Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 59
LAUGARDACUR IS. MAl' 2002
Helgcirhloö 30'V
59
- , j - - ^ i**-Í!í%%KW&gfífrS:^'
BRÉF-SKUTLA
Nú er sumarið komið og gaman að láta skutlurnar svífa um loftin blá! Þetta
er einföld gerð og í hana þarf aðeins ferningslaga pappírsblað. Brjótið eins og
myndirnar sýna og þá getur skutlan hafið sig til flugs.
Góða skemmtun!
KAKA
LANGÖMMU
1/2 bolli smjörlíki
(u.þ.b. 100 g)
1 3/4 bolli hveiti
11/2 bolli sykur
1/2 bolli kakó
1 tsk. matarsódi
1 tappi vanillu-
dropar
2 egg
3/4 bolli mjólk
1/2 tsk. salt
Hrærið allt sam-
an, setjið í form
og bakið í 45-50
mín. við 175°C.
Þessi kaka er
mjög mjúk og
góð. Krem er sett
ofan á hana þegar
hún er orðin köld
og er það svona:
1 bolli flórsykur
smá kakó
smá kaffi
100 g smjörlíki
1 eggjarauða
Öllu hrært vel
saman og smurt
yfir kökuna.
Verði ykkur að
góðu!
Ari Freyr ísfeld
Óskarsson,
Álfheimum 40,
104 Reykjavík.
JAKOB FER í SUND
Það var einu sinni strákur að nafni Jak-
ob. Hann var sex ára. Einn daginn fór
Jakob að veiða með pabba sínum. Það
var sólskin og blíða og sjórinn var slétt-
ur og blár. Allt í einu varð smá óhapp.
Jakob dat um veiðistöngina og út í
vatnið. Pabbi stakk sér út í og bjargaði
Jakobi.
Eftir þetta var Jakob vatnshræddur.
Daginn eftir var síminn til Jakobs. Það
voru góðar vinkonur hans, þær Lísa og
Klara sem buðu honum í sund. í fyrstu
vildi hann ekki fara en eftir smá stund
samþykkti Jakob það.
Þegar komið var í sundhöllina, fór Jak-
ob í sundfötin og út í laug. Hann var
BLAÐBERINN
Elsa Katrín, 7 ára, teiknaði
þessa frábæru mynd af blað-
bera DV og hundinum Snata. ^
Tinna Jökuls-
dóttir, Flögusíðu 1,
603 Akureyri, er
hress 12 ára stelpa
sem vill gjarnan
eignast pennavini
á aldrinum 11-13
ára. Áhugamál eru
mjög mörg, of
mörg til að telja
þau upp hérna -
en aðallega: úti-
vist, gæludýr,
ferðalög, límmiðar
og fleira. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef
hægt er. Svarar
öllum bréfum.
Vonandi fyllist
póstkassinn strax!
Elín Sólborg Eyj-
ólfsdóttir, fædd 18.
nóv. '92 (gleymdi
að skrifa heimilis-
fang) en bréfið er
frá Vestmannaeyj-
um. Elín, þú verður
að skrifa aftur.
Afmæliskort sem bárust nýverið:
Til hamingju með afmælið!
ÁSTA-BARÐI-BÖRNIN.
Til hamingju með afmælið!
MARTA-VALDI-DÓRA.
Til hamingju með afmælið!
BARÐI-ÁSTA-BÖRNIN.
Til hamingju með afmælið!
VALDI-MARTA-DÓRA.
Herdís Gunnarsdóttir,
Stapavegi 7,
Vestmannaevium.