Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Side 39
LAUGARDACUR 17. ÁGÚST 2002 H&tqarblcið DV 47 Léttsveit Harmóníkufélags Revkjavíkur þenur nikkurnar og félagar sitja á dráttarvagni stórs flutningabíls. Myndin er tekin á íslendingadeginura í Gimli. . u JpS'- i fslendingadagurinn í Ginili var einn af hápunktum hátíðarinnar og myndin var tekin við það tilefni. Ættjarðarlög í ævintýraferð Ekki síst voru það íslensk lög af ýmsum toga sem slógu í gegn sem sannar vel hve römm taugin til ís- lands er hjá því fólki sem á ættir sínar að rekja til „gamla landsins" sem svo er nefnt. Gleðin alltunilykjandi „Hápunktur þessarar ferðar finnst mér kannski vera sá góði andi sem ríkti í ferðinni en ekki síður hversu góðar undirtektir við fengum hvarvetna. Mér finnst gleð- in hafa verið alltumlykjandi í þessari ferð,“ sagði Jón Berg Halldórsson, formaður Harmonikufélags Reykjavík- ur, þegar hann sagði DV ferðasöguna stuttlega. Haldið var utan þann 30. júlí og flogið tii Minneapolis í Bandaríkjunum. Þar tók á móti hópnum Sumarliði Ingimarsson sem hefur búið í Kanada í fjórtán ár. Hann var fararstjóri hópsins allan tímann og á öðrum degi ferðarinnar sýndi hann ásamt Torfa Guðbrandssyni hin- um langt að komnu löndum sínum meðal annars tví- buraborgirnar St. Paul og Minneapolis. Síðan var haldið áfram til Norður-Dakota. Það er eitt af þeim fylkjum sem íslendingar fluttust hvað helst til. Þar skoðaði hópurinn meðal annars landnemasafnið og eins íslenska fylkisgarðinn. fslenska í fjórða lið Einnig voru heimsóttir nokkrir af afkomendum ís- lensku landnemanna. „Gjaman er þetta fólk sem er í þriðja eða fjórða ættlið frá hinum íslensku frumbyggjum sem settu sig niður þarna. Engu að síður er það mjög at- hyglisvert hve margir úr þessum hópi eru vel mæltir á íslenska tungu. Maður heyrir hana víða talaða þarna úti,“ sagði Jón Berg. Að kvöldi fjórða dags ferðarinnar var komið til Mountain sem er nær alíslenskur bær, með dvalarheim- Félagar íHarmonikufélagi Reykjavíkur komu heim nú í vikunni eftir vel heppnaða ævintýraferðsem þeir fóru um bgggðir Vestur-íslendinga íKanada. Ferðin gerði góða lukku bæði meðal hinna íslensku harmonikuunnenda sem utan fóru, sem og þess fólks sem þeir heimsóttu og léku fgrir, meðal annars á sjö tónleikum. ilið Borg Home fyrir aldraða Vestur-íslendinga. Mjög skemmtilegt var að á sama tíma var Karl Sigurbjörnsson biskup þar á ferð og var með útimessu á Borg Home-lóð- inni sem mjög gaman var að taka þátt í. ísland ögrum skorið Alls voru fjörutíu og tveir í þessum góða hópi frá Harmonikufélagi Reykjavikur. Fólk skemmti sér hið besta, sama hvert tilefnið var eða aðstæðurnar. „Sumir myndu ef til vill sétla að þreytandi hefði verið og jafnvel leiðinlegt að fara í átta klukkustunda rútuferð en svo var alls ekki. Það var sungið og spilað og hafðar yfir alls konar vísur og gleðskapur. Þetta er nú dæmi um hve margt má sér til gamans gera á ferðalögum," segir Jón Berg. Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur lék fyrir fólk á íslendingadeginum í Gilmi þann 5. ágúst. Góður róm- ur var gerður að leik sveitarinnar, en Jón Berg segir að stemningin á þessum degi sé fáu öðru lík. Ætla megi að á bilinu 40 til 50 þúsund manns séu við hátíðahöld dags- ins sem séu afar fjölbreytt, þó að skrúðgangan sé há- punktur dagsins. „Á tónleikum léttsveitarinnar var viðhafður sá siður að byrja alltaf á því að leika lagið Blessuð sértu sveitin mín og endað var á laginu ísland ögrum skorið. Þetta féll í góðan jarðveg og fólk kunni vel að meta þessi ættjarð- arlög og önnur sem sveitin lék. Það er greinilegt að ís- lensk lög eru vel þekkt í Kanada. Til dæmis gátu allflest- ir sungið með þegar leikið var lagið Komdu og skoðaðu í kistuna mina,“ segir Jón. Alls lék léttsveitin á sjö tónleikum, auk þess sem hin- ir íslensku harmoníkufélagar komu fram við fjöldamörg önnur tækifæri og þöndu harmonikur sínar. Komdu og sltoðaðu í kistuna mína „í þessari ferð hittu nokkrir af félögum okkar íslenska ættingja sína þarna úti. Sumir hittu fólk sem þeir hafa haldið sambandi við í gegnum árin en í sumum öðrum tilvikum var um að ræða fyrstu fundi fólks. Oft urðu úr þessu hin skemmtilegustu ættarmót," segir Jón Berg. Einstök finnst honum sagan af tveimur konum í hópi íslenska harmonikufélagsins sem komu á hestabúgarð þar sem voru nokkrir íslenskir klárar. Þarna voru nokkrar konur að tala saman á ensku og hestarnir litu ekki við þeim en þegar þær íslensku fóru að tala saman komu hestarnir strax til þeirra og sýndu gleði með því að hneggja og reka snoppurnar framan í þær og segir Jón að af þessu megi ráða að það sé á færi fleiri en bara mennskra íslendinga að skilja ástkæra, ylhýra málið. Eitt stórt ævintýri Kanadasaga Harmonikufélags Reykjavíkur veröur ekki rakin hér í smáatriðum. Eitt stórt ævintýri er meginkjarninn i frásögn Jóns af ferðinni og segir hann fólk vera hæstánægt. Undirbúningur að þessari ferð tók tvö ár - og hafi hann verið vel þess virði, en áður hafa félagsmenn meðal annars heimsótt Dan- mörku og Færeyjar. „Mér finnst líklegt að næst fórum við eitthvað suður á bóginn," segir Jón Berg Halldórs- son og segir fólk þar hafa i huga Mið-Evrópu eða Vín. Um það sé þó ekki tímabært að fjölyrða nú. Þess skal að lokum getið að farþegi í þeirri þotu Flugleiða sem flutti félaga í Harmonikufélagi Reykja- víkur vestur um haf og var með ólæti var á engan hátt tengdur félaginu og ekki í hópi félagsmanna, eins og áður hafði komið fram i fréttum DV. Er beðist vel- virðingar á því ranghermi og þeim óþægindum sem það hafði í för með sér. -sbs GARNÖTT A CHAMPIONS CAFÉ Grafarvoisbúar skemmta sér alltaf vel é Champions Hllémsveitln Vírns lefkur fyrlr dansl Frábær stemming föstudags- og laugardagskvöld frá 17 - 23 stór bjór á kr. 350 Stórhöfði 17 • www.champions.is • Textavarp 668 aUt morandi i tilboOum!! i BEINNI UM HELGINA M.A. 17/8 K L. 14.00 MAN UTD - WBA OG 18/8 K L. 12.30 ASTON VILLA - LIVERPOOL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.