Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Qupperneq 16
16
Helgarblað
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002
DV
Grace Metalious. Metsölubók hennar Peyton Place hlaut yflrleitt lélega dóma. Grace kippti ser ekkl
upp viö þaö og sagöi: „Ef ég er lélegur rithöfundur þá eru ansl margir lesendur sem
hafa slæman smekk.“
Ris Og fall
Grace Metalious er þaö sem kalla má einnar bókar höf-
undur. Skáldsaga hennar Peyton Place varö metsölubók
en Grace tókst aldrei aö fylgja henni eftir.
Grace fæddist árið 1924 og ólst upp hjá móður sinni
i verkamannahveríi í New Hampshire. Faðir hennar
yfirgaf íjölskylduna þegar Grace var tíu ára gömul en
hafði ailt frá byijun verið henni fjarlægur faðir. „Ég
man varla eftir foður mínum og átti aldrei á ævi
minni samtal við hann,“ sagði hún seinna. Grace var
mikill lestrarhestur og byrjaði snemma að skrifa fyr-
ir skúffuna. Hún giftist átján ára gömul George
Metalious en þau voru æskuvinir. Þau eignuðust þrjú
börn.
1 heimabæ sínum vakti Grace athygli vegna
óhefðbundins lífsstíls. Meðan aðrar konur elduðu og
þrifu skrifaði Grace ljóð og smásögur á gamla ritvél.
Hún kvartaði undan því að matseld tæki tíma frá
skriftunum svo fjölskyldan nærðist aðallega á spa-
gettí. Eiginmaðurinn sá að mestu um bömin. Grace
sagði sjálf að það væri rétt sem hafði eitt sinn verið
sagt um hana í æsku; að hún þyrfti bara að vera
inni í herbergi í fimm mínútur og þá væri það orð-
ið að svínastíu. Þegar Grace var ekki heima var hún
á kránni þar sem hún var sögð geta drukkið alla
Ljóð vikunnar
Vaxmynd
- eftir Lindu Vilhjálmsdóttur
Á leið minni
um róngala vaxmyndasafnsins
rek ég augun í mynd
sem við fystu sýn er aðeins endurspegiun
augna minna rauðra
rýnandi í rykið í hltanum og óvœrunni.
Ndkvœmiega séð
er þetta að degi tll
sólln er hótt ó iofti
og fjörðurlnn í klakaböndum
skjanndhvítar vaxmyndirnar
alsettar maígrœnum og íslandsbióum
marblettum og svartar skellurnar
ó sjóndelldarhríngnum hljóta oð vera fjöll.
Undir myndlnnl stendur:
Meðan allt lék í lyndi.
Eins og seglr í grasgrónum sögum
um menn sem þoldu ekki vosbúð.
undir borðið. Hún lagði lítið upp úr útliti sínu, var
þybbin og gekk yfirleitt í gaUabuxum og peysum.
Umdeild metsölubók
Grace vildi koma verkum sínum á framfæri og
skrifaði umboðsmanni eftir að hafa fundið nafn
hans í símaskrá. Hann tók á móti skáldsögu hennar
The Quiet Place sem sex útgáfustjórar hööiuðu. Þá
hafði hún lokið við skáldsögu sem henni fannst enn
betri, Peyton Place. Fimm útgáfustjórar höfnuðu
henni en sá sjötti ákvað að gefa hana út. Útgáfustjór-
inn sem keypti réttinn á bókinni sagði við yfirmann
sinn; „Ég er með handrit sem ég vil kaupa en ég vil
ekki að þú lesir það.“ Seinna spurði yfirmaðurinn
hann af hverju hann hefði ekki viljað leyfa honum
að lesa handritið. „Af því ég vissi að þá hefðirðu
ekki leyft mér að kaupa það,“ var svarið.
Peyton Place kom út þegar Grace var þrjátíu og
eins árs gömul. Bókin opinberaði smábæjarsamfélag
sem var eitrað af hræsni og grimmd. Þama var að
frnna nauðganir, fóstureyðingar og morð. Óhætt er
að segja að bókin hafi valdið fjaðrafoki. Bókasöfn
neituðu að kaupa hana. í Kanada, írlandi og Suður-
„Ferðabækur eru fyrst og fremst mínar
bækur - ég hef alltaf heillast af Sarlægum
löndum og framandi menningu og elska að
ferðast í huganum gegnum slíkar bækur. Að
sitja á sama stað og samt að vera að ferðast. -
Þannig fer ég aftur og aftur á staði sem ég hef
ferðast um og einnig til staða sem ég hef
aldrei komið til en dreymir um að sjá. En af
íslenskum höfundum er Þórbergur Þórðarson
einn sá allra frumlegasti og skemmtilegasti -
Islenskur aðall, Ofvitinn, Bréf til Láru og í Unuhúsi eru
bækur sem ég get endalaust kíkt í og lesið. Innansveit-
arkrónika Laxness er um karaktera sem ég kannast við
úr bemsku minni í Mosfellssveitinni og af afspum.
Hún finnst mér með skemmtilegri bókum hans en ég er
einmitt að byrja að lesa bækur hans aö nýju eftir nokk-
urt hlé.
Steinunn Sigurðardóttir er leiftrandi fyndin, með
fjörlegan stíl. Verk hennar em mér mjög að skapi enda
Steinunn sérlega skemmtilegmanneskja. Vigdís Gríms-
dóttir höfðar líka til mín - dulúðin, mystíkin, hún er oft
torráðin og næstum súrrealísk. Vigdís er heillandi höf-
undur og ég á erfltt með aö gera upp á milli bóka henn-
ar en Grandaveginn, Z ástarsögu og Ég heiti ísbjörg, ég
er ljón nefni ég sérstaklega.
Afríku var bannað að selja hana. Bókin fékk yfir-
leitt afleita dóma, misharða þó. „Það hefði hvorki
átt að skrifa hana né gefa hana út,“ sagði gagnrýn-
andi nokkur. Einn gagnrýnandi var þó stórhrifinn
og bar bókina saman við verk Sherwoods Ander-
sens, John O’Hara og Sinclairs Lewis.
í heimabæ Grace brugðust menn hart við bók-
inni. Grace fékk hatursbréf og börn hennar fóru að
verða fyrir aðkasti en hún bar sig vel opinberlega.
„Ef ég er lélegur rithöfundur þá eru ansi margir les-
endur sem hafa slæman smekk," sagði hún. Peyton
Place rokseldist og var þýdd á niu tungumál. Bókin
færði Grace meiri peninga en hún hafði nokkru
sinni látið sig dreyma um. Hún keypti sér nýtt hús
og nýjan bíl og skildi við eiginmanninn. Hún hélt til
Hollywood með nýjum elskhuga og börnunum sin-
um. Hún hafði verið ráðin sem listrænn ráðunautur
við gerö kvikmyndar eftir sögu hennar.
Kjötmarkaðurinn Hollywood
í Hollywood var komið fram við hana eins og
stjömu, hún ferðaðist um í limósínum og borðaði á
dýrustu veitingastöðum. Hún hitti Jayne Mansfield,
Cary Grant og Frank Sinatra. En þrátt fyrir alla at-
hyglina sem Grace fékk höfðu áhrifamenn í
HoOywood engan áhuga á að fá hana til að skrifa
kvikmyndahandritið að myndinni. Grace fannst
fljótlega eins og verið væri að nota hana í auglýs-
ingaskyni. Hún kallaði Hollywood kjötmarkað sem
væri stjómað af fólki sem lifði í stöðugum ótta við
að missa vinnuna sína. Hún lýsti andrúmsloftinu
sem hræðilega en það sem olli henni mestum óróa
var ótti við að Hollywood myndi misþyrma bókinni
á hvíta tjaldinu.
John Michael Hayes var fenginn til að skrifa
kvikmyndahandritið en hann hafði unnið með Al-
fred Hitchcock og meðal annars gert handritið að
Rear Window. Þegar Hayes hitti Grace spurði hann
hana hvort Peyton Place væri ævisaga hennar. Hún
reiddist svo að hún hellti úr glasi sínu yfir hann.
Þegar stungið var upp á því að Pat Boone léki hlut-
verk í myndinni tók Grace því sem brandara en
komst að því sér til hrellingar að mönnum var al-
vara. Hún lagði á flótta frá Hollywood þegar hún
gerði sér grein fyrir að bók hennar yrði breytt í syk-
ursæta froðu. Þegar hún loks sá myndina sagði hún
að hún gæti ekkert gert annað en að gráta. Myndin
státaði af Lönu Tumer i aðalhlutverki og hlaut
nokkrar tilnefningar til óskarsverðlauna en það
nægði ekki til að róa Grace.
Hallar undan fæti
Grace hafði gift sig í annað sinn en það hjóna-
band var ekki farsælt og hún skildi og giftist á ný
fyrri eiginmanni sínum. Hún skrifaði nokkrar bæk-
ur í viðbót, þar á meðal framhald af Peyton Place en
þær bækur vöktu litla athygli og hlutu vonda dóma.
Grace skildi í þriðja sinn og fékk sér nýjan elsk-
huga, John Rees. Hún lést fertug að aldri árið 1964
af liffarsjúkdómi sem stafaði af mikilli áfengis-
drykkju. Á dánarbeði breytti hún erfðaskrá sinni og
arfleiddi Rees að öllum eigum sínum. Rees reyndist
vera giftur og fimm barna faðir. Börn Grace ve-
fengdu erfðaskrána og fóru með málið fyrir dóm en
töpuðu því. Fjárhagstap þeirra reyndist ekki mikið
því í ljós kom að Grace hafði verið skuldum vafm og
það var ekkert eftir til að erfa. Árið 1964 varð
Peyton Place að framhaldsþætti í sjónvarpi sem
gekk í fimm ár við gífurlegar vinsældir og gerði
Ryan O’Neal og Miu Farrow að stjörnum.
Ævisögur leiðast mér oftast en það gildir
þó ekki um frábærar bækur Guðjóns Frið-
rikssonar um Einar Ben. og Jónas frá Hriflu,
svo og Dags B. Eggertssonar um Steingrím
Hermannsson.
Suður-ameríska töfraraunsæið er líka dá-
samlegt að lesa. Þar fer fremstur Gabriel
Garcia Marquez, svo sem Hundrað ára ein-
semd, Liðsforingjanum berst aldrei bréf og
bækur Isabel Allende og svo bókin Kryddleg-
in hjörtu sem ég man ekki hver skrifaði. Bækumar
hennar Amy Tan eins og Kona eldhúsguðsins verð ég
líka að nefria og bókina Villtir svanir - algerlega
ógleymanleg bók um ótrúlegar þjáningar kínversku
þjóðarinnar á öldinni sem leið, Maó, menningarbylting-
una og einræði kommúnista i Kina.
Spennubækur eru svo alltaf á náttborðinu mínu og
nefni ég bækur Amaldar Indriðasonar og Áma Þórar-
inssonar.
Svo má ég til með að geta þess að ég er nýfarin að
notfæra mér að láta höfunda og leikara lesa fyrir mig,
með þvi að ná mér í hljóðbækur, og þannig upplifi ég
að nýju tímana þegar ég var litil með ömmu minni að
hlusta á útvarpssögumar eða hún að lesa fyrir mig -
maður kemur líka ýmsu í verk á meðan!”
Samt að vera að
ferðast
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir segir frá
uppáhaldsbókunum sínum
Bók sem
skiptir
máli
1984 eftir George Orwell
Gagnrýnandi nokkur sagði eitt
sinn að ef maður vildi skilja 20. öld-
ina þyrfti maður að lesa 1984. Þessi
ógleymanlega bók
segir frá Winston
Smith, mannin-
um sem getur
ekki gleymt því
að hann er
mennskur, og
vonlausri baráttu
hans í þjóðfélagi
þar sem Flokkur-
inn fylgist með
orðum, gjörðum,
hreyfingum og jafnvel hugsunum
þegnanna. Þama er að finna hina
frægu setningu: „Stóri bróðir fylgist
með þér.“ Þetta er bók sem mun
alltaf skipta máli - skrifuð af miklu
hugrekki.
Kvótið
Besti vinur þinn er sá
sem kallar fram það
besta í sjálfum þér.
Henry Ford
Allar bækur
1. Geitunqurinn 1. Árni oq Halldór
2. Leggðu rækt við sjálfan þig.
Anna Valdimarsdóttir
3. Kortabók (slands.
Örn Siqurðsson ritst.
4. Ást á rauðu Ijósi.
Jóhanna Kristjónsdóttir
5. (slenskur jarðfræðilykill.
Ari Trausti oq Raqnar Th.
6. Grafarþögn.
Arnaldur Indriðason
7. Geitunqurinn 4. Árni oq Halldór
8. Ferðakortabók.
Landmælinqar islands
9. Mýrin. Arnaldur Indriðason
10. Dauðarósir. Arnaldur Indriðason
Skáldverk
1. Ást á rauðu Ijósi.
Jóhanna Kristjónsdóttir
2. Grafarþögn.
Arnaldur Indriðason
3. Mýrin.
Arnaldur Indriðason
4. Dauðarósir.
Arnaldur Indriðason
5. Lokavitni. Patricia Cornwell
6. Réttarkrufninq. Patricia Cornwell
7. Ævintýri góða dátans Svejk.
Jaroslav Hasek
8. Napóleonsskjölin.
Arnaldur Indriðason
9. Kona fluqmannsins. Anita Shrive
10. Hringadrottinssaga l-lll. J.R.R.
Tolkien
Metsðlulisti Eymundssonar 1.8.-7.8.
Kiljur
1. SUMMER PLEASURES.
Nora Roberts
2. MERCY. Julie Garwood
3. ENVY. Sandra Brown
Listinn er frá New York Times