Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 6
6
Fréttir
Skipstjórinn á Báru viðurkennir brottkast í DV-yfirheyrslu:
Öllum dauðum
fiski er hent —
fyrir borð -
- tilbúinn að sitja í fangelsi fyrir allt brottkast á íslandsmiðum
Það hefur verið upplýst að
þú ert skipstjóri og eigandi á
öðru tveggja skipa sem Sjón-
varpið sýndi að stórfellt brott-
kast á fiski átti sér stað á. Hef-
urðu ekkert samviskubit yfir
brottkastinu?
Jú, það hef ég og hef alltaf
haft.
- Hver er ástæða þess að þú
leyfðir Sjónvarpinu og Morg-
unblaðinu að fylgjast með þar
sem áhöfnin fleygði vænum
fiskum fyrir borð?
Þetta er ekkert einkamál mitt.
Þarna er um að ræða auðlind í
þjóðareign og þjóðin á heimtingu
á að vita hvað gerist úti á sjó. Ég
ber þó einn ábyrgð á því að fiski
var fleygt fyrir borð á mínu
skipi.
- Umræddir fjölmiðlar við-
héldu leynd á því frá hvaða
skipum fiski var fleygt. Hefði
ekki verið eðlilegast hjá þér að
koma fram undir nafni og
númeri í staö þess að vera í
skjóli nafnleyndar?
Ég hef áður játað opinberlega
að hafa sagt frá brottkasti og hef
ekkert að fela í þeim efnum.
- Sjónvarpið sýndi myndir
frá þínu skipi, Báru, og snur-
voðarbátnum Bjarma frá
Tálknafirði. Var samráð milli
þin og Níelsar Ársælssonar
skipstjóra um að sýna þjóðinni
brottkastið?
Nei, ég hef aldrei talað við
hinn skipstjórann. Ég veit ekkert
um þann bát sem nefndur er.
- Það eru viðurlög við því að
henda fiski. Þú gætir lent í
fangelsi, óttastu ekki að lenda
í steininum?
Ég er bara heiðarlegur
sjómaður, alinn upp á
Vestfjörðum, en geri
þetta tilneyddur og mér
líður eins og glœpamanni
og þannig hefur mér liðið
í nokkur ár
Ég er óhræddur. Timinn verð-
ur að leiða i ljós hvort ég verð
dæmdur.
- Ertu tilbúinn til að sitja
inni út á þetta mál?
Mér heyrist á forystu LÍÚ að
þeir vilji koma mér undir lás og
slá og henda lyklunum sjálfir.
Sérstaklega vísa ég þar til Frið-
riks J. Arngrímssonar sem er
einstaklega hrokafullur og talar
niður til allra sem ekki þýðast
skoðanir LÍÚ. Ef ég get setið inni
fyrir allt brottkast á íslandsmið-
um og allir verða ánægðir þá er
ég til i þaö.
- Þú átt skip með sáralitlum
kvóta. Áttu nokkurn rétt á að
stunda sjó?
Ég á engan kvóta því fiski-
stofnarnir eru þjóðareign. Við
fengum úthlutun á skötusel,
löngu og keilu en viö eigum ekki
fisk i sjó. Ég hef stundað sjó-
mennsku frá 15 ára aldri og það
er réttur minn að halda því starfi
áfram.
- Vilt þú þá ekki sætta þig
við að mega ekki stunda fisk-
veiðar vegna kvótaleysis?
Ég hef leyfi í gegnum Valdi-
marsdóminn til að stunda fisk-
veiðar. Ég kann ekkert annað en
sjómennsku.
- Hefur þú einhvern tímann
selt eða leigt frá þér kvóta?
Ég hef aldrei átt önnur við-
skipti með kvóta en að leigja til
min veiðiheimildir. Á þessu ári
er ég búinn að leigja kvóta fyrir
38 milljónir króna. Þetta er auð-
lindargjald til einstaklinga.
- Getur þú nokkuð rekið
þessa útgerð með því að vera
kvótalaus og eyða öllum þess-
um peningum i veiðiheimildir?
Nei, þetta gengur ekki upp.
í Morgunblaðinu var sagt að
þú, undir nafnleynd, hafir
hent um 30 prósent í veiðiferð-
inni þegar Ragnar Axelsson
ljósmyndari fór með. Er þetta
brottkastið hjá þér á ársgrund-
velli?
Nei, ég held að það sé ekki svo
mikið. Ég hef þó tekið þátt í að
hirða bara stærsta karfann en
henda öllu öðru aftur í hafið.
- Hvað fleygirðu miklu á árs-
grundvelli?
Það nær ekki 30 prósentum.
Við höfum reynt að landa fram-
hjá og gefa fisk frekar en að
henda honum.
- Máttu landa framhjá vigt
til að gefa óskyldu fólki? Segja
ekki lögin að þú megir aðeins
hirða til matar fyrir þig og
fjölskylduna?
Ég veit það ekki og hélt reynd-
ar að ég mætti gefa vinum min-
um. í því ljósi gaf ég Árni
Mathiesen fisk um daginn.
- Ertu að segja að þú hafir
gefið sjávarútvegsráðherra fisk
sem landað var framhjá vigt?
Já, ég færði honum skötusel.
- Er það fiskur sem annars
hefði orðið brottkast?
Já, Fiskistofa verður að leita
hjá honum til að finna þennan
fisk sem hann þáði með þökkum.
Ég færði reyndar alþingismönn-
unum Kristni H. Gunnarssyni,
Guðjóni A. Kristjánssyni og
Sverri Hermannssyni einnig
skötusel. Þessum gjöfum fylgdu
þau orð að þessum fiski hefði að
öðrum kosti verið fleygt. Hann
fór framhjá vigt og Fiskistofu og
ef við hefðum landað þessu á
markað hefði það kostað okkur
veiðileyfið.
- Þú ert formaður samtaka
kvótalítilla skipa og hlýtur að
hafa yfirsýn yfir brottkastið.
Hve miklu heldur þú að sé
fleygt?
- Þau þrjú þúsund tonn sem
sjávarútvegsráðherra segir að sé
fleygt er fjarri lagi. Ég áætla að
um sé að ræða 15 til 20 þúsund
tonn. Þetta gæti verið miklu
hærri tala.
- Er þarna um að ræða þorsk
sem er allt að 5 kíló að þyngd?
Já.
- Þær raddir heyrast aö
brottkastið sem Morgunblaðið
og Sjónvarpið sýndi í umrædd-
um veiðiferðum frá hafi verið
að einhverju leyti sviðsett til
að koma óorði á kvótakerfið.
Er það tilfellið?
Nei, þetta var venjuleg veiði-
ferð. Stundum er meira brottkast
og stundum minna.
- Á mynd sem Morgunblaðið
Nafn: Sigurður Marinósson Staöa: Skipstjóri og formaður Kvótalítilla
skipa Efni: Stórfellt brottkast á fiski undir suðandi sjónvarpsvélum
birti er verið að henda ufsa
upp í loftið og í sjóinn. Hvers
vegna hendið þið ufsanum?
Verð á ufsakvóta er mög hátt
og erfitt að fá hann leigðan.
- Hvers konar fisk hirðið
þið?
Dauðblóðgaður fiskur hefur
varla komið á land af netabátum
síðan 1990. Honum er hent.
- Er þá öllum fiski sem kem-
ur dauður um borð fleygt í
hafið aftur?
Já.
Yfirheyrsla
Reynir
Traustason
ritstjórnarfulltrúi
w—
- Hvers konar þorski er hent
í hafið? Hendið þið t.d. þriggja
kílóa þorski og smærri?
Við hiröum allan þann fisk
sem selst á sæmilegu verði. En
veiðiheimildirnar eru svívirði-
lega dýrar og nú kostar um 150
krónur aö veiða hvert kíló af
þorski. Það eru ekki bara kvóta-
lausir sem henda fiski.
- Ertu að segja að allir
stundi brottkast og velji fisk
til að fara með i land?
Menn velja fisk hvort sem þeir
eiga veiðiheimildir eða ekki.
- Er þetta ekki hrein villi-
mennska?
Svona er umgengnin um auð-
lindina og hún er í mörgum til-
fellum verri en þarna var sýnt.
Ég nefni til dæmis togarana sem
draga á eftir sér 5 tonna þunga
hlera og róta upp sjávarbotnin-
um og stórskaða lífríkið. 1970
áttum við 21 togara sem voru
með tréhlera sem vógu 500 kíló.
Nú eru togararnir yfir 100 og
draga á eftir allt aö sér 8 tonna
hlera.
- Af hverju bauðstu frétta-
mönnum með?
Mér er ofboðið og ég vildi sýna
svart á hvítu hvernig þetta er.
- Er ekki kvótakerfið ís-
lenska til fyrirmyndar um all-
an heim að mati sérfræðinga?
Það breytir því ekki að þetta
er dýrasta kvótakerfi í heimi.
Brottkast og ofveiði er að rústa
fiskistofnana.
- Hvernig vilt þú að veiðum
verði stjórnað?
Ég vil að hér verði tekið upp
færeyska fiskveiöistjórnunar-
kerfið að hluta eða öllu leyti. Ég
hef kynnt mér það kerfi.
- Þú meinar sóknarstýr-
ingu?
Já.
- Þú mátt búast við hörðum
viðurlögum og sektum.
Óttastu ekki að missa útgerð-
ina vegna brottkastsins?
Landssamband íslenskra út-
gerðarmanna stefnir að þvi að
útrýma einstaklingúm í útgerð.
Ég mun að óbreyttu hvort eð er
missa bátinn innan nokkurra
ára.
- Þarftu ekki að hafa lifi-
brauð til að sjá fyrir fjöl-
skyldu?
Ég reikna meö að fara úr
landi ef ekki verður breyting á
kerfinu. Sjálfsagt get ég fengið
vinnu í Noregi eða Færeyjum
þar sem veiðum er stjórnað af
meiri skynsemi en hér.
- Þú hefur framið lögbrot
með því að ástunda brottkast
á fiski þar sem viðurlög eru
svipuð og við þjófnaði? Hvern-
ig tilfinning er að hafa slíkt á
samviskunni?
Ég er bara heiöarlegur sjómað-
ur, alinn upp á Vestfjörðum, en
geri þetta tilneyddur og mér líö-
ur eins og glæpamanni og
þannig hefur mér liðið i nokkur
ár, alveg síðan 1990. Ég fæ verk
yfir hverjum fiski sem ég verð
að henda í sjóinn.
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
E>Vj
Magnús hafður til hlés
Umræðan um brottkast hefur verið
mikil eftir að Sjónvarpið sýndi myndir
frá veiðum tveggja
báta i fyrrakvöld
þar sem fallegum
og góðum fiski var
hent í stórum stíl.
Ljóst er að myndirn-!
ar hafa sett allt á
annan endann og
þótt einhverjir efist
um trúverðugleika
þessara atriða og telji þetta sviðsett er
ljóst að bregðast verður við málinu. í
pottinum var sagt frá því að á Frétta-
stofu Sjónvarps hafi þetta mál verið
mikið rætt áður en það fór i loftið og
ákveðið að Benedikt Sigurðarson
skyldi lesa og kynna fréttina þó það
hafi í raun verið Magnús Þór Haf-
steinsson sem fór í túrinn og sá um að
fá bátana til samstarfs. Ástæðan mun
vera sú að stjómendur fréttastofunnar
töldu vissara að hafa vissa fjarlægð
milli Magnúsar og fréttarinnar vegna
þess að Magnús hefur átt í miklum op-
inberum deilum við LÍÚ, m.a. vegna
umræðunnar um brottkast...
Höfuðlausn?
Fram hafa komið á ýmsum netmiðl-
um - m.a. pressunni.is - getgátur um
að Þórarinn V. Þór-
arinsson eigi ekki.
afturkvæmt í stól for-!
stjóra Landssimans. f
Pottverjar hafa í |
sjálfú sér ekki miklar:
skoðanir á þvi enj
hafa vitaskuld heyrt
sögusagnir um að Þór-
arinn njóti ekki vel-
vildar æðstu stjórnar Sjálfstæðisflokks-
ins. Hinu hefur aftur á móti verið hald-
ið fram i pottinum að Þórarinn V. sé ,
einn af helstu ráðgjöfum sjálfstæðis--!
manna í Linu.Net-málinu og einn
áhugamaður um borgarmál mun hafa ;
orðað það þannig að í ljósi umræðunn-;
ar á pressunni.is væri Þórarinn trúlega \
að yrkja sína höfuðlausn með þessari
ráðgjöf, það ylti á árangri hennar hver
framtíð hans yrði hjá Símanum ...
Litli Ijóti andarunginn
Það hefur ekki farið framhjá neinum
að heldur er að hitna í kolunum í borg-
arstjórn Reykjavíkur enda kosningavet-
ur hafmn. Á borgarstjómarfundi á dög-
unum greip Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir til þeirr-
ar samlíkingar að
líkja borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins
við endurnar á Tjörn-
inni. Ef upp kæmi
eitthvert mál þá rykju
allir borgarfulltrúarn-
ir til og töluðu hver i
kapp við annan og enginn einn virtist
talsmaður í málinu, sem minnti á end-
urnar úti fyrir sem allar flykkjast að
og slást um sama brauðbitann þegar
menn koma að gefa þeim. Þetta þótti
sjálfstæðismönnum að sjálfsögðu mikiil
hroki hjá borgarstjóra, en góður sjálf-
stæðismaður á pöilunum mun hins
vegar hafa snúið sér að sessunaut sín-
um og sagt: Hún Ingibjörg verður ekki
svona brött þegar litli ljóti andarung-
inn í hópnum verður orðinn að svani!
Allir vilja meira
í pottinum ræða menn nokkuð upp-
stillingu R-listans í borginni en eins og
fram hefur komið í DV er hugmyndin
að Samfylkingin fái
þrjá menn en hinir
flokkamir fái tvo á
listanum. Áttundi
maður verður síðan
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. Eftir að
DV greindi frá þessu í
vikunni hefur vaknað
upp talsverður kurr
meðal félaga i Framsókn og VG sem
telja að verið sé aö gera Samfylking-
unni allt of hátt undir höfði miðað við
fylgi og fráleitt sé að miða við stöðuna
á Reykjavíkurlistanum eins og hún sé í
dag. Um nýjan lista sé að ræða og
breyttar aöstæður þar sem Samfylking-
in hafl síður en svo sterkustu stöðuna
Pottveijar telja þetta athyglisverð tíð-
indi í ljósi þess að það voru samfylk"
ingarmenn sem i byrjun viðruðu
áhyggur af þvi að þeirra hlutur væri
ónógur í þessu samstarfi •••■