Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2001, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2001
Helgarblað
DV
Lögregluyfirvöld hafa áhyggjur af aukinni neyslu sterkra fíkniefna:
100 þúsund e-töflur
komnar á þessu ári
- sérstakir pyndingarstaðir það nýjasta sem lögreglan hefur spurnir af
DV-MYNDIR ÞÖK
Grafarvogur, Vesturbær, Miöbær, Breiöholt, Kópvogur - íslenskur veruleiki
Þetta er aöeins hluti af þeim vopnum sem fíkniefnaiögregian hefur lagt hald
á undanfariö. Þau fundust í húsum víösvegar á höfuöborgarsvæöinu.
TTTíkíií
Á árinu 2001 hafa lögregla og toll-
gæsla hér á landi lagt hald á meira en
100 þúsund e-töflur - fimmtíu sinnum
meira magn en Kio Briggs kom með
til landsins í íþróttatösku eins og
frægt varð árið 1998. „Aðeins“ 34 kíló
af hassi hafa veriö tekin á árinu (151
mál), innan við kíló af amfetamíni og
nokkur hundruð grömm af kókaíni.
Þetta þykir sýna með skýrum hætti að
e-töfluinnilutningur og markaður fyr-
ir slík efni, sterk fíkniefni, hefur auk-
ist stórkostlega. Þó svo að 77 þúsund
e-töflur hafi verið teknar í einu og
sama málinu þegar tollgæslan í Leifs-
stöð stöðvaði Austurríkismann sem
var að fara til Bandaríkjanna á leið
frá Evrópu, þykir mönnum nóg um -
tölurnar eru sláandi. Á annan tug
manna og kvenna hafa verið teknir
höndum í ár í málum sem fjölmiðlar
hafa á undanfórnum árum kallað stór
fíkniefnamál. Fjöldi erlendra „burðar-
dýra“ hefur stöðugt aukist, sambönd
fíkniefnainnflytjenda og sala styrkjast
á alþjóðlega vísu með hverju árinu
sem líður - ekki síst þegar stór hluti
fanga á Litla-Hrauni er þar vegna
mála tengdum fíkniefnum og situr þar
inni með fjölda útlendinga. Þarna er
auðvitað margt skrafað og lagt á ráð-
in. Einn fanginn fer bráðlega fyrir
dóm - fyrir að hafa haldið áfram að
skipuleggja e-töfluinnflutning frá út-
löndum eftir að hafa verið dæmdur í 7
ára fangelsi. Það skipulag átti sér stað
í gegnum síma frá Litla-Hrauni.
Pyndingar - m.a. með borvél
Fíkniefnalögreglan segir að harkan
í fíknikefnaheiminum aukist stöðugt.
Sérstakir pyndingarstaðir er það
nýjasta sem lögreglan hefur spumir
af. Ef menn borga ekki skuldir fyrir
fikniefni er farið með þá á tiltekna
staði og þeir pyndaðir. Þess eru dæmi
að grimmdin sé svo mikil að borvél
hafi verið notuð. „Það er engin misk-
unn í þessum heimi,“ segir Ásgeir
Karlsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
og yfirmaður fíkniefnadeildar. „Við
höfum heyrt að það hafi verið boraö i
axlir á fólki. Ástæðan er sú að við-
komandi stóðu ekki í skilum."
Fíkniefnalögreglan hefur einnig haft
spumir af því aö drepið hafi verið í
logandi sígarettu í lófa skuldarans.
Lögreglan leggur stöðugt hald á
byssur og margs konar önnur vopn
sem menn annaðhvort nota til að
verja sig með eða hafa í hótunum við
aðra. Sumt af þessum vopnum eru
notuð í návígi.
Langfæst ef þá nokkur af þessum
málum eru kærð til lögreglu því ótt-
inn við hefndir er allsráðandi. í fíkni-
efnaheiminum gilda önnur lögmál en
fólk á að venjast. Þessi heimur er þó
nær grunlitlum almenningi en flestir
telja. Þessir atburðir eru að gerast í
húsum sem við fórum fram hjá jafn-
vel daglega, hjá einstaklingum sem
eru tengdir okkur flestum með einum
eða öörum hætti - við sjáum bara
ekki atburðina með berum augum.
Sífelldur ótti - inni í skáp
Lífshættulegt þunglyndi er algeng
afleiðing af e-töfluneyslu - þar sleppur
enginn þó það kunni að vera gaman
að prófa í fyrsta skipti. Þarna er eng-
inn hraustari en hinir. Sjálfsvíg er al-
geng afleiðing af fíkniefnaneyslu þeg-
ar fólk, oftast ungt, er komið í öng-
stræti. Stöðugar meðferðir, sífeOdur
ótti, ótti við rukkara sem hafa algjört
vald á neytandanum. Ef hann borgar
ekki er hann annaðhvort limlestur
eða látinn greiöa skuldina með því að
fara utan til að sækja meiri fíkniefni
og flytja þau inn. Ef fólk greiðir ekki
fíkniefnaskuldina þá hækkar hún og
það hraðar en með lögbundnum
vaxtahraöa. Og það er ekki bara ótti
við rukkara heldur nær ofsóknar-
brjálæðið líka til þess að óttinn við
annað fólk, ekki síst lögreglu, verður
óstjórnlegur.
„Við vitum til þess að neytendur
séu stundum svo hræddir og komnir
út úr raunveruleikanum að þeir fari
jafnvel inn í skáp til að sprauta sig
svo enginn sjái til þeirra. Glansinn fer
fljótlega af þessu,“ segir Ásgeir Karls-
son.
Neysla fyrir
hundruð þúsunda
Handrukkararnir hafa í hótunum
við skuldarana. Þeir eira engu og ná
meira að segja að koma hótunum á
framfæri þegar neytandinn er flúinn í
meðferð - á stað þar sem hann telur
sig öruggan innan læstra dyra. Hótan-
irnar ganga út á að skaöa ættingja og
ástvini, börn og foreldra. Mörg dæmi
eru um að neytandinn hafi því hætt
meðferðinni til að fara út til að standa
í skilum. Og staðfest dæmi eru um að
fíkniefnainnflutningur hafi verið
skipulagður innan veggja SÁÁ.
Þegar fólk tekur fyrst inn e-töflu
dugar jafnvel hálf slík til að ná fram
áhrifum á einu kvöldi. Eftir það fer
þolið að byggjast upp og neytandinn
þarf fleiri og fleiri töflur. Þetta þýðir
auðvitað aukin útgjöld. Þegar mikið
þol hefur myndast þarf neytandinn
allt upp í 5 og jafnvel 10 töflur á dag.
Hver tafla kostar á bilinu 2.500-3.500
krónur. Reikni nú hver út fyrir sig
hvað neyslan kostar, hverjar skuld-
irnar verða og svo framvegis. Margir
einstaklingar hér á landi neyta fíkni-
efna fyrir hundruð þúsunda króna á
mánuði.
Ásgeir Karlsson segist hvetja alla
þá sem verða fyrir ofbeldi og árásum
eða hótunum um slíkt að láta lögreglu
vita. „Þannig er hægt að koma lögum
yfir þessa menn. Ég skora líka á alla
þá sem eru með vopn eða vita um
vopn í umferð að tilkynna lögreglu
um það. Ef þess er óskað er hægt að
tryggja nafnleynd."
Ævintýramaður
með póstlista
Heimilistæki og
ýmis fleiri varning-
ur á sannkölluðum
reyfarakjörum var
auglýstur snemma
i vikunni. Það var
Goði Jóhann
Gunnarsson sem
bauð fólki að gera
hin góðu kaup eftir
svonefndum Kostgo-pöntunarlista
sem seldur var á fimm þúsund krón-
ur. Fáir keyptu þó listann eða pönt-
uðu vörur og á endanum fór svo að
Goði Jóhann var hnepptur í varðhald
meðan málsatvik voru könnuð frekar.
Samfylking fær þrjá
DV upplýsti í vikunni um stöðuna i
samningaviðræðum stjórnmálaflokk-
anna sem standa að Reykjavíkurlist-
anum. Þar er samkomulag i burðar-
liðnum sem felur í sér að af átta efstu
mönnum fái Samfylkingin þrjá,
Vinstri grænir tvo og Framsókn tvo.
Auk þessa mun Vg fá forseta borgar-
stjórnar og Framsókn efsta mann á
listanum og fyrsta val í nefndir. Búist
var við að lendingin yrði á þessum
nótum, þrátt fyrir að einhverjar efa-
semdarraddir um þennan samning
hafi heyrst úr röðum Samfylkingar-
manna, sem þótti þeirra hlutur rýr.
FÍB segir álagningu aukast
FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeig-
enda, gagnrýndi olíufélögin í vikunni
harðlega fyrir að auka álagningu sína
á bensíni. Sagði félagið að samkvæmt
sínum útreikningum hefðu olíufélög-
in aukið álagninguna sem nemur 1
krónu á lítrann frá því um mánaða-
mótin janúar/febrúar. Þessar ásakan-
ir komu fram á sama tíma og olfufé-
lögin Esso og Shell tilkynntu um góða
afkomu og verulegan hagnað. Félögin
vísuðu þó fullyrðingum FÍB á bug, en
FÍB hefur lagt útreikninga sína inn til
Samkeppnisstofnunar.
0,8% vaxtalækkun
Langþráð vaxtalækkun var til-
kynnt í Seðlabankanum við
Kalkofnsveg á fimmtudag eftir að há-
værar gagnrýnisraddir höfðu hljómað
um nokkurt skeið. Vaxtalækkunin
var tilkynnt samhliða nýrri verð-
bólguspá bankans þar sem fram kem-
ur að mun meiri líkur eru taldar á því
en áður að verðbólgumarkmið bank-
ans fyrir árið 2003 náist. Niðurstaða
bankans var að 0,8% eða 80 punkta
lækkun stýrivaxta væri hæfileg.
Lækkunin hefur mælst vel fyrir en
greinilegt er að margir trúa því að
þetta sé einungis fyrsta skrefið í
frekara lækkunarferli, en sjálfur segir
bankinn einfaldlega að frekari lækk-
un muni ráðast af því hvernig efna-
hagsmálin þróast.
Farþegalista skal geyma
Mikil umræða hefur í vikunni ver-
ið um málefni flugvélar Flugmála-
stjómar, ekki síst eftir að Gísli S. Ein-
arsson alþingismaður fékk þau svör
frá Ríkisendurskoðun að skylt væri
að geyma farþegalista vélarinnar.
Flugmálastjórn tilkynnti að listarnir
yrðu framvegis geymdir í 3 ár. Málið
kom inn á Alþingi í utandagskrárum-
ræðu þar sem Gísli og aðrir stjórnar-
andstæðingar töldu tregðu ráðherra
og framkvæmdavalds til að afhenda
upplýsingar gera málefni Flugmála-
stjómarvélarinnar tortryggilega, en
Sturla Böðvarsson og aðrir stjómar-
sinnar sögðu að Gísli væri að gera
fullkomlega eðlilega hluti tortryggi-
lega með ásökunum sínum.
EVROPUMEIS TA RINN
ER KOMINN í EVRÓ !!
ylYMJT
ft
oc) synnudag
Evró ehf. Skeifunni sími: 533 14 14 www. evro. is - www. lynx .is