátt fyrir að
þurfa að reka tvo þrjá starfsmenn
daginn eftir. Þið eigendur Islands-
síma virðist hafa ákveðið að arftaki
þinn verði hörkutól. Er það vís-
bending um að þú sért það ekki?
„Ég er fyrst og fremst frumkvöð-
ull en ekki sá sem siglir lygnan sjó
í tilbreytingarlitlum rekstri. Óskar
hefur mikla reynslu af því að reka
stöndug fyrirtæki sem komin eru af
brautryðjendastiginu, Við höfum
fækkað um 30 manns á síðustu vik-
um og það er ekki eins og það vanti
forstjóra til að segja upp fólki,“ seg-
ir hann.
Borg en ekki bæ
Ertu sáttur við áherslur minni-
hluta borgarstjórnar svo sem varö-
andi tæknileg atriði á framsetningu
mála?
„Minnihlutinn hefur sýnt mikinn
dugnað á kjörtímabilinu og barist af
hörku. Ég er viss um aö geta bætt
miklu við ef ég fæ þess kost. Ég vil
leggja áherslu á þá þætti sem gera
borg að borg og að við séum ekki
með þá smásálarhugsun sem verið
hefur í tíð R-listans. Reykvíkingar
vilja búa í borg en ekki bæ,“ segir
Eyþór.
Þú lýstir því i DV í júlí 1998 að
það væri fagnaðarefni að Inga Jóna
hefði tekið snemma við af Árna
Sigfússyni sem leiötogi minnihlut-
ans. Ertu enn sama sinnis?
„Það var hárrétt ákvörðun á sín-
um tíma. Inga Jóna fór gegn Árna
og það var drengilegt af honum að
víkja og hleypa henni aö,“ segir Ey-
þór.
- Er þá ekki eðlilegt að Inga Jóna
fái tækifæri til að leiða listann í
kosningum?
„Það liggur ekki fyrir hvort um
prófkjör verður að ræða eða upp-
stillingu. Of snemmt er að dæma
um það hvernig best er að stilla
upp. Komi til prófkjörs þá tekst
fólk á,“ segir hann.
- Treystir þú þér til þess að leiða
D-listann til sigurs í baráttunni við
Fjölskyldan
Eyþór ásamt Móeiöi Júníusdóttur eiginkonu sinni og átta mánaöa syni þeirra,
Ara Elíasi.
Reykjavíkurlistann?
„Ég hika ekki við að
taka aö mér erfið verk-
efni og er sannfærður
um að Reykjavíkurlist-
inn er ekki ósigrandi. Ég
óttast ekki Ingibjörgu
Sólrúnu en hún er verð-
ugur andstæöingur,"
segir hann.
Hefur þú nægilega
pólitíska reynslu til að
takast á hendur forystu-
hlutverk í stjórnmálum?
„Að sjálfsögöu treysti
ég mér til þeirra átaka.
Stundum er gott að
byggja á mikilli reynslu
en það er ekkert einhlítt
í þeim efnum. Ég mun
ekki skorast undan
ábyrgð," segir hann.
- En hefur þú til að
bera nægilega grimmd
til að verða sterkur
stjórnmálaleiðtogi?
„Ég á erfitt með að
dæma sjálfur um minn
karakter en ég minni á
að grimmd og harka felst
ekki alltaf í yfirborð-
inu,“ segir Eyþór.
- Hvaö hefur þú fram
yfir Guölaug Þór Þórðar-
son borgarfulltrúa og
Júlíus Vífil Ingvarsson
sem báðir hafa svipaöan
bakgrunn og þú úr við-
skiptalífinu?
„Ég ætia að vinna með
þessum mönnum en
keppa við R-listann. Ég
vona að við náum að
sameina krafta okkar
áður en að kosningum
kemur en mætum ekki
sundraðir til leiks. Ég
ætla ekki að dæma um
kosti þeirra gegn mín-
um,“ segir hann.
Fyrirtæki á flótta
- Er ekki borgin ein-
faldlega i góðum málum
undir handleiðslu Ingi-
bjargar Sólrúnar?
„700 fyrirtæki hafa flú-
ið borgina. Þungamiðja
borgarinnar hefur færst
annað. Myndrænasta
dæmið er Smáralind
sem kemur eins og geimskip og
lendir með góðærið í Kópavogi.
Þetta er til dæmis um klúöur R-
listans. Reykjavík verður að end-
urheimta sitt hlutverk. Vandamál-
in sem R-listinn telur sig þurfa aö
glíma við felast aðallega í því
hvort leyfa eigi nektardans fyrir
luktum dyrum eöa opnum. Doði
og kraftleysi hefur einkennt starf
meirihlutans," segir hann.
Eyþór segist hafa ákveðnar hug-
myndir um það hvernig snúa eigi
þróuninni við. Þar beri skipulags-
mál hæst. Hann vill flugvöllinn
burt og að innanlandsflugið fari
til Keflavíkur. Skipuleggja verði
Vatnsmýrina, Öskjuhlíð og Naut-
hólsvík með tilliti til miöborgar-
innar.
„Víða þarf að taka til hendi.
Mýrargötusvæðið er í niðurníðslu
en þar gæti verið kröftug byggð
niðri við sjó. Geldinganesið er í
rúst og dæmigert fyrir R-listann.
Síöast en ekki síst er það Skugga-
hverfið þar sem gríðarlegt tæki-
færi er til að styrkja miðborgina.
Allt þetta er vanrækt á sama tíma
og byggt er um Grafarholt og hæð-
ir þar sem verið er að skila lóðum
í stórum stíl,“ segir hann.
Pönkarinn sem lagði stund á
klassískt nám og varð poppari og
seinna forstjóri stendur enn á
tímamótum. Þriðja umbreytingin
er hafin þar sem forstjórinn breyt-
ist í stjórnmálamann. Eyþór Arn-
alds, 36 ára forstjóri, verður hugsi
þegar hann er spurður hvar hann
verði eftir 10 ár. „Ég ætla að ein-
beita mér að stjórnmálum sem eru
mjög víður vettvangur. Þau eru á
mörkum þess að vera stjórnun og
list. Þar sameinast ritlist,
mælskulist og stjórnlist auk fleiri
þátta. Ég hef ríka tilfinningu fyrir
einstaklingsfrelsinu og vil leggja
fyrir mig stjómmál um ófyrirsjá-
anlega framtið," segir Eyþór Arn-
alds. -rt
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---//// ..........—
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Suzuki Baleno GLX, 4dr., bsk.
Skr. 4/97, ek. 46 þús.
Verð kr. 830 þús.
TILBOÐ kr. 730 þús.
Suzuki Baleno Wagon, ssk.
Skr. 6/99, ek. 26 þús.
Verð kr. 1270 þús.
Mazda 323F, 5dr., ssk.
Skr. 12/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 1270 þús.
Land Rover Freelander, bsk.
Skr. 6/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5dr., ssk.
Skr. 9/95, ek. 105 þús.
Verð kr. 990 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4dr., 4x4.
Skr. 6/96, ek. 102 þús.
Verð kr. 680 þús.
Daihatsu Charade SR, bsk.
Skr. 6/97, ek. 64 þús.
Verð kr. 590 þús.
Opel Astra Station, ssk.
Skr. 3/98, ek. 33 þús.
Verðkr. 1130 þús.
TILBOÐ kr. 950 þús.
Daihatsu Terios, bsk.
Skr. 10/99, ek. 35 þús.
Verð kr. 1020 þús.
TILBOÐ kr. 950 þús.
Daewoo Lanos, 4dr., ssk.
Skr. 11/99, ek. 45 þús.
Verð kr. 990 þús.