Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Page 17
LAUGARDAGUR II. MAÍ 2002
Helqarblctð 13 V
"7
Dómskerfið
brást dóttur minni
Rósa María Salómonsdóttir talar um sýknu-
dóm Hæstaréttar yfir manni sem ákærður
var fyrir að misnota dóttur hennar ísex ár
frá átta ára aldri. Foreldrarnir ætla að berj-
ast fyrir endurupptöku málsins.
• Sjá næstu opnu
ÞAÐ ER TALIÐ AÐ 16,7% ALLRA íslendinga verði
fyrir kynferðislegri áreitni af einhverju tagi á barns-
aldri eða unglingsárum. Mun fleiri stúlkur en piltar
eru fórnarlömb afbrotamanna að þessu leyti og giska
fræðimenn á að 22,7% stúlkna verði fyrir áreitni kyn-
ferðisglæpamanna einhvern tímann á ævinni. Algengt
er að áreitnin hefjist meðan börnin eru enn undir 10
ára aldri.
í nær öllum tilvikum eru þeir sem áreita stúlku-
böm kynferðislega nákomnir þeim með einhverjum
hætti. Annaðhvort nánir ættingjar eins og feður, afar,
bræður eða frændur eða þá heimilisvinir og nágrann-
ar sem öll fjölskyldan, þar á meðal barnið, þekkir og
treystir.
í 2/3 tilvika nær misnotkunin yfir lengri tíma en
eitt ár. Sextíu prósent þeirra sem þetta þurfa að þola
segja ekki frá því fyrr en löngu seinna ef þeir gera það
nokkum tímann.
Reglulega birtast okkur fréttir af því að mjög lágt
hlutfall kærðra afbrota af þessu tagi endar með sak-
fellingu og refsingu. Miklu algengara er að málum sé
vísað frá dómi eða meintir sakborningar séu sýknað-
ir. Mjög algengt er í málum eins og þessum að einu
sönnunargögn málsins séu vitnisburðir fómarlambs-
ins og hins kærða en engin efnisleg sönnunargögn
önnur. Þess vegna er dómstólum óneitanlega vandi á
höndum og trúverðugleiki málsaðila öðlast nýtt vægi.