Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Qupperneq 25
24
HelQorblctö 33 V LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002
Matur og vín
Umsjón
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
Bleikj a
Bleikja er beinfiskur af laxaætt sem lifir víða íNorður-Evrópu, allt norður að
Svalbarða. Bleikja og urriði eru einu nafni kölluð silungur, enda er margt líkt
með þeim, svo sem lífshættir og bragð. Bleikjan skiptist ísjóbleikju, sem lifir í
sjó en gengur íár til hrggningar, og vatnableikju sem elur allan sinn aldur í
ósöltu vatni. Einnig skiptist hún ínokkur afbrigði þar fgrir utan, misjöfn að
stærð og gæðum. Bleikjan nærist einkum á vatnakröbbum og mglirfum en á
seinni árum er hún víða alin íkerum og þá á aðkegptu, sérútbúnu fóðri. Bleikj-
an er eftirsóttur matfiskur og leggja veiðimenn á sig ferðir, fé og tíma til að
fanga hana á stöng. Eldisbleikja fæst orðið í verslunum allt árið hér á landi og
er hún gfirleitt feitari en sú villta. Bleikja er Ijúffengur fiskur sem gott er að
sjóða, steikja, grilla, baka, grafa og regkja.
Best snöggelduð
- segir Borgþór Egilsson á Tveimur fiskum
Borgþór Egilsson, matreiðslumaður á veitingahús-
inu Tveimur fiskum segir bleikju fínan matfisk en
gæta verði þess að elda hana ekki um of. Hann býður
upp á bleikju bæði steikta og grafna og kveðst hafa
lagt áherslu á einfaldleikann við gerð uppskriftanna.
ásamt sítrónusafanum og fínrifnum berkinum. Þetta
er snöggsteikt og bragðbætt með salti og pipar.
Basildressing
1 dós svrður riómi 10% feitur
heslihnetuolíu og krydda með svörtum pipar úr
kvörn og Maldon-salti. Einnig fara léttbakaðir kirsu-
berjatómatar vel með. Þeir eru skornir í tvennt,
penslaðir með hvítlauksolíu, kryddaðir með salti og
pipar og bakaðir við 120‘C í 6 mínútur.
Steikt bleikja á lárperu með kaldri
basildressingu og bralíandi nýjum
kartöflum
3-4 flök meðalstór bleikja
Flökin eru beinhreinsuð og snyrt og roðið skafið
meö hnif (til að losna við slím). Bleikjan er steikt á
roðhliðinni við meöalhita þar til roðið er orðiö gull-
inbrúnt og stökkt. Þá er henni snúiö við og rétt leyft
að snerta pönnuna. Kryddað með salti og pipar.
1 búnt ferskt basil
búnt fersk steinselia
3 meðalstórir hvítlauksqeirar
1 msk. maiones (má sleppa)
safi úr hálfri sítrónu
salt oq pipar
Grafin bleikja
2 flök meðalstór bleikia
100 a salt
50 a svkur
2 msk. dill
1 msk. dillfræ
1 tsk. fennelduft
hvítur pjpar úr kvórn
«
'
1 meðalstór laukur. fint saxaður
Basillaufin og steinseljan tekin af stilkunum og
maukuð í matvinnsluvél ásamt hvítlauknum. Sýrða
rjómanum, majonesinu og sítrónusafanum bætt í.
Bragðbætt með salti og pipar.
Borðað með nýjum soðnum kartöflum.
Tilvalið er að hafa ruccola-salat með bleikjunni.
Gott er að velta því
upp úr
skvetta af Sambuca
Flökin eru snyrt og beinhreinsuð. Kryddinu bland-
að vel saman og þunnu lagi stráð í botninn á ílátinu
sem grafa á í. Flökin lögð ofan á kryddblönduna með
roöhliðina niður. Kryddblöndunni stráð yfir og Sam-
bucanu skvett yfir i lokin. Þetta klikkar ekki með
sinnepssósu og ristuðu brauði.
Sinnepssósa
4 msk. Diion-sinnep
2 msk, hunanq
2 msk. ferskt dill
1 dl olía
Hvitur pipar. nvmalaður
Sinnep, hunang, dill og pipar er hrært sam-
an. Olían bevtt saman við smátt oa smátt.
2 stk. lárperur, skrældar og kjarninn fjarlægður.
Skornar i teninaa.
Safi oq börkur úr hálfri sitrónu.
Laukurinn er svitaður létt. Lárperuteningarnir
settir á pönnuna
LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002
HelgarbtacJí 33V
25
DV-mynd Teitur
Sítrónan gefur ferskt bragð af
bleikjunni og hér rífur Borgþór
niður börkinn. Hann kappkost-
aði að liafa matreiðsluna ein-
falda til að einhver nennti að
fara eftir uppskriftinni hans.
Hér er lokahönd lögð á skreyt-
inguna. Ferskt mauk úr lauki
og lárperuteningum er lagt á
disk eða fat og snöggsteikt
bleikjuflökin ofan á.
Basildressingu er svo dreift
með fram, auk þess sem hún
er borin með.
Suðrænir ávextir
og eikartónar
- er val Eggerts ísdals hjá Rolf Johansen
Ástralska hvítvínið Penfolds Koonunga Hill
Chardonnay hentar einstaklega vel með bleikju og
öðru fiskmeti, sem og kjúklingi, er mat Eggerts ís-
dals hjá Rolf Johansen. Hann segir Penfolds Koon-
unga Hill Chardonnay líka þekkt fyrir mikil gæði
og hagstætt verð. Þessi víntegund er eingöngu gerð
úr Chardonnay-þrúgunni og kemur að mestu leyti
frá McLaren Vale í SV-Ástralíu.
Penfolds Koonunga Hill Chardonnay er strágult
með grænleitum blæ og angan af ferskjum og
ristaðri eik. í bragði má finna melónu, græn epli
og suðræna ávexti. Eins og áður segir er verðið
hagstætt því nýtt verð í ÁTVR 1. ágúst er 1.250 kr.
Eggert lumar á fleiri áströlskum tegundum mat-
arvíns sem hann telur hæfa einstaklega vel léttum
sjávarréttum, salati og ljósu kjöti. Eitt þeirra er
Bin 65 Chardonnay frá Lindemans Bin sem hann
segir mest selda ástralska hvítvínið í heiminum í
dag. „Það er vegna hins góða jafnvægis á milli
sýru og ávaxtar,“ segir hann. Bin 65 Chardonnay
ætti því að bragðast vel með bleikju og basildress-
ing, eins og þeirri sem Borgþór Egilsson mat-
reiðslumaður er að kynna á síðunni á móti. Það
telst líka vera á þokkalegu verði og merkilegt nokk
þá var það að lækka í verslunum ÁTVR.
Þrúgurnar í Lindemans Bin 65 Chardonnay
koma víös vegar að frá mörgum af bestu vínrækt-
arsvæðum Ástralíu, aðallega þó frá suðaustur-
hluta Ástralíu. Vínið er eingöngu gert úr
Chardonnay-þrúgunni og er látið gerjast í eik-
artunnum úr amerískri og franskri eik sem
gefur víninu fyllingu. Vínið er strágult á
litinn með keim af suðrænum ávöxtum
og ferskri melónu. Þaö hefur góða fyll-
ingu og einkenni þess er ananas, melóna
og suðrænir ávextir í bland við milda
eikartóna.
Lindemans Bin vínin hafa notið óhemju-
vinsælda út um allan heim og hvað eftir
annað hafa þau verið valin „Bestu kaup“ af
hinu virta vínblaöi Wine Spectator. Meðal
annars hefur Lindemans Bin 65 Chardonnay
verið valið „Bestu kaup“ ellefu ár í röð. Egg-
ert segir ástæöuna fyrir vinsældum Bin-vín-
anna vera stöðug gæði ár eftir ár og gott
verð.
Eins og að framan greinir lækkaði
Lindemans Bin 65 Chardonnay í verslunum
ÁTVR í ágúst, úr 1.490 kr. í 1290 kr..
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson