Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2001, Page 42
50
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001
Tilvera DV
Gengið á Kilimanjaro:
Ferðasögur
Eitt af því sem er svo skemmti-
legt við ferðalög er að koma heim
og rifja upp sögur og segja vinum
og vandamönnum frá ferðinni. En
ferðasögur eru í eðli sínu eins og
veiðisögur, sögurnar eiga það til að
stækka og breytast eftir þvi sem
þær eru sagðar oftar.
Krúttlegur hundur
Einu sinni voru hjón á ferðalagi
um Mexíkó. Hjónin höfðu fengið
sér bílaleigubíl og ekið um landið í
nokkra daga þegar þau komu í lítið
þorp til að kaupa bensín. Þau
stoppuðu við bensínstöð og fóru út
úr bílnum til að teygja úr sér.
Þeim leist vel á þorpið og ákváðu
því að gista þar eina nótt.
Fljótlega eftir að þau fóru út úr
bílum kom til þeirra lítill hundur
sem þeim þótti krúttlegur og gáfu
þau honum bita af nestinu sínu.
Eftir það elti hundurinn þau um
allt þorpið.
Um kvöldið voru þau orðin svo
hænd að krílinu að þau höfðu
hann með sér upp á herbergi. Hjón-
in settu hundinn í bað og greiddu
honum. Þegar þau vöknuðu um
morguninn liggur kvikindið froðu-
fellandi á sæng konunnar og þau
drífa sig með hundinn til dýra-
læknis. Hjónunum fannst fólkið á
biðstofunni horfa einkennilega á
sig og þegar dýralæknirinn sá
skepnuna varð hann undrandi á
svip og spurði hvað þau væru að
gera með fársjúka mexíkanska hol-
ræsisrottu af stærri gerðinni.
A ferðalagi í S-Ameríku
Vinkona konunnar minnar þekk-
ir unga konu sem býr á Hornafirði.
Konan sem er einstæð hefur mjög
gaman af þvi að ferðast og undan-
farin ár hefur hún lagt áherslu á
að sækja heim fjarlæg lönd og af-
skekkta staði.
1 vor fór hún í frumskógarferð
um regnskóga Suður-Ameríku.
Ferðin var erfið en konan naut
þess i botn að
höggva sig í
gegnum
skóginn
með stórri
sveðju og
leggjast
niður
undir
berum
himni
og sofna viö
hljóð frumskóg-
arins. Konan var engin
kveif og lét það ekkert á sig fá þótt
hún vaknaði á morgnana meira og
minna þakin skorkvikindum. Hún
var alsæl.
Tveim til þremur vikum eftir að
hún kom heim tók hún eftir litlum
rauðum bletti á hálsinum á sér.
Bletturinn stækkaði dag frá degi og
á viku hafði hann vaxið og orðið
að stórri bólu eða kýli sem henni
klægjaði óþægilega í. Hún pantaði
því tíma hjá lækni en þar var ekk-
ert laust fyrr en eftir nokkra daga.
Konan greip því til sinna ráða og
kreisti kýlið fyrir framan spegil.
Hún fann íljótlega að kýlið var fast
fyrir og kreisti því enn fastar. Þeg-
ar það sprakk að lokum spýttust
hundruð lítilla köngulóa út í loftið
og skriðu niður eftir hálsinum á
henni. Risakönguló hafði verpt í
hana og eggin voru að klekjast út.
-Kip
Safarí með Masai-mönnum
í febrúar og september á næsta
ári ætlar Helgi Benediktsson, úti-
vistargarpur og fararstjóri, að bjóða
ævintýraþyrstum íslendingum upp
á tuttugu og þriggja daga safaríferð
í Afríku. I ferðinni verður gengið á
Kilimanjaro, sem stundum er kallað
þak Afríku og er 5895 metrar á hæð.
Farið verður um Ngorongoro-gíginn
í fylgd með mönnum af ættflokki
Masai en undir lok ferðarinnar
verður slappað af i Zansibar í
nokkra daga.
Að sögn Helga verður gengið í
íjóra til tíu klukkutima á dag en
lengsti dagurinn er þegar gengið er
á Kilimanjaro. „Þeir sem treysta sér
ekki í svo langa göngu geta farið í
styttri skoðunarferð ef þeir kjósa
það frekar. Hitastigið yfir daginn
getur rokkað á bilinu 0” á
Kilimanjaro upp i 30' á Celsíus í
Zansibar og á nóttunni getur hitinn
farið niður í allt að -10° eða +20.“
Helgi segir að verðið á ferðunum
ráðist af gengi krónunnar en inni-
falið séu flugferðir, gisting, þrjár
máltíðir á dag (fyrir utan kvöldferð
f Zansibar), ferðir innanlands í
Tansaníu og kynnisferð um krydd-
markaðinn í Zansibar.
Þeir sem hafa áhuga á þessu safa-
ríævintýri í Afríku geta haft sam-
band við Helga í síma 8993330. -Kip
Gengiö á Kilimanjaro
Gangan á fjalliö tekur um tíu klukkustundir og þykir leiöin einstaklega faiieg í góöu veöri.
Breyttar ferðavenjur:
Ferðast meira innanlands
Minna stress
Menn kjósa frekar aö ganga eftir fallegum göngustíg og hlusta á fuglasöng en aö láta pakka sér í flugvél eins
og gripi á leiö til slátrunar.
Ferðamáti fólks hefur breyst mik-
ið frá þvi árásirnar voru gerðar á
World Trade Center og Pentagon 11.
september síðastliðinn. Af fréttum
að dæma eru margir smeykir við að
fara upp í flugvél og hafa því afpant-
að flug. I Evrópu og f Bandaríkjun-
um ferðast fólk núna meira innan-
lands og á einkabílum. Að sögn for-
ráðamanna þjóðgarða í Evrópu og
Bandaríkjunum hafa fyrirspurnir
um garðana og aðsókn að þeim auk-
ist gríðarlega á síðustu vikum.
í Bandaríkjunum einum er reikn-
að með fækkun um tvö hundruð og
þrjátíu milljónir manna í flugi á
næstu fimm árum og að flugfélögin
geti ekki reiknað með sama farþega-
fjölda og á síðasta ári fyrr en í fysta
lagi árið 2005 eða 2006.
Gestagangur á hótelum og gistiað-
stöðu í nágrenni við þjóðgarða og
vinsæla ferðamannastaði hefur
breyst í þá átt að ferðamenn eru nú
heimamenn en ekki útlendingar.
Menn kjósa frekar að ganga eftir fal-
legum göngustíg og hlusta á fugla-
söng en að láta pakka sér í flugvél
eins og gripum á leið til slátrunar.
Einnig hefur verið bent á að fólk sé
ekki eins trekkt og uppstökkt úti í
náttúrunni eins og á flugvöllum. Því
liður einfaldlega betur.
Upplýsingamiðstöð Suðurlands:
Opiö í Hveragerði í vetur
Sfðastliðið sumar var mikil
gróska í starfi upplýsingamið-
stöövanna á Suöurlandi. Opnaðar
voru þrjár nýjar miðstöðvar með
þjónustusamning við Upplýsinga-
miðstöð Suðurlands í Hveragerði
en þær eru í Árborg, á Hellu og
Kirkjubæjarklaustri. Alls störfuðu
í sumar átta upplýsingamiðstöðv-
ar víðsvegar um Suðurland en
hinar fimm eru í Hveragerði,
Vestmannaeyjum, Vík, Þingvöll-
um og Hvolsvelli. Ferðamanna-
straumur um Suðurland var með
svipuðu sniði og undanfarin ár
þótt minna hafi verið um bókanir
á gististöðum heldur en á síðasta
ári. Ferðamenn kunna vel að meta
þá þjónustu sem upplýsingamið-
stöðvarnar veita og eru í auknum
Mikil gróska
Starfsfólk Upplýsingamiöstöðvar Suðurlands t Hverageröi.
mæli að nýta sér hana við skipu-
lagningu ferða sinna og vali á
gististöðum. Upplýsingamiðstöðv-
amar eru kjörin vettvangur fyrir
ferðaþjónustuaðila til að koma sér
og sinni starfsemi á framfæri og
til að taka höndum saman við að
halda ferðamanninum í héraði. í
vetur verða flestar upplýsinga-
miðstöðvarnar lokaðar nema móð-
urstöðin sem er til húsa á Breiðu-
mörk 10 í Hveragerði en hún verð-
ur opin virka daga frá kl. 9.15-
16.15 og um helgar frá kl. 10.00-
14.00. Ferðamenn og námsmenn
eru hvattir til að notfæra sér þjón-
ustuna í vetur til að afla sér fróð-
leiks og leiðsagnar.