Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Side 2
2
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002
Fréttir DV
Utanríkisráðuneytið fær upplýst að varnarliðið hækkaði tilboð Eyktar eftir útboð:
Varnarliðið samþykkti
milljón dollara „mistök“
- ástæða til að samræma bandarískar og íslenskar reglur, segir ráðuneytið
Utanríkisráðuneytiö hefur fengið
það upplýst að útboðsdeild varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli sam-
þykkti að hækka tilboð byggingafyr-
irtækisins Eyktar ehf. um eina
milljón dollara (85 miiljónir króna),
eftir að tilboð þess og fleiri ís-
lenskra byggingaverktaka voru opn-
uð. Hér var um að ræða fram-
kvæmdir vegna endurbóta á fjölbýl-
ishúsi á varnarsvæðinu.
Þegar öll tilboðin höfðu verið opn-
uð kom í ljós að Eykt ehf. bauð 1,8
milljónir dollara en þeir sem áttu
næsthæsta tilboðið voru íslenskir að-
alverktakar sem buðu 3,2 milljónir
dollara. Þegar tölur allra útboðsaðila
lágu fyrir upplýstu forsvarsmenn
Eyktar ehf. að mistök hefðu átt sér
stað - fyrirtækið hefði ætlað að bjóða
2,8 milljónir dollara - þarna hefðu
orðið prentmistök við tilboðsgerð. Þar
sem stæði 1,8 milljónir dollara ættu
að vera 2,8 milljónir dollara.
Á þessar skýringar féllst varnarlið-
ið með hliðsjón af reglu sem sam-
kvæmt upplýsingum DV hefur gjarn-
an verið kölluð „honest mistake".
Bandarikjamenn töldu að Eykt ehf.
hefði sýnt fram á með gögnum að mis-
tök hefðu verið gerð. Megn óánægja
og undrun hefur skapast í kjölfar
þessa, ekki síst hjá þeim byggingafyr-
irtækjum sem buðu á móti Eykt í
framkvæmdina.
Þegar grunur kom fram um að til-
boð hefði veriö hækkað eftir að út-
boðsgögn voru opnuð óskaði utanrík-
isráðuneytið sérstaklega eftir viðræð-
um við fulltrúa vamarliðsins.
Ekki boðiö út að nýju
Róbert Trausti Árnason, for-
stjóri Keflavíkurverktaka, segir að
fyrirtækið hafl lagt það til, bæði
við varnarliðið og utanríkisráðu-
neytið, að í ljósi þessa yrði verkið
boðið út að nýju. „Það fékk engan
hljómgrunn," sagði Róbert Trausti
við DV.
Gunnar Gunnarsson, skrifstofu-
stjóri varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, segir að Eykt
ehf. muni fá verkið.
„Við áttum fund með vamarliði-
inu og fórum yfir gögn. Þarna
fengum við upplýst að vamarliðið
leyfði þessar breytingar á tilboð-
inu,“ segir Gunnar. Hann segir
varnarliðið hafa gert þetta í ljósi
eigin verklags þar sem ákvæði er í
útboðsreglum um að svokölluð
„honest mistake" geti átt við ef
trúanleg gögn eru lögð fram. í ís-
lenskum útboðsreglum kemur
hins vegar skýrt fram að tilboðum
skuli ekki breytt eftir að útboðs-
gögn eru opnuð.
„í ljósi þessa munum við fara í
viðræður við varnarliðið um að-
lögun bandarískra útboðsreglna
að íslenskum þannig að misskiln-
ingur eins og þessi komi ekki upp
varðandi sameiginleg útboðsmál,“
sagði Gunnar Gunnarsson. -Ótt
Njarðvík:
Vaknaði við
árekstur
Kona á fertugsaldri ók upp á um-
ferðareyju og keyrði niður tvö skOti á
Fjarðarbraut í Njarðvík rétt fyrir
kvöldmat í gær. Hún hafði dottað und-
ir stýri og rankaði ekki við sér fyrr en
hún skall á fyrra umferðarskiltinu, en
þá var of seint að afstýra ákeyrslu á
seinna skOtiö. Konan var flutt á
sjúkrahús og kvartaði undan eymsl-
um í höfði, hálsi og baki. -jtr
Hafnar starfslokasamningi:
Æviráðinn Ár-
nesprestur sit-
ur sem fastast
Jón ísleifsson,
prestur í Árnes-
hreppi á Strönd-
um, hafnaði
formlega tOboði
Biskupsstofu um
starfslokasamn-
ing í gær. Auk
þess hafnar hann
athugasemdum
sem sóknarbörn í
Ámeshreppi hafa
gert um störf og
framkomu séra
Jóns með undir-
skriftalista sem um 80 prósent íbúa
í hreppnum skrifuðu á.
Þorvaldur Karl Helgason biskups-
ritari segist munu fara yfir málið
með lögfræðingum biskupsembætt-
isins eftir helgi. „Við þvingum eng-
an tO eins eða neins. Eina leiðin tO
starfsloka prestsins er að ná ein-
hvers konar samningi við hann,“
segir Þorvaldur.
Séra Jón er æviráðinn sem prestur
í Árneshreppi. Hann er um flmmtugt
og getur þvi samkvæmt öOu setið
áfram þar tO hann verður sjötugur.
Til stendur að leggja niður prestsemb-
ættið í Árneshreppi og sameina það
Hólmavík. „Það verður ekki gert á
meðan séra Jón er prestur," segir Þor-
valdur biskupsritari. -jtr
Færeyskar fyrirsætur:
■slensk umboðskona
sökuð um svik og lygar
Nokkrar færeyskar fyrirsætur hafa
undanfarið sakað Kolbrúnu Aðalsteins-
dóttur, eiganda módelskrOstofunnar
Icelandic Models, um svik í tengslum
við vangoldin laun og aflýsta ferð 18 fyr-
irsætna tO New York. I fréttasyrpu fær-
eyska blaðsins Dimmalætting síðustu
vikur hafa ungar fyrirsætur frá eyjun-
um greint frá því hvernig þær greiddu
fyrirtæki Kolbrúnar aflt frá 200 tO 270
þúsund krónur inn á fyrirhugaða ferð á
módelkeppni í fyrra. Koma Kolbrúnar
tO Færeyja vakti á sínum tíma talsverða
athygli á eyjunum þar sem hún auglýsti
eftir stúlkum tO að uppfyfla mód-
eldraum. I fréttum Dimmalætting lýsa
fyrirsæturnar því hvemig módeldraum-
urinn varð að martröð þegar ferðhmi
var aflýst af óþekktum ástæðum og
fengu þær ekkert endurgreitt. Auk þess
sögðu stúflcur sem störfuðu áður sem
fyrirsætur á vegum Kolbrúnar hana
hafa svikið sig um launagreiðslur.
Skúlagentur
snýttar fyri yvir
200.000 krónur
Skólastelpur sviknar
Frétt færeyska blaösins Dimmalætting.
Kolbrún lýsti því hins vegar yfir í
Morgunblaðinu á þriðjudag að 11 af 18
færeysku stúlknanna hefðu hætt við
New York-ferðina, meðal annars vegna
hryðjuverkaárásanna þann 11. septem-
ber, og kvaðst hún ekki geta neytt fóOí
tfl farar.
Færeyska stúlkan Chanett Danielsen
segist í samtali við DV hafa borgað fyr-
ir ferð sem aldrei var farin. Hún segir
Kolbrúnu ljúga í Morgunblaðinu um
ástæður þess að ferðinni var aflýst.
„Kolbrún sagði okkur að hætt hefði ver-
ið við fyrirsætusýninguna í New York.
Hún hefur ekki borgað mér tO baka og
ég veit ekki tO þess að hún hafi borgað
neinum aftur,“ segir hún.
Foreldrar Chanett lögðu tO þær 250
þúsund krónur íslenskar sem hún
kveðst hafa borgað í hendur Kolbrúnu.
Þeir vom fengnir úr menntunarsjóði
dótturinnar og ákvað hún sjáif að ráð-
stafa þeim á þennan hátt. Hún skrifaði
ekki undir samnnig fyrir afhendingu
peninganna. „Við treystum Kolbrúnu
vegna þess að árið áður fóru færeyskar
stelpur í ferð með henni og létu vel af.
Lögfræðingar og lögregla segja okkur að
ekkert sé hægt að gera, því nú er þetta
bara orð gegn orði,“ segir Chanett.
-jtr
Allir hafa jafna möguleika
- segir Höskuldur Asgeirsson í Leifsstöð
Flugstöðvarfundur var haldinn síð-
astliðinn fimmtudag. Forráðamenn
Flugstöðvar Lefis Eiríkssonar boðuðu
miklar breytingar á húsnæðinu í norð-
urbyggingunni þar sem verslunar-
reksturinn er núna. MikO óánægja er
meðal verslunareigenda með skipulag-
ið en þeim finnst mörgum sem búið sé
að taka frá bestu plássin undir frfliöfn-
ina og að valið standi um piássin sem
rekendur fyrirtækisins vOdu ekki.
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Flugstöðvar Lefis Eiríks-
sonar, segir að í fyrsta lagi hafi verið
skýrt tekið fram á fundnium að einung-
is um hugmyndir og drög að skipulagi
verslunarsvæðis hafi verið að ræða.
„Þessar tiflögur munu eflaust breytast
í gegnum forvalsferlið. Þá geta núver-
Af fundinum sem var haldinn
síöastliöinn fimmtudag.
andi verslunareigendur komið sinum
hugmyndum að,“ segh- Höskuldur.
Hann segir markmiðið með forvalinu
vera að gera verslunarsvæðið fjöl-
breyttara og eftfisóknarverðara fýrfi
farþega að versla. Þá sé verið að
stækka útleigusvæðið á brottfarar-
svæði flugstöðvarinnar um 45%.
„Það gefur okkur möguleika á að
fjölga verslunum og auka þjónustu við
farþega. Við ætlum okkur ekki að valta
yfir neinn og vfl ég taka fram að núver-
andi verslunareigendur hafa jafna
möguleOca og aðrfi á að vera með sinn
rekstur þama í framtíðinni og hvet ég
þá tO að taka þátt í forvalinu en það
verða þefi að gera tO að fá sina verslun
inn,“ segfi Höskuldur.
„Það er mjög algengt að sú fríhafn-
arverslun sem er með vin, tóbak,
snyrtivöru og sælgæti sé með lykfl-
staðsetnfiigu á fríverslunarsvæðinu.
Sams konar fyrfikomulag er t.d. hjá
BAA sem rekur helstu flugstöðvar á
Bretlandseyjum, svo sem Heathrow.
Þó höfúm við 15 tfl 20 ný verslunar-
pláss,“ segfi Höskuldur. -ss
Blaðið í dag
Hamingju-
blómá
heúnOið
Allt í blóma
r Fullnæglng á
/ Z-' ' eftirspum
k'j , ..
Innlent fréttaljós
Riðið um
svarta sanda
og gyllta
Sundreið á
Snæfellsnesi
Hinn feiti
dauði
Ámi Gunnarsson
Sportlegur
og hlaðinn
staðalbúnaði
Reynsluakstur
Mazda 6
Erlent fréttaljós
BUkur á lofti í
veðurfari
jarðar
Davíð á faraldsfæti
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
situr fund forsætis-
ráðherra Norður-
landa og Eystra-
saltsríkjanna í Riga
i Lettlandi á mánu-
daginn. Þaðan fer
hann í opinbera
heimsókn tO Litháens. Því næst fer
Davíð tfl Þórshafnar í Færeyjum
þar sem haldinn verður fundur for-
sætisráðherra íslands, lögmanns
Færeyja og formanns grænlensku
landsstjórnarinnar.
Hörpudiskveiöar bannaðar
Hörpudiskveiðar hafa verið bann-
aðar í Arnarfirði vegna þung-
málmamengunar í fiskinum.
Cadmín í hörpudiskinum er ofan
við viðmiðunarmörk Evrópubanda-
lagsins.ÝHefur þetta vakið athygli
þar sem íslendingar hafa gjarnan
státað af því að veiða sjávarfang í
einu af hreinasta hafsvæði í heimi.
- RÚV greindi frá.
Baldur í afleysingar
Ákveðið hefur verið að Vest-
mannaeyjaferjan Herjólfur fari í
slipp í Fredrikshavn í Danmörku
16. september og á Breiðafjarðarferj-
an Baldur að leysa hann af á meðan.
Viðgerðin mun taka niu daga og er
Herjólfur þá væntanlegur tfl baka
29. september.
Loftsteinn nærri jörðu
Loftstemn sést með berum augiun
frá jörðu um helgina og á að vera
hægt að fylgjast með honum með
kíki ef skyggni er gott. Loftsteinn-
inn, sem ber nafnið 2002 NY40, er
aðeins um 800 metrar í þvermál en
jarðnánd hans verður mest á sunnu-
dag. Þá verður hann í um hálfrar
milljónar kílómetra fjarlægð.
Enn ófundinn
Leitin að ítalska ferðamanninum
Davide Paita, sem saknað er á
Látraströnd, hafði engan árangur
borið þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöld. Aðstæður tfl leitar voru
mjög erfiðar í gær en mannsins
hafði þá verið saknað í átta daga.
Hann er rúmlega þrítugur og hefur
dvalið á landinu í á þriðja mánuð
Maðurinn hóf göngu um Látraströnd
norðan Grenivíkur við Eyjafiörð á
fimmtudag í síðustu viku og hugðist
ganga norður Látraströnd í tvo tO
þrjá daga. Lögreglan á Akureyri hefur
óskað eftfi ábendingum frá þeim sem
kynnu að hafa orðið varfi við ferðfi
ítalans í Eyjafirði og nágrenni síðast-
liðinn hálfan mánuð.
Slátra 65.000 fjár
Matvælafyrirtækið Norðlenska á
Húsavík áæOar að slátra 65.000 fiár
í haust. Það er mikO aukning frá
síðustu sláturvertíð. Tekin verður í
notkun ný vinnslulína sem gerfi
það að verkum að hægt verður að
auka framboð af fersku kjöti. - RÚV
greindi frá.
Stalst í peningakassa
16 ára pOtur hrifsaði fé úr pen-
ingakassa á veitingastaðnum
Quiznos við Suðurlandsbraut, rétt
eftir klukkan 8 í gærkvöld.
POturinn náðist 15 mínútum síðar
skammt frá, þegar lögregla leitaði
hans eftir lýsingu starfsfólks.
-jtr/HKr.