Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Side 42
42 He Iga rt> loö IDV LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002 95 konur, flugvél og maður sem spilar á kont Það er þriðjudagskvöld íbyrjun maíog vet- urinn þykist vera vor. Barrtrén við Skógar- hlíðina láta sér fátt um finnast, þau eru ekk- ert fgrir það að láta tískusveiflur ítrjá- klæðnaði hafa áhrifá sig: „Græn allt árið“ er þeirra mottó. En skítt með trén, það eru konur sem skipta máli á þessu þriðjudags- kvöldi, rúmlega eitt hundrað konursem all- arsyngja nema tvær, stjórnandinn og undir- leikarinn. Já, og svo maðurinn sem leikur á kontrabassa. Stjórnandinn heitir Jóhanna V. Þórhallsdóttir, undirleikarinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir og maðurinn sem leikur á kontrabassa er Tómas R. Einarsson. RÚMLEGA EITT HUNDRAÐ KONUR í kórnum heita ekkert sérstakt nema kannski Védís og Stína sem er klappað sérstaklega fyrir vegna þess að þær stóðu glæsilega að útgáfu á vegum kórsins. Slíkt er eðli kóra, maður veit að líkt og hver nóta píanósins hefur sér- stakt heiti þá hefur hver kórfélagi verið skírður ein- hverju nafni. Það skiptir ekki máli meðan sungið er, það skiptir ekki máli fyrr en í kaffipásunni. Kórinn heitir aftur á móti Léttsveit Reykjavíkur. Þær eru að æfa innkomuna þegar ég sest inn í salinn. Þær syngja Ljósið kemur langt og mjótt. Ljósið streym- ir hins vegar ofan úr himninum og niður í Ými. Ljósið kemur langt og mjótt, syngja þær og koma sér fyrir á sviðinu. Með allt á hreinu Þær eru að fara til Norðurlanda í söngferðalag. Ætla að enda á því að syngja i Tívolí í Kaupmannahöfn, eins og Stuðmenn ætluðu að gera í Með allt á hreinu. Tómas R. fer með þeim. Hvernig ætli hann plumi sig í þessu kvennaríki? Verð að muna að spyrja að því á eftir. Ég hef alltaf öfundað fólk af kórstarfi. Það er örugg- lega fyllirí í kórum eins og íþróttafélögum. Og þar fyrir utan hlýtur að vera merkilegt að vera ein rödd af hund- rað sem allar syngja sama lagið. Svona í daglegu lífi er það bara heppni ef fólk getur komið sér saman um um- ræðuefni þannig að þetta hlýtur að vera endurnærandi tilbreyting að standa á sviði með fjölda fólks sem allt hefur sama markmið. Hvernig ætli stemningin sé í svona kórferðalögum? Það er örugglega sungið í rútunni. Ætli það megi syngja í Flugleiðaþotunni á leiðinni út? Örugglega ekki. Kannski má það á Saga Business Class? Varla, það færi örugglega i taugarnar á Kára. Ókei, stelpur! 120 dúandi konur á sviðinu syngja Vertu til er vorið kallar á þig. Þær virðast tilhúnar að leggja hönd á plóg en halda kyrru fyrir á sviðinu þrátt fyrir að sólskinið vilji sjá þær, það verður að bíða betri tima því þær verða með tónleika á uppstigningardag og tvenna tónleika á laugardag, klukkan þrjú og fimm. Allir verða þessir tón- leikar haldnir í Ými. Jóhanna stjórnandi er fyndin. Hún hrópar: Ókei, stelpur! og Þegiði þarna! og skammar þær einu sinni fyr- ir hvað þær eru alvarlegar: Við erum með smáhúmor! Stelpurnar hlýða henni. Passið bara að missa ekki fólsku tennurnar! hrópar Jóhanna og konurnar hlæja í kór. Já, kórar hlæja líka í kór. Stundum má skála Það er komið hlé. Ég er búinn að mæla mér mót við Jóhönnu í hléinu. Ég elti hana eftir göngum Ýmis og nið- ur á fyrstu hæðina þar sem við komum okkur fyrir í mannlausu herbergi. „Ég byrjaði með Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur fyrir sjö árum en upphaflega var ég raddþjálfi hjá Kvennakór Reykjavikur þegar hann var stofnaður fyrir tíu árum,“ segir Jóhanna. „Kvennakór Reykjavíkur var svo mikil uppspretta að nú eru fimm stórir kvennakór- ar starfandi." Þið eruð með léttar áherslur í lagavali? „Við höfum lagt áherslu á skemmtiprógrömm og ver- ið með sveiflu frá ýmsum löndum. í vetur höfum sungið mikið af skandinavískum lögum.“ Stuðmenn ætluðu á sínum tima að spila í Tívolí? „Já, þaðan fáum við hugmyndina. Ég skrifaði for- stjóra Tívolís og fékk svarbréf þar sem við vorum boðn- ar velkomnar pá Planen.“ Hvenær? „27. mai klukkan 17.00.“ Hvernig er stemningin á ferðalögum? „Hún er frábær. Þetta eru þvílíkar skemmtiferðir. Við höfum upplifað að syngja fyrir fulla Scdi og fimm manns. En við erum fyrst og fremst að þessu til að skemmta okk- ur og ef einhverjir fleiri hafa gaman af þá er það plús. Við skemmtum okkur saman, þetta eru ægilega fínar gellur.“ Þetta eru engar svallferðir? „Nei, þetta eru bara skemmtiferðir. En það má nú stundum skála eftir góða tónleika, við erum alls ekki heilagar." Fer Tómas R. með ykkur? „Já, já. Hann er meira að segja með í uppskriftabók- inni sem við gáfum út. Hann er heiðursleynigestur." Það hlýtur að vera ágætt að vera karlmaður i ferða- lagi með hundrað konum? „Já, honum hefur held ég aldrei leiðst." Ekki þunnur vefnaður Það er söngur daginn út og inn hjá Jóhönnu. Hún stýrir fjölmörgum kórum og syngur auk þess í Trio Latino með Tómasi R. og Aðalheiði Þorsteinsdóttur. Hún verður samt aldrei leið á þessu. „Ég fæ sem betur fer þriggja mánaða nauðsynlega hvíld á sumrin. Þá er gott að fara norður á Strandir, til Ítalíu eða á ísafjörö. Mér finnst gott að hvíla mig því þá fæ ég nýjar hugmyndir. Þannig held ég mér gangandi." Hugsarðu kórinn eins og hljóðfæri sem þú leikur á sem stjórnandi? „Fyrst reyndi ég bara að fá þessar hræddu konur til að opna munninn og syngja. Það er kannski fyrsta sinn núna sem ég er farinn að geta leikiö mér með kórinn. Ég finn stóran mun frá ári til árs. Þær eru að verða ansi „Stcmningin er frábær. Þetta eru þvílíkar skemmti- ferðir. Við höfum upplifað að syngja fyrir fulla sali og fiinm manns. En við erum fyrst og fremst að þessu til að skemmta okkur og ef einliverjir fleiri hafa gam- an af þá er það plús. Við skemmtum okkur saman, þetta eru ægilega fínar gellur," segir Jóhanna V. Þór- hallsdóttir, stjórnandi Léttsveitar Reykjavíkur, sem heldur tvenna tónleika í dag í Ými en leggur svo land undir fót. DV-mynd E.Ól. góðar. Flestar hafa þær verið frá upphafi í kórnum þannig að það er ómögulegt að koma þeim úr honum.“ Maður getur ímyndað sér að þetta sé hljóðfæri með 120 nótum sem allar hafa sjálfstæðan vilja. „Já, þetta er ekki þunnur vefnaður, þetta er lopa- peysa.“ -sm Gerðu góð kaup! Sama verð og í fyrra! Frábært úrval af arna Hágæða hjól frá Fyrir6-8ára Trek Mountain Cub 12" Litir Fjólubláttog dökkblátt Verð kr. 14.054,- m.brettum Trek Mountain Cub 16" Litir Fjólublátt, bleikt, blátt, rautt Verð kr. 15.659,- m.brettum Trek Mountain Uon 30" Litir Fjólublátt bleikt rautt/grátt blátt Verð kr. 16.461,- m.brettum Trek Mountain Uon 60" 6 gíra Litir Fjólublátt, blátt Verð kr. 23.421,- ORNINNP' STOFNAÐ 1925 Skeifunni 11, Sími 588 9890 Söluaöilar Hjóliö, Seltjamamesi - Músík og sport, Hafnarfiröi Útisport, Keflavík - Hjólabær, Selfossi - Sportver, Akureyri Byggingavóruversl.Sauöárkr. - Olíufélag Crtvegsmanna, Isafiröi Eöalsport, Vestmannaeyjum - Pípó, Ákranesi Opið laugard. 10-16 Visa- og Euroraðgr, | www.orninn.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.