Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Síða 36
AA HeIqqrblað DV LAUGARDAGUR v. ÁGÚST 2002 Sakamál Umsjón I'áll Ásgeir Ásgeirsson Öfugugginn holdi klæddur Kerry Kujau/a yfirgaf háskólann eitt kvöld í þeirri meininqu að hann væri að fara að hitta draumaprinsessuna. Hann hafði kynnst henni á Netinu þremur mánuðum fyrr og þau smellpössuðu saman. Hún hafði daðrað i/ið hann og látið að þvíliqqja að þeirra fyrstu kynni yrðu einnig sérlega náin og Kerry, sem hafði keyptsér ný föt ítilefni af stefnumótinu, var ískýjunum. Skömmu síðar var hann þar íbókstaflegri merkingu þeqar stefnumót hans reyndist ekki vera við draumastúlkuna heldur dauðann. UM ÞRIGGJA MÁNAÐA SKEIÐ HAFÐI tvítugi há- skólaneminn Kerry Kujawa verið að byggja upp heitt ástarsamband. Stúlkan hafði frábært skopskyn, þau áttu mikið sameiginlegt og hún virtist mjög heit fyr- ir honum líka. Kerry hafði hins vegar ekki hitt draumastúlkuna augliti til auglitis. Hann kynntist henni nefnilega á Netinu. Það kom samt ekki í veg fyrir það að hann varð sífellt hrifnari af henni. Þau ræddust við á hverju kvöldi á spjallrásum Netsins. Eitt kvöld bað hann hana að senda mynd af sér. Svar hennar var ögrandi: „Þú þarft ekki mynd, bíddu bara þangað til þú sérð mig holdi klædda, og þá meina ég holdi klædda." Ungi maðurinn fór því á fund hennar en mætti ör- lögum sínum í staðinn. „Þetta var mjög furðulegt mál,“ segir Bob Wiatt, yf- irmaður lögreglunnar i Texas A&M háskólanum, þar sem Kerry las verkfræði á sérstökum skólastyrk. „Hann hélt af stað í þeirri meiningu að hann væri að fara að hitta kynþokkafulla unga stúlku sem hann hefði veriö að sjarma og þau myndu jafnvel eyða nótt- inni saman. Þess í stað sást hann aldrei framar á lífi.“ Tekinn af lífi með linakkaskoti Námsmaðurinn byrjaði að spjalla við Kelly á Net- inu í janúar árið 2000. Á spjallrásinni þar sem þau hittust var meira að segja mynd af ungri, dökkhærðri og myndarlegri stúlku sem sögð var vera af henni. Hjá henni fékk Kerry þær upplýsingar að hún héti Kelly McCauley, 21 árs enskunemi við Texasháskóla í San Antonio. „Ég var viðstödd þegar hann byrjaði fyrst aö spjalla við hana,“ minnist móöir Kerrys, Lucille Kujawa, döpur í bragði. „Þegar ég horfi aftur átta ég mig á því hvað hann var í slæmri stööu við að hefja þetta sam- band því hann gat ekki horfst í augu við manneskj- una og dæmt um persónuleika hennar. Hann var for- vitinn." Kerry yfirgaf háskólasvæðið 7. apríl árið 2000 til að hitta Kelly í fyrsta sinn. Hann var svo spenntur að hann keypti sér föt samkvæmt nýjustu tísku fyrir fund þeirra. Séu höfð í huga ögrandi skilaboð hennar um það að engin þörf væri á myndum því þau myndu brátt hittast holdi klædd er ekki ólíklegt að hann hafi búist við því að þau myndu eyða nóttinni saman. En allt fór á annan veg. Tólf dögum síðar fannst rotnandi lík Kerry Kujawa á akri. Hann hafði verið skotinn einu sinni í hnakk- ann. Tvöfalt líf Kelly McCauley Fjölskylda Kerrys var alls ekki áhyggjufull þegar hann kom ekki strax heim frá San Antonio. Þau fengu tölvupóst sem þau töldu vera frá honum þar sem seinkunin var útskýrð: „Ég kem eftir nokkra daga, skemmti mér vel, allt í besta lagi." í rúmlega viku bárust skeyti á spjallrásina þar sem Kenny Wayne Lockwood. Kerry hafði kynnst Kelly þar sem sagðar voru fréttir af framgangi mála þeirra í millum, meðal annars þær gleðifregnir að net-parið væri trúlofað. Eftir að borin höfðu verið kennsl á lík Kerrys með aðstoð tannlæknaskýrslna fletti lögreglan hins vegar loksins ofan af tvöföldu lífi Kelly McCauley. Hún var karlmaður, Kenny Wayne Lockwood, rúm- lega þrítugur atvinnulaus tölvunjörður sem eyddi mest af tíma sínum á spjallrásum á Netinu. Skólafé- lagar Kerrys sögðu lögreglunni frá spjallrásinni og nafnið Kelly kom upp úr dúrnum ásamt símanúmeri sem hún/hann hafði látið öðrum námsmanni við skólann í té. Númerið var rakið til Kenny Lockwood. Hann var handtekinn viku síðar og ákærður fyrir morð. Samkvæmt frásögn lögreglunnar hafði Kerry lagt hart að Kelly að þau myndu hittast augliti til auglitis og þegar Kenny gat ekki vikist undan lengur myrti hann Kerry til að forðast það að flett yrði ofan af hon- um sem svikara og öfugugga. Til þess að reyna að slá ryki í augu lögreglunnar sendi hann foreldrum Kerrys skUaboðin og sendi fréttir af þeim „skötuhjú- um“ á spjallrásina. Hann hafði meira að segja gert sér ferð í Texas A&M háskólann þar sem Kerry var við nám, notað lykla sem hann hirti af líkinu og eytt öllu varðandi Kelly úr tölvu ástsjúka námsmannsins. Herbergisfé- lagi Kerrys lét sér hvergi bregða því Kenny hafði áður sent honum tölvupóst í nafni Kerrys tU að láta hann vita af því að bróðir Kelly myndi koma við til að sækja einhverjar pjönkur Kerrys. Annar plataður Skólafélagi Kerrys, Scott Schneider, hafði einnig látið blekkjast og hafði meira að segja hitt Kenny Lockwood án þess að átta sig á að hann væri „Kelly". Hann hafði skipst á skeytum við KeUy og beðið hana að fylgja sér á hafnaboltaleik. Hún svaraði að hún kæmist ekki en lagði tU að eldri bróðir hennar, Isaac, færi í staðinn. Hann reyndist vera hávaxinn, dökk- hærður og grannur. Hann var með skemmdar tennur og vUdi lítið tala um „systur" sína þegar Schneider spurði hann. Lagði tU að þau hittust frekar sjálf. Þegar lögreglan sýndi Scott Schneider myndir af Kenny Longwood sá hann strax að hann og Isaac, „eldri bróðirinn", voru einn og sami maðurinn. Það var skUjanlega áfaU. „Ég var reiður yfir því að vera plataður," sagði hann. „Ég kann ekki að meta það þegar einhver þyk- ist vera stelpa. En eftir á að hyggja held ég að ég sé stálheppinn að vera enn á lífi.“ Hann minntist einnig á það sem mörgum foreldrum hlýtur að finnast um Netið: „Á Netinu getur fólk þóst vera hver sem er án þess að nokkur viti hvað er satt og hvað er logið.“ Kenny Lockwood játaði glæp sinn undanbragða- laust fyrir lögreglu. í staðinn fyrir að lýsa sig sekan af ákæru um morð er talið líklegt að hann verði dæmdur í lífstíðarfangelsi en hljóti ekki dauðarefs- ingu. Móðir hins myrta ferðast nú um Banda- ríkin og heldur fyrirlestra i háskólum um hætturnar sem leynast á Netinu. í einum skóla sagði hún foreldrum: „Ef börn ykkar eyða miklum tíma á Net- inu, sérstaklega seint á kvöldin, eða ef þau fá simtöl frá ókunnugum ættuð þið að hafa varann á. Foreldr- ar geta gripið til ýmissa aðgerða til að tryggja öryggi barna sinna á Netinu. Hægt er að hafa tölvuna í her- bergi sem fjölskyldan notar öll i staðinn fyrir að hafa hana i herbergi barnsins. Hægt er að kaupa sér- stakan hugbúnað sem ætlaö er að vernda börn með því að skrá ferðir þeirra á Netinu og hindra að þau komist inn á vissar síður.“ Ræðu sína endaði hún á persónulegum nótum með tárin í augunum: „Hefði ég verið meira á verði væri sonur minn núna um það bil að ljúka háskólanámi með dásam- legt líf fram undan. En ég gætti ekki að mér. Hvort sem um er að ræða fjármálasvindl, kynlíf eða morð eru spjallrásir Netsins kjörinn vettvangur fyrir fólk Kerry Kujawa. sem er á höttunum eftir grunlausum fórnarlömb- um.“ Það verður að segjast að þessi orð hljóma nötur- lega og sérlega sönn í ljósi síðustu atburða í Bret- landi þar sem tveggja lítilla stúlkna, Holly og Jessicu, hefur verið saknað í marga daga og grunur leikur á að sá sem nam þær á brott hafi kynnst þeim á Netinu. -fin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.