Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Blaðsíða 67
LAUGARDACUR II. MAÍ 2002 HeIqcirt>lctö I>V 67 t \HV DV-Sport telur nú dagana þar til Símadeildin hefst 20. maí næstkomandi. Fram að því munum við birta spá blaða- manna DV-Sport um lokastöð- una í haust og í dag er komið að 7. sætinu. Stofnað: 1945 Spáin fyrir arið HeimavöUur: Hásteinsvöllur. Tekur 3000 manns. Stæði í grasbekku og á hólnum. íslandsmeistaratitlar: 3 (1979, 1997 og 1998. Bikarmeistaratitlar: 4 (1968, 1972, 1981 og 1998). Stœrsti sigur i tiu liöa efstu deild: 8-1 gegn Val 1995. Stœrsta tap i tiu liöa efstu deild: 1-7 fyrir lA 1992 og 0-6 fyrir Víking 1991. Flestir leikir i efstu deild': Þórður Hallgrímsson 189, Ingi Sigurðsson 181 og Tómas Pálsson 177. Flest mörk i efstu deild: Steingrímur Jóhannesson 62, Sigurlás Þorleifsson 60 og Tómas Pálsson 55. Árangur i efstu deild: 493 leikir, 209 sigurleikir, 102 jafntefli og 182 töp. Markatalan er 817-757. Eyjamenn lenda í sjöunda sætinu: Stór skörð höggvin DV-Sport bíður spennt eftir að ís- landsmótið í knattspyrnu hefjist að nýju og mun í næstu sex tölublöðum telja niöur fram að móti. Blaðamenn DV-Sport hafa spáð og spekúlerað í styrkleika og veikleika liðanna og út úr þeim rannsóknum hefur veriö búin til spá DV-Sport fyrir sumarið. Fram að móti mun- um við birta hana, eitt lið bætist við á hverj- um degi. Við hefjum leikinn á botnsætinu og endum síðan á því að kynna það lið sem við teljum að muni tróna á toppi Símadeildar karla þeg- ar flautað verður til leiksloka í haust. Við metum nokkra þætti hjá hverju liði og gefum einkunn á bilinu 1 til 6 eins og sjá má sem hlið á ten- ingi hér á síðunni. í sjöunda sætinu hjá okkur eru Eyjamenn. Þeir hafa verið einstaklega farsæl- ir á síðustu árrnn og ekki lent neðar en í fjórða sæti undanfarin sjö ár. Sá árangur sýnir mikinn stöðugleika og styrk. í ár er hins vegar margt breytt. Hlynur Stefánsson, sem verið hefúr stoð liðsins og stytta undanfar- in ár, ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðasta keppnistímabil og erfitt er að sjá hvemig Eyjamenn ætla sér að fylla hans skarð. Það mun koma til með að mæða mikið á Kjartani Antonssyni og þarf hann að stíga fram sem leiðtogi liðsins og leiða vamarleikinn sem hefúr verið helsti styrkleikinn hjá Eyjamönnum á síðustu árum. Sóknarmenn liðs- ins eru afskaplega ungir að árum. Tómas Ingi Tómasson, sá gamli refur, gaf liðinu mikið sjálfstraust og allt annað yfirbragð f fyrra þegar hann spil- aði en ekki þykir lík- legt að hann muni spila með á þessu keppnistimabili vegna erfiðra meiðsla sem hann átt við að glíma. Meðalaldur sóknarmanna liðsins er um 20 ár og þrátt fyrir að enginn ef- ist um hæfileika Gunnars Heiðars Þorvaldssonar er sennilega til of mik- ils ætlast að biöja hann um að axla þá ábyrgð að leiða sóknarleikinn einn. Eyjamenn hafa leitað dyrum og dyngjum að leikmönnum til að styrkja liðið í vetur en ekki haft er- indi sem erfiði. Til stendur að semja við skoskan kantmann og verður honum væntanlega tekið fagnandi af hópi sem er bæði ungur að árum og heldur þunnskipaður mönnum með reynslu af efstu deild. -ósk/ÓÓJ Síðustu átta ár: 1994: . 1995: . 1996: . .. 4. sæti í úrvdeild 1997: . 1998: . .. 1. sæti í úrvdeild 1999: . 2000: . 2001: . Hvaö segja Eviamenn um spá DV-Sport „Þessi spá kemur mér ekki á óvart og mér fmnst hún mjög eðlileg. Okkur var spáö góðu gengi i fyrra þó við værum með óreyndan mannskap og mið- að við gengi okkar í deildabikarnum væri óeðlilegt að ætla að við förum að gera einhverjar rósir í sumar. Undirbúningstímabilið hefur verið erfitt. Það hefur verið mikið um meiðsli en við eigum væntanlega eftir að styrkja lið- ið töluvert fyrir sumariö. Spá er bara spá og við ætlum okkur auðvitað að vera ofar en í 7. sæti sem okkur er spáð,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV. Atli Jóhannsson kom skemmtllega á óvart meó ÍBV i fyrra og var ' einn besti ungi leikmaöur deildarinnar. Markið Birkir Kristinsson hefur + veriö einn af bestu mark- vörðum landsins í mörg ár. Frábær á línunni og í stöðunni einn gegn einum. Mikill karakter sem hefur komist langt með þrotlausri vinnu. Helsti veikleiki Birkis eru fyrirgjafir. Hann á það til — að frjósa á línunni þegar boltar koma fyrir. Hann hefur einnig átt i erfið- leikum með markspym- ur. Vörnin Kjartan Antonsson er + einn albesti vamarmaður landsins. Hann og Páll Hjarðar em stórir og sterk- ir og ljóst að lið vinna ekki marga skailabolta gegn þeim félögum. Brotthvarf Hlyns skilur _ eftir sig skarð sem er vand- fyllt. Enginn vamarmann- anna er sterkur á bolta auk þess sem hætt er við að vömin verði leiðtoga- laus þvi engimi þessara leikmanna virðist geta tekið við af Hlyni. ISpÖrt sPáir * Símadeild karla í sumar: Deildabikarinn: 16. febrúar.........Reykjaneshöll ÍBV-Keflavík ................1-1 Ingi Sigurðsson. Keflavík vann 3-0 þar sem ÍBV notaði ólöglegan leikmann. 17. febrúar..........Reykjaneshöll ÍBV-KA.........................1-3 Ingi Sigurðsson. KA vann 3-0 þar sem ÍBV notaði ólöglegan leikmann. 2. mars..............Reykjaneshöll ÍBV-Grindavik..................1-3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson. 3. mars..............Reykjaneshöll iBV-Dalvik ....................5-3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 3, Atli Jóhannsson 2. 7. apríl.....Gervigras í Laugardal ÍBV-Fram ......................0-0 13. apríl .... Gervigras í Laugardal ÍBV-Þróttur....................2-1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Pétur Runólfsson. 21. apríl .... Gervigras í Laugardal iBV-Valur......................0-3 ÍBV lék sjö leiki, vann tvo, gerði tvö jafntefli og tapaði þremur. Markverðir: I. Birkir Kristinsson.....38 ára 12. Gunnar Bergur Runólfsson 21 árs Varnarmenn: 4. Hjalti Jóhannesson .....28 ára 5. Einar H. Sigurðsson ....19 ára 6. Kjartan Antonsson......26 ára 19. Unnar Hólm Ólafsson ... . 21 árs 20. Páll Hjaröar..........23 ára 21. Jón Helgi Gíslason....22 ára Miðiumenn: 7. Atli Jóhannsson...........20 ára 8. Ingi Sigurðsson........34 ára 9. Hjalti Jónsson.........23 ára 10. Bjamólfur Lámsson.....26 ára II. Olgeir Sigurðsson.....20 ára 14. Bjami Geir Viöarsson ... 23 ára 15. Andri Ólafsson........17 ára Sóknarmenn: 13. Óskar Jósúason........23 ára 18. Pétur Runólfsson ......21 árs 23. Gunnar H. Þorvaldsson . . 20 ára 28. Tómas Reynisson.........21 árs Þiálfari: Njáll Eiðsson.............44 ára Farnir: Hlynur Stefánsson, hættur, Aleksandar Bic í Framherja, Tommy Schram til Englands. Komnir: Enginn. Leikmanna- hópurinn Gengi IBV í vormótunum Miðjan Atli Jóhannsson kom mjög sterkur inn í iBV-liðið í _1_ fyrra, Ingi Sigurðsson og Hjalti Jónsson eru baráttu- jaxlar og Bjarnólfur Lárusson dreifir spilinu vel þegar hann er með einbeit- inguna í lagi. _ Ingi er orðinn gamall og hann og Hjalti era gjamir á að meiðast. Bjamólfur er oft á tíðum meira með hugann við að komast í at- vinnumennsku á ný í stað þess að einbeita sér að því að spila með ÍBV. Sóknin Gunnar Heiöar Þorvalds- -{- son er mjög efnilegur fram- herji sem hagnaöist mikið á því að spila með Tómasi Inga Tómassyni í fyrra. Aörir sóknar- menn liðsins eru ungir að árum og öðlast dýrmæta reynslu í sumar. Of mikil ábyrgö á of mörg- _ um ungum herðum. Reynsluleysi háir þeim og ef mörkin koma ekki strax getur pressan orðiö þeim þungur baggi að bera. Bekkurinn Ungu strákarnir öðlast dýr- mæta reynslu sem kemur -p til með hjálpa liðinu seinna meir. Fá tækifæri til að sýna hvað í þeim býr fyrr en raunin væri hjá öðmm liðum. Enginn þessara ungu leik- — manna hefur nokkra reynslu af efstu deild. Þunnur leikmannahópur gerir það að verkum að mikil pressa verður á ung- um herðum ef reyndari leikmenn liðsins taka upp á þvf að meiðast. ------------HJ r Þjálfarinn Njáll Eiösson hefur , þriggja ára reynslu sem T þjálfari í efstu deild. Hann gerði frábæra hluti með Eyjaliðið í fyrra og hefur sýnt aö hann getur náð því besta út úr leik- mönnum. Hann hefur lagt áherslu á vel skipulagðan vamarleik sem hefur heppnast ágætlega. Vel skipulagður, duglegur og metnaðarfullur. __ Njáll hefur aldrei unnið neitt á sínum þjálfaraferli. Sóknarleikurinn hjá liðum undir hans stjóm hefur oft á tíðum ekki verið neitt augnayndi enda áherslan á öðrum sviðum. __________________SL Ad aukl Eyjamenn hafa skapað sér -L sess sem eitt af toppliöum íslenskrar knattspymu með frábærum árangri undanfarin ár. Þeir hafa veriö dug- legir við að ala upp góða knatt- spymumenn. Þeir virðast alltaf eiga peninga til að styrkja liðið þegar þörf þykir, jafnvel þótt knattspymudeild- in standi ekki vel peningalega. Há- steinsvöllur hefur reynst þeim gífur- lega drjúgur og það em fá lið sem fara þaðan með sigur. Hinn víðfrægi liðsandi Eyjamanna deyr ekki svo glatt og hann mun verða einn af styrkjum liðsins í sumar. Áhugi heimamanna á — leikjum liðsins minnkaði á síðasta ári miðað við árin á undan, jafnvel þótt liðið hafnaði í öðra sæti. Það er áhyggjuefni fyrir lið eins og IBV sem hefur notið dyggrar hjálpar stuðnings- manna sinna um land allt. ISport -stig: 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.