Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 56
HeÍQarbladf lO'V LAUGARDACUR IS. MAÍ 2002
♦ ^ 56
Umsjón
Njáll
Gunnlaugsson
MERCEDES-BENZ E 240
Vél: 2,6 lítra V6 bensínvél
Rúmtak: 2597 rúmsentímetrar
Ventlar: 24
Þjöppun: 10,5:1
Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur
UNDIRVAGN
Fjöðrun framan:
Fjöqurra arma sjálfstæð
Fjöðrun aftan:
Fjölarma sjálfstæð á aukaqrind
Bremsur:
Diskar framan oq aftan, ABS, BAS, ESP
Dekkjastaerð:
205/60 R16
YTR! TOLUR
Lenqd/breidd/hæð:
4818/1822/1452 mm
Hjólahaf/veqhæð:
2854/145 mm
Beyqjuradius:
11,4 metrar
INNRI TÖLUR
Farþeqar með ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 5/6
Faranqursrými: 540 lítrar
HAGKVÆMNI
Eyðsla á 100 km: 10,7 lítrar
Eldsnevtisqevmir: 65 lítrar
' Ábyrqð/ryðvörn: 2/30 ár
í Verð frá. 5.445.000 kr.
Umboð: Ræsir hf.
StaðalbúnaðurRafdrifnar rúður, rafdrifnirog upphitað-
ir útispeglar, aksturstölva með útihitamæli, útvarp/geisla-
spilari með 8 hátölurum og 6 diska hleðslu, samlæsingar,
6 öyggispúðar, upphituð framsæti, rafdrifið ökumanns-
sæti, stillanlegir höfuðpúðar, sjálfstillandi miðstöð með
loftkaelingu, fjölstillingar í stýri, dropateljari á framrúðu,
viðarklæðning, þokuljós, 16 tommu álfelgur. skriðstillir
með hraðatakmarkara, ESP-skrikvörn og spólvörn, ABS-
hemlakerfi, BAS-hemlaflýtir, upplýsingaskjár í mælaborði,
hlífðarpanna.
Aukabúnaður í reynslubíl: Glitlakk.topplúga, hand-
frjáls búnaður fyrir farsíma (Nokia 6210), hliðaröryggis-
púðar í aftursætum, sjálfskiptinq, Eleqance útlitspakki.
SAMANBURÐARTOLUR
Hestöfl/sn.:
177/5700
Snúninqsvæqi/sn.:
240 Nm/4500
Hröðun 0-100 km:
8,9 sek.
Hámarkshraði:
236 km/klst.
Eiqin þynqd:
1590 kq
UTAN UR HEIMI
NýHútUtS-3
Saab hefur birt opinber-
lega myndir af fyrsta
stallbak sínum er kallast
mun 9-3 Sport Sedan.
Saab bindur miklar vœnt-
ingar viö þennan bll og
honum er hrósað mikið,
sérstaklega fyrir betri
aksturseiginleika. Bíllinn
hefur meira hjólhaf en
áður og er því rýmri en
fyrr. Hann fœr miklð af
nýjum hlutum eins og
nýju álvélina með for-
þjöppunni og nýja gir-
kassa, fimm þrepa sjálf-
skiptan og sex gíra hand-
skiptan. Hönnun í mœla-
borði notast mikið við
Ijósleiðara og kalla þeir
kerfið „Infotainment".
Auk þess fœr hann það
besta sem Saab getur
boðið upp á í öryggi,
aðra kynslóð SAHR höf-
uðpúða með hnykkvörn
og tveggja stiga ör-
yggispúða.
Ný Micra
Ný Nissan Micra er þegar
komin í sölu heima í Jap-
an en er ekki vœntanleg
I sðlu á Evrópumarkaði
fyrr en vor eða sumar
2003. Nýja Micran nýtur
að nokkru eignarhalds
Renault á Nissan og
samnýtingu á ýmsum
hlutun og hönnun
þannig að ýmislegt verð-
ur sameiginlegt með nýj-
um Nissari Mlcra og nýj-
um Renault Clio. Fyrstu
dómar um Micra segja
að hann sé liprari og hafi
betri aksturseiginleika en
fyrirrennarinn. Hann er
líka með sérdeilis magn-
aðan öryggisbúnað,
m.a. sex líknarbelgi.
Sérlega þægilegur
og ökumannsvænn
Kostir: Fjöðrun, þœgindi, skriðstillir, búnaður
Gallar: Útsýni í hliðarspegli hœgra megin, seinvirk
bensíngjöf
Nýja E-línan var frumsýnd á bílasýningunni i Brussel i
byrjun ársins en hönnun bflsins tók fjögur ár og var sú
dýrasta á nýjum bíl hingað til. Bfllinn er fullur af
tækninýjungum og sumar þeirra sjást nú í fyrsta skipti í
fjöldaframleiddum bíl, eins og rafstýrt SBC-vökvabremsu-
kerfi. Einnig er hægt að fá í bflinn nýja, fullkomna vökva-
fjöðrun, sem kallast Airmatic DC. DV-bflar fengu einn vel
búinn til reynsluaksturs og fóru víða á honum.
Með sportlegra yfirbragð
Ytri hönnun bílsins þykir sportlegri en áður. Tvöfóldu
kringlóttu ljósin, sem fyrst sáust í E-línunni árið 1995 og
fyrst voru kynnt á tilraunabfl í Genf árið 1993, hafa ver-
ið endurhönnuð og hallast nú meira aftur sem undir-
strikar þá sportlegu línu sem er gegnumgangandi í bfln-
um. Sama er að segja um innréttingu sem er í senn þægi-
leg í alla staði og með virðulegum svip. Rými í bflnum er
gott í alla staði, einnig í farangursrými sem tekur 540
lítra. Útsýni er gott og ekki sakar að sjá aftur Benz-
stjörnuna rísa upp frá griflinu. Hið eina sem heftir út-
sýnið eru hátónahátalarar fyrir framan hliðarspegla en
hátalarinn hægra megin skyggir aðeins á útsýni í spegl-
inum þeim megin. Eins taka höfuðpúðar í aftursætum
nokkurt pláss en ef ökumaður vifl fá meira útsýni getur
hann fellt þá niður með því einu að ýta á takka í miðju-
stokki og falla þeir þá aftur. Sætin í bílnum eru sérlega
þægfleg og með rafstiflingum frammi í á öllu nema
færslu fram og aftur. Einnig eru þau upphituð og með
fjölstiflanlegum höfuðpúðum. Stýri er með aðdrætti svo
að kjörstaða bak við það er möguleg hverjum sem er. Á
því eru einnig fjölstillingar sem stjórna aksturstölvu,
hljómtækjum og GSM-síma. Skriðstfllinum er stjórnað
frá pinna vinstra megin við stýri og er hann sá besti sem
undirritaður hefur prófað. Stýringin er einfóld og á staf-
rænu mælaborðinu birtast strax upplýsingar um þann
hraða sem er stifltur inn og kvarði í hraðamælinum
sjáflúm. Einnig er hægt að stifla hraðatakmarkara sem
hleypir þá bílnum ekki upp fyrir ákveðinn hraða sem
getur komið sér vel þegar lána þarf unglingnum bflinn.
Að auki má fá radar við skriðstiflinn sem heldur ákveð-
inni fjarlægð í næsta bíl ef hann fer hægar yfir.