Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 61
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002
Helcjorblaö ‘DV
Aðalheiður Halldórsdóttir
61
verður sjötíu og fimm ára annan í hvítasunnu
Aðalheiður Halldórsdóttir húsmóðir, Kóngsbakka
16, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára annan í
hvítasunnu.
Starfsferill
Aðalheiður fæddist við Laugaveginn í Reykjavík.
Hún flutti í Skerjafjörðinn er hún var tólf ára og inn
í Sogamýri tveimur árum síðar en var síðan búsett
við Nökkvavoginn 1943-52.
Aðalheiður var sjö ára er hún fór fyrst í vist á
sumrin, fór að vinna við heimilisstörf er hún var tólf
ára og starfaði við framreiðslu á veitingahúsum
1947-52.
Aðalheiður kynntist manni sínum 1951 en þau
fluttu að Meiðastöðum í Garði 1952 þar sem þau unnu
fyrst við salfiskverkun hjá tengdaforeldrum
Aðalheiðar. Þau létu síðan reisa frystihús þar 1966 og
starfræktu það til 1972. Þá fluttu þau í Garðabæ en
Aðalheiður vann á Vífiisstöðum 1974-78 og við
Landspítalann 1978-86 er hún lét af störfum sökum
heilsubrests.
Fjölskylda
Aðalheiður giftist 28.9. 1957 Eiríki Guðlaugssyni, f.
27.4. 1926, d. 19.10. 1978, fiskverkanda og bifreiðar-
stjóra. Hann var sonur Guðlaúgs Eiríkssenar og
Bjargar Erlendsdóttur á Meiðastöðum í Garði.
Börn Aðalheiöar og Eiríks eru Hafdís Eiríksdóttir,
f. 19.11. 1952, d. 15.5. 1953; Guðrún Hafdís Eiríksdóttir,
f. 7.6.1957, meinatæknir, en maður hennar er Gunnar
Magnús Gunnarsson og eru böm þeirra Gunnhildur
Sara, f. 30.1. 1978, og Daði, f. 19.8. 1983; Guðlaugur
Eiríksson, f. 16.4. 1959, en kona hans er Dagmar
Hallgrímsdóttir og eru börn þeirra Aðalheiður Ósk, f.
5.10. 1986, og Eiríkur, f. 9.9. 1989, en dóttir Dagmarar
og stjúpdóttir Guðlaugs er Ellen, f. 9.7. 1973; Ásta
Ellen Eiríksdóttir, f. 14.9. 1963, en maður hennar er
Ólafur Einar Júlíusson og eru börn þeirra
Heiðmundur Einar, f. 1.12.1992, Margrét Eydís, f. 10.1.
Heimir Már Pétursson
verður fertugur annan í hvítasunnu
Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flug-
málastjómar Islands, Nýlendugötu 19B, Reykjavík,
verður fertugur annan í hvítasunnu.
StarfsferiII
Heimir fæddist á ísafirði og ólst þar upp, í
Reykjavík og á Kópaskeri. Hann lauk stúdentsprófi
frá FÁ 1985, og BA-prófi í stjórnmálafræði og fjöl-
miðlafræði 1989.
Heimir var blaðamaður á Þjóðviljanum 1988-90,
ritstjóri Héraðsfréttablaðsins Norðurlands á Akur-
eyri 1990-91, fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni
1991-96 og hluta árs 2000, framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins 1996-99, framkvæmdastjóri
Hyper Web Solutions 1999, verkefnisstjóri Landa-
fundanefndar fyrir siglingu íslendings til Ameríku
2000 og hefur verið upplýsingafulltrúi Flugmála-
stjórnar íslands frá 2001.
Heimir hefur verið framkvæmdastjóri Hinsegin
daga í Reykjavík frá 2000.
Heimir var búsettur á ísaflrði 1962-76, í Reykja-
vík 1976-77, á Kópaskeri 1977-80 og hefur verið bú-
settur í Reykjavik frá 1982.
Eftir Heimi hafa komið út bækumar Dropi í haf-
ið, ljóðabók, 1980, Sólin sest og sólin kemur upp,
ljóðabók, 1981, Ljóður, ljóð í dagblaðsformi, 1991. Þá
á hann texta á um tíu hljómplötum Rúnars Þórs.
Fjölskylda
Maki Heimis er Jean
Francois Tessier, f. 22.7. 1979,
námsmaður. Foreldrar Jeans
Francois: Regent Tessier og
Lise Tessier, Montreal, Kanada.
Systkini Heimis eru Óskar
Geir Pétursson, f. 1.9. 1952, sjó-
maður, Reykjavík; Rúnar Þór
Pétursson, f. 21.9. 1953, tónlist-
armaður, Reykjavík; Guð-
munda Jóna Pétursdóttir, f.
13.9. 1958, verkakona, Reykjavík
Foreldrar Heimis: Pétur Geir Helgason útgerðar-
maður og Ósk Norðíjörð Óskarsdóttir verkakona.
Ætt
Pétur Geir er sonur Helga Benediktssonar útgerð-
armanns og Jónínu Pétursdóttur en alinn upp af
systur hennar, Guðmundu Jónu Pétursdóttur, mat-
ráðskonu á Ísafírði.
Ósk Norðfjörö er fædd í Hrísey, dóttir Óskars
Kristjánssonar, útgerðarmanns í Hrísey, seinna
verkamanns í Reykjavík, og Salbjargar Ingibjargar
Jónatansdóttur verkakonu.
Foreldrar Heimis voru lengst af búsettir á ísa-
firði en nú á Kópaskeri.
Stefán Ö. Kristjánsson
verður sextugur á hvítasunnudag
Stefán Öndólfur Kristjánsson bifvélavirki, Máva-
braut la, Keflavík, verður sextugur á hvítasunnudag.
Starfsferill
Stefán fæddist í Norðurhlíð í Aðaldal í Suður-Þing-
eyjarsýslu og ólst upp í Aðaldal. Hann stundaði sjó-
mennsku á yngri árum, starfaði hjá varnaliöinu við
bifvélaviðgerðir en hefur starfað hjá Olíufélaginu hf.
í Knútsstöð á Keflavíkurflugvelli í þrjátíu og sjö ár.
Stefán er mikill körfuboltaáhugamaður og fylgist
grimmt með sínum mönnum, er í framsóknarfélagi
Keflavíkur og var félagi í Lionsklúbbi Keflavíkur í
nokkur ár.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 10.10. 1964 Oddnýju J.B. Matta-
dóttur, f. 10.1. 1945, húsmóður. Hún er dóttir Matta
Ó. Ásbjörnssonar og Torfhildar Guðbrandsdóttur
frá Ólafsvík.
Börn Stefáns og Oddnýjar eru drengur, f. and-
vana 10.11. 1963; Guðbrandur J. Stefánsson, f. 7.1.
1965, íþróttakennari i Myllu-
bakkaskóla, kvæntur Lindu B.
Jósepsdóttur og eiga þau þrjú
börn; Matti Ó. Stefánsson, f.
21.6. 1966, nuddari, ' og er
unnusta hans Eva B. Eyþórs-
dóttir en hann á hann tvær
dætur og einn fósturson; Frið-
rika K. Stefánsdóttir, f. 5.6.
1971, frönskukennari, gift Sig-
urði Jónasi Eggertssyni og eiga
þau einn son.
Systkini Stefáns: Þórveig Kristjánsdóttir; Ásbjörn
H. Kristjánsson; Eydís Kristjánsdóttir; Valgerður
Kristjánsdóttir; Jakob Kristjánsson, og Agnar Krist-
jánsson.
Foreldrar Stefáns: Kristján Jónatansson, f. 6.12.
1891, d. 16.3. 1964, og Friðrika Stefánsdóttir, f. 18.4.
1908, d. 23.4. 1994.
Stefán verður að heiman á afmælisdaginn.
1995, Ragnar Eiríkur, f. 6.12.1996, og Charlotta Elín, f.
27.9. 2001.
Synir Aðalheiðar frá því áður eru Hafsteinn
Númason, f. 22.3. 1951, en hann er kjörsonur Núma
Björgvins Einarssonar bifreiðarstjóra og Valgerðar
Haraldsdóttur húsmóöur en kona Hafsteins er Berglind
Maria Kristjánsdóttir og eru börn þeirra Hrefna Björg, f.
10.8. 1987, d. í snjóflóðinu í Súðavík 16.1. 1995, Kristján
Númi, f. 7.10. 1990, d. í snjóflóðinu í Súðavík 16.1. 1995,
Aðalsteinn Rafn, f. 20.9. 1992, d. í snjóflóðinu í Súðavík
16.1.1995, íris Hrefna, f. 13.12. 1996, og Birta Hlín, f. 25.6.
1998, en dætur Hafsteins og fyrri konu hans, Salvarar
Jóhannesdóttur eru Jóhanna Helga, f. 21.11. 1976, og
Valgerður Björk, f. 29.9. 1980; Sigurður Lárusson, f. 10.4.
1944, en sambýliskona hans er Guðrún Greipsdóttir og
var hann áður kvæntur Guðrúnu Ólu Pétursdóttur og
eru börn þeirra Pétur, f. 16.12. 1966, og Elín, f. 15.1. 1973.
Systkini Aðalheiðar: Stefán Valberg, f. 22.8. 1920, d.
4.10. 1994; Oddrún Sigríður, f. 9.2. 1923; Ingimar
Þorsteinn, f. 2.10. 1925, d. 25.2. 1980; Óskar Hafsteinn, f.
19.6. 1929, d. 8.2. 1985; Hanna, f. 23.10. 1931; Oddgeir, f.
18.10. 1933.
Foreldrar Aðalheiðar voru Halldór Oddsson, f. 30.8.
1886, d. 9.10. 1982, verkamaður í Reykjavík, og
Sigríður Stefánsdóttir, f. 31.10. 1891, d. 16.5. 1964,
húsmóöir.
Aðalheiður tekur á móti gestum í Flugröst við
Nauthólsvík í Reykjavík á afmælisdaginn milli kl.
19.00 og 22.00.
Höfuðstafir
Þar alvotur stendur upp að
knjám, álfakroppurinn mjói
Að þessu sinni verður þátturinn svolítið léttgeggj-
aður, eins og stundum er sagt, það er komið vor og
vísurnar núna minna dálítið á það þegar kúnum er
hleypt út á vorin í fyrsta sinn. Ég vona að höfundarn-
ir fyrirgefi mér þessa samlíkingu og taki hana ekki of
bókstaflega, þetta er jú bara líking. En inni á leirlist-
anum hafa undanfarið birst vísur sem eru þannig
gerðar að hluti þeirra er fenginn að láni úr þekktum
vísum eða ljóðum sem hagyrðingar prjóna við. Útkom-
an verður oftar en ekki dálítið galgopaleg. Símon Jón
Jóhannsson gerði þessa þegar honum varð hugsað til
víkingaskipsins sem enginn vill kaupa. Hún er í anda
Jónasar:
Vísu ég um voriö syng
veturinn er búinn.
Enginn kaupir íslending
einan sér ogfúinn.
Sverrir Páll Erlendsson vísar beint í Egil Skalla-
Grímsson:
Ef aö vér einir veröum
eigi skulum vér titra,
upp skulum órum sveröum
úlfs tannlituöur glitra.
Þá er næst ein eftir Björn Ingólfsson. Hann segist
hafa fengið Tómas í lið með sér:
Meö bláum töflum upp má karla yngja,
því undralyfi fylgir slíkur kraftur
aö jafnvel gamlir símastaurar syngja
í sólskininu og veröa grœnir aftur.
Vér fengum sterkan fjanda,
flestir geröumsk veikir.
Undrask öglis landa
eik hví vér rom bleikir.
Og þessi kom frá Hallmundi Kristins-
syni:
Jón Ingvar Jónsson lenti í því að þurfa að skála
af einhverju tilefni á vinnustað sínum og þegar
heim kom varð hann aö gefa frúnni skýringu.
Hann leitaði til Þormóðs Bersasonar:
Umsjón
Rflgnar Ingi
Aðalsteinsson
Vorið góða grænt og hlýtt
græðir fjörið alveg óstöðvandi.
Allt er nú sem orðið nýtt:
Ærnar, kýr og Sveinn á Brúarlandi.
Að lokum ein eftir Kristján Eiríksson:
Fráleitt af öörum dreg ég dám
þótt drjúgt í lœtin hói
þar alvotur stendur upp aö knjám
álfakroppurinn mjói.