Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 54
54
Helgarblaö DV LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002
!
í
Umsjón
Njáll
Gunnlaugsson
jh
BMW318I
Vél: 2ja lítra Valvetronic bensínvél
Rúmtak: 1995 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
Þiöppun: 10,2:1
Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur með valskiptinqu
UNDIRVAGN
Fjöðrun framan: Sjálfstæð MacPherson með Antidive
Fjöðrun aftan: Sjálfstæð snerilfjöðrun/jafnvæqisstanqir
Bremsur: Diskar framan oq aftan, ABS, EBV, CBC, DSC
Dekkjastærð:________________________________205/55 R16
YTRÍ TÖLUR
Lenqd/breidd/hæð: 4471/1739/1415 mm
Hiólahaf/veqhæð: 2725/135 mm
Beyqjuradíus: 10,5 metrar
INNRI TÖLUR
Farþeqar með ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 5/6
Faranqursrými: 440 lítrar
HAGKVÆMNI
Eyðsla á 100 km: 8,1 lítri
Eldsneytisqeymir: 63 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn: 2/8 ár
Verð beinskiptur. 3.240.000 kr.
Verð siálfskiptur. 3.490.000 kr.
Umboð: B&L
Staðalbúnaður: 6 öryggispúðar, CBC stöðugleikastýring,
stillanleg spólvörn, aðdráttarstýri, fjölstillanlegt fram-
sæti, hraðastýrðar rúðuþurrkur, rafknúnar rúður að fram-
an og hliðarspeglar, aðgerðastýri með skriðstilli, aksturs-
minni, ASC+T spólvörn, BMW útvarp og geislaspilari, akst-
urstölva, fjarstýrðar samlæsinqar.
SAMANBURÐARTÖLUR
Hestöfl/sn: 143/6000
Snúninqsvæqi/sn: 200 Nm/3750
Hröðun 0-100 km: 10,2 sek.
Hámarkshraði: 214 km/klst.
Eiqin þyngd: 1425 kq
UTAN UR HEIMI
opnu þaki
Hraðskreiðasti Mercedes
allra tíma er nú orðinn
topplaus. Honum er œtl-
að að verða hraðskreið-
asti og dýrasti opni sport-
bíll í heimi en ó myndinni
má sjá CLK-GTR í þeirri út-
gáfu sem er lögleg á
götuna
%
Oryggið
Öryggispúðar í bílum eru
ekki eins öruggir og hing-
að til hefur verið talið
samkvœmt nýlegri
bandarískri rannsókn sem
birtist nýlega í Medical
Journal. Skoðuð voru
mörg þúsund dauðaslys
á tíu ára tímabili og kom
þá í Ijós að öryggispúðar
þótt segja megi að hér
sé kominn Le Mans-
kappakstursbíll í öllu sínu
veldi. Sérstakar hliðarhlíf-
ar beina vindi frá öku-
manns- og farþegarými
og loftinntök þar fyrir aft-
an sjúga kœliloft inn á
6,9 lítra V12-vélina. Hún
er lítil 612 hestöfl og skilar
775 Nm af togi og œtti
að þeyta þílnum í
hundraðið á 3,8 sekúnd-
um. Áœtlað er að hann
nái hátt 1350 km hraða
en aðeins sjö verða smíð-
Ir til að byrja með.
koma aðeins í veg fyrir
dauðaslys í um 8% tilfella.
Rannsóknir hafa áður
bent til að hlutfallið vœri
hœrra, eða 14%. í sömu
rannsókn kom hins vegar
í Ijós að öryggisbelti eru
mun betri í að bjarga
mannslífum en hœttan á
dauðalysi minnkar um
65% með notkun þeirra.
Elnnig kom í Ijós að börn
upp að átta ára aldri eru
hvorki meira né minna
um 40% öruggari í barna-
bílstólum.
MímuGESJonEm ,
Lágmúla 8 • Sfmi 530 2800
j
Reynsíuakstur nr. 684
Góður akstursbíll
gerður enn betri
með nýjum búnaði
Kostir: Meira afl, spólvörn, aksturseiginleikar
Gallar: Viðbragð á bensíngjöf, vantar glasastatíf
BMW 3-ltna er komin til landsins með örlítið breyttu
útliti en það sem er merkilegra við bílinn er ný Val-
vetronic-vél með nýrri spólvörn. Einnig kemur hann
nú með nýrri valskiptingu og betur búinn, til dæmis
verður DSC skrikvöm nú staðalbúnaður. Þar fyrir
utan er BMW alltaf skemmtilegur akstursbíll og því
sjálfsagt að prófa þennan nýja búnað betur.
Klassískur að innan
Að innan er bíllinn innréttaður eins og BMW er ein-
um lagið. Öll efni í innréttingu eru fyrsta flokks og röð-
un stjómtækja skipuleg og vel staðsett. Stýri er með að-
drætti og hæðarstilling á sætum tryggir bestu stöðu
bak við stýrið. Framsætin sjálf eru stór og breiö og höf-
uðpúði stór og þægilegur. Stýrið sjálft er með stjórn-,
tökkum fyrir hljómtæki og skriðstilli sem er einnig
þægilegt að nota. Hljómtækin sjálf eru hefðbundin
BMW tæki, jafnvel nokkuð gamaldags en áðumefndir
stjómtakkar gera þar gæfumuninn. Gírstöng er einnig
þægilega staðsett og með færslu til hægri getur öku-
maður sjálfur stjórnað hvenær bíllinn skiptir sér.
Plássið í aftursætum er einnig nokkuð gott þótt það sé
á mörkunum að þrír fullorðnir komist þar fyrir svo vel
sé. Skottið rúmar 440 lítra sem er allgott en afturendi
bílsins er frekar hár og það ætti því að ráða við hærri
hluti, eins og bamavagna o.þ.h.
Frábær akstursbíll en...
Þótt sjálfskiptingin sé í sjálfu sér góð og ekkert út á
hana sjálfa að setja getur maður ekki annað en hugsað
um hversu miklu skemmtilegri bíllinn yrði beinskipt-
ur. Viðbragðið verður tilfmnanlega minna með sjálf-
skiptingunni frá rafstýrðri bensíngjöfinni, sem er
hreinasta synd í jafn sportlegum bíl með afturdrifi. Að
öðru leyti er hreinasta unun að keyra bilinn. Hann
svarar strax í stýri og liggur sérlega vel enda þyngdar-
dreifingin nánast hnífjöfn milli hjóla. Bíllinn kemur
þar að auki á alvöru-Pirelli-dekkjum og er eins vara-
dekk á álfelgu í skottinu. Nýja vélin í bílnum er
svokölluð Valvetronic með tímastýrðum ventlabúnaði
sem hámarkar afl og minnkar eyðslu. Viðbragðið frá
henni er gott þegar bensíngjöfin hefur tekiö við sér.