Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Blaðsíða 41
LAUCARDACUR II. MAÍ 2002 Helqctrblctð JO"V ■1 Steve Nolan. Lipurðin og snerpan áhrifamest. ungir lærlingar þeirra safnast sam- an og stunda hugleiðslu litla stund, við kertaljós og reykelsisilm, en svo fer að færast heldur betur fjör i leikinn. Heilmiklir fimleikar og glæfra- legar æfingar með hin ýmsu vopn taka fljótlega við, þegar munkarnir sýna keisaranum listir sínar og fá- dæma bardagafimi. Sá lætur bæði heillast og sannfærast og fær munkana til að ganga til liðs við sig í baráttunni við illan stríðs- herra sem herjar á keisaraveldið. Síðan upphefjast mikil átök munkanna og málaliöa striðsherr- ans með tilheyrandi akróbatík og vopnaskaki. Munkarnir hafa að sjálfsögðu sigur, en neita í kjölfar- ið að ganga á mála hjá keisaranum til frambúðar. Þetta líkar hátign- inni illa og gerir sér lítið fyrir og myrðir munkana, hvern af öðrum, þar sem þeir sofa djúpum svefni eftir að hafa verið byrluð ólyfjan mikil. Fimm ungir sveinar, lær- lingar munkanna, eru þeir einu sem lifa blóðbaðið af. Þeir halda aftur til klaustursins og taka til við þjálfun sína að nýju undir ieiðsögn gamla meistarans, og hefja Shaol- in-hefðina til vegs og virðingar á ný. Lokaatriði sýningarinnar er svo sannkölluð flugeldasýning, þar sem hver munkurinn af öðrum kemur fram og sýnir þær listir sem hann hefur sérhæft sig í. ít- rekað stóð útsendari DV sig að því að hrista höfuðið í forundran og velta þvi fyrir sér hvort það væru virkilega engin takmörk fyrir því sem mannslíkaminn er fær um að gera og þola ef rétt er að verki staðið. Ef marka má frammistöðu munkanna 20 og hinna fimm ungu lærlinga, þá virðist svo ekki vera. Ábótínn áttí frumkvæðið Steve Nolan, framleiðandi sýn- ingarinnar, kynntist Shaolin- munkunum fyrst í ársbyrjun 1999. Þá kom ábóti klaustursins til Eng- lands í því skyni að kanna, hvort ekki væri grundvöllur fyrir þvi að afla klaustrinu fjár, með því að halda eins og eina sýningu eða tvær á Englandi. Hugmynd hans gekk út á að láta munkana einfald- lega mæta á sviðið hvern á fætur öðrum og sýna listir sínar. Honum var hins vegar fljótlega bent á Nol- an, sem hafði talsverða reynslu af ýmiss konar skemmtanahaldi, og þá fyrst fór hugmyndin að Lífshjól- inu, eða Wheel of life, að taka á sig mynd. „Ábótinn sagði mér undan og ofan af sögu klaustursins, og ég sá strax þá möguleika sem hún bauð upp á,“ sagði Nolan í viðtali við út- sendara DV í Helsinki. „Ég taldi mun áhugaverðara að reyna að segja þessa sögu í einhvers konar samfelldri heild, en að vera með stök og ótengd bardaga- eða fim- leikaatriði. Mér sýndist líka að með þeim hætti gæti þetta orðið annað og meira en bara ein sýning í London og búið.“ Nolan fékk til liðs við sig hand- ritshöfund, leikstjóra og fleiri og setti saman drög að sýningunni sem hann síðan lagði fyrir ábót- ann. „Við fórum í klaustrið og sýndum honum það sem við vorum með. Hann leiðrétti eitt og annað smáatriði í sagnfræðinni hjá okk- ur, en leist að öðru leyti nógu vel á þetta til að slá til og niðurstaðan varð þessi.“ Aldagömul hefð Sagan segir að Shaolin sé fyrsta Zen-búddistaklaustrið í Kina og hafi verið stofnað af Indverjanum Bodhi-Dharma árið 495. Munkalifið byggðist að verulegum hluta á hug- leiðslu, svo sem venja er til, en þar kom að meistaranum þótti munk- amir full fölir og ræfilslegir af inniveru og hreyfingarleysi, svo hann tók til við að kenna þeim hið ævaforna tai-chi, þar sem teygjuæf- ingar og hreyfingar dýra eru not- aðar sem fyrirmynd að líkamsrækt mannanna, og þess gætt að hugur- inn fái ekki síður sinn skerf en lík- aminn. Munkarnir í Shaolin fengu hins vegar ekki alltaf frið fyrir ná- grönnum sínum og tóku smám saman að þróa tai-chi-ið áfram i átt tO þess sem við þekkjum almennt undir heitinu Kung-fu í dag. Kung fu er flokkað í fjóra grunnflokka, og er einn þeirra kenndur við Sha- olin. Þessi tegund bardagalistar, sem á sér ríflega 15 alda sögu í Kína, er nú kennd í Shaolin-skól- um vítt og breitt um heiminn, en klaustrið sjálft gegnir enn lykil- hlutverki í útbreiðslu og viðhaldi hefðarinnar. Langt úr alfaraleið Nolan kom sjálfur í klaustrið nokkrum sinnum á árinu 1999, á meðan hann var að vinna að upp- setningu sýningarinnar. „Shaolin- klaustrið er hreint ótrúlegur stað- ur, hvernig sem á það er litið. Nátt- úrufegurðin allt um kring er ein- stök og klaustrið sjálft líka. Það hefur reyndar þrisvar verið brennt til kaldra kola í gegnum aldirnar, en alltaf verið reist aftur. Þeir hafa lifað allt af, hungursneyð, stríð á keisaratímanum, kommúnismann, menningarbyltinguna - þeir eru ódrepandi.“ Það kann að hafa átt sinn þátt í því, hversu lífseigt klaustrið hefur verið, að það er langt úr alfaraleið. „Það er þriggja og hálfs tíma ferð í næstu borg,“ segir Nolan, „og algjör auðn allt í kring. Nema síðustu fjóra eða fimm kílómetrana. Þar er skóli við skóla, allt Kung-fu-skólar, fleiri tugir af þeim. Það eru sjálfsagt á bilinu 30-40.000 manns þarna að jafnaði að læra Kung-fu, og flestir skólamir eru reknir í tengslum viö klaustrið. Enda er þessi vegur aldrei kallaður annað en Kung-fu vegurinn.“ Lipurðin og snerpan Lífshjólið hefur verið sýnt vestan- hafs og austan, og til Finnlands, þar sem sýningin gekk fyrir fullu húsi alla síðustu viku, kom hún frá Ástr- alíu. Nolan segir viðtökur almennt hafa verið mjög góðar, hvar sem er í heiminum. „Það er eitthvað fyrir alla í þessari sýningu. Klassísk, kín- versk tónlist jafnt sem vestræn og vel rokkuð, bardagalist sem ætti að heilla hvaða Kung-fu áhugamann sem er, leiklist af klassíska, kín- verska skólanum og ótrúleg atriði þar sem menn leggjast á sverð og naglabretti, brjóta múrsteina með berum höndum og svona mætti áfram telja. Við lögðum upp með það að sem flestir ættu að finna eitt- hvað við sítt hæfi og það virðist hafa gengið bærilega upp.“ En hvað skyldi framleiðandan- um og aðalsprautunni þykja merkilegast þegar hann horfir á munkana leika sínar ótrúlegu kúnstir? Nolan er ekki í neinum vafa. „Það kann kannski að hljóma undarlega, svona miðað við þessi ótrúlegu atriði sem boðið er upp á inn á milli, en það sem mér finnst áhrifamest er þessi fádæma snerpa og lipurð þeirra allra og hreyfingar þeirra yfirhöfuð. Auðvitað er þetta Kung-fu, fyrst og fremst, en svei mér þá, þetta jaðrar líka við að vera ballett." -ÆÖJ Bikinf Sundbolir Tankini Sundskýlur Sundbuxnr Sundfötin finnur þd í Útilíf SPEEDQ Speedo er leiðandi merki i snnd- fatnaði. Kynntu þér glæsilegt úrva af Speedo sundfötum i verslunum Útilífs, i Smáralínd og Glæsibæ Delmar bandeau bikim - B.59D Delmar tankim - 6.990 Sundnokar - 990 Komdu við i Utilífi og kynntu þér fjölbreytt úrval af sundfötum, áður en þú skellir þér í sund eða ferð í sumarfrí. UTILIF | Mesh spliced tankiní - 5.99D Smáralind - Elæsibæ Simi 5451500 ng www.utilif.is Þú nærö alltaf sambandi ^ við okkur! (7) 550 5000 s-' mánudaga til fimmtudaga kl. 9-20 föstudaga kl. 9-18 sunnudaga kl. 16 - 20 (Cu smaauglysingar@dv.is hvenær sóiarhringsins sem er DV 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.